Morgunblaðið - 05.06.2002, Síða 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Slakað á
í blíð-
viðrinu
Ragnar Guðjónsson og Lóa Hermannsdóttir tóku sér hvíld á leiðinni í sumarparadísina í Nauthólsvík.
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Þau Edda, Kamma, Bergþóra Linda og Friðrik Már horfðu mót sólu í klifurgrind í Hljómskálagarðinum í gær.
Stelpurnar af Laufásborg, þær Laufey Karítas, Júnía, Laufey, Emma Kristína, Rebekka og
Sesselja slökuðu á ásamt kennurunum Ásdísi og Eddu í Hljómskálagarðinum.
Mæðgurnar Kristjana Björg og Sóley Kristín
sleiktu sólina á ylströndinni í Nauthólsvík.
hjónin sér hvíld á leiðinni að Naut-
hólsvík, en þau sögðust venjulega
ganga mikið og alltaf hafa gert.
Sumarið leggst vel í þau, og Ragnar
sagðist hlakka til að geta snúið sér
aftur að vinnu þegar hann hefur
jafnað sig eftir aðgerðina.
Á ylströndinni í Nauthólsvík flat-
möguðu mæðgurnar Kristjana
Björg Sveinsdóttir og Sóley Kristín,
5 ára. Aðspurð sagði Kristjana að
hinar hressustu en þær Ásdís og
Edda sögðust iðulega fara með
börnin í garðinn þegar vel viðraði.
Í nágrenni Reykjavíkurflugvallar,
á veginum sem liggur að ylströnd-
inni í Nauthólsvík, nutu hjónin
Ragnar Guðjónsson og Lóa Her-
mannsdóttir veðurblíðunnar við
vegarkantinn. Ragnar sagðist vera
nýkominn úr aðgerð þar sem skipt
var um hnjálið og því tækju þau
BLÍÐAN var einstök víða um land í
gær og fór hitinn hæst í 20 stig. Í til-
efni góða veðursins fóru blaðamað-
ur og ljósmyndari á stjá og hittu
fólk sem naut gæsku veðurguðanna.
Fyrst lá leiðin í Hljómskálagarð-
inn en þar gat að líta fjölda barna og
fullorðinna að leik. Í nýstárlegri
klifurgrind voru þau Edda MacFarl-
ane, Kamma Thordarson, Bergþóra
Linda Ægisdóttir og Friðrik Már
Ævarsson, nemendur í 9. bekk
Álftamýrarskóla, að slaka á að af-
loknum prófum. Að sögn Eddu voru
þau líka í Hljómskálagarðinum í
fyrradag og öll voru þau sammála
um að veðurblíðan væri einstök. Það
sem nú tekur við hjá krökkunum er
misjafnt, þær Edda og Kamma sögð-
ust vera á leið til Danmerkur í
skemmtiferð, Bergþóra ætlar að
starfa á fasteignasölu foreldra sinna
í sumar og Friðrik ætlar að sögn að
vinna við ýmislegt.
Í Hljómskálagarðinum voru einn-
ig nokkrar þriggja ára stúlkur af
leikskólanum Laufásborg ásamt
kennurum sínum, þeim Ásdísi og
Eddu. Þær stuttu voru að leik við
skjólgóða kletta í garðinum og voru
þetta væri þriðja ferðin þeirra í
Nauthólsvíkina í sumar en að dag-
urinn í gær væri sá besti hingað til.
„Það sem er skemmtilegast við að
koma hingað er að þetta er eins og
að vera á sólarströnd erlendis,“
sagði Kristjana. Sóley Kristín sagði
að það skemmtilegasta sem hún
gerði á ströndinni væri að liggja í
sólbaði og héldu þær mæðgur við
svo búið áfram að sóla sig.
Á HRAÐAMYNDAVÉL í
Hvalfjarðargöngum sást þegar
ökumaður ók þar nýlega í gegn
á rúmlega tvöföldum hámarks-
hraða. Mældist hann á 147 km
hraða en ekki má aka hraðar en
á 70 um göngin.
Segir lögreglan að ekki þurfi
að fjölyrða um þá hættu sem
stafaði af ökumanninum. Hann
má búast við því að missa öku-
réttindin og greiða 70.000 krón-
ur í sekt.
Á heimasíðu Spalar, sem á og
rekur göngin, kemur fram að
um hvítasunnuhelgina fóru um
12.200 bílar til norðurs um
göngin. Af þeim óku 137 of
hratt. Flestir óku á 84–98 km
hraða en þeir sem óku hraðast
fóru um göngin á 125 og 130 km
hraða.
Ók um Hval-
fjarðargöng á
147 km hraða
MENNIRNIR tveir sem hafa
játað að hafa ráðist að Magnúsi
Frey Sveinbjörnssyni í Hafnar-
stræti hinn 25. maí sl. voru í gær
úrskurðaðir í áframhaldandi
gæsluvarðhald til 16. júlí nk. að
kröfu lögreglunnar í Reykjavík.
Eins og kunnugt er lést Magnús
Freyr á sunnudag af áverkum
sem hann hlaut við árásina.
Héraðsdómur Reykjavíkur
kvað upp úrskurð sinn á grund-
velli 2. mgr. 103 greinar hegn-
ingarlaga en þar segir að úr-
skurða megi mann í gæslu-
varðhald sé sterkur grunur um
að hann hafi framið afbrot sem
geti varðað tíu ára fangelsi, enda
sé brotið þess eðlis að ætla megi
varðhald nauðsynlegt með tilliti
til almannahagsmuna.
Líkamsárásin
í Hafnarstræti
Gæslu-
varðhald
framlengt
ÍSLENSKUR nýstúdent sem
slasaðist alvarlega þegar hann
varð fyrir bíl í síðustu viku er á
batavegi skv. upplýsingum frá
ferðaskrifstofunni Heimsferð-
um.
Pilturinn hlaut höfuðhögg og
fótbrotnaði og var á tímabili
haldið sofandi á sjúkrahúsi.
Hann hefur komist til meðvit-
undar og læknar hafa rætt
þann möguleika að flytja hann
til Íslands með sjúkraflugi.
Pilturinn var í 200 manna hópi
útskriftarnemenda frá Verzl-
unarskóla Íslands.
Nýstúdent
á batavegi
HARÐUR árekstur varð á
Suðurlandsvegi milli Hvera-
gerðis og Selfoss skömmu eftir
hádegi í gær. Voru þrír fluttir á
Heilbrigðisstofnun Selfoss til
aðhlynningar en meiðsl þeirra
voru ekki alvarleg.
Að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi missti ökumaður fólksbíls
stjórn á bíl sínum sem snerist á
veginum og fór yfir á rangan
vegarhelming. Þar skall á hon-
um bíll sem kom úr gagnstæðri
átt. Bílarnir eru báðir mikið
skemmdir eða ónýtir eftir
áreksturinn.
Snerist á Suð-
urlandsvegi
STUTT