Morgunblaðið - 07.05.2002, Síða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 25
um það hverjir hefðu til þess sögu-
legan rétt. Fundirnir eru haldnir í
borginni Charlottesville í Virginíu en
um 800 manns eru í samtökunum.
The New York Times hefur eftir
MONTICELLO-SAMTÖKIN, félag
niðja þriðja forseta Bandaríkjanna,
Thomas Jeffersons, ákváðu á sunnu-
dag að taka ekki inn í samtökin af-
komendur ambáttarinnar Sally
Hemings en lengi hefur verið talið að
hún hafi átt barn eða jafnvel börn
með forsetanum. Samtökin fóru að
ráðum sérfræðinganefndar sem
kannað hefur málið. Niðurstaða
hennar var að ekki væru nægilega
traustar vísbendingar „til að hægt sé
að staðfesta að Hemings-fjölskyldan
sé meðal afkomenda Jeffersons“.
Grunsemdir um að forsetinn hafi
eignast barn með Sally hafa verið á
kreiki frá því snemma á 19. öld en
hann gegndi forsetaembættinu
1801–1809. Rannsóknir á DNA-
erfðaefni árið 1998 gáfu til kynna að
karlmaður úr fjölskyldu Jeffersons
hefði verið faðir Estons, sonar Hem-
ings. Einn úr röðum hinna óum-
deildu afkomenda, John Works
yngri, stóð fyrir annarri rannsókn og
varð niðurstaða hennar að yngri
bróðir forsetans, Randolph Jeffer-
son, hefði ef til vill verið faðir Estons.
Árið 1999 fóru sumir afkomendur
Hemings að sækja fundi Monticello-
samtakanna og hófust þá deilurnar
Nathaniel Ableles, nýjum forseta
samtakanna, að Hemings-ættin
myndi fá inngöngu ef fullkomnari
DNA-rannsóknir einhvern tíma í
framtíðinni gerðu kleift að staðfesta
tengslin við forsetann. Félagar í
Monticello-samtökunum, sem stofn-
uð voru 1913, eru jarðsettir í sérstök-
um grafreit forsetans. Málið er afar
viðkvæmt í Bandaríkjunum vegna
þess að sumir halda því fram að kyn-
þáttafordómar ráði gerðum liðs-
manna samtakanna.
Martha, eiginkona Jeffersons, var
hálfsystir Sally Hemings sem var
mun yngri. Martha lést fyrir aldur
fram árið 1782 eftir tíu ára hjóna-
band. Sagt er að forsetinn hafi heitið
Mörthu á dánarbeði hennar að eiga
ekki aðra konu.
Sumir af afkomendum Hemings
telja sig vera úr röðum hvítra
Bandaríkjamanna, aðrir úr röðum
blökkumanna. En Shay Banks-
Young, einn af afkomendum Hem-
ings, ypptir öxlum yfir ákvörðun
fundarins á sunnudag. „Þetta særir
okkur ekki. Þótt við séum ekki í sam-
tökunum erum við eftir sem áður
hluti fjölskyldunnar.“ Hún lýsti hins
vegar óánægju sinni með að afkom-
endum Hemings væri meinað um
legstað í grafreit forsetans, líkti
þeirri ákvörðun við aðskilnað kyn-
þáttanna sem lengi var regla í suður-
hluta Bandaríkjanna.
Niðjar Hemings úti í kuldanum
Charlottesville. AP.
Afkomendur Jeffersons forseta vilja
ekki kannast við ambáttarættina
AP
Félagar í niðjafélagi Thomas Jeffersons, Bandaríkjaforseta fyrir 200
árum, við Monticello, bústað forsetans í Virginíu.
ÓTTAST er, að meira en 200
manns hafi farist er ferju
hvolfdi á Meghna-fljóti í
Bangladesh sl. föstudag. Var
það haft eftir embættismönn-
um í gær en þeir telja, að nokk-
uð á fimmta hundrað manna
hafi verið um borð þótt skipið
hafi aðeins mátt flytja um 200
manns. Ferjur, um 3.000 tals-
ins, eru eitt helsta samgöngu-
tækið í Bangladesh en slys af
völdum ofhleðslu og vankunn-
áttu skipstjórnarmanna eru
mjög tíð. Frá 1977 og til loka
síðasta árs týndi 2.221 maður
lífi í 249 ferjuslysum í landinu.
Eftirlit með
norskum
skipum
STJÓRNVÖLD í Bandaríkj-
unum hafa farið fram á það við
norsk yfirvöld, að bandaríski
sjóherinn fái að fara um borð í
norsk skip í Indlandshafi og
undan Arabíuskaga leiki grun-
ur á að hryðjuverkamenn hafi
notað sér þau með einhverjum
hætti. Kemur það fram í Aften-
posten, sem segir, að þessi
málaleitan hafi þó ekki verið
gerð opinber. Telur blaðið lík-
legt, að öðrum ríkjum hafi ver-
ið sent svipað erindi. Sagt er,
að norska stjórnin sé fús að
ræða þetta mál við Bandaríkja-
stjórn og eigendur skipanna.
Haider í Írak
JÖRG Haider, leiðtogi Frels-
isflokksins, hægriöfgamanna í
Austurríki, fór í sína aðra ferð
til Íraks um
síðustu helgi.
Hefur sam-
band Haiders
og Frelsis-
flokksins, sem
situr í stjórn
ásamt Íhalds-
flokknum, við
Saddam Huss-
ein Íraksfor-
seta verið harðlega gagnrýnt,
innanlands sem utan.
Verkföll í
Þýskalandi
FYRSTA verkfall IG Metalls,
stærsta verkalýðssambands
Þýskalands, í sjö ár hófst í gær
er 30.000 manns lögðu niður
vinnu í einn dag. Hefur sam-
bandið boðað til nokkurra
dagsverkfalla hjá völdum fyr-
irtækjum þar til „viðunandi
lausn“ finnst á launadeilu þess
og vinnuveitenda. Óttast er, að
verkföllin geti tafið fyrir aukn-
um hagvexti í Þýskalandi.
Mikið mann-
fall í Nepal
TALSMENN stjórnarhersins
í Nepal sögðu í gær, að hundr-
uð skæruliða maóistahreyfing-
ar í landinu hefðu fallið í mikl-
um árásum á búðir þeirra í
fjöllunum. Voru árásirnar
gerðar með þyrlum búnum
nætursjám. Áður hafði herinn
skýrt frá því, að 360 skæru-
liðar hefðu fallið í átökum víðs
vegar um landið. Mannrétt-
indasamtök hafa sakað hvoru-
tveggju um afbrot gegn
óbreyttum borgurum.
STUTT
Meira en
200 fórust
með ferju
Jörg Haider
ÞVÍ er haldið fram í nýrri bók um
bandarísku alríkislögregluna, FBI,
að Mark Felt, fyrrverandi aðstoð-
arforstjóri stofnunarinnar, hafi
verið hinn svokallaði „Deep
Throat“, þ.e. ónafngreindur heim-
ildarmaður blaðamanna The Wash-
ington Post, Bobs Woodwards og
Carls Bernsteins, en rannsóknir
þeirra á Watergate-hneykslinu í
Bandaríkjunum leiddu til afsagnar
Richards Nixons forseta árið 1974.
The Washington Times greindi
frá því fyrir helgi að í nýrri bók
Ronalds Kesslers, sem áður starfaði
hjá The Washington Post, væri
þessu haldið fram. Bók Kesslers
heitir The Bureau, The Secret
History of the FBI og kemur hún út
á næstu dögum.
Getgátur um hver „Deep Throat“
var hafa lengi sett svip á banda-
ríska stjórnmálaumræðu. Hafa þeir
Woodward og Bernstein sagt, að
þeir muni ekkert um það segja fyrr
en að honum látnum.
Margir þeirra, sem nefndir hafa
verið til sögunnar, eru látnir en
Felt er á lífi og kemur því til greina
ef eitthvað er að marka yfirlýsingu
Woodwards og Bernsteins. Heilsa
hans mun þó ekki vera góð.
Felt var á sínum tíma þriðji
valdamesti maðurinn hjá FBI. Þeg-
ar Watergate-málið kom upp hafði
hann nýlega verið sniðgenginn við
ráðningu nýs forstjóra. Segja sum-
ir, að Nixon forseti, sem sagði af
sér 1974, hafi verið sannfærður um
að Felt væri „Deep Throat“.
„Deep
Throat“ af-
hjúpaður?
FLUGFÉLAGIÐ SAS íhugar að
taka upp snjallkort, sem geyma
fingraför farþega, til að bera kennsl
á þá við innritun, að sögn norska
dagblaðsins Aftenposten í gær.
Þessi aðferð byggist á því að
fingraförin eru lesin af snjallkortun-
um með kortalesara. Farþeginn
þrýstir síðan fingri á plötu á innrit-
unartæki og fingraförin eru borin
saman við gögnin á kortinu.
Flugfélagið hefur á prjónunum að
reyna þessa nýju tækni fyrst í höf-
uðstöðvum sínum og síðan á hópi far-
þega á einum af stærstu flugvöllum
Norðurlanda.
Innritun með
fingraförum
♦ ♦ ♦