Morgunblaðið - 05.06.2002, Side 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HEIMAHÖFN MÁLARANS
Domus Medica við SnorrabrautDugguvogi 4
Allt fyrir málarann og myndlistarmanninn í Litalandi,
nýrri verslun okkar í Domus Medica.
Komdu og fáðu góð ráð þegar þú ætlar að mála.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
0
6
4
6
5
FUGLALÍFIÐ er fjölskrúðugt á
Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Ár eft-
ir ár dvelja þar fastagestir og
þeirra á meðal er álftapar eitt sem
íbúar við tjörnina hafa fylgst með
koma ungum sínum á legg hvert
sumarið á fætur öðru.
Fróðir menn á Seltjarnarnesi
segja að í ár hafi mikið ungalán
leikið við álftahjónin, því menn
minnist þess ekki að þeim hafi fyrr
tekist að koma sex ungum úr eggi
og bíða áhugasamir átekta um
hvort þeim tekst að koma þeim öll-
um til „svans“.
Það getur verið þrautin þyngri
að fylgjast með sex unga hópi og til
að enginn heltist úr lestinni hafa
álftahjónin þann vana að annað
þeirra fer í fararbroddi á sundi um
tjörnina og hitt rekur lestina. Eitt-
hvað virðist sem slest hafi upp á
vinskapinn hjá ungunum því einn
þeirra syndir heldur hægar og hef-
ur dregist aftur úr. Eða vill hann
kannski hjálpa til og hafa auga með
allri fjöskyldunni líkt og mamma og
pabbi? Verður eflaust vel fylgst
með fjölskyldunni á Nesinu á næstu
vikum enda margir áhugasamir um
velferð þeirra. Morgunblaðið/Golli
Álftahjónin
eiga miklu
ungaláni
að fagna
HÆSTIRÉTTUR féllst í gær á
kröfu leigusala um að Café List ehf.
verði borið út úr húsnæði við
Laugaveg í Reykjavík þar sem nú
er rekið veitingahúsið Kaffi List.
Þórdís Guðjónsdóttir, annar eig-
enda veitingahússins, segir að þetta
mál snúist ekki um vanskil heldur
uppgjör á kostnaði sem tengist inn-
réttingum hússins. Eigendurnir
hafi ráðist í mjög dýrar innrétt-
ingar sem eigandi hússins muni
eignast þegar leigutíminn rennur út
árið 2010. Segir Þórdís að nú verði
leitað samninga við eiganda hús-
næðisins, fyrirtækið Serínu.
Töldu húsnæðið ekki í því
ástandi sem um var samið
Fram kemur í dómi Hæstaréttar
að veitingastaðurinn hafi ekki
greitt leigu fyrir tiltekið tímabil og
því sé leigusalanum heimilt að rifta
leigusamningi. Í leigusamningum
var tekið fram að Café List myndi
innrétta húsnæðið á eigin kostnað.
Fastar innréttingar yrðu eign
leigusalans að leigutíma loknum en
lausar innréttingar eign Cafés List-
ar. Mánaðarleg leiga skyldi vera
534.000 krónur auk virðisauka-
skatts. Þegar ekki bárust greiðslur
fyrir húsaleigu fyrir september til
nóvember í fyrra rifti leigusalinn
samningnum og fór í framhaldi
fram á útburð.
Café List krafðist þess að út-
burðarkröfu yrði hafnað, sem
byggðist í fyrsta lagi á því að leigu-
salinn hefði aðeins afhent hluta
húsnæðisins á umsömdum tíma og
hefði kostnaðar vegna þess orðið
rúmlega 1,3 milljónir. Þá hefði hús-
næðið ekki verið afhent í því
ástandi sem um var samið og hefði
kostnaður af þeim sökum numið
hátt í eina milljón króna. Þá hefði
leigusalinn ekki boðið Café List
greiðslu fyrir fastar innréttingar í
húsnæðinu samhliða riftun á leigu-
samningi. Næði riftun fram að
ganga væri um óréttmæta auðgun
að ræða en kostnaður við innrétt-
ingar hefði numið rúmlega 43 millj-
ónum króna.
Ekki sýnt fram á rétt
á frádrætti frá leigunni
Á þetta féllst Hæstiréttur ekki.
Segir í dómnum að leigusalanum
hafi verið heimilt að rifta samn-
ingnum enda hafi leigugreiðslur
ekki borist og Café List ekki sýnt
fram á að félagið ætti rétt á frá-
drætti frá leigunni. Tekið var fram
að heimild leigusala til riftunar og
til að krefjast umráða yfir húsnæði
sínu væri ekki háð því að hann byði
leigutaka uppgjör á því sem sá síð-
arnefndi gæti átt rétt á við lok
leigu.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Markús Sigurbjörnsson, Árni
Kolbeinsson og Gunnlaugur Claes-
sen. Agnar Gústafsson hrl. flutti
málið fyrir hönd Cafés Listar ehf.
en Ingólfur Hjartarson hrl. var til
varnar fyrir leigusalann, Serínu
ehf.
Fallist á að bera
út Kaffi List
Eigandinn segir
málið snúast
um uppgjör
en ekki vanskil
Hæstiréttur dæmir í máli sem höfðað var
gegn eigendum veitingahúss við Laugaveg
HEKLA, umboðsaðili Volks-
wagen bifreiða hér á landi, hefur
innkallað 883 bíla af gerðinni Polo
vegna hugsanlegra galla í
bremsukerfi þeirra.
Um er að ræða árgerðirnar
1998, 1999 og 2000. Á heimsvísu
hefur Volkswagen innkallað um 1
milljón bíla af gerðinni Polo og
Lupo.
Ástæða gallans er sögð mögu-
leg bilun í sogslöngu, sem getur
orsakað vægar gangtruflanir og
að ástig á bremsur getur þyngst.
Um eina klukkustund tekur að
skipta um þessa sogslöngu.
Engin hætta á ferðum
Að sögn Ríkharðs Sveinssonar,
vefstjóra hjá Heklu, hafa þegar
verið send út bréf til eigenda þess-
ara bíla og þeim boðið að koma
með ökutækin í skoðun. Hann
sagði þetta fyrst og fremst fyrir-
byggjandi aðgerðir, en engin
hætta væri á ferðum.
Hekla innkallar
883 Polo-bíla
MEIRIHLUTI félaga í Frjálsa líf-
eyrissjóðnum sem mættu á fund í
sjóðnum í gær var samþykkur til-
lögu stjórnar sjóðsins um samein-
ingu hans og lífeyrissjóðsins Ein-
ingar. Til að af sameiningu
sjóðanna geti orðið þarf samþykki
tveggja þriðju hluta félagsmanna,
en það náðist ekki. Af sameiningu
sjóðanna verður því ekki í bráð.
Áður hafði verið samþykkt á
fundi hjá Einingu að sameinast
Frjálsa lífeyrissjóðnum að því
gefnu að nægjanlegur meirihluti
fengist fyrir sameiningunni hjá
Frjálsa.
1% félaga mætti á fundinn
Sigurður R. Helgason, stjórnar-
formaður Frjálsa lífeyrissjóðsins,
segir að tillagan um sameiningu
sjóðsins og Einingar snúist um
breytingar á samþykktum Frjálsa
lífeyrissjóðsins til samræmis við
samþykktir Einingar. Hann segir
að einungis rúmlega 1% fé-
lagsmanna hafi mætt á fundinn eða
um 23 sjóðsfélagar. Málið verði
skoðað á næstunni og væntanlega
tekið fyrir aftur síðar.
Bæði Frjálsi lífeyrissjóðurinn og
lífeyrissjóðurinn Eining eru í
vörslu Kaupþings banka.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn
og Eining ekki sameinuð