Morgunblaðið - 07.05.2002, Page 40
UMRÆÐAN
40 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
-
IT
M
90
13
Lagerhreinsun!
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Ný vefsíða: www.i-t.is
20-70%
afsláttur
Eldhúsvaskar Háfar og vifturHelluborð
Ofnar
Hornbaðkör
með nuddi
2ja manna
hjartalaga
Gufunudd-
sturtuklefar
Baðinnréttingar Eldhúsinnréttingar
7.-18. maíeða meðan birgðir endast
ÞETTA er spurning
sem sonur minn einn
spurði mig að um dag-
inn. Ég var snögg til
svars og sagði „fyrir
þig, minn kæri“.
„Fyrir þig“ er að
mínu mati mjög gott
svar en kannski ekki
alveg nóg fyrir hann
né öll hin börnin, full-
orðna fólkið og eldra
fólkið sem ég um-
gengst.
„Fyrir þig“ tók ég
að mér stjórnarstörf í
Judodeild KA, sem
leiddi af sér stjórnar-
setu í aðalstjórn KA.
„Fyrir þig“ sit ég í unglingaráði
Þórs í körfuboltanum og þjálfa
sund. „Fyrir þig“ fer ég sem far-
arstjóri í hin ýmsu íþrótta-og
skólaferðalög. Og „fyrir þig“ hef ég
setið í foreldraráðum á ýmsum
stöðum. En fyrst og fremst er ég
vinstri græn fyrir sjálfa mig, því
ég trúi því staðfastlega að lífið fari
áfram en ekki aftur á bak. Ég trúi
því líka að það sé skylda mín að
skila samfélaginu í betra eða jafn-
góðu horfi og ég tók við því. Ég
trúi á þig og vil hlúa að velferð
þinni.
Og það eru hlutir í framtíðinni
sem ég hef áhyggjur af að eigi eftir
að verða sonum mínum til vand-
ræða. Til dæmis það hvort okkar
hreina og fína Ísland verði svo
hreint og fínt? Hvort græðgi minn-
ar kynslóðar sé búin að sóa öllu því
sem kallað er náttúru-
auðlindir í dag eða
selja þær úr landi?
Hvort framtíð
þeirra markist af því
að eiga aldraða heilsu-
lausa foreldra sem
hvergi fá inni þegar á
þarf að halda, vegna
þess að mín kynslóð
hugsaði ekki einu
sinni út fyrir nef sitt
og hélt að við yrðum
aldrei heilsulaus og
öldruð?
Hvort samfélagið
verði þannig að þeir
sem af einhverjum
ástæðum megi sín
minna, eigi ekki í nein hús að
venda, því það sé ekki í tísku að
hjálpa einhverjum öðrum?
Vil ég að synir mínir alist upp í
samfélagi þar sem fordómar ríkja
gagnvart þeim sem á einhvern hátt
skera sig úr fjöldanum?
Eða að þeir erfi þjóðfélag þar
sem hver er sjálfum sér næstur og
þeir teljist mestir sem geta á ein-
hvern hátt troðið niður náungann
og hagnast á því?
Nei það er svo langt í frá.
En hafa ekki allir stjórnmála-
flokkar það á stefnuskrá sinni að
gera lífið betra?
Ég efast ekki um að allir eru
sammála því.
En Vinstri hreyfingin – grænt
framboð hefur með stefnuskrá
sinni boðað framtíðarsýn sem er
glæsileg og samræmist þeim kröf-
um sem ég geri fyrir samfélag sem
er heilbrigt og sjálfbært.
Samfélag þar sem fólk tekur
höndum saman á jafnréttisgrund-
velli og myndar sterkt mótvægi við
þau öfl sem aðhyllast aðgreiningu
og misskiptingu auðsins.
Samfélag þar sem allir einstak-
lingar þess hafa jafnan rétt til að
lifa mannsæmandi lífi.
Samfélag þar sem eining og
bræðralag er sett ofar lífsgæðum
og græðgi.
Samfélag sem vill endurnýta
hluti og vernda náttúruna í stað
þess að nota, henda og eyðileggja.
Samfélag sem verður gott að
fæðast í, lifa og deyja í.
Samfélag sem trúir á manneskj-
una og framtíðina.
Þetta er það samfélag sem ég vil
hjálpa til við að byggja. Þetta er
það samfélag sem ég trúi að best
verði fyrir þá og aðra Akureyringa
að alast upp í.
Hvað finnst þér?
Mamma, af hverju
ertu vinstri græn?
Dýrleif
Skjóldal
Akureyri
Það eru hlutir í framtíð-
inni, segir Dýrleif
Skjóldal, sem ég hef
áhyggjur af.
Höfundur er í 5. sæti á lista
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs á Akureyri.
HÓTEL á Öskjuhlíð
er bráðsnjölll hug-
mynd. Ekki sem útihús
utan við vatnsgeym-
ana, sem bera hvolf-
þakið og veitingahúsið
Perluna uppi, heldur
ætti hið nýja hótel að
vera inni í geymunum
sjálfum Geysimikið
rými er í gömlu heita-
vatnsgeymunum og er
sjálfsagt að nýta það og
nálægð þess við veit-
ingastaðinn fyrir ofan.
Ekki treysti ég mér,
vegna skorts á faglegri
þekkingu, að útlista tæknilega
hvernig best er að breyta hitavatns-
tanki í hótel. En sem leikmaður voga
ég mér að leggja til að einn geym-
irinn yrði rifinn og byggður upp aft-
ur sem hótel. Úthliðin yrði þá alsett
bogadregnum gluggum með einu
glæsilegasta útsýni
Reykjavíkur. Innri hlið
sívalingsins, sem snýr
að anddyrinu yrði með
svölum og herbergjum
innaf þeim. Eftir því
sem þörf fyrir hótel á
þessum stað verður
meiri mætti taka fleiri
geyma til handargagns,
þ.e. rífa þá og byggja
hótelsívalning í stað-
inn. Inni í slíkum sí-
valningum yrði mikið
rými, sem yrði glugga-
laust og því ekki hægt
að nota fyrir hótelher-
bergi. Slíkt rými mætti
hugsanlega nota sem ráðstefnusali
eða sýningarsali ýmiss konar. Hót-
elbygging á þessum stað hefði
marga kosti. Staðsetningin er frá-
bær svo og útsýnið yfir nýja mið-
borgarbyggð í Vatnsmýrinni, borg-
ina alla, Faxaflóannn, nesin og
fjallahringinn. Veitingastaður er fyr-
ir hendi. Mjög glæsilegt anddyri
(lobby) er á staðnum. Rými er mjög
gott fyrir aðkomu, bílastæði, aðföng
o.þ.h. Á þennan hátt er hægt að nýta
glæsilega staðsetningu ofan á Öskju-
hlíðinni mun betur en nú er. Í and-
dyrinu yrði líf og fjör, smáveitingar,
vínstúkur, blaðabúð og ýmis þjón-
usta sem stórum hótelum heyrir til.
Það liggur engin ósköp á. Það ætti
að gefa þessari hugmynd góðan tíma
og undirbúa hana vel. Öskjuhlíðin er
svo vel í sveit sett að þá staðsetningu
þarf að nota vel og vandlega.
Hótel á
Öskjuhlíð
Jóhann J. Ólafsson
Höfundur er stórkaupmaður.
Skipulagsmál
Eftir því sem þörf fyrir
hótel á þessum stað
verður meiri mætti taka
fleiri geyma til hand-
argagns, segir Jóhann
J. Ólafsson, þ.e. rífa þá
og byggja hótelsívalning
í staðinn.