Morgunblaðið - 07.05.2002, Page 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 19
HRINGSNÚRUR
Hringsnúrurnar vinsælu
eru komnar aftur.
Mikið úrval
REKSTUR Kaupþings banka hf.
skilaði 321 milljón króna hagnaði á
fyrsta fjórðungi ársins 2002 og er það
79% betri afkoma samstæðunnar en á
sama tímabili í fyrra. Þar af var hagn-
aður erlendra dóttur- og hlutdeildar-
félaga 30 milljónir króna og hlutdeild í
hagnaði Frjálsa fjárfestingarbankans
var 116 milljónir króna.
Hreinar rekstrartekjur Kaupþings
jukust um 72% frá sama tímabili í
fyrra og námu nú röskum 1,9 millj-
örðum króna. Þar af námu hreinar
vaxtatekjur tæpum 42 milljónum
króna á fyrsta ársfjórðungi í ár en
námu rúmum 17 milljónum króna í
fyrra. Aukningin nemur 142% á milli
ára. Þá nam gengishagnaður sam-
stæðunnar af annarri fjármálastarf-
semi 877 milljónum en 184 milljóna
króna tap varð af þessum lið í fyrra.
Rekstrargjöld námu tæpum 1,4 millj-
örðum króna og aukast um 76%, sem
skýrist af því að fleiri fyrirtæki koma
nú inn í uppgjörið en áður. Framlag í
afskriftareikning útlána nam 127
milljónum en það er rúmlega fjórföld-
un frá fyrra ári.
Kaupþing hefur nú hætt að verð-
leiðrétta reikningsskil sín, að því er
segir í árshlutareikningnum en sam-
anburðarfjárhæðum hefur ekki verið
breytt til samræmis. Hefði óbreyttum
aðferðum verið beitt við gerð reikn-
ingsskilanna nú hefði hagnaður bank-
ans lækkað um 75 milljónir króna.
Heildareignir samstæðunnar námu
í marslok 130 millörðum króna og
jukust um 9,8% frá áramótum. Útlán
voru 46,6 og lækkuðu um 5% frá árs-
byrjun en þau nema nú 36% af heild-
areignum. Eigið fé var 9,4 milljarðar
króna og CAD-hlutfall 11,7%. Arð-
semi eigin fjár var 14,7%.
Taka þátt í fjármögnun bandarísks
sjóðastýringarfyrirtækis
Hlutabréfaeign Kaupþings var
bókfærð á 20,1 milljarð króna í lok
fjórðungsins, þar af nemur hluta-
bréfasafn í óskráðum félögum 6,9
milljörðum. Þeirra á meðal eru Víf-
ilfell, Fasteignafélagið Stoðir, Kaup-
ás, Bonus Stores og Karen Millen.
Í tilkynningu kemur fram að félag-
ið hafi samið um að taka þátt í fjár-
mögnun sjóðastýringarfyrirtækisins
Drake Fund Management í New
York og keypt 20% hlut í fyrirtækinu í
formi forgangshlutabréfa að andvirði
10 milljónir Bandaríkjadala. Aðrir
eigendur eru stofnendur fyrirtækis-
ins og starfsfólk. Drake mun sérhæfa
sig í rekstri skuldabréfasjóða, bæði
hefðbundinna verðbréfasjóða og vog-
aðra skuldabréfasjóða og hafa þegar
safnast um 350 milljónir dala í sjóði
þess, að því er segir í tilkynningunni.
Frjálsi fjárfestingarbankinn
skilaði 117 milljónum
Hagnaður af rekstri dótturfélags-
ins Frjálsa fjárfestingarbankans, sem
Kaupþing á að 99,4% og er hluti af
samstæðunni, skilaði 117 milljóna
króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi,
samanborið við 355 milljóna króna
hagnað á sama tímabili í fyrra.
Í tilkynningu segir að betri afkomu
í fyrra megi rekja til 531 milljónar
króna gengismunar vegna gengis-
hækkunar hlutabréfa í Kaupþingi
banka hf. Gengismunur á fyrsta árs-
fjórðungi 2002 var hins vegar 1 millj-
ón króna.
Hreinar vaxtatekjur bankans juk-
ust um 128% frá sama tímabili í fyrra
og útlán drógust saman um 2% frá
áramótum til marsloka. Framlag í af-
skriftarreikning útlána var 15 millj-
ónir króna. Eigið fé Frjálsa fjárfest-
ingarbankans var 2,4 milljarðar í lok
tímabilsins, CAD-eiginfjárhlutfall var
23,7% og arðsemi eigin fjár 22,5%.
Fram kemur í tilkynningu að bankinn
hafi afnumið verðleiðrétt rekningsskil
í árshlutareikningnum en saman-
burðarfjárhæðum hafi ekki verið
breytt til samræmis.
Hagnaður Kaupþings
321 milljón króna
GENGI krónunnar styrktist í gær
um 0,93% í viðskiptum með gjaldeyri
á millibankamarkaði. Gengisvísital-
an var 128,85 stig í upphafi dags og
endaði í 127,65 stigum og hefur ekki
verið jafn sterkt síðan 4. apríl í fyrra.
Gengi Bandaríkjadals er nú 90,60
krónur en samkvæmt upplýsingum
frá gjaldeyrisborði Landsbankans
hefur gengi dals verið að lækka
gagnvart öðrum Evrópumyntum.
Gengi krónunnar gagnvart Banda-
ríkjadal hefur ekki verið hærra síðan
29. mars í fyrra.
Gengi íslensku krónunnar hefur
styrkst um 9,98% frá áramótum.
Gengi evrunnar er skráð 83,04 krón-
ur og breska pundið er á 132,98
krónur. Viðskipti á millibankamark-
aði voru um 5 milljarðar króna í gær,
samkvæmt upplýsingum frá gjald-
eyrisborði Landsbankans.
Krónan hefur
styrkst um 10% í ár
EES-nefndin var kölluð saman
til neyðarfundar í gærmorgun
vegna þeirrar ákvörðunar Evr-
ópusambandsins að leggja tolla
á stál frá öllum löndum sem
ekki eiga aðild að sambandinu.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir ákvörðun ESB
skýrt brot á EES-samningnum
og gott dæmi um þá erfiðleika
sem EES-löndin standi frammi
fyrir við að verja stöðu sína
gagnvart ESB. „Við erum hluti
af hinum innra markaði og þar
af leiðandi er óheimilt að beita
þessu gagnvart Íslandi og
Noregi,“ sagði hann.
Þá sagði Halldór á fundi
með blaðamönnum í utanrík-
isráðuneytinu í gær að hér
væri um „prinsippmál“ að
ræða þótt ákvörðun hefði ekki
bein efnahagsleg áhrif hér á
landi.
Tollar á stál
Ákvörðun
brot á
EES-samn-
ingnum
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Silhouette