Morgunblaðið - 05.06.2002, Page 8

Morgunblaðið - 05.06.2002, Page 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ 1,1 lítra. Ver› á›ur: 1.035 kr. Ver› á›ur: 219 kr. Ver› á›ur: 89 kr. Tilvalið í sumarbústaðinn Glerskálar 1.750 kr. 3 í pakka Ver› á›ur: 2.199 kr. Eldhúsrúllustandur 180 kr. Steikarhnífur 99 kr. (áður 112) Steikargaffall 99 kr. (áður 112) Hitakanna 890 kr. Vatnsglas 22cl 69 kr. Pottasett 2.450 kr. Ver› á›ur: 2.990 kr. Málþing lögmanna og dómara Viðurlög í brennidepli Lögmannafélag Ís-lands og Dómara-félag Íslands gang- ast fyrir málþingi nk. föstudag. Ingimar Ingason framkvæmdastjóri Lög- mannafélags Íslands svar- aði nokkrum spurningum Morgunblaðsins. Hver er yfirskrift mál- þingsins, hvar verður það haldið og hvenær? „Yfirskrift málþingsins er Glæpur og refsing – við- urlög við glæpum á Íslandi – er breytinga þörf? Mál- þingið verður haldið í Eld- borg, húsi Hitaveitu Suð- urnesja við Svartengi, Bláa lóninu, föstudaginn 7. júní nk.“ Hver er tilurð og til- gangur málþingsins? „Málþingið er á vegum Lög- mannafélags Íslands og Dómara- félags Íslands, en þessi félög hafa um langt árabil haldið málþing fyrir félagsmenn sína og aðra lög- fræðinga, í byrjun júní ár hvert, þar sem tekin hafa verið fyrir lög- fræðileg álitaefni sem hæst hafa borið hverju sinni. Ástæða þess að efnið glæpir og viðurlög við þeim varð fyrir valinu að þessu sinni, er sú mikla umræða sem átt hefur sér stað í þjóðfélaginu undanfarin misseri um þessi mál, þar sem m.a. hafa komið fram háværar kröfur um verulega hertar refs- ingar við tilteknum afbrotum, svo sem fíkniefnabrotum, kynferðis- brotum og reyndar einnig öðrum ofbeldisbrotum.“ Helstu áherslurnar… „Meðal þess sem rætt verður á málþinginu er samanburður á þyngd refsinga frá einu tímabili til annars, milli landa og um þau vandamál sem við er að glíma við samanburð á refsingum fyrir mis- munandi tegundir brota. Reynt verður að varpa ljósi á þá þætti sem vega þyngst við ákvörðun refsinga fyrir einstakar tegundir brota, farið verður ofan í eðli og þróun refsinga, svigrúm dómstóla við ákvörðun refsinga með hlið- sjón af jafnræðissjónarmiðum, hlutverk refsinga og áhrif almenn- ingsálitsins þegar kemur að refs- ingum í afmörkuðum brotaflokk- um. Leitast verður við að fá sjónarmið fagaðila úr ólíkum átt- um og koma frummælendur ekki aðeins úr hópi lögmanna og dóm- ara, heldur úr breiðum hópi sér- fræðinga, sem um þennan mála- flokk fjalla með einum eða öðrum hætti, m.a. afbrotafræðingur og fulltrúi fjölmiðla, sem ræða mun um álit almennings á dómstólum, skilning á dómskerfinu og afstöðu almennings til dóma í málum, sem vakin er athygli á í fjölmiðlum, einkum manndráps- og kynferðis- brotamálum. Að loknum fram- söguerindum fara svo fram pall- borðsumræður, þar sem búast má við líflegum skoðanaskiptum þátt- takenda.“ Er málþingið aðeins fyrir lög- menn og dómara? „Málþingið er ekki eingöngu opið lög- mönnum og dómurum, heldur einnig öðrum lögfræðingum. Auk þess geta fulltrúar annarra starfs- stétta, sem með þessi mál fara, fengið að sitja málþingið, en nán- ari upplýsingar veitir skrifstofa Lögmannafélags Íslands.“ Hver eru annars helstu við- fangsefni LMFÍ? „Starfsemi Lögmannafélags Ís- lands er margþætt og byggist á stórum hluta á lögkveðnum skyld- um þess samkvæmt lögmannalög- um nr. 77/1998. Lögmannafélagið hefur reyndar þá sérstöðu að öll- um lögmönnum er skylt að vera félagsmenn, enda hefur félagið með höndum eftirlits- og agavald yfir lögmönnum. Sérstök nefnd, úrskurðarnefnd lögmanna, sem í sitja lögmenn, dómarar og lög- fræðingar, úrskurðar í kærumál- um á hendur lögmönnum vegna meintra brota þeirra á lögum eða siðareglum lögmanna, en siða- reglum félagsins er ætlað að setja ramma utan um það hvað má og má ekki í lögmennsku. Þá kemur Lögmannafélag Íslands fram fyrir hönd lögmanna gagnvart dómstól- um og stjórnvöldum um þau mál- efni sem stéttina varða og heldur reglulega fundi með fulltrúum dómsmálaráðuneytisins, Dómara- félags Íslands og Dómstólaráðs. Á vegum félagsins starfar sérstök laganefnd sem hefur það hlutverk að fara yfir lagafrumvörp og veita umsagnir um þau til nefnda Al- þingis. Laganefndin kemur einnig að vinnu ráðuneyta fyrir og við smíði lagafrumvarpa á fjölmörg- um sviðum. Hefur félagið þannig mikilvægu hlutverki að gegna við þróun löggjafar og mótun réttar- reglna í landinu. Félagið heldur úti öflugri heimasíðu með aðgengilegum upplýsingum um lögmenn og þjónustu þeirra, auk þess sem Lögmannablaðið kemur reglulega út, ásamt fréttabréfum með hagnýtum upplýs- ingum og fróðleik fyrir félagsmenn. Félagið skipuleggur einnig endurmenntun félags- manna, rekur bókasafn með lög- fræðilegu efni og stendur fyrir fundum og málþingum á sviði lög- fræði. Þá er starfrækt sérstök lög- mannavakt alla þriðjudagseftir- miðdaga nema í júlí og ágúst þar sem fólki gefst kostur á að ræða við lögmann um réttarstöðu sína endurgjaldslaust og fá leiðbein- ingar um hver séu næstu skref í máli þeirra.“ Ingimar Ingason  Ingimar Ingason fæddist í Borgarnesi 23. ágúst 1964. Stúd- ent frá MS 1984. Embættispróf í lögfræði frá HÍ 1990 og masters- gráða, LLM, í flutninga-, sjó- og sjótryggingarétti frá Tulane University í New Orleans 1999. Starfaði sem fulltrúi og síðar deildarstjóri trygginga- og innraeftirlits hjá Eimskipafélagi Íslands 1990-98. Framkvæmda- stjóri Lögmannafélags Íslands frá 1999. Giftur Guðrúnu Mar- gréti Hannesdóttur sérfræðingi í starfsþróunardeild Eimskipa- félagsins. Börn eru Stefanía Hanna, 8 ára, og Nína Margrét, 7 mánaða. Starfsemi LMFÍ er margþætt Nú geta Mjallhvít og dvergarnir haldið áfram að mjólka, flytja grjót, safna skuldum, plata aumingja gamla fólkið, lengja biðlista, og svo frv.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.