Morgunblaðið - 07.05.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.05.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isLiðsstyrkur til FH í hand- knattleik karla / B1 KA vann á Hlíðarenda og fjórði leikurinn staðreynd / B2 12 SÍÐUR48 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM STÚLKAN sem lést af slysförum á Patreksfirði á föstudag hét Hjördís Lára Hjartardóttir, til heimilis í Að- alstræti 17. Hjördís var fædd 15. maí 1992 og átti þrjú systkini. Hún lést þegar hún var við leik ásamt öðru barni á heimili sínu. Sippuband hert- ist að hálsi hennar með þessum hörmulegu afleiðingum. Lést af slysförum TÆPLEGA 200 einstaklingar með háskólamenntun eru á atvinnuleys- isskrá hjá Vinnumiðlun höfuðborg- arsvæðisins. Hugrún Jóhannesdótt- ir, forstöðumaður Vinnumiðlunar, sagði að um væri að ræða háskóla- menntaðar stéttir eins og viðskipta- fræðinga, verkfræðinga, tæknifræð- inga, lögfræðinga og fólk með menntun á sviði félagsvísinda og hugvísinda. Eins hefði ungu fólki fjölgað á atvinnuleysisskrá. Hún sagði hins vegar að batamerki hefðu komið fram í apríl. Nýskráningum hefði fækkað og atvinnutilboðum fjölgað. „Við erum núna með tæplega 200 manns með háskólapróf á atvinnu- leysisskrá. Þarna er talsvert af fólki úr félagsvísindum, hugvísindum, við- skiptafræðingum, lögfræðingum, hagfræðingum, verkfræðingum og tæknifræðingum, en hins vegar eru örfáir úr raunvísindagreinum, líf- fræði og slíkum greinum,“ sagði Hugrún og bætti við að talsvert væri um að fólk sem hefði einhvers konar sérþekkingu á tölvum án þess þó að hafa háskólamenntun í tölvufræðum hefði misst vinnuna. Hugrún sagði að þegar fór að fjölga á atvinnuleys- isskrá fyrr í vetur hefði stærsti ein- staki hópurinn sem bættist við á skrá verið ungt, ómenntað fólk. „Það hef- ur fjölgað í aldurshópnum 25 til 30 ára. Í þessum hópi er einnig fólk með háskólapróf. Þar er um mjög greini- lega breytingu að ræða.“ Í mars var atvinnuleysi á höfuð- borgarsvæðinu 2,8%, sem jafngildir því að tæplega 2.500 manns hafi að meðaltali verið án vinnu í mánuðin- um. Aukning milli mánaða var 10,2%. Hugrún sagði að þó að end- anlegar tölur um atvinnuleysi í apríl lægju ekki fyrir væri ljóst að sú hraða aukning á atvinnuleysi sem var á fyrstu mánuðum ársins hefði stöðvast. „Það eru allmargir sem missa vinnuna í hverri viku, en mjög marg- ir fá fljótt aftur vinnu. Atvinnutilboð- um hefur verið að fjölga síðustu vik- urnar. Fólk hefur í apríl farið mun hraðar út af atvinnuleysisskrá en í janúar, febrúar og mars. Við sjáum greinileg batamerki hvað þetta varð- ar,“ sagði Hugrún. Námsmenn áhyggjufullir Hanna Jónsdóttir, forstöðumaður Atvinnumiðstöðvar námsmanna, sagði að það væru heldur færri störf í boði fyrir námsmenn nú en á sama tíma í fyrra. Í fyrrasumar hefði orðið verulegur samdráttur á vinnumark- aðnum frá sumrinu 2000. Samdrátt- urinn nú væri ekki eins mikill og í fyrra. Hún sagði að umsóknir náms- manna væru álíka margar í ár og í fyrra eða á milli 1.200 og 1.500 um- sóknir. Hanna sagði að margir námsmenn hefðu áhyggjur af því að fá ekki vinnu í sumar. Sumir væru þeirrar skoðunar að úr því að þeir hefðu ekki nú þegar fengið örugga vinnu væri að verða vonlítið að það tækist að út- vega þeim vinnu. Þetta væri hins vegar misskilningur. Í gegnum árin hefði maímánuður verið sá mánuður þegar flestir fengju vinnu. Um 2.500 manns eru á atvinnuleysisskrá á höfuðborgarsvæðinu Tæplega 200 háskólamennt- aðir án vinnu Greinileg batamerki í apríl VARNARLIÐSMENN festu sex jeppa á sunnudagskvöld, í brekk- um við Krókamýrar, sem eru skammt norðan Vigdísarvalla, og þurftu að skilja þá eftir. Lög- reglan í Keflavík rannsakar skemmdir á gróðri og landi. Rok og rigning með þoku var á þessum slóðum á sunnudag. Ferða- mennirnir, flestir varnarliðsmenn, óku á fjórum jeppabifreiðum eftir Vigdísarvallavegi frá Grindavík, en hann er lokaður með hindrun samkvæmt upplýsingum lögreglu, og eftir vegarslóða inn á Króka- mýri. Festust jepparnir í brekkum upp á Selvallafjall. Tveir bílar sem komu til aðstoðar festust einnig. Menn úr björgunarsveitinni Þor- birni í Grindavík voru kallaðir til aðstoðar á sunnudagskvöld. Ekki tókst að ná upp jeppunum og fékk fólkið far með björgunarsveit- armönnum til byggða. Lögreglumenn voru sendir á vettvang í gær til að ljósmynda og rannsaka umhverfisspjöll. Hjálmar Hallgrímsson lögreglumaður segir að jeppunum hafi verið ekið út af vegarslóðanum hér og þar, til að forðast ófærur og séu ljót spjöll eftir þá á nokkrum stöðum enda sé jarðvegur mjög blautur og klaki að fara úr jörðu. Lögreglumenn- irnir fengu björgunarsveitarmenn til að fara með sig á vettvang en Hjálmar segir að svæðið sé eitt svað og þeir hafi orðið að skilja bílinn eftir við fyrsta jeppann sem þeir komu að og ganga að hinum bílunum. Telur hann að erfitt geti orðið að ná bílunum upp fyrr en eitthvað þorni upp. Þá verði að reyna að draga þá upp með spil- um. Þórir Maronsson yfirlög- regluþjónn segir að ferð fólksins virðist hafa verið algert gönu- hlaup og þeir sem ábyrgð beri á því kunni að sæta refsingu vegna landspjalla. Lögregla rannsakar umhverfisspjöll Einn jeppanna fastur í vegarslóðanum við Krossamýri og lögreglumenn komnir til að rannsaka landspjöll. LÖGREGLAN á Seyðisfirði og á Egilsstöðum stóð nokkur ungmenni að ólöglegum gæsa- veiðum í Hróarstungu í gær, en gæsaveiðitímabilið hefst ekki fyrr en 20. ágúst. Að sögn lögreglunnar á Seyðisfirði höfðu ungmennin fellt nokkrar gæsir þegar að var komið og voru skotvopnin og veiðin gerð upptæk. Fram- hald málsins er í höndum lög- reglustjóra. Lögreglan tekur fram að hún hyggist vera með strangt og mikið veiðieftirlit á fyrrgreindu svæði í sumar. Staðin að ólöglegum gæsaveiðum Í 45 ÍBÚÐA fjölbýlishúsi sem nú er tekið að rísa í Suðurhlíð 38 í Reykja- vík verður ein 220 fermetra „pent- house“-íbúð, sem kosta mun 57 millj- ónir króna. Guðrún Pétursdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, gagnrýndi á borgarstjórnarfundi í síðustu viku hátt verð íbúðanna í fjöl- býlishúsinu og rakti uppsprengt verð á íbúðarhúsnæði til lóðastefnu R-listans. Kristinn Bjarnason hjá bygging- arfyrirtækinu Gígant, segir að mikið sé lagt í íbúðina sem er í risi hússins, við hana séu að auki 150 fermetra upphitaðar svalir. Sérstakan lykil þarf til að komast með lyftu upp í íbúðina, svo enginn sem ekki á þang- að erindi kemst upp. Verður íbúðin afhent tilbúin án gólfefna. Fermetra- verð íbúðarinnar er því um 250 þús- und krónur sem er að sögn Kristins hærra verð en gengur og gerist á fasteignamarkaðnum. „Það er fyrst og fremst staðsetningin sem veldur þessu háa verði,“ segir Kristinn. „Í alla staði er lagt meira í íbúðina en gengur og gerist. T.d. hvað varðar hljóðeinangrun. Það kostar líka mik- ið að gera upphitaðar svalir.“ Viðræður við áhugasaman kaupanda standa yfir „Íbúðinni fylgja svo fjögur bíla- stæði í bílageymslunni,“ segir Krist- inn. „Þá verður bæði golf- og tenn- isvöllur við húsið.“ Hann segir þegar í gangi viðræður við áhugasaman kaupanda að íbúðinni. Gert er ráð fyrir því að íbúðirnar í fjölbýlishúsinu verði tilbúnar til af- hendingar í apríl á næsta ári. Verða þær afhentar fullfrágengn- ar að innan en án gólfefna. Gert er ráð fyrir arni í flestum íbúðunum. Sameign og lóð verða fullfrágengin við afhendingu. Algengt verð íbúða er á bilinu 22 til 24 milljónir króna og nokkrar kosta á bilinu 32 til 35 millj- ónir króna. Lægst er verðið 18,8 milljónir en dýrasta íbúðin á að kosta 57 milljónir eins og áður segir. Íbúð í fjölbýlishúsi í Suðurhlíðum á að kosta 57 milljónir króna Svalirnar 150 fermetrar og upphitaðar  Nýjar útsýnisíbúðir/B26–27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.