Morgunblaðið - 07.05.2002, Qupperneq 17
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 17
BÓKASAFNI Reykjanesbæjar
voru færð tvö listaverk eftir Er-
ling Jónsson á Laxness-hátíð sem
safnið stóð fyrir í Kirkjulundi í
síðustu viku í samstarfi við Kefla-
víkurkirkju, Miðstöð símenntunar
á Suðurnesjum og menningarfull-
trúa Reykjanesbæjar. Stuðnings-
hópur að Listasafni Erlings Jóns-
sonar færði safninu listaverkið
„Laxness-fjöðrin“ til heiðurs og í
virðingu við Halldór Laxness á
aldarafmælinu og listamaðurinn
sjálfur gaf bókasafninu lágmynd
af skáldinu úr eir, en fyrir átti
safnið sams konar gifsmynd.
Erlingur Jónsson var mikill vin-
ur og aðdáandi Halldórs Laxness
og konu hans Auðar. Allmörg
verka hans hafa orðið til vegna
áhrifa frá skáldverkum Halldórs
og voru þau til sýnis á Laxness-
hátíðinni. Sýningin var færð á
Bókasafn Reykjanesbæjar og lýk-
ur þar á morgun.
Það var Birgir Guðnason, for-
svarsmaður stuðningshópsins sem
afhenti bókasafninu Laxness-
fjöðrina, en verkið verður steypt í
brons á stöpli úr Bohus-graníti og
steyptum sökkli. Leitað hefur ver-
ið til fyrirtækja og félaga á Suð-
urnesjum um fjárframlög, en
verkið verður um fjórir metrar á
hæð. Stefnt er að því að verkið
verði afhjúpað á menningarhátíð
Reykjanesbæjar, Ljósanótt, í byrj-
un september en endaleg stað-
setning hefur enn ekki verið
ákveðin.
Þeim, sem þekkja til Erlings,
finnst hrein unun að hlusta á hann
og sú var einnig raunin á Lax-
ness-hátíðinni. Hann fór með heilu
kaflana utanbókar úr verkum
skáldsins um leið og hann kynnti
verk sín sem orðið hafa til vegna
áhrifa frá bæði verkum og per-
sónu Halldórs Laxness. Þau verk
sem bókasafinu voru afhent tengj-
ast meira persónu Laxness en
verkunum en í samtali við blaða-
mann sagði Erlingur þetta um
Laxness-fjöðrina. „Ég var einu
sinni á ferðalagi fyrir austan, hjá
Berufirði og þar, en ég var í sveit
þarna í æsku. Ég stoppaði bílinn
og horfði yfir fjöðrinn og sé ég þá
örn koma fljúgandi, svo tign-
arlegan. Hann átti staðinn. Ég
hugsaði með mér, þarna er Lax-
ness kominn. Svo fór ég niður í
fjöru að vaða og fann arnarfjöður.
Sú fjöður er fyrirmyndin að þess-
ari.“
Lágmyndin sem Erlingur færði
safninu sýnir vinstri vanga skálds-
ins, íbygginn á svip. Um það verk
sagði Erlingur: „Halldór var svo
góður hlustandi. Það eru ekki
margir sem kunna að hlusta en
það kunni Halldór svo sannarlega.
Bókasafnið fær að gjöf tvö listaverk eftir Erling Jónsson
Morgunblaðið/Svanhildur
Erlingur Jónsson færir Huldu Björk Þorkelsdóttur, forstöðumanni
Bókasafns Reykjanesbæjar, lágmyndina af Halldóri Laxness.
„Halldór var svo
góður hlustandi“
Reykjanesbær
STEFÁN Thordersen, forstöðu-
maður öryggissviðs Flugmála-
stjórnar á Keflavíkurflugvelli, hef-
ur fengið viðurkenningu Evrópu-
sambands flugmálastjórna sem
skoðunarmaður til að taka út ör-
yggi á flugvöllum í Evrópu. Hann
fékk viðurkenningarskjal sitt af-
hent við athöfn síðastliðinn föstu-
dag. Við sama tækifæri var Arn-
grími Guðmundssyni, yfireftirlits-
manni með flugvernd hjá Flug-
málastjórn á Keflavíkurflugvelli,
afhent viðurkenning vegna nám-
skeiðs sem hann sótti í flugvernd
og flugöryggi í skóla IATA í Flór-
ída.
Stefán fór á námskeið í örygg-
isþjálfunarstofnun í Brussel og
lauk þaðan prófum. Hann segir að
markmiðið með þessari þjálfun sé
að samræma flugverndaraðgerðir
á flugvöllum í Evrópu, þannig að
aðrir flugvellir geti treyst þeim ör-
yggisráðstöfunum sem gerðar eru
á flugvellinum sem farþegar og
farangur koma frá innan Evrópu.
Stefán segir að þjálfunin og við-
urkenningin muni nýtast í starfi
sínu á Keflavíkurflugvelli við að
koma auga á það sem þar megi
betur fara og eins sé þetta framlag
Íslendinga til samræmingar á ör-
yggismálum flugvalla. Hann verð-
ur sendur á aðra flugvelli til að at-
huga hvort hægt sé að bæta
öryggismál þar.
Stefán er aðeins annar Norður-
landabúinn sem fær þessa evr-
ópsku viðurkenningu.
Viðurkenndur skoðun-
armaður öryggismála
Keflavíkurflugvöllur
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Frá afhendingu á flugverndarviðurkenningu á Keflavíkurflugvelli, f.v.:
Björn Ingi Knútsson flugvallarstjóri, Stefán Thordersen, Arngrímur
Guðmundsson og Þorgeir Pálsson flugmálastjóri.
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Grinda-
víkur sem býður fram D-listann í
komandi sveitarstjórnarkosningum
hefur opnað kosningaskrifstofu á
Víkurbraut 32. Skrifstofan er opin
virka daga kl. 16 til 22, laugardaga
kl. 11 til 16 og sunnudaga kl. 13 til 16.
D-listi opnar
skrifstofu
Grindavík
LISTMÁLARARNIR Júlíus Sam-
úelsson og Hjördís Árnadóttir eru
með málverkasýningu í Framsóknar-
húsinu í Reykjanesbæ, í Hafnargötu
62 í Keflavík, þessa vikuna. Sýning-
unni lýkur sunnudaginn 12. maí.
Sýna hjá
Framsókn
Reykjanesbær
FÉLAG ungra framsóknarmanna í
Reykjanesbæ stendur fyrir opnum
fundi um kynheilbrigði í Framsókn-
arhúsinu, Hafnargötu 62 í Keflavík, á
morgun, miðvikudag, kl. 20.
Gestur fundarins verður Einar
Skúlason formaður Sambands ungra
framsóknarmanna (SUF). Tilgangur-
inn er að vekja athygli á stærsta heil-
brigðisvandamáli ungs fólks á Íslandi,
þ.e. þeim málum sem tengjast kynlífi
og kynheilbrigði í breiðum skilningi.
Fundur um
kynheilbrigði
Reykjanesbær
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
PÁLL Árnason frá Skákfélagi
Reykjanesbæjar var kosinn fyrsti
formaður Tómstundabandalags
Reykjanesbæjar á stofnfundi banda-
lagsins sem haldinn var fyrir
skömmu.
Ritari er Emil Víðisson frá Smá-
bílaklúbbi Íslands og Magnús Krist-
insson frá Flugmódelfélagi Suður-
nesja er gjaldkeri. Varamenn eru
Helgi Magnússon frá Pílufélagi
Reykjanesbæjar og Gestur Frið-
jónsson frá Félagi harmónikkuunn-
enda á Suðurnesjum. Skoðunar-
menn reikninga voru kosnir Þórólfur
Þorsteinsson frá Félagi harmón-
ikkuunnenda og Stefán Bjarkason
íþrótta- og tómstundafulltrúi.
Kosinn formað-
ur Tómstunda-
bandalags
Reykjanesbær
♦ ♦ ♦