Morgunblaðið - 05.06.2002, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.06.2002, Blaðsíða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 18 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ meistar inn. is GULL ER GJÖFINTraust menntun í framsæknum skóla Spennandi tækifæri Byggingasvið Iðnskólans í Reykjavík er fjölbreytt og gefur mikla möguleika. Í húsasmíði vinna nemendur fjölbreytileg smíðaverkefni. Í húsgagnasmíði ljúka nemendur námi með smíði húsgagna sem þeir hanna, teikna og smíða. Í málun læra nemendur bæði húsamálun og skrautmálun, auk t.d. leturmálunar. Í múrsmíð læra nemendur að múra hús, hlaða veggi og leggja flísar. Í veggfóðrun læra nemendur meðferð hvers konar gólfefna, flísalagnir og teppalagnir. Í tækniteiknun er kennt á öll helstu flatar- og þrívíddarforrit; mikil áhersla er lögð á fagteikningar, t.d. húsa-, innréttinga-, véla- og raflagnateikningar;. IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK Skólavörðuholti • 101 Reykjavík • Sími 522 6500 www.ir.is • ir@ir.is Byggingasvið til að skapa LANDSBANKINN hefur lokið fyrri hluta erlendrar endurfjár- mögnunar sinnar á árinu með 200 milljóna láni í evrum til tveggja ára, sem er jafnvirði um 17 millj- arða króna, að því er fram kom í fréttatilkynningu frá bankanum í gær. Lánið var greitt út í lok síð- asta mánaðar og var fjármögnunin í formi skuldabréfaútboðs innan EMTN-fjármögnunaramma bank- ans og var í umsjá Bank of Am- erica. Samstarfsbankar Bank of America í fjármögnunarverkefn- inu voru Caboto Holding Sim (dótt- urfyrirtæki Intesa-BCI, stærsta banka Ítalíu), franski fjárfesting- arbankinn CDC IXIS, Dresdner Kleinwort Benson, franski bankinn Natexis Banque Populaires og Svenska Handelsbanken. Í tilkynningunni segir að til- gangur lántökunnar sé endur- greiðsla á sambankaláni á gjald- daga í júlí á þessu ári og fjármögnun nýrra verkefna, meðal annars aukin fjármögnun vegna Heritable Bank í London. Meðal annarra markmiða nýafstaðinnar lántöku hafi verið lækkun meðal- fjármögnunarkostnaðar bankans og útvíkkun landfræðilegrar dreif- ingar fjárfesta. Báðum þessum markmiðum hafi verið náð. Um- framáskrift hafi verið um 10% og lánskjörin með þeim allra hag- stæðustu sem Landsbankinn hafi fengið á undanförnum árum. Þátt- taka franskra fjárfesta hafi verið 25%, finnskra fjárfesta 24% og sænskra fjárfesta 10% auk þátt- töku fjárfesta frá Suður-Evrópu og fleiri löndum. „Sterkt lánshæfimat Lands- bankans frá bæði Moody’s og Fitch sem og nýleg hækkun á horfum í lánshæfimati frá Moody’s áttu einnig mikinn þátt í því að vel tókst til í endurfjármögnun Landsbank- ans,“ segir í fréttatilkynningu bankans. Landsbankinn gengur frá lántöku erlendis BANDARÍSKA verðbréfafyrir- tækið Vanguard afhenti Íslands- banka nýlega viðurkenningu fyrir góðan árangur við kynningu og sölu á sjóðum fyrirtækisins. Vanguard er annað stærsta eignastýringarfyrirtæki heims með um 600 milljarða dala í stýr- ingu, að því er segir í tilkynningu. Samstarf Vanguard og Íslands- banka hófst árið 1998 þegar VÍB, nú eignastýring Íslandsbanka, varð fyrsti samstarfsaðili Vanguard í Evrópu og er viðurkenningin m.a. til komin vegna þess. Íslandsbanki býður hér á landi til sölu vísitölu- sjóði Vanguard. Kostir slíkra sjóða eru sagðir mikil áhættudreifing og lágur kostnaður. Á myndinni afhendir John J. Brennan, forstjóri Vanguard, Gunnari Baldvinssyni hjá eigna- stýringu Íslandsbanka, viðurkenn- ingargripinn. Vanguard verð- launar Íslandsbanka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.