Morgunblaðið - 28.04.2002, Blaðsíða 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ný kynslóð
grenningarefna!
„Það er ekki um að villast
að Biosculpt er áhrifarík
aðferð til að koma
líkamanum í form. Ég finn
strax á 4. viku að mittismál
mitt hefur minnkað og
sætindalöngun er mun
minni. Neglur og hár hafa
styrkst og mér líður mjög
vel og mæli því eindregið
með Biosculpt!“
Ásta Sigvaldadóttir
„Biosculpt kom mér
þægilega á óvart. Eftir
aðeins 3 vikur hefur ummál
minnkað og heil 2 kíló
farin! Mér líður mjög vel,
hef meiri orku, melting er
betri, sætindalöngun er
alveg horfin og ég sef
betur og vakna endurnærð.
Ég mæli hiklaust með
Biosculpt og hlakka til að
halda áfram!“
Unnur Teits Halldórsdóttir
Næturmegrun
Biosculpt inniheldur
ekki örvandi efni
sem skaðað geta
líkamann
- með Biosculpt
Fitubrennsla í svefni
Viðhald vöðva
Eykur orku og úthald
Bætir meltingu
Dregur úr sykurlöngun
Frábær árangur!
www.lyfja.is - netverslun
BÍLSKÚRSROKKIÐ banda-ríska er í milli sókn, sjá tilað mynda velgengni Strokesog vel heppnaða tónleika
þeirrar sveitar hér á landi fyrir
skemmstu. Aðrar sveitir eru fram-
arlega í slíku rokki, til að mynda
White Stripes, sem væntanleg er
hingað til lands í haust, BRMC, Von
Bondies og svo má nefna. Ekki eru
aðeins bandarískar rokksveitir á kafi
í bílskúrsrokkinu því ein sú ötulasta
á því sviði er sænska sveitin The
Hives, sem er víst einnig væntanleg
hingað til lands með haustinu.
Dularfullur höfuðpaur
Eitt af því sem þeir Hives-félagar
hafa nýtt til að vekja á sér athygli er
að halda því fram að dularfullur
maður, Randy Fitzsimmons, sé höf-
uðpaur sveitarinnar, hann hafi kall-
að þá félaga saman með bréfi fyrir
níu árum, semji öll lög og ákveði út-
litið. Þeir félagar spila með sögunni,
segjast ekki mega tala um
Fitzsimmons, sem sé vissulega til,
en menn hafa gert því skóna að ann-
aðhvort sé hann einskær tilbúningur
eða einhver liðsmanna skýli sér á
bak við þetta dulnefni.
Hives-félagar gæta líka að því að
vera eins til fara, nánast í einkenn-
isbúningum eins og sjá má á með-
fylgjandi mynd, að sögn til að undir-
strika að allir stefni þeir að því sama.
„Það er gaman að klæða sig upp, að
vera í einkennisfötum, og það gerðu
líka allir grunge-gaurarnir, þótt þeir
hafi þóst vera frumlegir.“
Það er svo í takt við annað að allir
hafa þeir dulnefni; Howlin’ Pelle
syngur, Nicholaus Arson leikur á
gítar, dr. Destruction á bassa, Chris
Dangerous á trommur og Vigilante á
gítar, en þess má geta að breskir
poppblaðamenn hallast að því að
Nicholaus Arson sé Randy Fitzsim-
mons.
12.000 íbúar og pylsuvagn
Þeir lýsa því svo að Randy Fitz-
simmons hafi sent hverjum fyrir sig
bréf þar sem hann lagði til að þeir
stofnuðu hljómsveit sem heita ætti
The Hives. Í bréfunum stóð að þeir
ættu að hittast á ákveðnum stað og
stund og þar sem þeir höfðu ekkert
annað að gera slógu þeir til. „Við
náðum strax vel saman,“ segir
Howlin’ Pelle, „en það tók okkur
nokkurn tíma að verða nógu góðir
því við höfðum góðan smekk en vor-
um slappir í að skila þeim smekk í
tónlistina.“
Hvernig sem uppruna sveit-
arinnar er háttað þá vakti hún fyrst
athygli í heimabænum, Fagersta í
Svíþjóð, fyrir sjö árum og í kjölfarið
bauðst henni útgáfusamningur.
Fyrsta smáskífan, Oh Lord! When?
How? kom út 1996 og ári síðar breið-
skífan Barely Legal sem náði mikilli
hylli í Svíþjóð og vakti einnig athygli
utan landsteinanna sem fylgt var
eftir með tónleikahaldi víða í Evrópu
og einni ferð til Bandaríkjanna.
Stuttskífa númer tvö, a.k.a. I-D-I-
O-T, kom út 1998 með fjórum nýjum
lögum, en eins og sagan er rakin á
vefsetri sveitarinnar slitnaði sam-
band þeirra félaga við hinn dul-
arfulla hr. Fitzsimmons og um tíma
voru þeir í fjötrum kvíða og óörygg-
is. Þá tóku að berast lagabútar víða
að úr heiminum sem þeir púsluðu
saman og úr varð efni á næstu breið-
skífu, Veni, Vidi, Vicious! sem barst
loks til landsins fyrir helgi.
Fagersta er smábær í Mið-
Svíþjóð, „12.000 íbúar og pylsu-
vagn“, eins og þeir félagar lýsa
heimabæ sínum. Þeir segja að fá-
mennið hafi haft sitt að segja með af-
stöðu þeirra til tónlistarinnar; þeir
búist ekki við neinu. „Þegar maður
er að koma saman rokksveit í bæ þar
sem eru kannski 20 rokkáhugamenn
býst maður ekki við neinu, við hugs-
um bara um það að gera okkur sjálf-
um til hæfis. Fyrir vikið held ég að
við séum að ná þessum árangri sem
er þegar orðinn mun meiri en okkur
hefði rennt í grun.“
Svíar hræðast ekki rokkið
The Hives hafa verið lengi að og
breyst nokkuð í gegnum árin, lést og
hægt eilítið ferðina eins og heyra má
á eldri plötum. Margir hafa orðið til
að gagnrýna sveitina fyrir að vera
ekki raunveruleg bílskúrssveit,
segja að liðsmenn hennar hafi aldrei
leikið í bílskúr eða í það minnsta fyr-
ir svo löngu að ekkert af þeirri
stemningu sitji eftir í tónlistinni.
Þegar gengið er á þá með áhrifa-
valda kemur varla á óvart að The
Sonics séu þar á meðal, enda eft-
irminnilega groddaleg bílskúrssveit
og frumherji í þeirri gerð tónlistar
sem ofangreindar sveitir, og the Hi-
ves, eru að fást við í dag. Hives-
félagar leggja og jafnan áherslu á að
innblástur þeirra koma vestan yfir
Atlantshaf, ekkert komi frá Bret-
landi enda kunni menn þar ekki að
leika rokk.
Þeir segja að Svíar hafi alla tíð
verið óhræddir við að rokka ólíkt
öðrum þjóðum. „Frakkar eru til að
mynda skíthræddir við að rokka og
Kanadamenn eru meira að segja
hræddir við að sleppa sér í villtu
rokki.“
The Hives leika eins konar rokk-
pönk, ekki eins lagrænir (laglegir)
og Strokes og ekki eins hráir og
White Stripes svo dæmi séu tekin.
Bílskúrsrokkið gengur ekki síst út á
það að láta hlutina vaða, að sleppa
sér og hamast sem mest menn mega.
Fátt er skemmtilegra en tónleikar
þar sem slík tónlist er í algleymingi
og ef nógu hátt er stillt skiptir
kannski ekki höfuðmáli hvort sveitin
á sviðinu sé alvöru bílskúrsrokkarar
eða bara menn sem eru í þykjustu-
leik.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Sænskir villimenn
Bílskúrsrokkið leggur undir sig heiminn eins og
sannast hefur á fjölda slíkra sveita undanfarið. Ein
þeirra hljómsveita sem hæst hafa nú um stundir er
sænsk, The Hives, sem er meðal annars á leiðinni
hingað til lands í haust ef allt gengur eftir.