Vísir - 23.06.1980, Blaðsíða 7
vtsm Mánudagur 23. júni 1980
BræOurnir Stefán og Helgi.
Heimur Sleláns
Háskólabíó og Laugarásbió: óðal feðranna
Leikstjóri og höfundur handrits: Hrafn Gunnlaugsson
Kvikmyndatökumaður: Snorri Þórisson
Hijóðupptökumaður: Jón Þór Hannesson
Tóniist: Gunnar Þórðarson og Magnús Eiríksson
Aðalleikarar: Jakob Þór Einarsson/ Hólmfríður Þór-
hallsdóttir/ Jóhann Sigurðsson, Guðrún Þórðardóttir
og Magnús ólafsson.
„ÓOal feöranna” er kraft-
mikil kvikmynd. Þessi nýja
mynd Hrafns Gunnlaugssonar
fjallar um unglingspilt I sveit,
sem reynir a6 brjótast burt úr
basli hnignandi sveitar, a6 hætti
eldra bróöur sins. Árangur
piltsins, Stefáns, veröur þó ekki
árangur sem erfiöi sökum ofur-
valds peningamanna, en þó
einkum atburöa og tilviljana,
sem henda fjölskyldu hans og
eiga ekkert skylt viö fjárhags-
vanda né þjóöfélagsstööu.
„Óöal feöranna” gerist á
rösku hálfu ári og hefst meö þvi
aö drukkiö er erfi eftir Hafstein
fööur Stefáns. Pilturinn hyggst
leggja af staö til Reykjavikur til
náms, burt úr þeirri örbirgö
sem rikir á býlinu og útskýrö er
meö þeim oröum þingmanns-
frúarinnar aö Hafsteinn hafi
veriö draumóramaöur. óspart
er deilt á ofurvald kaupfélags-
ins i héraöinu og eignarhald
þess á bændum. Þar sem lýsing
á sálarllfi Stefáns er næsta tak-
mörkuö viröist nærtækt aö at-
huga þá félagslegu þætti sem
útskýrt gætu ófarir hans. En
Hrafn dregur ekki upp breiöa
þjóöfélagsmynd. Allar persónur
myndarinnar eru annaö hvort
úr slammbyggju eöa yfirstétt.
Miöstéttarfólk finnst þar tæp-
ast. Auðvitaö þarf aö einfalda
og mála skýrum litum, en „óöal
feöranna” sýnir aö minum dómi
of einfalda þjóðfélagsmynd til
aö hægt sé aö flokka hana með
raunsæisverkum.
Sérleiðaðsettu
marki
Hrafn Gunnlaugsson er vanur
aö velja sérleiöir aö settu
marki. Þó þaö þjóöfélag sem viö
blasir i „Óöali feðranna” sé
ekki speglun þess sem viö lifum
I er likingin samt nógu sterk til
aö vekja meö okkur ugg. Skerö-
ing á frelsi einstaklingsins og
þau höft sem lögö eru á hvern og
einn i mannlegu samfélagi eru
af mörgum toga og birtast i ótal
myndum. Þaö er e.t.v. ekki
raunsæislegt aö leggja fram of-
riki kaupfélagsstjóra, þröng-
sýni móöur, vanheilsu systur og
ódæöi kaupamanns, sem á-
stæöur fyrir uppgjöf og einangr-
un Stefáns. En þegar litiö er til
raunveruleikans reynast þau
atvik sem léttvæg sýnast of af-
drifarfk fyrir örlög einstak-
lingsins.
Hrafn Gunnlaugsson fer aö
dæmi margra leikstjóra og not-
ar ekki atvinnuleikara heldur
fólk sem lltillega eöa ekki hefur
komiö nærri leiklist. Hólmfriöur
Þórhallsdóttir i hlutverki móöur
Stefáns túlkar sorgir og mótlæti
þessarar útþræluöu bóndakonu
af hógværö. Og hún hefur und-
arlega tjáningarrik augu. Jakob
Þór Einarsson i hlutverki
Stefáns er þegjandalegur, feim-
inn, örvæntingarfullur. Hann
nær aö túlka á eítirminnilegan
hátt þann sem stööugt er á
undanhaldi og aldrei uppsker
laun erfiöis sins. Magnús Ólafs-
son er eini leikari myndarinnar
sem nokkra reynslu hefur af
kvikmyndaleik. 1 hlutverki
rikisbubbans úr Reykjavík, sem
svikur einu bjargarvonina út úr
fjölskyldu Stefáns, sýnir Magn-
ús á sér nýja hlið svo agaöur er
leikur hans. Jóhann Sigurösson
og Guörún Þóröardóttir skila
einnig hlutverkum sínum meö
prýöi og raunar er leikurinn ein-
hver sterkasti þáttur „Óöals
feöranna”.
Snorri Þórisson hefur leyst
kvikmyndatökuna vandvirknis-
lega af hendi. Hann nýtfr feg-
urð landsins, t.d. Hraunfossana,
og nær stundum skemmtilegum
sjónarhornum þegar hann
myndar alkunna staöi eins óg
Hvltárbrú.
Um tónlistina viö myndina
eftir þá Gunnar Þóröarson og
Magnús Eiriksson þarf ekki aö
kvikmyndir
fjölyröa, hún er sterk, hún er
falleg og hún hæfir átakanlegu
umfjöllunarefni kvikmyndar-
innar.
„Óöal feöranna” er ekki
gallalaus fremur en önnur
mannleg smlö. Hrafn Gunn-
laugsson er góöur leikstjóri og
veikir punktar „óöals feör-
anna” varöa einkum handrit
myndarinnar, auk þess sem at-
riöi hennar eru á köflum losara-
lega tengd. Hins vegar eru mörg
atriöi ein og sér smellin og vel
útfærö, t.d. samtal Stefáns og
nýrika mannsins á hesta-
mannamóti.
Fegurð í Ijótleikanum
Verk Hrafns Gunnlaugssonar
hafa sin sterku sérkenni. Hann
hefur áberandi áhuga á ljótleik-
anum og sýnir hann og túlkar
sem eillfan mannlegan þátt. En
„óöal feðranna” er oft fögur I
ljótleikanum og eymdinni og
áhrifamikil i vonleysinu, sem
hún speglar. Bróöir Stefáns
reynir undankomu frá ömurleg-
um aöstæöum, en tilraunin mis-
heppnast og hann ferst. Stefán
reynir aö feta I fótspor bróöur-
ins en uppreisn hans lýkur I ó-
merkilegum bilstuldi. Stefán
reynir sættir, fellur I þaö far
sem honum hefur veriö búiö og
e.t.v. þarf hann aö skilja eftir
hluta af sjálfum sér. Kominn i
fariö er hann ekki óhamingju-
samur heldur spakurog taminn.
Og „Óöal feöranna” vekur at-
hygli og umræöu. —SKJ.
7
ókuleikníkeppni Bindindísfélags ökumanna og Vísis:
GÓD ÞATTTAKA OG
MARGIR AHORFENDUR
KVIKNMII MOSA
í HEHMORKINNI
ókuleiknikeppni Bindindis-
félags ökumanna og Visis hófst
um helgina með keppni I Borgar-
nesi, Búöardal og Bildudal.
Þátttakendur eru allir á aldrinum
18—35 ára og verður úrslita-
keppnin haldin i lok september.
Keppnin i Borgarnesi hófst
klukkan 20 á föstudag og voru
keppeindur fjórir. Sigurvegari
varð Jón Atli Brynjólfsson, 24 ára
gamall, og keppti hann á Lada
1500.
í Búðardal hófst keppni klukk-
an 14 á laugardag og voru
keppendur 12. Sigurvegari varð
Jón Ingi Gunnarsson, 18 ára
gamall, og keppti hann á Toyota
1974.
Karl Þórisson, 28 ára gamall,
sigraði I keppninni á Bildudal.
Karl ók Skoda ’74. Keppendur
voru 12 á Bildudal.
Fjölmargir fylgdust með
keppninni og fannst áhorfendum
keppnin spennandi og skemmti-
leg og höfðu á orði að hún lifgaði
upp á bæjarbraginn.
Myndir og nánari frásögn af
keppninnibirtast i Visi á morgun.
Eldur kviknaði I mosa i
Heiðmörkinnium hálf sex leytið á
laugardag. Aö sögn Arbæjarlög-
reglunnar varð fljótlega vart við
eldinn og tókst að slökkva hann
áður en verulegt tjón hlaust af.
Ekki er vitað um orsök eldsins,
Sr. Heimir Steinsson rektor
Lýðháskólans I Skálholti og sr.
Úlfar Þ. Guðmundsson sóknar-
prestur I ólafsfirði hafa sótt um
hið nýstofnaða prestakall I Selja-
sókn i Breiðholti.
Prestakall þetta var nýlega
auglýst laust til umsóknar en
en talið að kviknað hafi út frá
sigarettu. Vegna þurrkanna, sem
verið hafa að undanförnu, er eld-
hætta mikil og þvi nauðsynlegt að
fólk fari varlega með allan eld.
— ATA
umsóknarfesturinn er til 15. júli.
Verður væntanlega kosið i lok
ágúst eða byrjun september. Fer
það nokkuð eftir endanlegum
fjölda umsækjenda þvi allir munu
þeir halda guðsþjónustur i hinni
nýju sókn áður en til kosninga
kemur. H.R.
Margir sækja um Seljasokn
argus
CITIZEN
Vasahljóöritinn
Bráönauösynlegur lítill hljóöriti fyrir þá, sem eru
á ferö og flugi. Nýtir tímann á skrifstofunni, í
bílnum, í flugvélinni, á sýningum — alls staöar þar
sem þörf er á minnisatriðum og samningu þréfa
á skömmum tíma.
“Secretary 60” afspilari einnig fáanlegur.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. HVERFISGATA 33
‘íój + =x + -4?’ Hverfísgötu 33 Simi 20560
ORIGINAL. ®
Stærstu framleidendur heims á
baðk/efum og baðhurðum allskonar
Góðir
greiðsluskilmálar
Upplýsingar:
Byggingarþjónustan
Iðnaðarmannahúsið
v/ Hallveigarstíg.
og Sö/uumboóinu
Kr. Þorva/dsson
& Co.
Grettisgötu 6.
Simar 24478 & 24730