Morgunblaðið - 07.05.2002, Síða 30

Morgunblaðið - 07.05.2002, Síða 30
LISTIR 30 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ NICOLE Vala Cariglia sellóleikari og Árni Heimir Ingólfsson píanó- leikari halda í kvöld tónleika í Saln- um, Tónlistarhúsi Kópavogs sem hefjast kl. 20. Á efnisskrá eru þrjár sónötur; Gömbusónatan í D-dúr eft- ir J. S. Bach, Arpeggione-sónatan í a-moll eftir Schubert og Sellósón- ata í d-moll eftir Shostakovich. Tónleikarnir eru þeir þriðju sem Nicole Vala og Árni Heimir halda saman á þremur árum, og segjast þau ætla að halda samtarfinu áfram. Þau eru bæði búsett í Bost- on í Bandaríkjunum þar sem Nicole Vala hefur verið að spila með Fíl- harmóníusveitinni og í fleiri verk- efnum að loknu sínu námi við New England Conservatory of Music, en Árni Heimir er um þessar mundir að ljúka doktorsnámi í tónvísindum við Harvard-háskóla. Nokkurra tónlistarsögulegra áhrifa gætir í efnisvali tónleikanna, en verkin spanna ríflega 300 ára sögu sellósins og forvera þess, gömbunnar, sem var alþekkt hljóð- færi á barrokktímanum og arpegg- iones, sem átti sér stutta sögu á fyrstu áratugum 19. aldarinnar. Bæði verkin leikur Nicole Vala þó á nútímaselló, sem og hina drama- tísku sónötu Shostakovich frá 1934. „Í síðustu tónleikum fluttum við eingöngu tuttugustu aldar tónlist, en vildum gjarnan koma fram með fjölbreyttari dagskrá, og vinna út frá dálítið óvenjulegu þema. Þann- ig byrjum við á Bach-sónötunni sem er með elstu verkum sem selló- leikarar geta spilað. En verkið er í raun hvorki samið fyrir selló eða píanó, heldur fyrir gömbu og semb- al. Þannig erum við bæði að svindla dálítið og því nokkuð flókið mál að flytja verkin á réttan hátt á Steinway-flygil og nútímaselló. Þessi tónlist kallar t.d. á talsvert hlutlausari túlkun en hljóðfærin bjóða upp á. Mér finnst Nicole gera þetta ótrúlega vel, því hún lætur sellóið í raun hljóma eins og það sé gamba,“ segir Árni Heimir. Næsta verk á efnisskrá tón- leikanna er verk eftir Schubert samið fyrir arpeggione, hljóðfæri sem komst í tísku í Vínarborg í kringum 1820. „Hjóðfærði lifði í raun mjög stutt, var nokkurs konar amatörhljóðfæri, með sex strengj- um og afmörkuðum böndum, og var mjög auðvelt að spila á það alls kyns flókna hluti. Verkið sem við spilum á tónleikunum er það eina sem lifað hefur af því sem samið var fyrir arpeggione enda alveg sérstaklega fallegt verk. Það verð- ur hins vegar talsvert flóknara þegar maður reynir að spila það á selló,“ segir Nicole Vala og hlær. „Það má kannski segja að við séum að ögra okkar takmörkum í þessu efnisvali, og reyna þar á ákveðna hluti. Í síðasta verkinu á efnisskránni, Shostakovich- sónötunni getum við hins vegar sleppt alveg fram af okkur beislinu og gert það sem ekki má í hinum verkunum. Þetta er ákaflega til- finningaþrungið verk og uppfullt af andstæðum þar sem greina má öll þau einkenni sem Shostakovich þróaði síðar á sínum ferli. Verkið spannar mjög breitt tilfinningalegt litróf, allt frá lýrík, dramatík, trega og hæðni,“ segir Árni Heimir að lokum. „Reynum á eigin takmörk“ Morgunblaðið/RAX Árni Heimir Ingólfsson og Nicole Vala Cariglia leika sónötur eftir Bach, Schubert og Shostakovich á tónleikum í Salnum í kvöld. EINLEIKSVERK fyrir selló voru fremur fágæt framan af og var Bach í raun eini stóri tónsnillingurinn sem samdi slík verk. Það var svo ekki fyrr en Casals endurvakti sellósvíturnar, að tónskáld fóru að keppast við að semja einleiksverk fyrir selló. Erling Blöndal Bengtsson hefur leikið allar sellósvíturnar eftir Bach, á tónleikum hérlendis en hann er talinn einn besti Bach-túlkandi á okkar tímum og í hópi færustu sellóleikara heimsins. Það er því stór stund að njóta heim- sóknar hans og á Tíbrár-tónleikum í Salnum s.l. sunnudagskvöld lék hann verk eftir Hindemith, Sibelius, J.S. Bach og Kodály. Fyrsta verk tónleikanna var sónata op.25 nr.3 eftir Hindemith. Verkið er í fimm þáttum, sem eru fremur stuttir og er verkið samið 1923, þegar hann er 28 og þá aðallega þekktur sem fiðluleikari og kammermúsikant. Annað verk tónleikanna var nýfundið verk eftir Sibelius, stef með tilbrigð- um, líklega samið 1889, sem talið er að Sibelius hafi samið fyrir bróður sinn. Þriðja svítan í c-dúr BWV 1009 eftir Bach var síðust fyrir hlé og lokaverk- ið var svo sónata op.8. eftir Kodály, stórbrotið og tignarlegt verk. Öll verkin voru einstaklega glæsi- lega flutt og það er í raun stórkostlegt að sjá Erling Blöndal Bengtsson leika, því tækni hans er slík. t.d. boga- tæknin, að það er rétt eins og boginn snerti ekki strengina og handahreyf- ingarnar svo áreynslulausar, sem ekkert sé sjálfsagðara og tónmynd- unin þar með næsta auðveld. Þá er næsta lítil fyrirstaða á gripbrettinu og yfir öllu þessu vakir stórbrotinn túlk- andi, þar sem tónmálið er ekki aðeins yfirmáta skýrt í allri útfærslu, heldur og þrungið merkingu og sterkum tilfinningum. Í sónötu Hindemiths var upphafið átaksmikið, annar kaflinn hraður, sá þriðji hægur og dimm- hljómandi, fjórði ein- staklega léttur með glitrandi „stakkato“, sem var einstaklega glæsilega útfært og loka- kaflinn, sem var í raun það stóra í verkinu, hraður og tilkomumikill. Stef og tilbrigði eftir Sibelius voru fallega mótuð og í tilbrigðunum mátti heyra að Sibelius kunni margt varðandi útfærslu strengjaleiks, enda var hann sjálfur afburða fiðlari og úfærsla ein- leikarans var frábærlega mótuð. Þriðja sellósvítan, í c-dúr, eftir meistara J.S. Bach, var merkt þeim glæsibrag sem hefur alla tíð verið að- all Erlings Blöndals Bengtssonar en fyrir undirritaðan var sarabandan, sem er eins konar möndulþáttur svít- unnar, hægferðug og hljómþrungin (nema í þeirri fimmtu), einstaklega fagurlega flutt. Bourrée-þættirnir, sérstaklega sá seinni, sem var hvísl- andi fagur, og lokakaflinn, „gikkur- inn“, voru meistarlega vel fluttir, af þeirri list sem stendur utan og ofan við allt sem heitir tækni, en býr yfir því sem helst má heyra í ljóðum málsnillinga, þar sem rím og kunn- átta er horfin til vistar í víðernum fegurðarinn- ar. Lokaverk tón- leikanna var sónata op.8, eftir Kodály, glæsiverk sem vitnar um mikla kunnáttu tónskáldsins á sviði sellóleiks og þar fór meistari Erling Blön- dal á kostum og var t.d. túlkun hans á tónmáli hæga kaflans einstak- lega glæsileg. Í rauninni er ekki hægt að lýsa einstökum atriðum. T.d. hvernig tónskáldið vefur inn í verkið notkun pizzicato, sem byggist að nokkru á sérstakri tónstillingu strengjanna (scordatura). Í lokakafl- anum, sem er eins konar „rapsodisk cadenza“, var flutningurinn með ein- stökum hætti einstaklega leikandi, eins og ekkert væri sjálfsagðara og sannar það, hvað er að vera snillingur, sem lyftir öllu, sem hann snertir á, til þess glæsileiks, sem er óskilgreinan- legur og aðeins snertanlegur af þeim sem hafa verið vígðir fegurðinni. TÓNLIST Salurinn Sellósnillingurinn Erling Blöndal Bengts- son flutti einleiksverk eftir Hindemith, Sibelius, J.S. Bach og Kodály. Sunnudag- urinn 5. maí, 2002. EINLEIKSTÓNLEIKAR Vígður fegurðinni Jón Ásgeirsson Erling Blöndal Bengtsson MARGT var um manninn á síð- ustu sunnudagssíðdegistónleikum vetrarins í Ými og gólfhæðin nánast fullsetin áheyrendum. Að frátöldum Sjö spænsku alþýðusöngvum de Fallas í lokin var efnisskráin á þýzku, í tímaröð og öll í þrenndum: þrjú lög eftir Mozart, þrjú eftir Schubert, þrjú eftir Mahler og þrjú splunkuný eftir Pál P. Pálsson sem flutt voru í fyrsta sinn við þetta tækifæri. Óhætt er að segja að viðfangsefni dagsins hafi verið bæði skemmtileg og fjölbreytt, enda þótt meirihlutinn einkenndist af ljóðrænt-epískri frá- sögn. Byrjað var í léttasta enda með e.t.v. fyrsta sönglagi Mozarts, An die Freude (ekki við frægt ljóð Schillers heldur eftir J.P. Uz) sem samið var á 12. aldursári, og tveim lögum frá þroskaárum hans, Das Lied der Trennung og Unglückliche Liebe – „Þegar Lovísa brenndi bréf ótrúa elskhuga síns“. Schubertlögin voru einnig vel valin og heyrast ekki of oft, Im Freien úr Schwanengesang-safn- inu, Thekla (ljóð Schillers um vofu dóttur Wallensteins hershöfðingja) og dramatíska Ossian-tónsetningin Kolmas Klage við ljóð „fakelorist- ans“ alræmda en innblásna, James McPhersons. Síðast fyrir hlé komu lög Mahlers úr Des Knaben Wunder- horn, Urlicht, Rheinlegendchen og Wo die schöne Trompete blasen; ídil- tær epík sveipuð barnslegum ævin- týraljóma en með gáskafullum und- irtóni í miðlaginu, ekki ósvipað og í íslenzka þjóðlaginu Eitt sinn fór ég yfir Rín. Sungið var af innlifun, og kímni þegar það átti við, og allra sízt stóð á dramatíkinni á skapþyngri stöðum. Samt þótti undirrituðum raddbeit- ingin í heild helzti einhæf – með nán- ast sama víbrató út í gegn, þrátt fyrir að örlaði á viðleitni til sléttsöngs í Theklu. Að ósekju hefði vel mátt beita honum oftar, því víða blöstu textatilefnin við, hvað þá á sumum veikustu nót- unum. Á hinn bóginn vantaði hvergi hljóm- fyllingu, enda virtist söngkonan leggja hlut- fallslega mest upp úr henni, jafnvel þótt yrði stundum á kostnað textaskýrleikans. Sam- fylgd píanóleikarans við sönginn var nánast full- komin, nema hvað leikið var ívið of sterkt í Kolmu. Annars var und- irleikurinn viðeigandi léttur í Mozart, þaul- kunnugur Schubert- stílnum og nærri því orkestrall en samt gegnsær í Mahler. Páll Pampichler Pálsson, einhver snjallasta orkestri sem á Íslandi hef- ur dvalið, hefur oft sýnt bæði ljóðræn og gamansöm tilþrif í hljómsveitar- verkum. Í þrem nýjustu sönglögum sínum, „Erotisches von Wilhelm Busch“, glóðvolg af pönnunni í Graz, sýndi hann einnig hvernig skrifa má sparlega en samt áhrifamikið fyrir píanó við söng. Text- arnir voru fengnir frá fyrrnefndum „föður teiknimyndaraðarinn- ar“ sem svo hefur ver- ið nefndur, því sögur Busch um prakkara- strik Max og Moritz upp úr 1865 urðu fyr- irmynd „The Katzen- jammer Kids“ – Binna og Pinna á frónsku. Lögin þrjú – Röschen, Der Geist og Scheu und treu – geisluðu af glettnu fjöri og stund- um svörtum húmor, er minnt gat í aðra rönd á annan teiknimynda- tónsetjara, frumlanda Páls – Heinz Karl Gruber, höfund Frankenstein! sem Íslenzka hljómveitin flutti fyrir um 20 árum. Þau Rannveig Fríða fóru hér á kostum, og varla furða þar eð verkið var sérstaklega samið fyrir söngkonuna og tileinkað henni. Hin verðugt vinsælu Siete canc- ionas populares españolas eftir Manuel De Falla (1876–1946) virðast ævinlega ætla að halda ferskleika sínum og óviðjafnanlegri tærri feg- urð, mótuð eins og þau eru af ást á þjóðlegri alþýðutónmennt Spánar með greinilega gítarskotinni píanó- rödd, jafnvel þótt ekki hafi verið ork- estruð af höfundi eins og próvensölsk hliðstæða þeirra, Chants d’Auvergne eftir Canteloube. Rannveig Fríða fór víða meistaralega með þessa innilegu tónlist; að vonum áhrifamest í skap- stærri lögum eins og Jota og lokalag- inu Polo sem ólguðu af ástríðu, en einnig í viðkvæma vöggusöngnum Nana, þó að maður saknaði þar – og einkum í hinu seiðandi Asturiana – sléttari tóns á köflum. Samt virtist hvað það varðar ríkja heldur meiri litafjölbreytni en naut í þýzku lög- unum fyrir hlé, hugsanlega þó að hluta þökk sé fjölbreytni laganna sjálfra. Gerrit Schuil lék glerskýrt og með sópandi spænskum flamenco-til- þrifum burtséð frá einstaka hálflopp- inni hendingu þar sem mestrar snerpu var þörf (e.t.v. eftirstöðvar fyrri fingurmeiðsla), sem náði þó hvergi að skyggja á glæsilega heild- ina. Undirtektir tónleikagesta urðu eftir því funheitar, og lauk þar með „matinée“-röð nýliðins vetrar í Ými á hápunkti við hæfi. TÓNLIST Ýmir Sönglög eftir Mozart, Schubert, Mahler, Pál Pampichler Pálsson (frumfl.) og de Falla. Rannveig Fríða Bragadóttir mezzo- sópran; Gerrit Schuil, píanó. Sunndaginn 5. maí kl. 16. LJÓÐASÖNGSTÓNLEIKAR Glettin lýrík, spænskur funi Ríkarður Ö. Pálsson Rannveig Fríða Bragadóttir KÓR Menntaskólans á Akur- eyri heldur tónleika í Akur- eyrarkirkju í dag þriðjudag, kl. 20. Á efnisskrá kórsins eru íslensk þjóð- og dægurlög. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnars- son sem með- al annars er stjórnandi Sinfóníu- hljómsveitar Norðurlands. Fyrir síðustu jól var gefinn út geisladiskur með söng kórsins og verður hann til sölu við innganginn. Aðgangseyrir er krónur 1.000 fyrir fullorðna en ókeypis fyrir skólafólk og börn. Tónleikar Kórs Mennta- skólans á Akureyri Guðmundur Óli Gunnarsson VAKA – Helgafell hefur sent frá sér í kiljuformi bókina Uppgjör við um- heiminn eftir Val Ingimundarson. Bókin kom út fyrir síðustu jól og var meðal annars tilnefnd til Ís- lensku bók- mennta- verðlaunanna. Hér er á ferðinni saga um einhver mestu átakamál þjóð- arsögunnar: herstöðina í Keflavík, að- ildina að NATO og þorskastríð við Breta þar sem þjóðernishyggja og inn- anlandsátök mótuðu mjög afstöðu manna. „Valur Ingimundarson byggir frá- sögn sína að miklu leyti á frumheim- ildum sem ekki hafa áður komið fyrir almenningssjónir. Valur Ingimundarson, sem er lektor í sagnfræði við Háskóla Íslands, hef- ur um árabil rannsakað innlend og er- lend skjalasöfn og sendir hér frá sér nákvæma úttekt á dramatískum tím- um. Hér birtist loksins sagan bak við söguna – eftirminnileg lýsing á sögu- legu uppgjöri við umheiminn,“ segir í kynningu. Bókin er 431 blaðsíða. Kápuhönnun: Ragnar Helgi Ólafs- son. Prentvinnsla: Nørhaven paper- back A/S, Danmörku. Leiðbeinandi verð: 1.799 kr. Sagnfræði Valur Ingimundarson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.