Morgunblaðið - 28.04.2002, Page 49

Morgunblaðið - 28.04.2002, Page 49
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 49 Símar: 515 1735 og 515 1731 Bréfasími: 515 1739 Farsími: 898 1720 Netfang: oskar@xd.is Utankjörfundaratkvæ›agrei›sla vegna sveitarstjórnarkosninganna 25. maí nk. er hafin. Kosi› er hjá s‡slumönnum og hreppstjórum um land allt. Í Reykjavík er kosi› í Skógarhlí› 6 virka daga kl. 9.00 – 15.30. Utankjörsta›askrifstofan veitir allar uppl‡singar og a›sto› vi› kosningu utan kjörfundar. Utankjörsta›askrifstofa Sjálfstæ›isflokksins Sjálfstæ›isfólk! Láti› okkur vita um stu›ningsmenn sem ekki ver›a heima á kjördag, t.d. námsfólk erlendis. Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæ›, 105 Reykjavík RAÐGREIÐSLUR Sölusýning - Sölusýning 10% staðgreiðsluafsláttur Sími 861 4883 á nýjum og gömlum handhnýttum austurlenskum gæðateppum á Grand Hóteli við Sigtún, Reykjavík, í dag, sunnudag, 28. apríl frá kl. 13-19 Glæsileg teppi á mjög góðu verði                                                                                      !  "  #$$#%#$$&     '     (               )(%  *   *    +        *  '%   ,       *      -    .  . ..            (    . .        %      ' - /.   .     "    /              +          -  00 12$   * 3#   ,       00 4&$$    5      - .  / . 6 *    """!  # !   /     ''       )   .    ''        .  7       % / 7     . ''       ,  * * 31$ 431# "'         .           $  # !           /        7    *  ##   ''    .  .    8      *  .  /  .      Fermingarnáttföt Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433. Náttskyrtur - Sloppar Mikið úrval GUNNAR Marel endurvakti forn- an sið Íslendinga, smíðaði skip og lagði í haf. Já, í kjölfar forvera okkar. Sigldi til Ameríku með glæsibrag og skilaði fleyinu yfir hafið og ávann sér hrifningu allrar þjóðarinnar. Í Ameríku vakti þessi atburður mikla athygli og varð mikil landkynning. Nú virðist sem þessi nútímavík- ingur verði að kosta þennan þátt í sögu okkar úr eigin vasa. Allri þjóðinni til skammar. Víkingaskip- ið Íslendingur er orðinn myllu- steinn um háls höfundar síns. Þarna sýnist mér mörlandans forni dragbítur kominn ljóslifandi. Nú er ekki eins og við Íslendingar séum að tapa á þessu framtaki Gunnars Marels, heldur höfum við þarna minnisvarða úr sögu okkar sem styrkir þjóðarstoltið. Ég sé fyrir mér skipið Íslending á hafn- arbakkanum sem fyrstu sjón gesta er hér koma að landi og hafa ít- arlega sögu af landafundum okkar í vesturvegi. Mér dettur fyrst í hug að höfða til forsætisráðherra að taka af skarið og láta til sín taka og koma Íslendingi heim, þangað sem hann á heima, og þar með undirstrika þann sannleik að við vorum þarna á ferð, á þeim slóðum sem sagan segir okkur. Ég held að hann sé sá maður sem væri vísastur til að af- greiða þetta réttlætismál án þess að spyrja kóng né prest. Þarna kæmi til sögunnar þáttur sem óbornir Íslendingar munu virða við þá er styrktu þennan minn- isvarða sem víkingaskipið Íslend- ingur er. Ég var eitt sinn á ferð í London og skoðaði hið fræga seglskip Cutty Sark, þar sem því hefur ver- ið komið fyrir í þurrkví við Tham- esfljót, og er nánast eins og þegar það kom úr síðustu ferð sinni frá Austurlöndum. Skipið er talandi tákn úr sögu Bretaveldis á þessum tíma. Þarna eru Bretar að koma í veg fyrir að þessi þáttur úr sögu þeirra fyrnist. Mikil örtröð ferða- manna var við skipið og greiddi aðgangseyri til að komast að því. Hvað gerum við? EINAR SVEINN ERLINGSSON, Kópavogsbraut 11, Kópavogi. Víkinga- skipið Ís- lendingur Frá Einari Sveini Erlingssyni: ÉG GLADDIST þegar ég fletti sunnudagsmogganum (21.4.) og rak augun í grein um þig undir formerkj- unum „hvar eru þau nú“. Umfjöllun um þrautseiga brautryðjendur er alltaf vel þegin og víst er að þú hefur ekki alltaf fetað troðnar slóðir. En mér sárnaði svolítið þegar leið á lest- urinn og þú nefndir til sög- unnar merkilega teiknimynd sem þú gerðir um djáknann á Myrká. Á þessum tíma var ég viðriðinn kvik- myndagerð, einkum hljóð og tónlist. Þú hafðir nefnt við mig þessa teikni- mynd og beðið mig að skálda nokkur stef sem nota mætti í hana. Þú hafðir á orði að ekkert tal yrði í myndinni, bara tónlist, til að gera markaðssetn- ingu erlendis einfaldari. Þegar nær dró ræddir þú við mig hvort góð hug- mynd væri að fá Hilmar Örn í lið með okkur og við myndum gera þetta saman. Ég tók að sjálfsögðu strax vel í það, þekkti Hilmar að góðu einu en hafði aldrei unnið með honum, enda við svosem að fást við svipaða hluti. Samvinna okkar Hilmars var með miklum ágætum og í heila viku fyrir frumsýningu teiknimyndarinn- ar gerðum við ekkert annað en að semja og spila tónlist og hljóðef- fekta. Með okkur var Scott nokkur MacKenzie, vinur Hilmars, og sá var betri en enginn. Hreinn snillingur í öllu sem viðkemur hljóðsöfnun og endurvinnslu eða sampling á út- lensku. Reyndin varð líka sú að hljóðmynd Djáknans var, þegar upp var staðið, hrein tónstef til helminga á móti óræðum hljóðeffektum. Og þá kem ég að sárindum mínum. Við Hilmar höfðum sett okkur í samband við Jórunni Viðar til að fá leyfi til að styðjast við gamalt stef sem við töld- um að væri eftir hana. Hún sagði það sjálfsagt en bætti við að hún hefði ekki samið stefið heldur væri það gömul þjóðvísa sem hún hefði útfært í verki fyrir selló. Okkur væri því frjálst að nýta stefið að vild. Við gerðum það en sá hluti er aðeins brot af þessu nær hálftíma langa tón- og hljóðverki sem við púsluðum saman fyrir þig. Ég samdi að auki ein fjögur stef, sem eru mitt höfundarverk frá grunni, og kom ég með þau fullmót- uð til leiks. Hilmar gerði stórkost- lega hluti með rytma og „sömpl“ og saman mynda þessir bútar okkar, ásamt og með stefjum sem urðu til í okkar samvinnu, afar merkilegt, samfellt tónverk sem við nefndum einfaldlega „Djáknann“. Ég man að það stóð tæpt að við næðum að klára fyrir tilskilinn tíma. Myndin hafði verið sett á dagskrá hinn 6. janúar, á þrettándanum, en við fórum ekki í stúdíó fyrr en um áramótin. Við sluppum fyrir horn en gerðum grín að því, hvor við annan, að ekkert ætti nú eftir að fara úrskeiðis, nema þá ef þú yrðir fyrir bíl á leið þinni upp á Laugaveg í Sjónvarpshúsið. En þetta blessaðist allt, myndin var sýnd á áður auglýstum tíma og vakti athygli. Við vorum stoltir af verki okkar og töluðum um að réttast væri að gefa það út á diski með einhverj- um smávægilegum breytingum þó. Við Hilmar erum í kreditlista mynd- arinnar báðir nefndir höfundar og samkomulag okkar þar um að við ættum þetta saman. Tillegg okkar var nær jafnt þegar allt er talið og því sárnaði mér að þú skyldir fara rangt með í frásögn þinni í greininni góðu. Rétt skal vera rétt og ég er ósáttur við að vera ekki nefndur á nafn þegar rætt er um tónverk sem ég sannanlega á helming í. Einkum og sér í lagi þegar um er að ræða verk sem við höfundarnir tveir erum ákaflega ánægðir með. Einhvern tíma fáum við svo kannski líka greitt fyrir þessa vinnu okkar við Djákn- ann og þá verðum við enn ánægðari. Bestu kveðjur, HJÖRTUR HOWSER, tónskáld, kvikmyndagerðar- og hljómlistarmaður. Hafa skal það sem sannara reynist Frá Hirti Howser: Hjörtur Howser MJÖG villandi fyrirsögn birtist í Mbl. síðasta vetrardag á bls. 9, en þar segir, að dómari hafi vísað frá dómi kröfum tveggja ermskra kvenna, sem synjað var um póli- tískt hæli á Íslandi, og hafa höfðað mál til að fá úrskurði Útlendinga- eftirlitsins hnekkt. Hið sanna er, að ríkið krafðist þess, að málinu yrði vísað frá dómi, þar sem það var búið að færa konurnar með valdi úr landinu, og þar með væri brostinn grundvöllur málsins. Þessari kröfu ríkisins var hafnað, og mun málið sæta efnismeðferð. Dómarinn taldi, að konurnar hefðu lögvarða hagsmuni af því að fá dæmt, hvort Útlendingaeftirlitið hefði staðið rétt að úrskurði sínum. Þá var einnig synjað þess að vísa frá dómi varakröfu um bann við endurkomu til landsins í þrjú ár, og gilti þetta bann einnig um önnur Norðurlönd. Aðeins var vísað frá varakröfu um, að dómurinn dæmdi konunum rétt til að fá hæli af mannúðar- ástæðum og almennt dvalarleyfi, og á þeim forsendum, að dómurinn hefði ekki slíkt vald. Nú verður það borið undir dómstóla, hvort kon- unum hafi með ólögmætum hætti verið synjað dvalar með þessum hætti, og sýnist því eðlilegt að gera megi dómkröfu um, að þær eigi þennan rétt. Þá má einnig deila um, hvort vísa megi varakröfu frá dómi, áður en tekin er efnisafstaða til aðalkröfu, því að varakrafan kemur því aðeins til skoðunar, að synjað sé um aðalkröfuna. Hefur úrskurðurinn því verið kærður til Hæstaréttar. Raunar kemur fram í fréttinni, að máli kvennanna var ekki vísað frá dómi, heldur aðeins varakröf- um, eins og rakið er hér að ofan. Er því óskiljanlegt, hvernig blaða- manninum datt í hug að gera auka- atriði málsins að höfuðfyrirsögn. HARALDUR BLÖNDAL hrl. Kröfum ermskra kvenna ekki vísað frá dómi Frá Haraldi Blöndal:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.