Vísir - 23.06.1980, Blaðsíða 8

Vísir - 23.06.1980, Blaðsíða 8
vfsrwr Mánudagur 23. júnf 1980 8 utgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri: Davió Guómundsson. 1 Ritstjórar: ölafur Ragnarsson og Ellert B. Schram. Ritstjórnarfulltrúar: Bragl Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttast|órl erlendra frétta: GuSmundur G. Pétursson. BlaSamenn: Axel Ammendrup, Frtða Astvaldsdðttlr, Halldór Reynlsson, lllugl Jökulsson, Jónlna Mlchaelsdóttlr, Kristln Þorstelnsdóttlr, Magdalena Schram, Póll Magnússon, Slgur|ón Valdlmarsson, Sæmundur Guðvlnsson, Þórunn J. Hafsteln. Blaðamaður á Akureyri: Gtsll Slgur- gelrsson. Iþróttir: Gylfl Krlstjónsson, Kjartan L. Pólsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Otlit og hönnun: Gunnar Traustl Guðbjörnsson og Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páil Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Slðumúla 14 slml 86611 7 llnur. Auglýsingar og skrifstofur: Slðumúla 8 simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholtl 2-4 simi 86611. Askriftargjald er kr.6000 á mánuði innanlands og verð I lausasölu 250 krónur ein- takiö. Visirer prentaður I Blaðaprenti h.f. Siðumúla 14. FYMR SJALFA SK B> ÞJÖBINA ÞjóOinni létti er stjórnarkreppan leystist i upphafi ársins. En þaö er ekki nóg aö hafa rikisstjórn i landinu, ef hún viöheldur aöeins þvi vandræöaástandi, sem rikt hefur I efnahagsmálunum, en tekur ekki á vandanum. Það er margt öfugsnúið í íslenskum efnahags- og atvinnu- málum þessa stundina, og ekki auðvelt að átta sig á hvað veldur því að dæmið gengur ekki upp í því góðæri, sem við höfum upplifað. Undirstöðuatvinnuvegur okk- ar, sjávarútvegurinn, bjó við þau skilyrði á síðasta ári, að afli var meiri en nokkru sinni fyrr og verðlag á mörkuðum okkar erlendis hærra en áður. Engu að síður er fiskvinnslan rekin með tapi. Ástæðan er stjórnleysi í ef nahagsmálunum, hringrás verðhækkana, launahækkana og fiskverðshækkana. Við eigum skipastól, sem er svo afkastamikill, að hann má ekki vera á veiðum nema hálft árið, vegna þess að ekki er þorandi að drepa meira af hrygningarstofn- um nytjaf iska okkar. Og á meðan þessi geysifullkomni floti er bundinn við bryggjur tala ráð- herrar í alvöru um að kaupa fleiri fiskiskip. Á sama tíma og ekki er til f jármagn til þess að standa undir nauðsynlegustu framkvæmdum, eyðum við rúmum 20 þúsund milljónum í að greiða niður land- búnaðarafurðir ofan í útlend- inga. Þótt góðæri sé til lands og sjávar kemur það ekki fram ( auknum kaupmætti launa, heldur þvert á móti minnkar kaupmátt- urinn, þótt launin hækki á hverju ári um marga tugi prósenta. Verðlag hækkar og ný verðbólgumet eru sett. Ríkið seylist æ dýpra í vasa skatt- greiðenda og peningakassa f yrir- tækja og sífellteru f undnar nýjar skattaleiðir. Ekki bólar enn á neinum breyt- ingum varðandi stefnuna í þeim málum, sem mestu skipta, efna- hagsmálunum, hjá núverandi ríkisstjórn. Hún lætur vísitölu- skrúf una halda áf ram að snúast, virðist stefnulaus i kjaramálum, óviss í f jármálum og vaxtamál- um og heldur áf ram að moka fé í niðurgreiðslur. Stjórnin sýnist ekki geta spyrnt við fótum í gegndarlausu togarakaupæði, hún hyggst ekki skera niður báknið, heldur þvert á móti halda áfram að blása það út, og áfram á að halda að safna skuldum erlendis. Það er ekki óeðlilegt að sú hugsun hvarfli að fólki, hvort þeir menn, sem ákafast unnu að því að koma núverandi stjórn á laggirnar hafi verið að koma á fót ríkisstjórn fyrir sjálfa sig fremur en fyrir þjóðina. Alþýðu- banda lagsmennirnir, sem segjast í orði kveðnu vera á móti stjórnkerf inu og því borgaralega yfirbragði sem sé á þeim, er þar hafa haslað sér völl, gátu ekki til þess hugsað að Ijá öðrum mjúku ráðherrastólana, sem hafði farið svo vel um þá í. Og hvað var þá eitt varnarbandalag eða ein herstöð milli vina? Framsóknar- menn settust i þessa stjórn af gömlum vana. Þeir tilheyra bæði hægri og vinstri ríkisstjórnum, og hafa á síðari árum verið jafn fastur fylgifiskur ríkisstjórna eins og skýin eru sjálfsögð á himninum. Og sterkur grunur leikur á, að framagirni hafi verið leiðarljós að minnsta kosti sumra sjálf- stæðismannanna, sem urðu óvænt sá tengiliður Framsóknar og Alþýðubandalags, sem þurfti til þess að stjórnin yrði að veru- leika. Stjórnarkreppan leystist og öll- um létti. Við fengum starfhæfa þingræðisstjórn, sem nú fer bráðum að eiga hálfsársafmæli. En hefur nokkuð annað gerst? Hefur nokkuð breyst? Svarið er því miður: Nei. Það er ekki nóg að hafa ríkis- stórn í landinu ef hún gerir ekki neitt annað en telja niður verð- lagið í huganum. Við viljum sjá breytingar í raunveruleikanum. Deiian um vinnutíma skólabókavarða: Hver er munurinn á kennslu í skðlastofu og skólasafni? Núna upp á siökastiö hefur yeriö aö koma aö nýju upp á yfirboröiö deila milli embættis- manna i ráöuneytum rikisins og þess fólks er starfar á skóla- söfnum. Þessi deila snýst um kaup og kjör skólasafnvaröa, sem er stööugt vaxandi hópur meöal starfsmanna skóla lands- ins. A undanförnum áratug hafa veriö aö koma upp skólasöfn viö mjög marga skóla hér á landi og viö störf i þeim eru kennarar meö sérmenntun á sviöi bóka- safnsfræöi og bókasafnsfræö- ingar. Deilan sem nú er komin held- ur betur upp á yfirboröiö snýst um vinnutima skólasafnvaröa einkum og sér i lagi. Fulltrúar rikisins hafa sett fram kröfu um þaö aö skólasafnveröir vinni ó- guölega langan tima til aö fylla stööugildi. Byggt er á einhverj- um útreikningum, sem vafa- laust eru réttir, en siöferöilega séö er hér um aö ræöa ósvlfna aöför embættismanna aö skóla- söfnum sem liö i menningar- og menntunaruppbyggingu i land- inu. Hver er munurinn á þvl aö kenna bekk I kennslustofu og aö kenna sama bekk á skólasafni? Á sjónarmiöum embættis- manna er þaö aö sjá aö afköst þess er kennir á safni séu nálægt þvi helmingi minni en hins, sem kennir inn I stofu. Hvernig þeir komast aö þeirri niöurstööu veit ég ekki. Á skólasafni ler fram kennsla. Sú kennsla er i sér- stöku fagi sem heitir bókasafns- fræöi og miöar aö þvi aö allir skólanemar i landinu geti notaö bókasöfn sér aö gagni. Nemend- um er kennt aö nota spjald- skrár, leita aö upplýsingum um sin náms- eöa áhugasviö og þeim er kennt aö notfæra sér handbækur. Þessi kennsla virö- ist aö mati ráöuneytismanna vera 2. flokks kennsla. Þessir sömu ráöuneytisstarfsmenn gera sér væntanlega ekki grein fyrir þvi aö yfirleitt fylgir þess- um bekk kennari sem á aö þeirra mati aö fá laun sam- kvæmt kennarataxta. Hann get- ur hugsanlega lært þaö sem skólasafnsvöröurinn er aö kenna, en hann getur ekki kennt nemendum þaö af þvi aö tak- markaöar likur eru á aö hann kunni þaö sjálfur. En hann vinn- ur 50 minútur til aö fá tima- kaupiö sitt, en skólasafnsvörö- urinn á aö vinna helmingi leng- ur. Hvaöa röksemdir hafa yfir- völd fjármála hér á landi til aö útskýra þennan mismun? Þaö er min skoöun, aö sá nemandi sem hefur tækifæri til aö notfæra sér bókasafn og kann aö nýta sér þá möguleika sem sllkar stofnanir veita sé býsna vel settur til aö auka og bæta þekkingu sina. Eg tel ákaflega miklar likur á aö kennarar i framhaldsskólum kunni vel aö meta þaö þegar nemendur meö kunnáttu i notkun bókasafna eru á þeirra vegum. Einn hópur er sá, sem hættir skólanámi aö loknum grunnskóla. Þaö tel ég vera mun meira viröi fyrir þá aö kunna aö nota bókasöfn sér til menntunarauka, heldur en aö þekkja lengd áa, hæö fjalla og íbúafjölda borga. Hann getur nefnilega án mikillar fyrirhafn- ar leitað sér upplýsinga um þaö i bókasöfnum. Hér er spurning um þaö, aö viöurkenna mennt- unarþátt safnanna og viöur- kenna starf skólabókavarö- anna. Veröi ekki geröar leiörétting- ar á þessum dæmalausu á- kvöröunum yfirvalda sem fyrst, er ég hræddur um aö skólasöfn- um veröi lokað og þá yröi stigiö spor afturábak. Þaö er skoöun þeirra sem i skólum starfa og á sér styrka stoö i lögum um grunnskóla aö skólasafnið eigi aö vera eitt af meginhjálpartækjunum i skóla- starfinu. Þaö er ákvöröun Al- þingis, en embættismenn rikis- ins, sem mér viröast oft ráöa a.m.k. jafn miklu og Alþingi gera þaö sem þeir geta til aö koma i veg fyrir aö þaö sé hægt. Þannig gefa þeir löggjafanum langt nef og sýna starfsmönnum rikisins fádæma óbilgirni sem jaðrar viö ósvifni. Þaö mun eng- inn maöur ráöa sig aö skóla- söfnum miöaö viö þau kjör sem skólasafnsvöröum er ætlaö aö búa viö. Meö þá staöreynd á bak viö eyraö vænti ég þess aö ein- hver hugljómun eigi sér staö hjá 1 neöanmóls Sigurður Helgason skólasafnsvörður gerir hér að umtalsefni deilu þá, sem upp er komin milli ríkisins og kennara, sem starfa í skólabóka- söfnum um vinnutíma og launakjör. Segir hann, að verði ekki gerðar leiðrétt- ingar á dæmalausum á- kvörðunum yfirvalda sem fyrst, sé hann hræddur um að skóla- söfnunum verði lokað og þá yrði stigið spor afturá- bak. margnefndum fulltrúum rikis- íns og leiörétting veroi gerö. Þvi fyrr, þvi betra. Siguröur Helgason. Viöurkenna þarf menntunarþátt skólasafnanna og starf skólabókavaröanna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.