Morgunblaðið - 07.05.2002, Síða 16
AKUREYRI
16 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudaginn 7. maí mun Halldór Ásgrímsson,
utanríkisráðherra, flytja fyrirlestur um
formennsku Íslands
í Norðurskautsráðinu 2002-2004.
Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu L101 á Sólborg og hefst kl. 12.15.
Hægt verður að kaupa samlokur og kaffi eða gos á vægu verði á staðnum.
Allir velkomnir.
Hádegisfyrirlestur
á Sólborg
AKUREYRARBÆR stóð fyrir lok-
aðri samkeppni um íþróttahús og við-
byggingu við Síðuskóla og bárust
þrjár tillögur í samkeppnina. Sérstök
matsnefnd sem fór yfir tillögurnar
valdi tillögu frá Arkitekta- og verk-
fræðistofu Hauks ehf. en höfundar
eru arkitektarnir Fanney Hauksdótt-
ir, Anna Margrét Hauksdóttir og
Friðrik Ó. Friðriksson og Þráinn
Hauksson landslagsarkitekt hjá
Landslagi ehf. Stjórn Fasteigna Ak-
ureyrarbæjar hefur samþykkt að til-
lagan verði valin til frekari úrvinnslu
framkvæmdarinnar.
Í greinargerð höfunda kemur fram
að meginhugmynd þeirra sé að skapa
heildstæða skólaeiningu, sem taki
mið af eldri byggingum og bæti á sem
flestan hátt, bæði innan og utandyra.
Stækkun Síðuskóla hefur verið valinn
staður norðan við núverandi skóla-
byggingar. Við stjórnunarálmu er
gert ráð fyrir veglegum aðalinngangi
sem er sameiginlegur fyrir fjölnota-
sal, íþróttasal og stjórnun. Megin-
markmið höfunda í innri tengslum er
að aðalinngangur tengi allar aðskild-
ar rekstrareiningar skólans og færa
miðju núverandi skóla að nýju mið-
rými, sem liggur inn af aðalinngangi.
Með bættum tengigöngum milli 2. og
4. áfanga er boðið upp á innri hring-
umferð, þannig að gönguleiðirnar
styttist og aðkoma geti verið úr öllum
áttum að sal.
Í umsögn matsnefndar um tillög-
una segir m.a. að höfundar staðsetji
viðbyggingar norðan núverandi
skólahúss og leggi þannig áherslu á
tengsl fjölnotasalar og nýs inngangs
við stjórnunarálmuna. Nýr inngang-
ur verði því óhjákvæmilega nokkuð
afsíðis og falinn miðað við aðkomu frá
Bugðusíðu. Torg og rýmismyndun
með litríkri og ávalri viðbyggingu
dragi þó verulega úr þessum ann-
marka og skapi líflegt „innangangs-
kennileiti“.
Ennfremur segir í umsögn mats-
nefndar að innra skipulag sé vel leyst
og að aðkoma að búningsklefum og
íþróttahúsi verði með þeim hætti að
utanaðkomandi notendur íþrótta-
hússins þurfi ekki að blandast saman
við innanhússumferð í skólanum sem
er kostur. Ímynd og yfirbragð þess-
arar tillögu einkennist af því að end-
urtaka í íþróttahúsinu form og áferð-
ir frá fyrri áföngum og flétta síðan
saman við það nýjum og ávölum og
litríkum formum sem andstæðum við
formfestu eldri bygginga. Samspil
hins gamla og hins nýja verður þann-
ig lifandi og kraftmikið og í góðu jafn-
vægi, segir einnig í umsögn mats-
nefndar.
Bæjarstjórn Akureyrar á enn eftir
að fjalla um niðurstöðu matsnefndar
og ákveða framhald málsins. Gert er
ráð fyrir að íþróttasalurinn verði með
löglegum handboltavelli.
Samkeppni um íþróttahús og viðbyggingu við Síðuskóla
Útlitsteikning af íþróttahúsi og viðbyggingu Síðuskóla.
Tillaga Arkitekta- og verk-
fræðistofu Hauks valin
FORSETI Íslands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson og Dorrit Moussaieff
heitkona hans, heimsóttu Akur-
eyri um helgina. Þau heiðruðu
gesti á lokahófi Hængsmótsins í
Íþróttahöllinni með nærveru sinni
á laugardagskvöld og brugðu sér
á skíði í Hlíðarfjalli í ágætis veðri
á sunnudag.
Yfir 400 manns mættu á lokahóf
Hængsmótsins en þar fór m.a.
fram verðlaunaafhending fyrir ár-
angur á mótinu. Hængsmótið er
opið íþróttamót fyrir fatlaða og
var nú haldið í 20. sinn. Yfir 300
keppendur víðs vegar af landinu
mættu til leiks, eða fleiri en
nokkru sinni fyrr. Keppt var í
boccia, bogfimi, borðtennis og
lyftingum.
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff í Hlíðarfjalli.
Forseti Íslands í
heimsókn á Akureyri
GUÐBERGUR Egill Eyjólfsson,
bóndi í Hléskógum í Grýtubakka-
hreppi, var endurkjörinn formaður
Búkollu, samtaka áhugamana um ís-
lensku kúna, á aðalfundi samtakanna
nú nýlega. Guðbergur sagði að til-
gangur félagsins væri að koma í veg
fyrir innflutning á erlendum erfða-
efnum og því væri mjög ánægjulegt
að Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra skuli hafa hafnað innflutningi á
erfðaefnum úr norskum kúm.
„Við munum halda vöku okkar
áfram, ef NRFÍ (Nautgriparæktar-
félag Íslands) ætlar að kæra úrskurð
Guðna.. Einnig ætlum við að ýta á eft-
ir frumvarpi sem Drífa Hjartardóttir
fer fyrir og er að hluta til runnið und-
an okkar rifjum, um enduskoðun á
lögum um innflutning dýra.“
Guðbergur sagði að helsti galli
ræktunarstarfsins væri sá að íslenski
kúastofninn væri svo lítill. Því hefði
það mikil áhrif þótt aðeins um 60
bændur færu að flytja inn erfðaefni.
Guðbergur sagði að norsku kýrnar
mjólkuðu einhverjum þúsundum lítr-
um meira á ári en að þær hafi staðið í
stað í nyt undanfarin tíu ár. Frá 1995
hafi meðalnyt í íslensku kúnni aukist
úr 4.500 lítrum í tæplega 5.000 lítra.
„Þannig að við náum þeim norsku í
nyt innan 5–10 ára. Á síðustu tveimur
árum hefur nytin hjá mér aukist um
500 kg og kýrnar mínar eiga mikið
inni. Bændur eiga að líta í eigin barm
en ekki að skammast í kúnum sínum
ef þær gera ekki það sem þeir vilja.“
Guðbergur sagði að Landssam-
band kúabænda hafi selt sinn hlut í
nautastöðinni í Hrísey, til félags sem
stefnir að því að flytja inn holdanaut.
„Það er eitthvað sem við þurfum líka
að skoða, því slíkum innflutningi
fylgir sjúkdómahætta. Þannig að það
er áfram þörf fyrir samtökin en von-
andi verður ekki jafnmikið að gera og
hingað til, því bústörfin hafa oft á tíð-
um þurft að sitja á hakanum. Og ég
tók að mér formennsku áfram, þar
sem ég trúi því að ég þurfi ekki að
hamast jafnmikið og áður,“ sagði
Guðbergur.
Aðalfundur Búkollu, samtaka áhugamanna um íslensku kúna
Félagið ætlar að halda
baráttu sinni áfram
VORTÓNLEIKAR söngdeildar
Tónlistarskólans á Akureyri verða
haldnir í Laugarborg þriðjudaginn 7.
maí næstkomandi og verða þeir í
tvennu lagi. Þeir fyrri hefjast kl.
18.00 og koma þar fram nemendur á
grunnstigi, en á þeim seinni nemend-
ur á mið- og framhaldsstigi og hefj-
ast þeir kl. 20.30. Fjölbreytt dag-
skrá, aðgangur ókeypis og allir
velkomnir.
Söngur í
Laugarborg
álíka samkomum,“ sagði Hrönn. Stúlkurnar áttu
lagið í fórum sínum og voru að vinna með það í
stúdíóinu Hljóðvaka á Akureyri. Friðrik Ómar
Hjörleifsson heyrði lagið og hvatti þær eindregið
til að senda það inn í keppnina og þær létu slag
standa.
Báðar voru afar hrifnar að dægurlagakeppn-
inni og fannst mikið í hana lagt, umgjörðin öll
eins og best verður á kosið og húsið stappfullt af
kátum áheyrendum. „Það var eitt lag þarna, svo-
lítið „Geirmundarlegt“ og við vorum vissar um
að það myndi vinna,“ sagði Svava, en annað kom
á daginn. Stúlkurnar hlutu auk peningaverð-
launa tíma í upptökuveri og ætla að nýta hann
vel. Enda eiga þær mikið efni sem nú er tímabært
að útsetja. „Við erum rétt að byrja,“ sögðu þær.
„VIÐ vorum eiginlega hálfgáttaðar á þessu öllu
saman,“ sögðu frænkurnar Hrönn Sigurð-
ardóttir og Svava Hrund Friðriksdóttir en þær
gerðu sér lítið fyrir og unnu Dægurlagakeppni
Kvenfélags Sauðárkróks sem fram fór síðastliðið
föstudagskvöld. Alls bárust 56 lög í keppnina, 10
komust í úrslit og voru flutt í keppninni og hafn-
aði lag þeirra Hrannar, Svövu og Einars Mána
Friðrikssonar, „Í nótt“, í fyrsta sæti.
Frænkurnar ólust upp í Ljósavatnsskarði, en
fluttu til Akureyrar 16 ára gamlar og hafa búið
þar síðan. Hrönn er verslunarstjóri í skóbúð
Steinars Waage á Glerártorgi en Svava starfar
sem sjúkraliði á Dvalarheimilinu Hlíð.
„Við höfum samið tónlist saman í mörg ár og
víða komið fram, t.d. í brúðkaupum, afmælum og
Þingeyskar frænkur sigruðu í dægurlagakeppni
Vorum eiginlega
hálfgáttaðar á þessu
Morgunblaðið/Kristján
Frænkurnar Hrönn Sigurðardóttir t.v. og
Svava Hrund Friðriksdóttir.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra flytur erindi í Háskólanum
á Akureyri þriðjudaginn 7. maí kl.
12.15. Það fjallar um formennsku Ís-
lands í Norðurskautsráðinu 2002–
2004. Erindið verður flutt í stofu
L201á Sólborg.
Ísland tekur við formennsku í
norðurskautsráðinu haustið 2002 og
gegnir henni í tvö ár. Norðurskauts-
ráðið er samráðs og samvinnuvett-
vangur ríkja um stefnumörkun á
sviði sjálfbærrar þróunar á norður-
slóðum. Aðildarríki ráðsins eru átta,
Norðurlöndin fimm, Bandaríkin,
Kanada og Rússland. Í erindi sínu
mun utanríkisráðherra m.a. gera
grein fyrir starfsemi ráðsins og fjalla
um hugmyndir sínar um þróun þess
á formennskutíma Íslands.
Ræðir um
Norður-
skautsráðið
EITT tilboð barst í fasteignir á lóð-
unum Þórsstíg 2 og 4 á Akureyri,
sem Byggðastofnun og Akureyrar-
bær auglýstu til sölu nýlega og tvö
tilboð bárust í Þórsstíg 2. Um er að
ræða um 3.800 fermetra iðnaðar- og
skrifstofuhús við Þórsstíg 4 og rúm-
lega 400 fermetra iðnaðarhús við
Þórsstíg 2.
Ako-Plastos rak starfsemi að
Þórsstíg 4 en eins og fram hefur
komið var öllu starfsfólki fyrirtæk-
isins á Akureyri, alls 27 manns, sagt
upp störfum fyrr á árinu, í kjölfar
ákvörðunar um að flytja starfsemina
suður til Reykjavíkur. Akureyrar-
bær og Byggðastofnun eignuðust
Þórsstíg 4 á uppboði í otkóber á síð-
asta ári.
Að sögn Guðríðar Friðriksdóttur
framkvæmdastjóra Fasteigna Akur-
eyrarbæjar verður farið yfir þau til-
boð sem bárust í húseignirnar áður
en ákvörðun verður tekin um fram-
haldið.
Eitt tilboð
í báðar
eignirnar
Fasteignir
við Þórsstíg
♦ ♦ ♦