Vísir - 21.06.1980, Side 7

Vísir - 21.06.1980, Side 7
vtsm Laugardagur 21. júnl 1980 „STRAUSS ER TIL HÆGRI VIÐ HITLER” — segir í ,,Der Kandidat”, kvikmynd um Franz Josef Strauss Stjórnmálamenn eru manna mest vanir gagnrýni, skömmum og niöi, en áróöurinn gegn Franz Josef Strauss, sem keppir aö þvi aö hljóta kanslaraembættiö I V- Þýskalandi, er svo mikill, aö þaö þarf mann meö þykkan skráp til aö þola hann. Skrifaöar hafa veriö bækur um Strauss, blaöagreinar, plaköt og kort, þar sem manninum hefur veriö lýst á hroöalegasta hátt. Nú hefur enn eitt vopniö bæst viö i vopnasafn andstæðinga Strauss, kvikmynd, sem auk þess er á góöri leiö meö aö veröa meö vin- sælustu myndum I Þýskalandi. Myndin heitir „Der Kandidat”. Der Kandidat er tveggja tima mynd um lifshlaup Strauss. Þar er ekkert illt faliö og gjarnan fariö frjálslega meö staöreyndir á stundum. i myndinni er Strauss lýst sem fanti og fúlmenni, sem stefnir aö þvi aö koma fasisma á i Þýska- landi á nýjan leik. Hann er geröur brjálæöislegur, en jafn- framt hégómlegur. Á einum staö er mynd af Strauss, þar sem hann horfir i spegil og segir: „Spegill spegill herm þú mér, hver fegurstur hér á landi er”. Þá fá stuöningsmenn Strauss sinn skammt. Þeim er lýst sem grófum og heimskum. Myndir eru teknar af merkjum á ermum öryggisvaröa Strauss, til aö minna á hakakrossana á ermum brúnstakka Hitlers. Um leið segir þulur: ,, Strauss er enginn nasisti — hann er til hægri við nasistana”. Meðalþeirra,sem unnu aö gerð myndarinnar „Der Kandidat”, er óskarsverölaunahafinn Volker Schlöndorff. Strauss, óvinur þjóöarinnar númer eitt, stjórnmálamaöurinn, sem fólkiö „elskar aö hata”. Ferðalán -léttari greiðslubyrðí! Sýndu fyrirhyggju i fjármálum og vertu með í Spariveltunni. Ef þú ert einn hinna mörgu, sem láta sig dreyma um ferðalag í sumarleyfinu, þá ættirðu að kynna þér hvað Sparivelta Samvinnubankans "" f getur gert til að látadraum þinn rætast. Það er engin ástæða til að láta fjárhagsáhyggjur spilla ánægj- unni af annars skemmtilegu ferðalagi. Hagnýttu þér þá augljósu kosti, sem Sparivelta Samvinnubankans hefur fram að bjóða. Með þátttöku í Spariveltunni getur þú létt þér greiðslubyrðina verulega og notið ferðarinnar fullkomlega og áhyggjulaust. Þátttaka í Spariveltunni er sjálfsögð ráðstöfun til að mæta vaxandi greiðslu- byrði í hvaða mynd sem er, um leið og markviss sparnaður stuðlar að aðhaldi og ráð- deildarsemi í fjármálum. Komdu við í bankanum og fáðu þér eintak af nýja upplýsingabæklingnum um Spariveltuna, sem liggur frammi í öllum afgreiðslum bankans. Vertu með í Spariveltunni og lánið er ekki langt undan! Samvinnubankinn og útibú um land allt. PÆR ÞJÓNA ÞÚSUNDUMíM fæst á öllum blaðsölu- stöðum og bókabuðum um land allt

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.