Morgunblaðið - 07.05.2002, Síða 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 57
Horfðu til framtíðar
Skeifan 11b (2. hæð) · Sími 561 6699
tolvuskoli@tolvuskoli.is · www.tolvuskoli.is
Tölvunámskeið í sumar
Athugið! Erum flutt í Skeifuna 11b 2. hæð - í sama húsnæði og Rafiðnaðarskólinn
Stök námskeið
Windows 2000 13.5. - 16.5. kl. 17:30 - 21:00
Word 2 21.5. - 24.5. kl. 13:00 - 16:30
Excel 1 27.5. - 30.5. kl. 17:30 - 21:00
PowerPoint 1 13.5. - 17.5. kl. 8:30 - 12:00
24.6. - 26.6. kl. 13:00 - 16:30
Internet Explorer 13.5. - 14.5. kl. 13:00 - 16:30
Heimasíðugerð 1 27.5. - 30.5. kl. 8:30 - 12:00
18.6. - 21.6. kl. 13:00 - 16:30
Windows grunnur, Internetið og tölvupóstur
13.5. - 16.5. kl. 17:30 - 21:00
Access 1 24.6. - 27.6. kl. 17:30 - 21:00
Word frh. 18.6. - 21.6. kl. 8:30 - 12:00
Excel frh. 24.6. - 27.6. kl. 8:30 - 12:00
Barnanámskeið
Barnanámskeið 6-8 ára
Grunnatriði Windows, Internetið,
tölvupóstur, leikir o.fl.
18.05. - 21.06. 13:00 - 16:30 þri - föst
Barnanámskeið 9-12 ára
Grunnatriði Windows, Internetið,
tölvupóstur, PowerPoint o.fl.
24.06. - 27.06. 13:00 - 16:30 mán - fim
Unglinganámskeið
Heimasíðugerð f / unglinga
12.06. - 19.06. 17.30 - 21.00
Kennd heimasíðugerð með FrontPage.
Heimasíðugerð f / unglinga - frh
24.06. - 27.06. 17.30 - 21.00 mán - fim
Framhaldsnámskeið í heimasíðugerð.
Hagnýtt tölvunám 1
60 kennslust. Tölvunám fyrir byrjendur.
Windows 2000, Word, Excel, Internet og
tölvupóstur.
13.5. - 10.6. kl. 17:30 - 21:00 mán, þri, fim
12.6. - 28.6. kl. 8:30 - 12:00 mán - fös
Fyrir eldri borgara
Stutt námskeið sniðið sérstaklega að
þörfum eldri borgara.
15 kennslustundir. Hæg yfirferð.
Innihald:
• Grunnatriði Windows 2000
• Internetið
• Notkun tölvupósts
• Ýmis afþreying
3.6.- 7.6. kl. 13:00 - 16:30 mán, mið, fös
FYRIRLESTUR verður fluttur á
vegum Stofnunar Vigdísar Finnboga-
dóttur í erlendum tungumálum við
Háskóla Íslands miðvikudaginn 8.
maí kl. 16.15 í í Odda, stofu 101. Allir
eru velkomnir.
Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamað-
ur mun ræða um arabískan menning-
arheim, menningarmun og menning-
arlæsi, segir í fréttatilkynningu.
Ræðir um arab-
ískan menning-
arheim
BÆJARSTJÓRINN í Hafnarfirði,
Magnús Gunnarsson, og varafor-
maður FH, Ingvar Viktorsson,
hafa undirritað rekstrar- og leigu-
samning aðila og samkomulag um
uppgjör vegna framkvæmda í
Kaplakrika. Með samningnum hef-
ur FH tekið við rekstri íþrótta-
svæðisins í Kaplakrika, sem fengið
hefur heitið Íþróttamiðstöð FH í
Kaplakrika.
Samingurinn felur í sér að FH
skal reka skrifstofu í íþróttamið-
stöðinni þar sem haldið verði utan
um bókhald félagsins og deilda
þess. Kveðið er á um að félagið
skuli skila til íþróttafulltrúa Hafn-
arfjarðarbæjar bæði ársuppgjöri
hvers árs og einnig fjárhagsáætlun
fyrir komandi ár. Einnig skal fé-
lagið árlega skila sundurgreindu
hálfs árs reikningsuppgjöri um
rekstur íþróttamiðstöðvar félags-
ins. Á skrifstofunni skal einnig
unnið að gerð yfirlitsskýrslu ÍSÍ
og stuðlað að auknu samstarfi milli
einstakra deilda félagsins varðandi
skipulag, fjáraflanir, nýtingu æf-
ingatíma og annars íþróttastarfs.
Bærinn leigir aðstöðu
íþróttamiðstöðvar í 20 ár
Hafnarfjarðarbær tekur á leigu
íþróttasali, útisvæði og búnings-
og baðaðstöðu í íþróttamiðstöð FH
til 20 ára frá og með 1. ágúst 2002,
en FH er heimilt að ráðstafa van-
nýttum tímum í samráði við
íþróttafulltrúa. Í samkomulagi að-
ila er stefnt að því að 30. sept-
ember nk. liggi fyrir tillögur að
heildarskipulagi íþróttasvæðis FH
og skulu þær innihalda teikningar
af skipulagi svæðisins í heild auk
kostnaðaráætlunar vegna óunn-
inna framkvæmda. Verkefnið verð-
ur unnið af svokallaðri framtíð-
arnefnd sem þegar hefur hafið
störf. Samningur um fram-
kvæmdaáætlun og fjármögnun
framkvæmda á síðan að liggja fyr-
ir í árslok 2002. Í ljósi nýrra sam-
starfssamninga milli Hafnarfjarð-
arbæjar og íþróttafélaga í bænum,
þar sem aðkoma bæjarins er með
öðrum hætti en eldri samningar,
eru aðilar sammála um að Hafn-
arfjarðarbær eignast hlut af eign-
um FH með yfirtöku skulda og
láni til 20 ára sem ráðstafað verð-
ur til greiðslu skulda aðalstjórnar
FH. Samningurinn og samkomu-
lagið voru undirrituð með fyrir-
vara um samþykki bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar en hvort tveggja
hefur það að markmiði að tryggja
fjárhagslegan grundvöll og farsæl-
an rekstur FH, eins og annarra
íþróttafélaga í Hafnarfirði, til
framtíðar, segir í frétt frá Hafn-
arfjarðarbæ.
Hafnarfjarð-
arbær og
FH semja
um rekstur
NEMENDUR úr Tónskóla Hörp-
unnar sóttu heim dvalargesti á
Hjúkrunarheimilinu Sóltúni í síð-
asta mánuði. Það voru nemendur á
yngra aldursskeiði sem héldur litla
tónleika fyrir dvalarheimilisgesti.
Krakkarnir sem léku heita:
Steinunn Lind, Sigtryggur, Haf-
þór, Ásdís Margrét, Egill, Anita
Rut, Haukur, Jóhanna Dröfn, Ein-
ar Sindri og Marta Katrín. Með
þeim á myndinni er Kjartan Egg-
ertsson, skólastjóri Tónskóla
Hörpunnar.
Heimsókn á Sóltún
ÞAÐ er eitt af vorverkum Kvenna-
kórsins Norðurljósa á Hólmavík að
heimsækja nágranna sína á Strönd-
um og víðar með tónleika í byrjun
maí.
Á hátíðisdegi verkamanna 1. maí
hélt kvennakórinn Norðurljós á
Hólmavík tónleika í Samkomuhús-
inu Baldri á Drangsnesi. Á efnis-
skránni voru létt og skemmtileg vor-
lög. Stjórnandi kórsins er séra
Sigríður Óladóttir, sóknarprestur á
Hólmavík.
Kvennakórinn
Norðurljós
með tónleika
Drangsnesi. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir
Kvennakórinn Norðurljós.
LÖGREGLAN, ásamt
samstarfsaðilum, hafði
talsverðan viðbúnað um
helgina þar sem oft hef-
ur borið á ölvun ungmenna á þessum
tíma eftir próflok. Reyndist það
einnig vera og á föstudag safnaðist
nokkur hópur, talið nærri 100 ung-
menni, í Elliðaárdal. Nokkuð bar á
ölvun og lögreglan hellti niður miklu
af áfengi. Sjö ungmenni voru flutt í
athvarf þangað sem foreldrar sóttu
þau. Að auki voru tvær stúlkur, sem
voru í miðbænum, færðar í athvarfið.
Um helgina voru 9 ökumenn grun-
aðir um ölvun við akstur og 55 um of
hraðan akstur. Höfð voru afskipti af
21 ökutæki vegna vanrækslu á skoð-
un. Þá voru tilkynnt til lögreglu 33
umferðaróhöpp með eignatjóni.
Síðdegis á sunnudag varð harður
árekstur á Bitruhálsi/Bæjarhálsi.
Ökumenn og farþegi voru fluttir
með sjúkrabíl á slysadeild.
Brutust inn í verslun
við Klapparstíg
Tvennt var handtekið á laugar-
dagsmorgun eftir innbrot í verslun
við Klapparstíg. Parið hafði brotið
rúðu í versluninni, tekið fjármuni úr
sjóðsvél og hlaupið síðan á brott.
Lögreglumenn handtóku fólkið
skammt frá innbrotsstað. Á sunnu-
dagskvöld var tilkynnt um innbrot í
kjallaraíbúð í Sundunum. Þar hafði
gluggi verið spenntur upp og stolið
talsverðu af áfengi. Aðfaranótt
mánudags var tilkynnt um innbrot í
verslun í austurborginni. Vegfarandi
sá mann hlaupa út úr versluninni og
hjóla burt á reiðhjóli. Peningar
höfðu verið teknir úr peningaköss-
um.
Tvítugur piltur var handtekinn
eftir að hafa slegið jafnaldra sinn í
höfuðið með flösku á laugardags-
morgun. Hinn slasaði var fluttur á
slysadeild en árasarmaðurinn vist-
aður í fangageymslu lögreglu. Ráð-
ist var að manni á veitingastað í mið-
bænum og hann skallaður í andlitið.
Ekki er ljóst hver árásarmaðurinn
er. Þá réðst 15 ára piltur að miðaldra
manni í Breiðholti um miðnætti á
sunnudag. Við átökin ökklabrotnaði
sé eldri og var fluttur á slysadeild.
Pilturinn var fluttur í skammtíma-
vistun þar sem ekki náðist í forráða-
menn hans
Róleg helgi
hjá lögreglu
3. til 6. maí
Úr dagbók lögreglunnar
Vefsvæði D-lista
Í frétt um nýtt vefsvæði Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi á sunnu-
dag var sagt nýtt vefsvæði S-lista,
en á að vera nýtt vefsvæði D-lista í
Kópavogi.
Skeifukeppnin á Hólum
Í grein um skeifukeppnina á Hól-
um í Morgunblaðinu á laugardag
féll út nafn eins nemenda sem
keppti í A-úrslitum fjórgangs á
skeifudaginn. Var það Sigríður Þor-
steinsdóttir úr Garðabæ sem hafn-
aði sjötta sæti á Yddu frá Kirkju-
landi en þær voru í fjórða sæti eftir
forkeppnina.
LEIÐRÉTT
DAGANA 13. og 14. maí munu
rúmlega 80 nemendur úr fjórum
10. bekkjum í Réttarholtsskóla
fara í sjálfboðavinnu í 24 fyrirtæki
og stofnanir til að safna peningum
fyrir Umhyggju, félag til stuðnings
langveikum börnum. Mikill áhugi
var hjá fyrirtækjum að fá nem-
endur í vinnu og fengu færri en
vildu, segir í fréttatilkynningu.
Nemendur munu starfa hjá eftir-
farandi fyrirtækjum og stofnunum:
Blómavali, Borgarskjalasafni,
Breiðagerðisskóla, Bústaðakirkju,
Eimskip, Fjölskyldu- og húsdýra-
garðinum, Fossvogsskóla, Garð-
heimum, Grímsbæ, Gróanda,
Grænuhlíð, Iðntæknistofnun,
Íþróttahöllinni, Lambhaga, Land-
spítala í Fossvogi, Landsvirkjun,
Lestrarmiðstöð og bókasafni
Kennaraháskóla Íslands, Morgun-
blaðinu, Mörk, Olís, Skautahöllinni,
TBR, Ævintýraferðum og Össuri.
Einstaklingar og fyrirtæki geta
lagt söfnuninni lið með því að gefa
peninga inn á bankareikning 525-
14-614730 í Íslandsbanka við
Grensásveg, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Nánari upplýsingar veitir Ása
Kristín Jóhannsdóttir aðstoðar-
skólastjóri, netfang: asajoh@is-
mennt.is.
Í sjálfboðavinnu
fyrir Umhyggju
DJASSSVEITIN Motif lýkur vetrar-
dagskrá Jazzklúbbs Akureyrar með
tónleikum í Deiglunni á miðvikudags-
kvöld, 8. maí og hefjast þeir kl. 21.30.
Motif hlaut viðurkenningu á
Djasshátíð Kaupmannahafnar á liðnu
ári. Hljómsveitina skipa Atle Nymo á
tenórsaxófón og bassaklarinett,
Mathias Eick á trompet, Davíð Þór
Jónsson á píanó, Ole Morton Vågans
á kontrabassa og Håkon Mjåset Jo-
hansen á trommur.
Motif í Deiglunni