Morgunblaðið - 05.06.2002, Síða 2

Morgunblaðið - 05.06.2002, Síða 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Birkir og Gylfi bætast í landsliðshópinn / B2 Heimaliðin sýndu styrk sinn á HM / B2, B3 4 SÍÐUR Morgunblaðinu í dag fylgir auglýs- ingablaðið Kaup- hlaup frá Smára- lind. Blaðinu verður dreift utan höf- uðborgarsvæð- isins. Morgunblaðinu í dag fylgir auglýs- ingablað, „Hóla- skólablaðið“. Blaðinu verður dreift um allt land. Sérblöð í dag www.mb l . i s MAÐURINN sem framseldur var nýlega frá Hollandi vegna gruns um aðild að hvarfi Valgeirs Víð- issonar í Reykjavík fyrir tæpum átta árum neitaði alfarið sök í yf- irheyrslum lögreglunnar og var sleppt úr gæsluvarðhaldi síðdegis í gær. Að sögn Sigurbjörns Víðis Egg- ertssonar, aðstoðaryfirlögreglu- þjóns í Reykjavík, er búið að yf- irheyra um tug manna vegna þessa máls en eftir að manninum var sleppt í gær liggja ekki fleiri undir grun. Verður gögnum málsins safn- að saman og þeim komið til rík- issaksóknara sem mun taka ákvörð- un um hvert framhaldið verður. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, kom til landsins þriðjudaginn 21. maí síðastliðinn eftir að hafa verið framseldur frá Hollandi að kröfu lögreglunnar í Reykjavík. Var hann þá nýbúinn að afplána dóm í Hol- landi fyrir smygl á fíkniefnum. Fyr- ir Héraðsdómi Reykjavíkur 22. maí sl. var hann úrskurðaður í gæslu- varðhald til 3. júní vegna gruns um að hafa orðið Valgeiri að bana. Fékkst varðhaldið svo framlengt til föstudagsins 7. júní án þess að sá úrskurður væri kærður til Hæsta- réttar. Þurfti lögreglan aðeins sól- arhring af þeirri framlengingu. „Við gátum ekki haldið mannin- um lengur. Við vorum búnir að vinna það sem við töldum okkur geta og því þótti ekki ástæða til að halda honum lengur inni. Hann er frjáls ferða sinna. Málið telst enn óleyst og við munum taka saman gögn þess til að senda ríkissaksókn- ara til skoðunar,“ sagði Sigurbjörn Víðir. Málið erfitt rannsóknar Valgeir Víðisson yfirgaf heimili sitt á Laugavegi um miðnætti 19. júní árið 1994 og hefur ekki spurst til hans síðan. Fljótlega eftir hvarf- ið fóru lögreglunni í Reykjavík að berast vísbendingar um að ekki hefði verið allt með felldu. Ýmsar sögur hafa verið á kreiki sem lög- reglu hefur ekki tekist að staðfesta. Fyrir fjórum árum úrskurðaði Hér- aðsdómur Reykjavíkur að Valgeir skyldi teljast látinn, enda hefði ekk- ert komið fram sem benti til ann- ars. Miðað var við að andlát hans hefði borið að höndum daginn sem hann hvarf. Sigurbjörn Víðir sagði að eftir því sem lengri tími liði frá hvarfinu yrði málið æ erfiðara rannsóknar. Búið væri að hnýta nokkra lausa enda og framhaldið væri í höndum ríkissaksóknara. Maðurinn sem grunaður var um aðild að hvarfi Valgeirs Víðissonar Neitaði alfarið sök og var sleppt að loknum yfirheyrslum UMFERÐ um Gullinbrú gekk greiðlega fyrir sig í gær og engar tilkynningar bárust vegna umferð- arteppu á leiðunum út úr Grafarvogi, að sögn lög- reglunnar í Reykjavík. Á mánudag var allri umferð úr Grafarvogi beint um Gullinbrú vegna framkvæmda við mis- læg gatnamót við Víkurveg og myndaðist umferð- arteppa á háannatímum sökum þessa. Að sögn lögreglu var gripið til þess ráðs í gær að opna leið út á Vesturlandsveg frá Grafarvogi norðan við Víkurveg sem létti nokkuð á umferðarálagi við Gullinbrú. Framkvæmdum á að ljúka 10. júní. Morgunblaðið/RAX Framkvæmdir standa nú yfir við Víkurveg og verður m.a. tekin í notkun ný brú yfir Vesturlandsveg sem tengja á Grafarvog og Grafarholtshverfi. Greiðfært orðið úr Grafarvogi HÆSTIRÉTTUR hefur fallist á ósk ríkislögmanns um áfrýjun dóms Héraðsdóms Reykjavíkur frá 6. mars sl. þar sem íslenska ríkinu var gert skylt að greiða konu inn- an Bandalags háskólamanna, BHM, tæpar 109 þúsund krónur í vangoldið fæðingarorlof, ásamt dráttarvöxtum frá hausti 1997. Á vefsíðu BHM segir Gísli Tryggvason, framkvæmdastjóri bandalagsins, að það hafi komið sér á óvart að Hæstiréttur skyldi fallast á áfrýjunina. Mun BHM krefjast frávísunar málsins frá Hæstarétti. Að auki telur BHM að Árni Kol- beinsson hæstaréttardómari hafi verið vanhæfur við ákvörðun rétt- arins um áfrýjunarleyfi þar sem Árni hafi verið ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu þegar BHM sótti málið fyrir hönd konunnar gegn ráðuneytinu fyrir hönd ís- lenska ríkisins. Misræmi sagt í úrskurðum Hæstaréttar Haft er eftir Gísla á vefsíðunni að misræmis virðist gæta í úr- skurðum Hæstaréttar varðandi áfrýjanir, eftir því hvort ríkið fari fram á áfrýjun eða stéttarfélög. Því til stuðnings bendir hann á að Hæstiréttur hafi ekki fallist á áfrýjun dóms frá síðasta ári í máli sem Sjúkraliðafélag Íslands og BSRB ráku gegn ríkinu varðandi fyrningu orlofsréttar. Segir Gísli Tryggvason að dómurinn hafi aug- ljóslega verið fordæmisgefandi í svo mikilvægu máli sem orlofsrétt- ur starfsmanna sé. BHM telur hæstarétt- ardómara vanhæfan Hæstiréttur fellst á áfrýjun í máli gegn íslenska ríkinu Hrafnkatli vísað frá Ísrael HRAFNKATLI Brynjarssyni hefur verið vísað úr landi í Ísr- ael en gefinn var út úrskurður í gærkvöldi um að hann ætti að yfirgefa landið innan þriggja daga, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu. Að sögn Péturs Ásgeirssonar hjá ráðuneytinu hefur Ethan Alexander Naschitz, ræðismað- ur Íslands í Ísrael, hitt Hrafn- kel, gefið honum góð ráð og gert honum grein fyrir hvaða möguleika hann hafi í stöðunni. Ekki er ljóst til hvaða að- gerða Hrafnkell hyggst grípa en ein leiðin er að leita til dóm- stóla og fá úrskurðinum hnekkt og við það kann málið að frest- ast um einhvern tíma. ÞRÍR keppendur á Íslandsmóti IFBB í hreysti, sem haldið var um páskana, hafa verið úrskurðaðir í keppnisbann eftir að lyfjapróf, sem tekin voru að keppni lokinni, reynd- ust jákvæð. Þá missa þeir ennfrem- ur sæti sín á Íslandsmótinu. Þrír efstu keppendurnir í karla- og kvennaflokki gengust undir lyfjapróf og reyndust þrír þeirra já- kvæðir. Keppendurnir sem um ræðir eru Kristján Samúelsson, sem lenti í 1. sæti í karlaflokki, Guðni Freyr Sigurðsson, sem lenti í öðru sæti, og Freyja Sigurðardótt- ir, sem lenti í fyrsta sæti í kvenna- flokki. Samkvæmt niðurstöðum lyfjaprófs mældist efedrín í sýni Kristjáns og er hann dæmdur í þriggja mánaða keppnisbann skv. reglum Alþjóða Ólympíusambands- ins. Í sýni Guðna Freys mældist efedrín, Nandrolon, Stanozol og of hátt hlutfall testosterons. Í sýni Freyju mældist Stanozol og fara Guðni og Freyja bæði í 2 ára keppnisbann. Í fréttatilkynningu frá IFBB segir að Stanozol og Nandrolon séu hvort tveggja þekkt steralyf en efedrín er örvandi og brennslu- hvetjandi efni. Þrír dæmdir í keppnisbann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.