Morgunblaðið - 07.05.2002, Qupperneq 22
NEYTENDUR
22 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SJÖ hjólaáhugamenn festu nýver-
ið kaup á jafnmörgum TREK 5500
og 5900 keppnishjólum og segir
Ingi Rafn Bragason, versl-
unarstjóri Arnarins, að mikil gleði
hafi ríkt meðal viðtakenda þegar
hjólin voru afhent nú í sum-
arbyrjun. Umrædd hjól eru með
þeim allra léttustu sem framleidd
eru og með besta búnaði sem völ
er á, segir Ingi Rafn ennfremur,
en stellið er úr trefjaefni og hjóla-
búnaðurinn Duraace frá Shimano,
sem mun vera sá dýrasti frá fyr-
irtækinu. Gjarðirnar eru frá
Bontrager og úr títani, sem er létt
og sterkt eins og stellið, að hans
sögn.
Trefjar hannaðar af NASA
Ingi Rafn segir trefjaefnið í
stellinu upphaflega hannað hjá
Bandarísku geimvísindastofn-
uninni, NASA, og munu umrædd
hjól vera þau fyrstu sinnar gerðar
hér á landi. „Stellið er heilsteypt
og gífurlega létt og sterkt og
gleypir jafnframt í sig titringinn
sem myndast þegar hjólað er, en
lendir ekki í skrokknum á hjól-
reiðamanninum. Það er því mjög
sérstök tilfinning að hjóla á svona
hjóli,“ segir hann.
Lance Armstrong, þrefaldur
Tour de France meistari, notar
TREK 5900 keppnisreiðhjól og
segir Ingi Rafn að fulltrúar fram-
leiðendanna hafi verið hæst-
ánægðir með að selja sjö hjól í einu
til Íslands. „Jafngildir það því að
þeir hefðu selt 7.000 hjól á einu
bretti í Bandaríkjunum,“ segir
hann.
Hjólin kosta 550–600.000 krón-
ur og segir Ingi Rafn að rúmlega
hálft ár hafi liðið frá því að hug-
myndin um þessi kaup var fyrst
rædd og þar til hjólin voru afhent.
„Sendingin var svo tvær vikur á
leiðinni eftir að pöntunin var gerð
og mikið fjör í versluninni þegar
hópurinn kom að sækja hjólin,“
segir hann.
Kalla sig Hjólafélag miðaldra
skrifstofumanna
Hjólaáhugamennirnir sem um
ræðir eru Gísli Ólafsson, Guð-
mundur Björnsson, Frosti Sig-
urjónsson, Elvar Rúnarsson, Ósk-
ar M. Jónsson, Tómas Jónsson og
Gunnar Már Zoëga og segir Gísli
Ólafsson, einn liðsmanna, að hóp-
urinn hafi hjólað saman í nokkur
ár. „Það hefur verið draumur okk-
ar að fá hjól af þessu tagi en und-
anfarin ár höfum við hjólað á
fjallahjólum. Þessi hjól eru hins
vegar götuhjól og einungis ætluð
til hjólreiða á malbiki,“ segir hann.
Gísli er búsettur á Blönduósi og
kveðst hjóla nánast daglega. Aðrir
í hópnum búa í Reykjavík, utan
einn sem býr Suður-Frakklandi.
Liðsmenn eru 38–40 ára gamlir og
segir Gísli félagsskapinn hafa
komið fram undir nafninu Hjóla-
félag miðaldra skrifstofumanna
þegar hjólað var frá Reykjavík til
Egilsstaða í Eldrauninni svoköll-
uðu í fyrrasumar. „Þarna hjól-
uðum við á móti strákum úr lands-
liðinu, 10–20 árum yngri, og
unnum þá. Við erum allir miklir
keppnismenn í hópnum og kepp-
um ekki síst innbyrðis,“ segir
hann.
Æfingar fyrir hjólakeppni sum-
arsins eru þegar hafnar í félaginu,
þótt hver hjóli með sínu lagi enn
sem komið er og segir Gísli til að
mynda ráðgert að hjóla með ein-
um liðsmanna á heimaslóðum í
Frakklandi í sumar.
„Það hefur ekki enn komið í ljós
hver er bestur,“ segir hann að-
spurður. „Það er mismunandi á
hverjum tíma fyrir sig,“ segir Gísli
Ólafsson að síðustu.
„Draumur okkar að
eignast keppnishjól“
Morgunblaðið/Golli
Gísli Ólafsson, Guðmundur Björnsson, Frosti Sigurjónsson, Elvar Rúnarsson, Óskar M. Jónsson, Tómas
Jónsson og Gunnar Már Zoëga þegar hjólin góðu voru afhent á þriðja degi sumars.
BLÓMAVERSLUNIN Ráðhús-
blóm hefur á undanförnum vikum
boðið viðskiptavinum sínum að láta
5% söluandvirðis vegna blóma-
kaupa renna til styrktar málefni
sem þeir kjósa, segir Gerður Gunn-
arsdóttir hjá Ráðhúsblómum. Verð
á blómum hefur ekki hækkað fyrir
vikið að hennar sögn.
Gerður segir að kaupupphæðin sé
færð í bók ásamt nafni þess félags
eða samtaka sem viðskiptavinur vill
styrkja og að hann geti jafnframt
kvittað fyrir með nafni og kennitölu
ef óskað er. „Verslunin hefur síðan
samband við styrkþega og fær leyfi
til þess að safna fjármunum á til-
tekinn bankareikning. Kaup sem
gerð voru í mars eru lögð inn á
reikning í maí þegar kreditkorta-
greiðslur eru komnar til skila og
geta viðkomandi félög komið og
fylgst með bókhaldi yfir slíka sölu,“
segir hún.
Þau félög sem viðskiptavinir Ráð-
húsblóma hafa kosið að styrkja til
þessa eru Geðhjálp, ABC-hjálpar-
starf, Knattspyrnudeild KR, Um-
sjónarfélag einhverfra, Félag eldri
borgara, Hjálparstarf kirkjunnar,
Götusmiðjan, Þroskahjálp og Slysa-
varnafélagið Landsbjörg og segir
Gerður viðskiptavinum í sjálfsvald
sett að bæta félögum á listann.
„Þeim sem hyggja á blómakaup er
því bent á þetta tækfæri til þess að
gleðja bæði þann sem blómvöndinn
fær sem og félagið sem viðkomandi
vill styrkja,“ segir Gerður Gunnars-
dóttir í Ráðhúsblómum að síðustu.
5% af söluandvirði til
styrktar góðu málefni
HÁR ehf. hefur nú á boðstólum
nýjung frá Redken, Spray Starch
no. 15, sem er mótunarúði fyrir
hárið með
hitavörn, sam-
kvæmt til-
kynningu.
Hægt er að
móta hárið í
öllum gerðum
hitatækja með
því að nota
Spray Starch
og búa til
mynstur í hár-
ið, segir enn-
fremur. „Efnið
verður virkt
við hita, afraf-
magnar hárið,
klístrast ekki eða safnast utan á
hárið og þvæst auðveldlega úr.“
Fram kemur að tæki sem hita
hárið séu til á átta af hverjum tíu
heimilum nútímans. „Með aukinni
notkun sléttujárna, krullujárna,
krumpujárna og fleira eru hármót-
unarefni með hitavörn nauðsyn-
leg,“ segir loks í tilkynningu frá
Hári ehf.
Mótunarúði
með hitavörn
NÝTT
KOMIN er á markað ný tegund af
Wolford-sokkabuxum sem gerð er
sérstaklega fyrir opna skó, að því er
segir í tilkynningu frá Sigurbogan-
um. Buxurnar eru með upphleyptum
sílikon-bólum undir ilinni sem koma í
veg fyrir að fóturinn renni fram í
skóinn. Sokkabuxurnar eru þunnar,
með mattri áferð og fáanlegar í
tveimur húðlitum og svörtu. Wol-
ford-sokkabuxurnar fást eingöngu í
Sigurboganum við Laugaveg, segir
að síðustu í tilkynningu frá verslun-
inni.
Sokkabuxur
fyrir opna skó