Morgunblaðið - 07.05.2002, Qupperneq 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 31
LEIKSTJÓRINN Sam Raimi hef-
ur gert góða hluti í sinni kvikmynda-
gerð, og er frægur í huga margra fyr-
ir sínar meistaralegu hrollvekjur
kenndar við Evil Dead. Ekki er langt
síðan Raimi fór að gera sig heiman-
kominn meðal Hollywood-stórbokka,
og hafa nýjustu afurðir hans úr miðju
draumasmiðjunnar verið almennt
góðar. Sálfræðitryllirinn A Simple
Plan var til dæmis óvænt perla í kvik-
myndaflóru ársins 2000, en drauga-
tryllirinn What Lies Beneath var öllu
lakari, ekki síst vegna slaks handrits.
Um helgina var nýjasta kvikmynd
Raimis heimsfrumsýnd, en þar ræðst
leikstjórinn til atlögu við eitt af helstu
ofurmennum hasarblaðanna, sjálfan
Köngulóarmanninn eða Spider-Man.
Hér er greinilega um gæluverkefni að
ræða frá leikstjórans hendi sem sýndi
sterka fantasíutakta í hinni ágætu
mynd Darkman, auk þess að vera
sjálfur gamall og ástríðufullur Spid-
er-Man-aðdáandi.
Nálgun hans við viðfangsefnið er
enda mjög skemmtilegt í þessari nýju
Spider-Man stórmynd. Þar er lagt
upp með nostalgíska áherslu á að
fanga gamla hasarblaðaandann, og
tekst sú útlitssköpun mjög vel allt frá
því að kynningartitlarnir byrja að
rúlla. Við tekur síðan skemmtilegt
ævintýri, þar sem áhorfandinn kynn-
ist gagnfræðanemanum og erkinörd-
inum Peter Parker, sem þarf að tak-
ast á við þær flóknu hliðarverkanir í
almennri sjálfmyndarleit sinni, að
hafa erfðabreyst dálítið í kjölfar
köngulóarbits rauð-blárrar áttfætlu
sem til varð á erðafræðirannsóknar-
stofu. Með aðalhlutverkið fer ungur
leikari, Tobey Maguire og festir þetta
leikaraval söguna tryggilega í því
unglingsþroskasamhengi sem mynd-
ar heildarramma myndarinnar. Þessi
áhersla Raimis er snjöll og skemmti-
leg, leitað er aftur til dálítið gamal-
dags sögumótívs, þar sem innri tog-
streita hetjunnar verður aðalatriðið
en ekki einhverjar stórkostlegar
hryðjuverkafyrirætlanir illmenn-
anna.
Framan af er myndin alveg frábær,
mikið púður er lagt í að lýsa forsögu
hetjunnar og byggja upp helstu sögu-
persónur, þ.e. Köngulóarmanninn
sjálfan, vonda kallinn sem Willem
Dafoe leikur, ástina í lífi hetjunnar
sem leikin er af Kirsten Dunst og
heimshryggan vin hetjunnar sem
leikinn er af James Franco.
En þegar Köngulóarmaðurinn er
loksins kominn á ról, og hefst handa
við að vernda hinn almenna New
York-búa fyrir glæpum og hættum
stórborgarinnar, vita handritshöf-
undarnir ekki almennilega hvernig
þeir eiga að fara að því að halda á floti
þéttri hasaratburðarás. Hér kemur
hinn tölvuteiknaði Köngulóarmaður
jafnframt til sögunnar, sem á stund-
um skortir sannfærandi vigt (sama á
við um Græna garðálfinn eða hvað
það er sem vondi kallinn heitir). Um
leið og komið er fram í síðasta fjórð-
ung myndarinnar virðast handrits-
höfundarnir fyrst og fremst vera
farnir að huga að því að leggja lín-
urnar fyrir framhaldsmyndina (sem
þegar er komin í framleiðslu) og
gleymt að vinna almennilega í
spennufléttunni, sem samanstendur
af nokkrum keimlíkum „hangið í
lausu lofti“ atriðum, og langdregnum
slagsmálum hetjunnar og höfuðóvin-
arins (Matrix-taktarnir í því atriði
voru dálítið sorglegir). Þannig veldur
þessi annars stórfína ævintýramynd
nokkrum vonbrigðum í síðari helm-
ingi sínum.
Í anda hasarblaðannaKVIKMYNDIRSmárabíó, Stjörnubíó, Laugarásbíó
Leikstjóri: Sam Raimi. Handrit: David
Koepp, byggt á myndasögu Stan Lee og
Steve Ditko. Kvikmyndataka: Don Burg-
ess. Klipping: Bob Murawski og Arthur
Coburn. Tónlist: Danny Elfman. Tækni-
hönnuður: John Dykstra. Aðalhlutverk:
Tobey Maguire, Kirsten Dunst, Willem
Dafoe, James Dranco. Sýningartími: 120
mín. Bandaríkin. Columbia Pictures,
2002.
SPIDER-MAN (KÖNGULÓARMAÐURINN)
Heiða Jóhannsdóttir
MILLI 60 og 70 manns sóttu Lax-
nesskvöld í Manitoba-háskóla í
Winnipeg 23. apríl sl., en tilefnið
var að þá voru liðin 100 ár frá fæð-
ingu Halldórs Laxness.
David Arnason, prófessor og yf-
irmaður ensku- og íslenskudeildar
skólans, og Kristín Jóhannsdóttir,
lektor í íslensku við íslenskudeild-
ina, lásu úr Sjálfstæðu fólki. Leslie
Bardal las Söguna af brauðinu
dýra, John Peter Buchan söng
fjögur lög eftir Jón Ásgeirsson,
Jón Nordal og Jón Þórarinsson við
ljóð eftir Halldór Laxness. Eygló
Helga Haraldsdóttir lék undir á pí-
anó. Kristín Jóhannsdóttir og Tim
Schroeder, prófessor í heimspeki,
lásu kafla úr Snæfríði Íslandssól og
Eiður Guðnason sendiherra, aðal-
ræðismaður Íslands í Winnipeg,
rifjaði upp kynni sín af Halldóri
Laxness sem lesandi og fréttamað-
ur.
Neil Bardal, aðalræðismaður Ís-
lands í Gimli, kynnti dagskrárat-
riðin, en gestir þáðu veitingar í
boði aðalræðisskrifstofu Íslands í
Winnipeg að dagskrá lokinni.
Laxnesskvöld
í Manitoba-
háskóla
DJASSKVINTETTINN Motif
er um þessar mundir staddur
hérlendis og heldur þrenna tón-
leika á næstu dögum: í sal Tón-
listarskólans á Akranesi í kvöld,
kl. 20.30; á miðvikudag kl. 21, í
Deiglunni á Akureyri og á
fimmtudag kl. 21 í Kaffileikhús-
inu (Hlaðvarpanum).
Þessir tónleikar eru þeir síð-
ustu í tveggja vikna tónleikaferð
þeirra um Noreg og Ísland sem
hófst 25. apríl.
Kvintettinn skipa Ole Morten
Vaagan, bassi, Davíð Þór Jóns-
son, píanó, Atle Nymo, tenor-
saxófónn og bassaklarinett,
Mathias Eik, trompet, og Ha-
kon Mjaset Johansen, trommur.
Ole Morten semur mestalla tón-
listina og er hann jafnframt
stofnandi Motifs. Kvintettinn
var stofnaður í Þrándheimi
haustið 1999 og hefur síðan þá
leikið á hinum ýmsu djasshátíð-
um í Noregi. Hann hlaut titilinn
Young Nordic Jazzcomets 2001
á Jazzhátíð Kaupmannahafnar
síðasta sumar.
Plötuupptökur fóru fram í
Rainbow Studios í Ósló þegar
ferðin var hálfnuð og er geisla-
diskur væntanlegur seinnihluta
þessa árs.
Motif leikur