Morgunblaðið - 07.05.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.05.2002, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á einum besta stað í Smáranum er til sölu/leigu glæsilegt 8.000 fm versl.- og skrifstofuhúsnæði í tveimur fimm hæða lyftuhúsum á hornlóð við Smáralind. Um er að ræða Hlíðasmára 1, ca 3.700 fm, og Hlíðasmára 3, ca 4.400 fm, ásamt tengingu milli húsa. Grunnflötur hæða frá 450 til 1.150 fm. Mjög góð aðkoma. 250 bílastæði. Eignin afhendist fullbúin að utan, sameign fullbú- in að innan sem og utan, lóð fullbúin og malbik- uð bílastæði. Hlíðasmári 3 til afhendingar í júlí 2002. Frábær framtíðarstaðsenting. Byggingar- aðili Byggir ehf. HLÍÐASMÁRI 1 OG 3 - TIL SÖLU/LEIGU jöreign ehf sími 533 4040 Eignamiðlunin sími 588 9090 Magnús sími 899 9271 ÞÖRF er á stöðugu eftirliti til að tryggja að umgengni í og við lóðir í miðborg Reykjavíkur sé viðunandi. Það er niðurstaða heilbrigðisfulltrúa mengunarvarna Umhverfis- og heil- brigðisstofu Reykjavíkur, en full- trúarnir skiluðu skýrslu um átaks- verkefnið „Rusl í miðbæ Reykjavíkur 2002“ á síðasta fundi umhverfis- og heilbrigðisnefndar. Í skýrslunni er gerð grein fyrir verkefninu og hverju það hefur skilað hingað til en farið var í átakið að beiðni borgarstjóra og gatnamála- stjóra. Kemur fram að átakið er fólgið í því að farnar eru eftirlitsferðir um ákveð- in svæði í miðborginni. „Í eftirlitsferð- um eru skráðar niður athugasemdir við ástand lóða, umgengni um sorp og númerslausar bifreiðar. Á staðnum er reynt að ræða við íbúa eða eiganda fyrirtækja þegar það er unnt og benda þeim á það sem athugavert er. Í kjölfar eftirlitsferða senda heil- brigðisfulltrúar bréf til þeirra staða sem umgengni var ábótavant, með til- skildum fresti til úrbóta,“ segir í skýrslunni. Bréfinu er fylgt eftir með ítrekun og áminningu sé ekki farið að kröfum og er lokaúrræðið að láta hreinsa lóðina á kostnað eigenda. Múrbrot í sambland við húsasorp Skýrslan tekur til níu eftirlitsferða sem farnar voru frá janúar til apríl og voru alls skráðar athugasemdir við 89 staði, þar af 18 fyrirtæki. Þar fyrir ut- an var gerður fjöldi athugasemda við íbúa á staðnum þar sem ruslið var hreinsað í viðurvist heilbrigðisfull- trúa. Voru þau tilvik ekki skráð sér- staklega. „Misjafnt var hversu alvar- legt ástand var á lóðum, allt frá smávægilegu rusli yfir í múrbrot úr heilli byggingu í sambland við húsa- sorp. Nokkrar númerslausar bifreið- ar hafa fundist í eftirlitsferðum en þó virðist þetta ekki vera útbreitt vanda- mál á miðbæjarsvæðinu,“ segir í skýrslunni. Kemur fram að töluverð vinna fylgi þessu eftirliti, m.a. við leit í þjóðskrá, hjá sýslumanni og símaskrá, til að finna eigendur og íbúa húsa, því mikil brögð séu að því að fólk sé ekki rétt skráð í þjóðskrá. Þá kemur fram að bréf hafi verið send til flestra staða þar sem úrbóta var þörf og í þremur tilvikum hafi aðgerðir gengið svo langt að búið sé að áminna aðila og veita lokafrest. Fleiri áminningar eru fyrirsjáanlegar. Umtalsverður árangur náðst Að mati skýrsluhöfunda hefur um- talsverður árangur náðst frá upphafi átaksins. Í mörgum tilvikum hafi fólk brugðist strax við og búið sé að hreinsa fjölda lóða. Stundum hafi hreinsunin ekki verið algerlega full- nægjandi en þó hafi árangur náðst. „Í nokkrum tilvikum hefur úrgangur verið fjarlægður en jafnóðum farið að safnast upp á ný.“ Þá er það nefnt að einnig sé annað átak í gangi um sorp- mál veitinga- og kaffihúsa í miðbæn- um sem geri það að verkum að eig- endur slíkra staða séu meðvitaðir um þær kröfur sem til þeirra eru gerðar. Segir í lokakafla skýrslunnar að þrátt fyrir þennan árangur sé ljóst að þörf sé á stöðugu eftirliti til að koma í veg fyrir að aftur sæki í sama horf. Er það tillaga heilbrigðisfulltrúanna að í hverjum mánuði fari tveir fulltrúar mengunarvarna í vettvangsferðir um miðbæjarsvæðið. „Hér er ekki um að ræða verkefni sem unnt er að klára í eitt skipti fyrir öll þar sem gagngera hugarfarsbreytingu íbúa þarf til þess að það náist,“ segir að lokum í skýrsl- unni. Ný skýrsla um rusl í miðborginni Þarf hugarfars- breytingu íbúa Reykjavík Í eftirlitsferðum eru skráðar niður athugasemdir við ástand lóða, um- gengni um sorp og númerslausar bifreiðar. Hér má sjá heilbrigðisfull- trúa að skrá athugasemdir í einni slíkri ferð í vetur sem leið. NÝR fundargestur er kominn til sögunnar á kennarafundunum í Áslandsskóla í Hafnarfirði. Sá er ekki hár í loftinu og hann hefur hvorki málfrelsi- né tillögurétt. Hins vegar hefur hann afskap- lega ríka þjónustulund og á sér það takmark eitt í lífinu að skenkja viðstöddum vatn. Um er að ræða ofurlítið vélmenni gert úr legókubbum og eru skaparar hans 7–12 ára gamlir strákar í skólanum. Strákarnir sækja allir auka- tíma í vélmennaþróun við skólann en kennari þeirra er Jóhann Breiðfjörð, sem segist frekar kjósa orðið „þjarkur“ um vél- menni á borð við þetta. „Í upp- hafi benti ég krökkunum á að þjarkarnir eru notaðir til þess að létta fólki störf og sinna verk- efnum sem eru einhæf eða leið- inleg þannig að maður geti spar- að sér tíma og nýtt hann í eitthvað skemmtilegra. Þá komu upp hugmyndir um hvaða verk- efni innan skólans við gætum lát- ið vélmennið taka að sér og sinna fyrir starfsmennina. Meðal ann- ars var rætt um að láta það sækja póst, en það varð ofan á að búa til þjark sem myndi afgreiða vatn. Þannig ákváðu krakkarnir í rauninni verkefnið og svo hófst þróunarvinnan.“ Um 200 kíló af Lego-kubbum Vélmennið smíðuðu verkfræð- ingarnir ungu úr Lego-kubbum en skólinn hefur yfir að ráða um 200 kílóum af þessu bygging- arefni. „Við keyptum nokkur ein- tök af tölvuheilum, snertiskynj- urum og ljósskynjurum til skólans og höfum verið að nota þetta í vélmennaþróunartímunum ásamt þessum 200 kílóum af kubbum sem ég lánaði skólanum með leyfi Lego-fyrirtækisins.“ Í ljós kemur að Jóhann starfaði hjá Lego-Technik í fimm ár við að hanna módel. Á þeim tíma sendi fyrirtækið honum 200 kíló af kubbum sem hann nýtti við vinnuna en sá lager er nú not- aður við þjarkaþróunina í Ás- landsskóla. Hann segir þróunarvinnuna og smíði þjarksins hafa tekið nánast alla önnina en strákarnir sinntu ólíkum verkefnum í þróuninni. „Þetta hefur verið mikil sam- vinna en þeir þurftu að gera til- raunir með gripklær og snerti- skynjarana og sjá um forritun og svo framvegis.“ Að sögn Jóhanns starfar þjark- urinn þannig að með fulltingi ljósskynjara, sem nemur muninn á svörtu og hvítu, ekur hann um á fundarborðinu með því að fylgja svörtu límbandi sem er sett á borðplötuna. Þegar þjarkurinn kemur að plastglasi læsir hann gripklóm utan um glasið en milli gripklónna er snertiskynjari sem nemur snertinguna við glasið. Um leið fer í gang mótor sem opnar fyrir rennsli í röri úr plast- flösku, sem þjarkurinn ber með sér. Þá hellir hann í glasið og að því loknu heldur hann áfram eftir línunni þar til hann kemur á áfangastað þar sem á að afhenda glasið. Vélknúinn sópur í burðarliðnum Jóhann segir þjarkinn vera kominn í fulla notkun og hafa sýnt að hann virkar fullkomlega. Vélmennasmiðirnir eru því að vonum stoltir og langt því frá af baki dottnir í vélmennaþróuninni. „Eitt aðalvandamálið hjá okkur er að það dettur svo mikið af kubbum á gólfið þannig að nú er verið að útbúa sóp sem keyrir um gólfið og sópar saman kubb- unum.“ Það er því greinilegt að notagildið og skemmtanagildið er í hávegum haft meðal hugvits- mannanna ungu í Áslandsskóla. Vélvirkur vatnsberi í Áslandsskóla Hafnarfjörður Næsta verkefni verður að þróa vélmenni sem sópar gólf en Lego- kubbarnir eiga það til að detta niður af borðum við þróunarvinnuna. Hér er það Pétur Már sem er niðursokkinn í Lego-kubbahrúguna. Daníel Geir Karlsson og Kristófer Óli Þorvarðarson gera úttekt á þjarkanum en auk þeirra eiga þeir Aron Heiðar Steinsson, Ágúst Fannar Ásgeirsson, Brynjar Helgi Guðmundsson, Einar Bragi Rögnvaldsson, Gísli Steinn Gíslason, Guðmundur Hjálmar Egilsson, Hafsteinn Fannar Ragnarsson, Pétur Már Gíslason og Þórarinn Jónas Ásgeirsson heiðurinn af vélmenninu sem nú sér kennurum skólans fyrir vatni á löngum fundum þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.