Morgunblaðið - 07.05.2002, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 21
BU
DA
PE
ST
H A U S T I Ð Í
S k ó g a r h l í ð 1 8 • 1 0 5 R e y k j a v í k
S í m i 5 9 5 1 0 0 0 • F a x 5 9 5 1 0 0 1 • w w w . h e i m s f e r d i r. i s
28.450 kr.
Flugsæti til Búdapest, 14. október
með 8.000 kr. afslætti
ef bókað er fyrir 30. júní. Gildir
frá mánudegi til fimmtudags.
Fyrstu 300 sætin.
37.750 kr.
Flug og hótel í 3 nætur
m.v. 2 í herbergi á Tulip Hotel,
14. október,
með 8.000 kr. afslætti.
Buda
pest
Beint flug fimmtudaga og mánudaga í október
frá 28.450 kr.
með Heimsferðum
Búdapest er í dag ein
eftirsóttasta borg í Evrópu og
það undrar engan sem hefur
kynnst töfrum hennar.
Drottningin við Dóná og
hjarta Evrópu eru nöfn við
hæfi. Ungverjar eru orðlagðir
fyrir gestrisni og í Búdapest er
auðvelt að njóta veislu í mat og
drykk, á milli þess sem maður
kynnist ólíkum andlitum borgarinnar. Ungverjaland var í
þjóðbraut milli Austur- og Vestur-Evrópu og menningar-
arfurinn ber því vitni.
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast
þessari heillandi borg. Í boði eru mjög góð þriggja,
fjögurra og fimm stjörnu hótel og spennandi kynnisferðir
um borgina með íslenskum fararstjórum Heimsferða.
8.000 kr.
afsláttur
Ef þú bókar í ferð frá
mánudegi til fimmtudags
fyrir 30. júní, getur þú
tryggt þér 8.000 kr.
afslátt.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
IY
D
D
A
•
N
M
0
5
9
5
1
/s
ia
.is
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftir farandi athugasemd frá Aco-
Tæknival: „Talenta-Hátækni til-
kynnti á dögunum um 54 milljóna
króna tap á fyrsta ársfjórðungi og
rekur það til lækkana á gengi tveggja
skráðra fyrirtækja sjóðsins, Columb-
us IT Partner og AcoTæknivals. Hið
rétta er að 924 þúsund krónur af
ofangreindu tapi má rekja til Aco-
Tæknivals eða um 2% tapsins. Nafn
fyrirtækisins er því að ósekju dregið
inn tilkynninguna því öllum má ljóst
vera að lítilsháttar lækkun á gengi
AcoTæknivals ræður óverulegum
hluta í tapi Talentu-Hátækni. “
Athugasemd
frá Aco-
Tæknivali
LANDSBANKINN-Landsbréf spá-
ir óbreyttri vísitölu í maímælingu.
Gangi spáin eftir mun rauða strik-
ið haldast og léttir þá á óvissunni um
mögulega uppsögn kjarasamning-
anna.
Þá telja sérfræðingar bankans að
hratt dragi úr verðbólgu og góðar
líkur séu á að 2,5% verðbólgumark-
miðum Seðlabankans verði náð þeg-
ar á þessu ári.
„Aprílmæling benti sterkt til að
hratt dragi úr verðbólgunni. Þær
verðhækkanir sem komu til vegna
veikingar krónu á síðasta ári og
launahækkana hafa að mestu komið
fram. Einhverjir aðilar voru með
tímabundnar lækkanir fram yfir
maímælingu en óvíst er hvort þær
ganga til baka í júnímælingu þar sem
krónan hefur styrkst verulega síðan.
Þegar litið er á þróun að undan-
förnu sést að létt hefur á nær öllum
þrýstingi til hækkana hvort sem það
er vegna launa, gengis eða eftir-
spurnar og útlit því bjart framund-
an,“ að því er segir í spá Landsbank-
ans.
Greiningardeild Búnaðarbankans
spáir því að vísitala neysluverðs
lækki um 0,1% í maí og að gildi vísi-
tölunnar verði 221,7. Gangi spáin eft-
ir mælist verðbólga síðustu 12 mán-
aða rétt tæplega 6%. Styrking á
gengi krónunnar og lækkanir sem
tilkynntar hafa verið upp á síðkastið
eru helstu skýringar á þessari lækk-
un. Einnig hefur ákvörðun olíufélag-
anna um óbreytt verð á bensíni já-
kvæð áhrif á niðurstöðuna. Hagstofa
Íslands birtir vísitölu neysluverðs
14. maí n.k.
Vísitala neysluverðs
Litlum breyt-
ingum spáð
Fjárfestingarfélagið Gaumur
ehf. hefur selt 15.965.478 krón-
ur að nafnverði hlutafjár í Ís-
landsbanka hf. á verðinu 5,00,
þ.e. á söluverðinu um 79,8
milljónir króna. Eignarhlutur
Gaums eftir söluna er enginn.
Frá þessu var greint í tilkynn-
ingu á Verðbréfaþingi Íslands í
gær.
Gaumur er í eigu Jóhann-
esar Jónssonar, stjórnarmanns
í Baugi hf., og barna hans,
Kristínar og Jóns Ásgeirs,
bankaráðsmanns í Íslands-
banka.
Ekki náðist í Jón Ásgeir í
gær en hann er erlendis. Krist-
ín Jóhannesdóttir, fram-
kvæmdastjóri Gaums, vildi
ekki tjá sig um sölu eignar-
hlutarins í Íslandsbanka.
Gaumur
selur í
Íslands-
banka
HAGNAÐUR Sæplasts á fyrsta árs-
fjórðungi nam 18 milljónum króna
eftir skatta. Hagnaður fyrir afskrift-
ir og fjármagnsliði (EBITDA) var
tæpar 92 milljónir króna eða um
13,5% af tekjum. Á sama tímabili á
síðasta ári var tap af rekstrinum upp
á tæpar 10 milljónir króna. Veltufé
frá rekstri var tæpar 68 milljónir
króna sem er 18 milljónum króna
hærra en fyrir sama tímabil á árinu
2001. Reksturinn á fyrsta ársfjórð-
ungi hefur gengið vel þrátt fyrir að
sala hafi verið undir áætlunum, en
hún fór mun hægar af stað í Norður-
Ameríku en gert var ráð fyrir, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu
frá Sæplasti.
Rekstrartekjur félagsins námu
674 milljónum króna en rekstrar-
gjöldin námu 583 milljónum króna á
fyrstu þremur mánuðum ársins.
„Rekstur fyrsta ársfjórðungs
gekk í meginatriðum vel þrátt fyrir
að sölumarkmið hafi ekki náðst að
fullu. Munar þar mestu um að salan í
Ameríku var nokkuð undir áætlun-
um. Samt sem áður eru sölutekjur
samstæðunnar í heild að aukast um
tæp 23% milli tímabila.
Rekstrarkostnaður í heild er sam-
kvæmt áætlunum félagsins og er
ljóst að það mikla hagræðingarstarf
sem unnið var að allt sl. ár er farið að
skila sér,“ að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði (EBITDA) er nú um
13,5% af veltu þrátt fyrir að nokkurt
tap sé af rekstrinum í Kanada. Allar
aðrar einingar félagsins skila já-
kvæðri afkomu.
Á árinu 2002 er gert ráð fyrir að
afkoman verði mun betri en á síðasta
ári. Verkefnastaða félagsins er góð
um þessar mundir og virðist sem
sala í Norður-Ameríku sé að taka við
sér. Reiknað er með að hagnaður
verði af öllum einingum á öðrum árs-
fjórðungi.
Hagnaður Sæ-
plasts 18 milljónir
Tískuvörukeðjan
Karen Millen,
sem er í helm-
ingseign ís-
lenskra fjárfesta,
ráðgerir að yf-
irtaka einn
keppinauta sinna,
tískuvörukeðjuna
Whistles, fyrir 7
til 10 milljónir
punda (þ.e. 945
til 1.350 m.kr.),
að því er segir í
netútgáfu Times
í Bretlandi.
Þar segir að reiknað sé með að
gengið verði frá samningi þessa
efnis á allra næstu vikum. Tals-
menn íslensku fjárfestanna vildu
ekki tjá sig um málið við Morg-
unblaðið.
Fatahönnuðurinn Karen Millen
stofnaði samnefnt fyrirtæki sitt
árið 1981 en seldi um 49% hlut í
því til íslenskra fjárfesta sl. haust.
Um er að ræða nokkurn hóp fag-
fjárfesta með Kaupþing, Sigurð
Bollason og Magnús Ármann í
broddi fylkingar. Gert er ráð fyrir
að velta Karen Millen á síðasta
fjárhagsári, sem lauk í febrúar,
hafi numið ríflega 60 milljónum
punda (8,1 ma.kr.).
Whistles-fyrirtækið var stofnað
árið 1976 og var meira eða minna
í eigu stofnenda þar til í nóvember
sl. þegar helmingshlutur þeirra
var seldur fataheildsalanum Rich-
ard Caring fyrir um 5 milljónir
punda (675 m.kr.), sem fékk með
kaupunum full yfirráð yfir fyrir-
tækinu. Hann er sagður vilja selja
nú til að geta einbeitt sér að
kjarnastarfsemi sinni, en hann sér
m.a. bresku keðjunum Bhs og Arc-
adia fyrir fatnaði.
Samkvæmt upplýsingum Times
skilaði rekstur Whistles 1 milljón
punda í hagnað fyrir skatta á síð-
asta ári og vörusala nam um 25
milljónum punda (3,4 ma.kr.).
Karen Millen reynir
yfirtöku á Whistles
Morgunblaðið/Golli
♦ ♦ ♦