Vísir - 13.09.1980, Síða 31

Vísir - 13.09.1980, Síða 31
vlsut Laugardagur 13. september 1980 Unnib aö þvl aft mæla ummál styrtlunnar. Þær komust aö þvi aö þaö var hátt I 100 sentimetrar. Hulda, Oddný Helga og Ragna Soffla skoöa tálknin i hákarlinum ásamt skólastjóranum slnum ólafi Óskarssyni. Nemendur í Valhúsaskóla: MÆLDU HAKARLINN HATT OG LAGT Þaö var mikiö um aö vera hjá nemendum 7. og 9. bekkjar Val- húsaskóla eftir kennslu á föstu- daginn. bá fóru þau ásamt skólastjóranum sinum, Ólafi Óskarssyni,niöur i fjöru og unnu verkefni, sem þau höföu fengið til að vinna aö i fritima sinum. Verkefniö var að mæla og teikna upp hákarlinn, sem rak þar á land á fimmtudaginn. Þegar blaöamaöur og ljós- myndari Visis komu á staöinn var þar margt um manninn. Nemendurnir voru meö mál- bönd, tommustokka og garn- hnykla til að mæla skepnuna sem lá þarna i fjörunni. Meöal annarra sem viö hitt- um voru þrjár stelpur úr niunda bekk, þær Hulda, Oddný Helga og Ragna Soffia. Þær voru i óöa önn aö mæla og sögöust vera búnar aö komast aö lengd fisks- ins og mörgu öðru. Allt þetta skrifuöu þær niöur á blaö og siöan á aö skila verkefninu, sem samanstendur af 15 spurning- um, i skólanum eftir helgina. — AB „HAKARLINN HUGSAN- LEGA DAIB OR ELLI“ Erling Ólafsson hjá Náttúru- fræöistofnun íslands sagöi að þetta væri beinhákarl. Hákarlar yrðu þetta frá átta til tiu metrar á lengd og þessi væri um átta metrar. Ekki gat hann sagt til um aldurinn, nema aö þetta væri fulloröiö dýr. „Beinhákarl er algengur far- fiskur hér á sumrin. Hann lifir á svifátu og er alveg meinlaus mönnum, enda eru tennur hans mjög litlar og veikbyggöar.” Erling sagöi, aö fiskurinn kæmi upp aö suöur- og suövest- urströnd landsins i júli og ágúst en hyrii út á mitt Atlantshaf á veturna. Hákarlinn notar sumarið til aö fita sig, þvi að á veturna er hann ekki fær um aö afla sér fæöu. Það er vegna þess að i tálknopunum eru sigti sem sigta fæöuna frá sjónum og þessi sigti falla á haustin og vaxa svo aftur á veturna. Erling gat ekki sagt ákveðið um dánarorsök þessa hákarls. Hann sagöi aö á skrokk dýrsins væri mikiö af örum og gömlum sárum, en þaö væri algengt á þessum skepnum. Sárin fengju þær meöal annars þegar þær syntu i gegn um net. Ekkert af þeim örum sem hann sá á þessu dýri voru þannig aö þau bentu á dánarorsökina. Hélt hann helst aö siglt heföi verið á hákarlinn. Þá gæti einnig veriö aö dýriö hafi drepist úr elli. Til gamans má geta þess aö þyngd hákarla var oftast miöuö viö þaö, hvaö margar tunnur af lýsi fengust úr lifur þeirra og sagöi Erling, aö algengt hafi verið aö úr einum hákarli fengj- ust 6—14 tunnur, en vitaö sé um dæmi þess aö úr einum hákarli hafi fengist 24 tunnur af lýsi. Erling ólafsson gat ekki sagt til um dánarorsök hákarlsins, þar sem hann haföi ekki séö neina alvarlega áverka á skrokk dýrs- 31 Tvennt á slvsadeíld Ekiö var á fimm ára telpu við Hjallabraut i Hafnarfirði um eittleytiö i gærdag. Slysið varö með þeim hætti, að vöru- bifreiö stoppaði á götunni, ekki þó viö gangbraut, til aö hleypa telpunni yfir er annar bill ók framhjá og lenti á telp- unni. Var hún þegar flutt á slysadeild Borgarspitalans en mun ekki hafa meiðst að ráði. Þá lenti ungur drengur á reiöhjóli utan i bil á Alftanes- vegi meö þeim afleiöingum að bæöi hjól og bill skemmdust nokkuð. Drengurinn var flutt- ur á slysadeild en meiðsli hans eru ekki talin alvarleg. — Sv.G. „Við styðj- um Kjaptan“ „Við munum vinna af ein- hug meö nýráönum fram- kvæmdástjóra flokksins”, segir i samþykkt stjórnar ungra sjálfstæöismanna frá þvi i gærkvöldi. Þessi samþykkt var gerö eftir aö miðstjórn haföi sam- þykkt mótatkvæðalaust aö ráða Kjartan Gunnarsson og Ingu Jónu Þóröardóttur sem framkvæmdastjóra Sjálf- stæöisflokksins. Fyrir þann fund haföi framkvæmdastjórn SUS lýst yfir þeirri skoðun sinni aö Kjartan væri ekki „heppilegur maður i þetta vandasama starf á þeim erfiö- leikatimum, sem flokkurinn á nú viö aö stríöa”. Ungir sjálfstæöismenn skora á forystumenn Sjálf- stæöisflokksins aö reyna sem fyrst af öllum mætti aö ná sáttum i þeim deilum sem nú rikja innan flokksins. Kafflsöludagur og basar Eyllrðlnga lélagslns Arlegur kaffisöludagur Ey- firðingafélagsins i Reykjavlk veröur á sunnudaginn 4. september. Kaffisala verður aö Hótel Sögu og verður hald- inn basar um leiö. Allur ágóöi af kaffisölunni og basarnum rennur til menningar- og góö- gerðamála I Eyjafiröi. Ey- firðingum 67 ára og eldri er sérstaklega boöiö i þessa kaffiveislu. Eyfiröingafélagið hélt upp á 40 ára afmæli félagsins fyrr á þessu ári meö myndarlegu samkvæmi á Hótel Sögu. Kaffisalan og basarinn hef j- ast klukkan 14.00. FyriröO mínútum varhúnglerhartdeis í frystikistunni Nú skaí hún etin upp tfl agna 5 t«gundlr. Fést f flestum verzlunum. Brauögerð Gfsla M. Jóhannssonar, Laugavegl 32. Sfmar 30693 og 22025.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.