Morgunblaðið - 07.05.2002, Qupperneq 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 27
STANDARD +
STANDARD+ bílskúrshurðirnar frá Garaga eru
framleiddar undir ströngu eftirliti í mörgum
stærðum og litum. Framleiddar með varanleika
og fallega hönnun í huga.
Við bjóðum 15% afslátt af öllum
pöntunum í maí.
Sími 525 3000 • www.husa.is
Bílskúrshurðir
ÞESSI vel útilátna sýning gefur
góða innsýn í margháttað höfund-
arverk Ólafs Þórðarsonar. Sýningin
er hingað komin frá John Elder
Gallery í New York. Þótt yfirlitið sé
ef til vill nokkuð langt frá því að kall-
ast tæmandi er með hjálp litskyggna
og myndbands bætt fyrir plássleys-
ið. Fyrir vikið fæst allfyllt mynd af
þessum ágæta hönnuði og skipulags-
fræðingi sem hefur aðsetur í New
York og lætur sig varða umhverfi
sitt í stóru sem smáu.
Líkt og Gaetano Pesce, hinn víð-
kunni, ítalski áhrifavaldur og koll-
ega, gengur Ólafur frjálshuga og
organískt til verks. Óhjákvæmilega
kemur upp í hugann Paul Klee og
sérkennilega lífræn veröld hans þar
sem óheft línuspil – á stundum líkast
símakroti – kveikir fastmótaðar hug-
myndir. Þetta virðist til dæmis eiga
við um snigilinn sem umhverfist í
klukku. Jafnvel hér er eitthvað í
smellinni hugdettunni sem minnir á
Klee og broslegar uppfinningar
hans, svo sem Tístivélina góðu frá
1922.
En það er fleira sem minnir á
Klee og símakrotið. Ormahillurnar,
sem Ólafur kallar svo og líkjast helst
uppdrætti af hornhvössum völund-
arhúsum, minna sterklega á bein-
línuspil þar sem línan tekur engan
endi en fléttast áfram um fernings-
laga hólf, stór og smá. Ófá verk Klee
byggjast á slíkum óhlutbundnum
köflum sem dregnar eru með bein-
um en fríhendis útlínum. Sem
hirslur og vínrekkar nýtast þessi
módernísku völundarhús afbragðs-
vel.
Lampar eru þó þeir hlutir sem
setja mestan svip á sýningu Ólafs
Þórðarsonar. Sumir eru úr mjúkri
kvoðu eins og snigilklukkurnar, aðr-
ir eru eilítið harðari, viðlíka sumum
Ormahillunum, og enn aðrir eru
belgvíðir eins og tuðrur með víðu
barkaopi – svonefndir Hönd í belg –
sem hefur sína sérstæðu lögun svo
auðvelt sé að fara með höndina ofan
í belginn og skipta um peru.
Þá eru ónefndar margvíslegar til-
lögur Ólafs að skipulagi á hvers kyns
reitum í landi borgar og bæja, þar á
meðal á Seltjarnarnesi og Álftanesi.
Hvarvetna virðast þó vera formræn
tengsl milli verka Ólafs og hvar-
vetna gætir áhrifa módernismans.
Um leið og verk hans hljóma nýstár-
leg minna þau sterklega á ýmsar
listrænar tilraunir frá fyrri hluta
tuttugustu aldar. Tímaskyn Ólafs er
greinilega mjúkt eins og klukkur
hans, og úrin í Kergja minnisins,
hinni þekktu mynd Salvadors Dalí.
Eitt er öðru tengt í endalausri keðju
orsaka og afleiðinga, enda tryggir
slík framvinda betur en nokkuð ann-
að sérkenni höfundarins.
Mjúkar og
harðar lausnir
MYNDLIST/HÖNNUN
Hönnunarsafn Íslands
Til 12. maí. Opið þriðjudaga til sunnu-
daga frá kl. 14–18.
HÖNNUN & TEIKNINGAR
ÓLAFUR ÞÓRÐARSON
Halldór Björn Runólfsson
Frá sýningu Ólafs Þórðarsonar í Hönnunarsafni Íslands.
Á CAFÉ Presto, Hlíðarsmára
15 í Kópavogi, stendur nú yfir
sýning á olíumálverkum Egils
Eðvarðssonar. Sýningin nefn-
ist Matarlist.
30 ár eru liðin frá því Egill
útskrifaðist úr Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og 7 ár
frá síðustu einkasýningu hans.
Að þessu sinni er myndefnið
matur.
Málverka-
sýning á
Café Presto
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122