Morgunblaðið - 07.05.2002, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 65
AÐ ÞESSU sinni sýnir Filmundur
endurgerðina á Apocalypse Now eft-
ir Francis Ford Coppola, sem hefur
hlotið viðhengið Redux. Bætt hefur
við atriðum, bæði nýjum atriðum,
sem og senum sem klipptar voru í
burtu eða styttar í upprunalegu
gerðinni, um það bil 50 mínútur allt í
allt. Filmundur mun standa fyrir
einni hátíðarsýningu á þessari mynd,
þriðjudagskvöldið 7. maí kl. 20.00 í
sal 1 í Háskólabíói.
Upprunalega útgáfan er frá 1979
og á því 23 ára afmæli um þessar
mundir. Þegar þá var komið sögu
hafði Coppola gert myndir á borð við
fyrstu tvær Godfather myndirnar og
The Conversation og óhætt að segja
að miklar væntingar hafi verið gerð-
ar til Apocalypse Now. Hún hefur
alla tíð verið umdeild en eru flestir
þó á því að þar fari ein merkilegasta
kvikmynd áttunda áratugarins. Hún
var afar dýr, og jafnframt fullkom-
lega unnin tæknilega og var þannig
til marks um nýja tíma í kvikmynda-
gerð. Gerð hennar var miklum vand-
kvæðum bundin, tökurnar tóku 16
vikur í frumskógum Filippseyja og
voru á margan hátt sögulegar. Marl-
on Brando léttist um 50 kíló meðan á
tökum stóð og Martin Sheen fékk
hjartaáfall, og segir það meira en
mörg orð um það sem gekk á. Mynd-
in reyndist dýrari í framleiðslu en
áætlað var, og þurfti Coppola sjálfur
að leggja milljónir dollara í myndina
og segja sögur að hann hafi oftar en
einu sinni hótað sjálfsmorði meðan á
tökum stóð. Fjölmargar flökkusagn-
ir eiga þannig rætur sínar að rekja
til gerðar Apocalypse Now og má
segja að eftirvæntingin eftir mynd-
inni og umfjöllunin um hana hafi
jafnvel hlotið meira rými en myndin
sjálf. En engum blöðum er um það að
fletta að hér er tvímælalaust um eina
merkilegustu mynd síðustu áratuga
að ræða og óhætt að segja að hún
hafi verið blóðsins, svitans og tár-
anna virði.
Ádeila
Apocalypse Now er byggð á skáld-
sögunni Heart of Darkness eftir Jos-
eph Conrad, en sögusviðið er Víet-
namstríðið. Martin Sheen er í hlut-
verki höfuðsmannsins Willard sem
hefur misst trúna á lífið. Hann hefur
fengið það verkefni að hafa uppi á og
handtaka Kurtz, ofursta nokkurn
sem leikinn er af Marlon Brando.
Kurtz háir persónulegt stríð í skóg-
um Kambódíu, hann virðist hafa
misst fullkomlega tökin á tilverunni
og þykir stórhættulegur. Hann er
sagður vera orðinn geðveikur og lít-
ur á sig sem Guð þjóðflokks eins í
frumskógum Kambódíu. Myndin
fjallar í sem allra stystu máli um
ferðalag Willards og manna hans og
lokauppgjörið við Kurtz.
Óhætt er að segja að um sé að
ræða eina mögnuðustu stríðsádeilu
sem birst hefur á hvíta tjaldinu. Á
eftir fylgdu margar ádeilumyndir
um Víetnam stríðið, nægir að nefna
Platoon og Full Metal Jacket, en
Apocalypse Now ber að margra mati
höfuð og herðar yfir þessar myndir.
Hún missir sig aldrei í yfirdrifna
Hollywoodvæmni, heldur sýnir á
miskunnarlausan og jafnframt afar
persónulegan hátt þær afleiðingar
sem stríðsrekstur hefur á þá sem
taka á einhvern hátt þátt í honum.
Eins og vill verða hefur skapast
mikil umræða um það hvort og þá
hvernig endurgerðin bæti frumgerð-
ina upp. Flestir eru sammála um það
að endurgerðin sé betri en frum-
gerðin. Það er í raun merkilegt í ljósi
þess að myndin var gagnrýnd nokk-
uð fyrir það á sínum tíma að vera of
löng, sem hlýtur á einhvern hátt að
sýna hversu vel við höfum aðlagast
þeirri staðreynd að kvikmyndir hafa
sífellt verið að lengjast síðustu árin.
Athugið að Filmundur mun aðeins
sýna Apocalypse Now: Redux einu
sinni, þriðjudagskvöldið 7. maí. Að
því loknu fer hann í frí í um viku tíma
meðan á NATO ráðstefnu stendur í
Háskólabíói. Ekki láta því þetta ein-
staka tækifæri fram hjá ykkur fara.
Sturlun stríðsins
Martin Sheen í hlutverki sínu í Apocalypse Now.
Filmundur sýnir Apocalypse Now: Redux
LÖGREGLA í Kambódíu hvatti
breska popptónlistarmanninn Gary
Glitter í morgun til að yfirgefa land-
ið af fúsum og frjálsum vilja og
sagði að hann væri ekki velkominn
þar. Glitter, sem dæmdur var árið
1999 í fjögurra mánaða fangelsi í
Bretlandi fyrir að hafa í fórum sín-
um barnaklám, hefur dvalið í
Kambódíu síðasta hálfa árið og ótt-
ast yfirvöld að vera hans þar ýti enn
undir það orðspor sem fer af land-
inu að barnaníðingar leiti þar skjóls.
„Það bannar honum enginn að
fara,“ sagði Pol Pithey, yfirmaður
útlendingaeftirlitsins í Kambódíu.
Lögregla segir að Glitter hafi ekki
brotið nein lög en Pithey segir að
Glitter geri öllum auðveldara fyrir
með því að hypja sig.
Glitter, sem er 57 ára, heitir réttu
nafni Paul Francis Gadd. Lögreglan
í Phnom Penh gerði vegabréf hans
upptækt en skilaði því aftur eftir að
hann lofaði að fara ekki út úr borg-
inni án þess að láta vita af ferðum
sínum.
Glitter hlaut heimsfrægð á átt-
unda áratugnum, sem einn af
skrautlegri boðberum glysrokksins
svokallaða, og kom þá nokkrum lög-
um á vinsældalista, svo sem „I’m the
Leader of the Gang (I Am“), „Do
You Wanna Touch“ og „Rock And
Roll (Part 2)“.
Reuters
Gary Glitter má muna sinn fífil
fegurri.
„Burt!“
segja
Kambódíu-
menn
Gary Glitter er landlaus
TÓNLISTARMAÐURINN Michael
Jackson ráðgerir nú að leikstýra sinni
fyrstu bíómynd, samkvæmt því sem
fram kemur á fréttavef CNN.
Söngvarinn ætlar að gera mynd
byggða á bók Jennings Michael
Burch They Cage the Animals at
Night en hún er byggð á uppvexti
höfundarins á munaðarleysingja-
heimili og hjá fjölmörgum fósturfor-
eldrum.
Jackson hefur þegar fengið leik-
stjórann Bryan Michael Stoller til liðs
við sig, en Stoller leikstýrði nokkrum
þáttum í þáttaröðinni Tales From the
Darkside á níunda áratugnum.
„Strákurinn í bókinni gekk í gegn-
um erfiða reynslu og Michael á auð-
velt með að skilja það,“ segir Stoller.
„Við Michael erum á margan hátt lík-
ir. Við erum stór börn sem finnst við
geta túlkað tilfinningar okkar á hvíta
tjaldinu.“
Reuters
Michael Jackson er listamaður af guðs náð.
Skyggnst í skuggann
Jackson í leikstjórastólinn
4. 5. 2002
5
8 4 0 9 3
4 2 9 1 0
10 12 19 36
2
1. 5. 2002
3 11 23
30 38 48
15 44
Einfaldur
1. vinningur
í næstu viku
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4507-4500-0030-3021
4507-2800-0001-4801
4507-4500-0030-6412
4507-4500-0030-6776
4507-2900-0005-8609
! "#
"$%&'
()( )$$$
Eitt magnaðasta
ævintýri samtímans eftir
sögu H G Wells
ANNAR PIRRAÐUR.
HINN ATHYGLISSJÚKUR.
SAMAN EIGA ÞEIR AÐ
BJARGA ÍMYND LÖGREGLUNNAR
kvikmyndir.is
Frábær grín/spennumynd með þeim Eddie Murphy, Robert De
Niro og Rene Russo í aðalhlutverki. Hérna mætast myndirnar
Lethal Weapon og Rush Hour á ógleymanlegan hátt.
Ekki missa af þessari!
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 338
Sýnd kl. 10. B.i.16. Vit 366.
Sýnd kl. 8 og 10. Vit 367.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15. B.i.12. Vit 376
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 379.
Hillary Swank
Frá framleiðendum Austin Powers2
Frá framleiðendum AustinPowers2 kemur
þessi sprenghlægilega gamanmynd
um mann sem leggur allt í sölurnar
til að fara á vit ævintýranna.
Annað eins ferðalag hefur ekki sést! Mbl DV
Sýnd kl. 8 og 10. Vit 337.
Kvikmyndir.com
„Splunkunýtt framhald af
ævintýri Péturs Pan!“
Sýnd kl. 4. Vit 358.
Sýnd kl. 6 og 8. Vit 357.
DV
ÞriðjudagsTilboð kr. 400
Þ
ri
ð
ju
d
a
g
sT
ilb
o
ð
á
v
ö
ld
u
m
m
yn
d
u
m
Sýnd kl. 8 og 10. B.i.12 Vit 356
ÞriðjudagsTilboð kr. 400
Þriðjudag Tilboð k . 400
Þ
ri
ð
ju
d
a
g
sT
ilb
o
ð
á
v
ö
ld
u
m
m
yn
d
u
m
ÞriðjudagsTilboð kr. 400
ÞriðjudagsTilboð kr. 400
ÞriðjudagsTilboð kr. 400
ÞriðjudagsTilboð kr. 400
ÞriðjudagsTilboð kr. 400JAKE GYLLENHAAL SWOOSIE KURTIZ
150 kr. í boði VISA
ef greitt er með VISA kreditkorti
Hverfisgötu 551 9000
1/2Kvikmyndir.com
1/2HJ. MBLRadíó-X
RadioXÓ.H.T. Rás2
www.regnboginn.is
Til að eiga
framtíð saman
verða þau að
takast á
við fortíð
hennar
Ýmislegt
á eftir að koma
honum á óvart
Mögnuð mynd
með hinni frábæru
Nicole Kidman
Sýnd kl. 8 og 10.15.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6, 8.30 og 11. B.i. 10.
Yfir 30.000
áhorfendur
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
Sýnd kl. 5.50,
8 og 10.10.
Biðin er á enda.
Fyrsta stórmyndin í ár!
Búðu þig undir svölustu
súperhetjuna!
KR. 400
KR. 400
KR. 400
KR. 400
1/2kvikmyndir.is
15.000 áhorfendur á þremur dögum
Reiðskólinn Hrauni 2002
Reiðskóli fyrir 10-15 ára
Upplýsingar í síma 897 1992
Skoðið vefsíðu reiðskólans
www.vortex.is/reidskoli/
Reiðskólinn Hrauni, Grímsnesi
þar sem hestamennskan hefst