Morgunblaðið - 05.06.2002, Side 16

Morgunblaðið - 05.06.2002, Side 16
LANDIÐ 16 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Taktu þátt í Tölvufræðibraut Iðnskólans í Reykjavík hefur verið í fararbroddi á sínu sviði. Og nemendur þaðan gegna víða ábyrgðarstöðum. Kennt er allt um tölvuna; stýrikerfi og notkun algengasta hugbúnaðar, forritun, gagnasafnsfræði og tölvutækni, allt eftir áhuga nemenda á sérhæfingu. Upplýsinga- og fjölmiðlabraut Iðnskólans í Reykjavík menntar fólk til starfa við allar helstu hliðar nútíma fjölmiðlunar, svo sem bókaútgáfu, blaðaútgáfu, ljósvakamiðlun og netmiðlun, allt eftir því sérsviði sem nemendur velja sér eftir grunnnám. Sérsviðin eru; grafísk miðlun, prentun, ljósmyndun og veftækni. Tekið er mið af nýjum tímum og nýrri tækni við framsetningu og miðlun upplýsinga. IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK Skólavörðuholti • 101 Reykjavík • Sími 522 6500 www.ir.is • ir@ir.is Upplýsinga- og tölvusvið upplýsingabyltingunni! Traust menntun í framsæknum skóla EINS og ævinlega var mikið að gera hjá verktökum og iðnaðarmönnum á lokasprettinum svo opnun Hótel Sel- foss mætti vera með þeim brag á laugardag sem til er ætlast. Þeir gáfu sér þó tíma síðdegis föstudag- inn 31. maí til þess að hittast og höfðu á orði að það væri allt klárt enda vanir menn á ferð eins og einn þeirra sagði um leið og hópurinn stillti sér upp fyrir myndatöku. Á myndinni eru starfsmenn verk- taka við Hótel Selfoss. Það voru JÁ- verktakar sem sáu um uppsteypu hússins og byggingarstjórn. Aðrir einstakir verkliðir voru í höndum eftirtalinna aðila: Fossraf ehf. með raflagnir, Verklag með málun utan- húss, Múr og smíði ehf. með múr- verk, Málningarþjónustan ehf. með málun innanhúss, ÞH blikk ehf. með blikksmíði og loftræstingu, Vatns- verk ehf. með pípulagnir, Lagna- þjónustan ehf. með stofnlagnir, Vél- smiðja KÁ og Vélsmiðja Valdimars Friðrikssonar með járnsmíði, HM- lyftur annaðist lyftusmíði, Víkurás sá um innihurðir, Áleiningar um glugga og útihurðir. Gólfefnaval og Álfaborg sáu um gólfefnin með sín- um verktökum, Tengi seldi tæki á böð, Baðstofan baðkerin og Húsgögn og innréttingar ehf. sá um smíði inn- réttinga í anddyri hótelsins. Rækt- unarsamband Flóa og Skeiða sá síð- an um lóðafrágang en auk þessara hefur fjöldi aðila komið að þessu verki. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Hótel Selfoss var opnað með viðhöfn 1. júní Verktakar voru með allt klárt daginn áður Selfoss DAGSKRÁ sjómannadagsins á Húsavík fór vel fram að venju, veð- ur með þokkalegasta móti og há- tíðarhöldin vel sótt. Að venju voru húsvískir sjómenn heiðraðir fyrir störf sín, var það gert í Félags- heimili Húsavík- ur þar sem kaffi- sala slysavarna- deildar kvenna fór fram. Að þessu sinni voru heiðraðir af sjó- mannadagsráði þeir Halldór Bjarnason og Sigurbjörn Sörensson. Halldór Bjarnason er fæddur á Húsa- vík 1929, hann byrjaði til sjós 14 ára eins og algengt var hjá ungum mönnum á þeim tíma. 16 ára fór hann á vertíð suður með sjó og var á bátum frá Húsa- vík á vertíðum til ársins 1962. Jafn- framt á síldveiðum fyrir Norður- landi á sumrin og reknetum fyrir Norður- og Suðurlandi á haustin. Halldór var háseti og vélstjóri á bátum undir stjórn vel þekktra húsvískra skipstjóra, þeirra Þór- halls Karlssonar, Þórarins Vigfús- sonar, Stefáns Péturssonar og síð- ast Sigurðar Sigurðarsonar. Halldór hætti til sjós 1963 og réðst til Olíufélagsins þar sem hann starfaði til 1971 er hann réðst til Gagnfræðaskóla Húsavíkur sem síðar varð Framhaldsskólinn á Húsavík. Þar starfaði hann sem umsjónarmaður í 26 ár. Eftir að hann hætti störfum vegna aldurs hefur hann látið Sjóminjasafnið á Húsavík njóta starfskrafta sinna svo um munar. Eiginkona Halldórs er Brynhildur Gísladóttir. Sigurbjörn Sörensson er fæddur á Kvíslarhóli á Tjörnesi 1931, hann byrjaði til sjós 16 ára gamall á 14 tonna þilfarsbáti sem bar nafnið Sævaldur. Eftir það var hann á hinum ýmsu bátum, m.a á síldveið- um á sumrin. Árið 1961 hóf Sig- urbjörn útgerð ásamt fleirum með kaupum á 16 tonna báti sem bar nafnið Andvari. Árið 1967 keyptu þeir félagar 40 tonna bát sem bar nafnið Glaður, Sigurbjörn var skip- stjóri á þessum bátum og þótti fisk- inn og farsæll í starfi. Árið 1971 seldu þeir félagar útgerð sína og Sigurbjörn hætti til sjós og réðst til starfa hjá Kísiliðjunni í Mývatns- sveit. Sumarið 1995 hóf hann aftur að stunda sjóinn, reyndar ekki til fiskveiða heldur til að sigla með farþega í hvalaskoðunarferðir á 20 tonna eikarbáti sem heitir Knörr- inn og starfar við hann enn í dag. Eiginkona Sigurbjarnar er Hildur Jónasdóttir. Sjómenn heiðraðir fyrir störf sín Húsavík Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Halldór Bjarnason t.v. og Sigurbjörn Sörensson sem heiðraðir voru á sjómannadaginn, myndin er tekin á Sjóminjasafninu á Húsavík. FERMING úti á landsbyggðinni og ferming í borginni getur verið svolít- ið ólík nema hvað grunntónninn er sá hinn sami, nefnilega ákvörðunin um að hafa Jesú Krist sem leiðtoga lífs- ins. Hér í Grímsey var á þessu vori eitt fermingarbarn, Þorleifur Hjalti Alfreðsson, Gerðubergi. Dalvíkur- presturinn séra Magnús G. Gunn- arsson þjónar Grímsey og kom hing- að siglandi ásamt organista og ættingjum Þorleifs, því ekki var flugfært. Séra Magnús þjónaði fyrst í Dalvíkurkirkju þennan dag, þannig að ferming hófst í Miðgarðakirkju klukkan 17.Yngsti Grímseyingurinn, lítill drengur, var skírður í messunni og fékk nafn föðurafa síns, Henning. Þegar fermt er í Grímsey er kirkj- an ævinlega troðfull, setið og staðið hvar sem pláss er. Sá skemmtilegi siður fylgir fermingum hér að allir sem í eyjunni dvelja, skyldir sem óskyldir, eru velkomnir í félagsheim- ilið Múla til að samfagna ferming- arbarninu. Að þessu sinni mættu yfir 100 manns í veislumat og kaffi sem þrjár myndarfrúr í Grímsey sáu um. Morgunblaðið/Helga Mattína Sr. Magnús G. Gunnarsson með fermingarbarninu Þorleifi Hjalta Alfreðssyni. Eitt ferm- ingarbarn Grímsey EINN helsti hátíðisdagur ársins í Stykkishólmi er sjómannadagur- inn. Hann var haldinn hátíðlegur á hefðbundinn hátt. Um morguninn var sjómannamessa þar sem sókn- arpresturinn, Gunnar Eiríkur Hauksson, messaði. Í messunni var heiðraður aldraður sjómaður og að þessu sinni var það Sigurjón Helgason. Hann stundaði sjóinn frá unga aldri, fyrst frá Keflavík, svo frá Flatey á Breiðafirði. Til Stykkis- hólms fluttist hann fyrir um 40 ár- um og gerðist hér umsvifamikill at- vinnurekandi, með skelvinnslu og útgerð fjölda báta. Eftir hádegi var safnast saman við höfnina þar sem fjölbreytt skemmtiatriði fóru fram. Ekki komust allir þurrir frá þeim atrið- um, enda gerir það mesta lukku þegar menn detta í sjóinn. Björg- unarsveitarmenn voru með kaffi- sölu í sínu nýja húsnæði og um kvöldið var skemmtun á hótelinu þar sem sjómannadeginum var fagnað fram á nótt. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Fjölmenni var saman komið við höfnina í Stykkishólmi á sjómannadag- inn. Þar fóru fram fjölbreytt skemmtiatriði. Fjölbreytt skemmtiatriði í Stykkishólmi Stykkishólmur TELJA má mikla mildi að ekki fór verr er byggingakrani frá Loftorku í Borgarnesi fór á hliðina fyrir helgi, en verið var að nota kranann við nýtt skrifstofuhús Borgarfjarðarsveitar á Hvanneyri. Kraninn er búinn að vera þarna í notkun síðustu daga við að hífa forsteypta sökkla inn í grunn- inn. Engin slys urðu á fólki en eigna- tjón Loftorku er mikið, kraninn skemmdur og skotbóman stór- skemmd ef ekki ónýtt. Kraninn er um 20 ára gamall og var í mjög góðu ásigkomulagi. Morgunblaðið/Davíð Péturss Byggingakrani fór á hliðina á Hvanneyri Skorradalur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.