Morgunblaðið - 07.05.2002, Page 52
HESTAR
52 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Kosningarnar á mbl.is
Fréttir
Sveitarfélögin
Dagbók
Netkosning
Lögin
Aðrir kosningavefir
Spurningar til frambjóðenda
Á mbl.is er hægt að fylgjast með nýjustu
fréttum af kosningabaráttunni og fá ýtarlegar
upplýsingar um flest það sem viðkemur
sveitarstjórnarkosningunum í vor.
Vörurnar
sem virka
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
SKIPTAR skoðanir voru umþað hvort skynsamlegt væriað hverfa á vit fortíðar og
endurvekja hinar margrómuðu
stóðhestasýningar í Gunnarsholti
sem tengdust starfsemi stóðhesta-
stöðvarinnar. Þótti Jón Vilmund-
arson, formaður samtakanna, taka
nokkra áhættu með því að etja
mönnum sínum í þetta sýningar-
hald.
En það er orða sannast að ekk-
ert gerist ef aldrei er tekin áhætta
og dæmið gekk aldeilis vel upp hjá
Sunnlendingum því ætla má að
hátt í þúsund manns hafi heimsótt
Gunnarsholt að þessu sinni. En
hvað olli þessum mikla áhuga nú?
Tæpast hafa það verið dómar og
sýningar þeirra 29 hrossa sem
komu fyrir dómnefnd heldur miklu
frekar afkvæmasýning ellefu stóð-
hesta sem ekki hafa hlotið við-
urkenningu fyrir afkvæmi sín á
stórmóti.
Ágúst Sigurðsson hrossaræktar-
ráðunautur tók svo til orða að af-
kvæmasýningar væru mikilvægasti
hlekkurinn í ræktunarstarfinu og
víst er um að í allri framleiðslu eru
það afurðirnar og gæði þeirra sem
skipta höfuðmáli. Greinilega vakti
þessi sýning áhuga eigenda stóð-
hesta og komu meðal annars tveir
aðilar að norðan með hross til að
sýna við þetta tækifæri og reyndar
í reiðhallarsýningar einnig.
Aðsögn Jóns Vilmundasonar
virðist afkvæmasýningin hafa
dregið vagninn að þessu sinni og
nefndi hann sem dæmi að þegar
ljóst var að stefndi í líflega af-
kvæmasýningu hafi lifnað yfir
skráningum í dómana og megi
vafalaust þakka henni þessa góðu
mætingu.
Svo til allir afkvæmahóparnir
komu vel út og gáfu nokkra mynd
af því hvað þessir hestar eru að
gefa af sér. Sá elsti, Stormur frá
Stórhóli, er fimmtán vetra gamall
en sá yngsti Númi frá Þórodds-
stöðum er níu vetra. Undan honum
komu eingöngu fram fjögurra
vetra gömul trippi og virðist eng-
um blöðum um það að fletta að þar
er á ferðinni kynbótahestur og
kannski ánægjulegast að sjá að
hann virðist rétta af fótaburðarýrð
föður síns Svarts frá Unalæk. Af
öðrum áhugaverðum hópum má
nefna afkvæmi Roða frá Múla sem
virðist gefa afar gott tölt. Spuni
frá Miðsitju gefur léttbyggð fram-
falleg hross sem fara mjög vel í
reið og var gaman að sjá hversu
vel þau brokkuðu en það var ekki
alltaf tiltækt hjá föðurnum. Hrynj-
andi frá Hrepphólum skilar fal-
legum hrossum með afar góðu
brokki og sömuleiðis tölti þótt ekki
virðist rýmið neitt óskaplegt. Hóp-
urinn undan Kormáki frá Flug-
mýri olli nokkrum vonbrigðum
margra þótt ágætur væri. Að sjálf-
sögðu stóð Sif frá Flugumýri vel
fyrir sínu en hin voru heldur síðri
en vafalítið eru einhver tromp til í
ermum Páls Bjarka sem teflt verð-
ur fram síðar þegar meira liggur
við.
Galsi frá Sauðárkróki átti
þarna hóp sem að stærstum hluta
kom að norðan. Greinilegt virðist
að töltið er veiki hlekkurinn í
erfðum Galsa eins og var reyndar
hjá honum sjálfum. Sorglegt er
til dæmis með hest eins og
Glampa frá Efri-Rauðalæk sem
Baldvin Ari Guðlaugsson sýndi.
Hann býr yfir mjög athygliverðu
skeiði og brokki sömuleiðis en
töltið ekki fugl eða fiskur. Vík-
ingur frá Voðmúlastöðum sýndi
hins vegar að töltið skilar sér vel
til afkvæmanna.
Aldursforsetinn Stormur var
með prýðilegan hóp og ekki var
það síðra hjá Asa frá Kálfholti þótt
óneitanlega hefði verið skemmti-
legra að sjá eitthvað af hans kröft-
uga brokki í afkvæmunum en
myndarleg eru þau og fara vel.
Fremstur meðal jafningja hefur
þó líklega verið Andvari frá Ey
sem virðist gefa mjög gott ganglag
í myljandi reiðhrossum. Fremstur
í góðum hópi var án efa stóðhest-
urinn Stígandi frá Leysingjastöð-
um sem vekur athygli fyrir gott
tölt og brokk. Þótt eitthvað vanti
upp á léttleikann í afkvæmum
Andvara virðist hér á ferðinni afar
áhugaverður stóðhestur og ekki
spillir fyrir að afkvæmin virðast
mjög auðtamin sem er afar verð-
mætur eiginleiki.
En af þeim stóðhestum sem til
dóms mættu hlaut hæstu einkunn
Sjóli frá Dalbæ sem er undan
Trostani frá Kjartansstöðum og
Sjöfn frá Dalbæ sem er undan
Frey frá Flugumýri. Stóð hann
efstur sex vetra hesta og eldri.
Sjóli hlaut í aðaleinkunn 8,28, fyrir
sköpulag 8,20 og fyrir hæfileika
8,33. Hann hlýtur hæst 9,0 fyrir
skeið. Knapi var Brynjar Jón Stef-
ánsson. Næstur Sjóla varð Júpíter
frá Stóru-Hildisey undan Kjarki
frá Egilsstöðum og Hyllingu frá
Stóru Hildisey sem er dóttir
Gáska frá Hofsstöðum. Hann hlaut
á aðaleinkunn 8,21, fyrir sköpulag
8,37 og 8,11 fyrir hæfileika. Knapi
á Júpíter var Hallgrímur Birkis-
son. Báðir þessir hestar hafa með
þessum árangri tryggt sér farseðil
á kynbótasýningu landsmótsins í
sumar.
Í þriðja sæti varð svo Þráinn frá
Sigtúni með 8,01 en hann er undan
Ófeigi frá Flugumýri og Þrá frá
Hala sem er undan Þokka frá
Garði. Fyrir hæfileika hlaut Þrá-
inn 8,13 og 7,83 fyrir sköpulag.
Af fimm vetra hestum stóð
langefstur Ás frá Þóroddsstöðum
sem er undan Galdri frá Laug-
arvatni og Áru frá Laugarvatni
sem er dóttir Pás frá Laugar-
vatni. Ás stimplaði sig örugglega
inn á landsmótið er hann hlaut
8,24 í aðaleinkunn, fyrir sköpulag
hlaut hann 8,21 og fyrir hæfileika
8,25.
Fontur frá Feti varð annar með
8,03 en hann er undan Roða frá
Múla og Vigdísi frá Feti sem er
undan Kraflari frá Miðsitju. Hér
er því um að ræða skyldleikarækt-
aðan hest út af Gusti frá Sauð-
árkróki. Fyrir sköpulag hlaut
Fontur 7,85 og fyrir hæfileika
8,03. Hann hlaut tvær níur, fyrir
tölt og háls og herðar.
Óskahrafn frá Brún varð þriðji
með 8,01. Hann er undan Hrafni
frá Holtsmúla og Ósk frá Brún
sem er undan Ófeigi frá Flugu-
mýri og fékk fyrir sköpulag 7,83
og 8,13 fyrir hæfileika.
Þrír fjögurra vetra stóðhestar
hlutu fullnaðardóm en enginn
þeirra náði 7,75 sem eru gömlu
ættbókarmörkin og því ekki
ástæða til að fjalla frekar um þá
að sinni.
Ákveðið hefur verið af hálfu
Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
að bæta vellina í Gunnarsholti og
stefna á sýningu þar að ári. Sam-
tökin stóðu einnig fyrir sýningu í
Ölfushöllinni um kvöldið þar sem
húsfyllir var eða um 500 manns.
Fjárhagur samtakanna vænkaðist
mjög þessa helgi og má ætla að
rífleg milljón hafi komið inn reikn-
ing þeirra á þessum tveimur sýn-
ingum og verður þeim fjármunum
að hluta til varið til vallarbóta í
Gunnarsholti.
Eins og oft hefur verið á sýn-
ingum Gunnarsholti dróst sýningin
mjög á langinn og voru oft langar
eyður milli hesta sem er að sjálf-
sögðu ótækt og þyrfti að bæta úr
ef framhald verður á. Að sýningu
lokinni var gestum boðið að skoða
sæðingarstöðina sem nú hefur að-
setur í stóðhestahúsinu góða og
var gerður góður rómur að.
Stóðhestadómar, afkvæmasýning og kynning á Sæðingarstöðinni í Gunnarsholti
Afkvæmasýn-
ingin endur-
reisti Gunnars-
holtssýningar
Endurreisn Gunnarsholtssýninganna
heppnaðist prýðilega á laugardag þegar
Hrossaræktarsamband Suðurlands stóð
fyrir dómum og sýningu. Valdimar Krist-
insson heimsótti Gunnarsholt ásamt hátt í
þúsund annarra hestamanna.
Morgunblaðið/Vakri
Sjóli frá Dalbæ efstur sex vetra hesta og eldri, knapi Brynjar Jón Stefánsson, Júpíter frá Stóru-Hildisey, knapi
Hallgrímur Birkisson, Þráinn frá Sigtúni, knapi Olil Amble, Þjótandi frá Svignaskarði, knapi Svanhvít Krist-
jánsdóttir, og Vinur frá Lækjarbotnum, knapi Marjolyn Tiepen.
Morgunblaðið/Vakri
Andvari frá Ey er að sanna sig sem einn af áhugaverðustu
stóðhestum landsins með góðum afkvæmum sem hér fara í
breiðfylkingu og fremstur er Stígandi frá Leysingjastöðum.
Efstir fimm vetra hesta urðu Ás frá Þórodds-
stöðum, knapi Daníel Jónsson, Fontur frá Feti,
knapi Erlingur Erlingsson, og Óskahrafn frá
Brún, knapi Trine Risvand.