Morgunblaðið - 07.05.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Toyota Corolla 1600 VVT-i,
f. skr.d. 19.03. 2002, ek. 1500 km,
5 d., bsk. Verð 1.630.000.
Nánari upplýsingar hjá
Bílaþingi.
Opnunartímar: Mánud.-föstud.
kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16.
Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is
Netfang: bilathing@hekla.is
HLUTFALLSLEGA fleiri konur en
karlar styðja Samfylkinguna og
Vinstrihreyfinguna – grænt fram-
boð en þessu er öfugt farið með
Sjálfstæðisflokk og Framsóknar-
flokk ef marka má niðurstöður skoð-
anakönnunar Félagsvísindastofnun-
ar Háskóla Íslands um fylgi við
stjórnmálaflokkana fyrir Morgun-
blaðið.
Greint var frá niðurstöðum könn-
unarinnar í Morgunblaðinu á sunnu-
dag og þegar fylgi flokkanna er nán-
ar greint eftir kyni og aldri kemur
fram að fylgi við Sjálfstæðisflokkinn
er 44,1% meðal karla, en 35,9% með-
al kvenna. Fleiri karlmenn en konur
styðja einnig Framsóknarflokkinn
eða 16,7% karla og 14,6% kvenna.
18,6% karla styðja hins vegar Sam-
fylkinguna en mun fleiri konur gera
það eða 26,0%. Hlutfallslega fleiri
konur styðja einnig Vinstrihreyf-
inguna – grænt framboð. 21,4%
kvenna styðja flokkinn en 17,0%
karla. Hlutfallsega fleiri karlar
styðja hins vegar Frjálslynda flokk-
inn eða 2,6% samanborið við 1,4%
kvenna.
Ef litið er til aldursskiptingar
þeirra sem taka afstöðu kemur fram
að fylgi Sjálfstæðisflokksins er mest
meðal yngstu kjósendanna. 52,6%
fólks á aldrinum 18–24 ára styðja
flokkinn. Fylgið er mun minna hlut-
fallslega meðal elstu kjósendanna á
aldrinum 60–80 ára þar sem það er
29,9%. Fylgi Framsóknarflokksins
er hins vegar minnst meðal yngstu
kjósendanna eða 8,2%. Það er hlut-
fallslega mest á meðal fólks á aldr-
inum 35–44 ára eða 19,7%. Hlutfalls-
lega mest fylgi Samfylkingarinnar
er aftur á móti á meðal elsta hóps-
ins. Þannig styðja 27,1% þeirra sem
eru á aldrinum 60–80 ára Samfylk-
inguna, en fylgið er minnst meðal
þeirra sem eru á aldrinum 25–34 ára
16,5%. Í þeim aldurshópi er aftur á
móti fylgi við Vinstrihreyfinguna
mest 22,9%. Minnst er fylgið meðal
yngstu kjósendanna, 18–24 ára,
14,4%. Fylgi Frjálslynda flokksins
er hlutfallslega mest meðal elstu
kjósendanna, 3,7%, en minnst meðal
þeirra yngstu eða 1,0%.
Þegar svörin eru flokkuð eftir
starfsstétt kemur fram að Sjálf-
stæðisflokkur hefur mest fylgi með-
al stjórnenda og æðstu embættis-
manna eða 52,2%. Minnst er fylgi
flokksins meðal sérfræðinga og
kennara, 30,0%. Samfylkingin á
hlutfallega mest fylgi meðal véla-
fólks og ófaglærðra 28,7%, en það er
minnst meðal stjórnenda og æðstu
embættismanna 15,2% Framsókn-
arflokkurinn sækir hins vegar mest
af fylgi sínu til sjómanna og bænda,
27%, en minnst er það meðal stjórn-
enda og æðstu embættismanna,
10,9%. Mest fylgi Vinstrihreyfingar-
innar er á meðal sérfræðinga og
kennara, 27,5%, en minnst er fylgið
meðal sjómanna og bænda, 10,8%.
Mun fleiri styðja ríkisstjórnina
en eru andvígir henni
Þá kemur fram í könnuninni að
stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar
eru verulega fleiri en andstæðingar.
45,2% segjast styðja ríkisstjórnina,
32,5% eru andstæðingar og 22,4%
segjast vera hlutlaus.
Þá kemur fram að um 76–78%
þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokk og
Vinstrihreyfinguna – grænt fram-
boð í síðustu kosningum myndu
kjósa sömu flokka aftur ef kosningar
væru haldnar nú. Sambærilegt hlut-
fall fyrir Samfylkinguna er 65% og
Framsóknarflokkinn 57%. Um 18%
þeirra sem kusu Samfylkinguna árið
1999 myndu kjósa Vinstrihreyf-
inguna nú og einn af hverjum tíu
sem kusu Framsóknarflokkinn síð-
ast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn
nú. Tæplega þriðjungur þeirra sem
ekki höfðu kosningarétt síðast
myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn,
17% kysu Samfylkinguna og tæp
15% Vinstrihreyfinguna.
Við gerð könnunarinnar var
stuðst við slembiúrtak úr þjóðskrá
sem náði til 1.200 einstaklinga á
aldrinum 18–80 ára á landinu öllu.
Viðtölin voru tekin í gegnum síma.
Alls fengust svör frá 777 af þeim
1.200 sem voru í úrtakinu, en það er
um 66% svarhlutfall þegar frá upp-
haflegu úrtaki hafa verið dregnir frá
þeir sem eru nýlega látnir, erlendir
ríkisborgarar og fólk sem er búsett
erlendis. Fullnægjandi samræming
er milli skiptingar svarendahópsins
og þjóðarinnar allrar eftir aldri, kyni
og búsetu. Því telur Félagsvísinda-
stofnun að svarendahópurinn endur-
spegli þjóðina, 18–80 ára, allvel.
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið
Fylgi Sjálfstæðisflokks
mest meðal hinna yngri
!"#$ %$$"!! &!! ' (!"
* !$!"
+$$","-")"
./$-0$
./$
1)/"
!"
!
# $ % "
&'()*
&&(+*
,-(.*
).(.*
&)(.*
,/()*
&'(&*
-)(/*
-)()*
,'('*
&'(.*
&/()*
,&(/*
&'(-*
,&(-*
&0(+*
&)(+*
&)()*
,0('*
+-(0*
+/(0*
+&(/*
+0(1*
+,(/*
+.(0*
+1(,*
1()*
+'(.*
+)(-*
+-('*
+)(.*
),(+*
)0('*
+/(+*
)('*
.(-*
+)()*
)&()*
))(+*
+1(/*
)/('*
)0(+*
),(1*
))('*
+/(-*
)'(/*
+-()*
)/(,*
)/('*
+0()*
+0(,*
+1(.*
)1(0*
+.(/*
)1(+*
)&(-*
+&(/*
)('*
)(/*
+(&*
,(0*
)('*
+(/*
+(1*
+('*
&(,*
)(-*
'(1*
)()*
,(1*
)(,*
)('*
+(1*
)(0*
+(1*
+.(+*
+0('*
)+(&*
)'(/*
+0(0*
+.(0*
))(.*
+&(&*
+0(&*
)0(-
+0(,*
+.(&*
)+()*
+'(1*
+1(&*
+-(0*
+0(/*
+0(0*
)+(-*
'*
GRÉTAR Þorsteinsson, forseti ASÍ,
segir að ASÍ hafi fullan hug á að afla
sér ítarlegri upplýsinga um þjón-
ustugjöld og vaxtamun í bankakerf-
inu. Hann segir að afkomutölur
bankanna á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs séu út úr öllu korti. Þeir
séu t.d. enn að innheimta yfir 20%
vanskilavexti þrátt fyrir verulega
lækkun verðbólgu.
Íslandsbanki hagnaðist um 979
milljónir á fyrstu þrem mánuðum
ársins. Hagnaður Landsbankans á
þessu tímabili var 735 milljónir og
hagnaður Búnaðarbankans 846
milljónir, sem er litlu minni hagn-
aður en allt árið í fyrra þegar bank-
inn hagnaðist um 1.062 milljónir.
„Þær afkomutölur sem bankarnir
hafa verið að birta núna eru í ein-
stökum tilvikum í nágrenni við allan
hagnaðinn á síðasta ári og þótti hann
þá vera glæsilegur. Ég held að það
séu fá fyrirtæki ef nokkur sem skila
hagnaði í líkingu við það sem bank-
arnir eru að gera. Það eru auðvitað
viðskiptavinirnir, einstaklingar og
fyrirtæki, sem skapa þennan hagn-
að,“ sagði Grétar.
Ætla að afla sér meiri
upplýsinga
Grétar sagðist taka skýringum
bankanna á miklum vaxtamun með
ákveðnum fyrirvara. Sama ætti við
varðandi skýringar bankanna á þeim
þjónustugjöldum sem þeir taka. „En
það sem skiptir máli er heildar-
myndin, þ.e. þjónustugjöldin, vaxta-
munurinn og sjálfir vextirnir. Við
munum örugglega þegar um hægist
hjá okkur afla okkur enn betri upp-
lýsinga um þessa hluti heldur en við
höfum í dag, en okkur sýnist að
þetta sé allt á einn veg.“
Grétar sagði ljóst að vanskil væru
að færa bönkunum miklar tekjur.
Vanskilavextirnir væru vel yfir 20%
á samta tíma og verðbólga væri
komin niður undir 2%. „Menn eru í
dag að innheimta sömu refsivexti og
gert var í 8-10% verðbólgu á síðasta
ári. Verðbólga er sem betur fer allt
önnur og mun lægri. Vextir hafa því
verið að hækka hrikalega og auðvit-
að endurspeglast það í afkomu bank-
anna.
Ég tel að það séu allar forsendur
fyrir verulegri lækkun á vöxtum. Ég
tel raunar að það þjóni ekki hags-
munum bankanna ef þetta heldur
áfram svona. Ef við erum að sigla
inn í tiltölulega stöðugt ástand með
lágri verðbólgu hef ég trú á að æ
fleiri fyrirtæki muni færa sín við-
skipti til erlendra banka. Það gæti
líka farið svo að einstaklingar færi
viðskipti sín einnig þangað. Það er
ekki lengur mjög flókið að hafa
bankaviðskipti við erlenda banka.
Bankarnir þurfa þess vegna að gæta
sín. Þessar afkomutölur eru út úr
öllu korti og þær kalla á að bank-
arnir taki til í eigin garði,“ sagði
Grétar.
Forseti ASÍ gagnrýnir aukinn hagnað viðskiptabankanna
Taka yfir 20% vanskila-
vexti í lágri verðbólgu
SÁ sem vann rúmar 80 milljónir í
Lottóinu fyrir rúmri viku hefur enn
ekki vitjað vinningsins. Bergsveinn
Sampsted, framkvæmdastjóri Ís-
lenskrar getspár, segist vera undr-
andi á því að vinningshafinn hafi ekki
gefið sig fram. Vinningshafar taki
sér gjarnan nokkra daga til að átta
sig á því að þeir hafi unnið, áður en
þeir sækja vinninginn, en það sé
harla óvenjulegt að svona langur
tími líði þegar um svo stóran vinning
er að ræða. Hann er þó fullviss um að
vinningshafinn vitji vinningsins áður
en langt um líður.
Bergsveinn segir að miðinn sé
handhafakvittun, þannig að sá sem
komi með hann sé eigandi hans og
því sé óráðlegt að geyma miða með
stórum vinningi lengi.
Gefi vinningshafinn sig ekki fram
innan eins árs rennur vinningurinn
til eigenda Íslenskrar getspár,
Íþróttasambands Íslands, Öryrkja-
bandalags Íslands og Ungmenna-
félags Íslands.
Lottóvinn-
ingshafinn
hefur enn
ekki gefið
sig fram
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
bæta við aukasýningu með
Shaolin-munkunum í Laugar-
dalshöll þar sem uppselt er á
báðar sýningarnar sem fyrir-
hugaðar voru. Fyrstu tvær
sýningarnar verða klukkan 16
og 20, laugardaginn 11. maí og
hefur aukasýningu nú verið
bætt við sunnudaginn 12. maí
klukkan 20.
25 kínverskir munkar taka
þátt í sýningunni, þar af tíu
drengir á aldrinum 10–12 ára.
Munkarnir hafa slegið í gegn
með magnaðri leiksýningu víða
um heim, að sögn Helga
Björnssonar kynningarstjóra,
og eru þeir væntanlegir hingað
til Íslands á fimmtudag.
Miðasala fer fram í verslun-
um Símans en einnig er hægt
að nálgast miða í Laugardals-
höll frá kl. 10–16. Miðar í betri
sæti kosta 3.900 krónur en
miðar í þau ódýrari 3.500 krón-
ur.
Uppselt á sýningar
Shaolin-munkanna
Auka-
sýningu
bætt við