Morgunblaðið - 05.06.2002, Side 19

Morgunblaðið - 05.06.2002, Side 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 19 ÖRN Pálsson, framkvæmdastjóri Landsambands smábátaeigenda, segir að afleiðing laga um kvóta- setningu aukategunda hjá króka- bátum séu verulegir rekrstarerfið- leikar fjölmargra smábátaútgerða. Hann segir að stjórnvöld þurfi að koma til móts við þessar útgerðir þannig að þær fái að skuldbreyta óhagstæðum lánum. Hann hefur þegar rætt við iðnaðar- og við- skiptaráðherra um að Byggðastofn- un komi að málinu. Breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, sem fólu í sér kvótasetn- ingu á ýsu, ufsa og steinbít hjá krókabátum, tóku gildi við upphaf yfirstandandi fiskveiðiárs, en fram að því höfðu smábátar sótt frjálst í þessar tegundir. Frá því að fisk- veiðiárið hófst hinn 1. september og til aprílloka hafa krókabátar veitt alls um 3.619 tonn af ýsu, en ýsuafli þeirra á sama tíma síðasta fisk- veiðiárs var 6.765 tonn og hefur afl- inn þannig dregist saman um 3.146 tonn eða 46,5%. Steinbítsafli króka- bátanna hefur dregist saman um 42,5% á sama tímabili, eða úr 5.563 tonnum í 3.198 tonn. „Margir smábátaeigendur eru komnir í miklar hremmningar vegna kvótasetningar á aukateg- undum,“ segir Örn, en hann telur að sennilega þurfi um 150 útgerðir á skuldbreytingum að halda. „Ótal smábátaeigendur fjárfestu með það fyrir augum að þessar tegundir yrðu ekki settar í kvóta. Núna hef- ur skerðingin orðið svo mikil að þeir eiga í erfiðleikum með að standa í skilum. Mörg þessara lána eru mjög óhagstæð, okurlán frá bönkunum, og til þess að létta mönnum róðurinn sé ég ekki aðra leið færa en að stjórnvöld bjóði þessum aðilum upp á hagkvæmari lán til að greiða þessi skammtíma- lán hjá bönkunum.“ Umsvif kringum útgerðirnar dragast saman Örn segir að lögin hafi líka í för með sér að verðmæti smábáta hafi rýrnað verulega. „Við bentum á þessar afleiðingar lagasetningarinn- ar og að mörgum myndi ekki takast að láta enda ná saman. Smábátaeigendur hafa reynt að hagræða á ýmsan hátt. Margir hafa neyðst til að leigja frá sér eða selja þær litlu heimildir sem þeir hafa í aukategundum og veiða þorskkvóta sinn á handfæri. Þá eru menn í flestum tilfellum einir um borð, auk þess sem öll umsvif í kringum út- gerðina dragast saman. Til dæmis missa beitningamenn þar spón úr aski sínum. Við höfum oft bent á að beitning er tiltölulega vel launað verkamannastarf og vegur því þungt hjá mörgum í litlum sjáv- arplássum.“ Í kjölfar breytinga á lögum um veiðar krókabáta var sjávarútvegs- ráðherra falið að ráðstafa árlega samtals 2.300 tonnum af ýsu, stein- bít og ufsa til báta sem gerðir eru út frá byggðum sem að verulegu leyti eru háðar veiðum krókaafla- marksbáta. Þá var aflahlutdeild krókaaflamarksbáts í ýsu, steinbít og ufsa hækkuð með sérstakri út- hlutun, sem miðaðist við samtals 3.600 tonn af áðurgreindum teg- undum, og tók mið að skerðingu sem varð á veiðimöguleikum bátanna við lagabreytingarnar. Ennfremur fengu bátarnir 800 tonna uppbót á krókaaflamark yf- irstandandi fiskveiðiárs. „Aukaút- hlutanirnar skiluðu sér seint og illa og nægja engan veginn til að vega upp þann mikla samdrátt sem nú er orðinn,“ segir Örn. !  " # $ "       !  " ## % &'% (  (       !"#$% # &## '(##" )** *#'(# # #( +  + ,+   &       - + -  - -+      . /(01*" '# )# $ "       )# # % &'% (  (       !"#$% # &## '(##" )** *#'(# # #( ++  +,   &     - ,+ ,+  - +      /(01*" '# Mikill samdráttur í ýsu- og steinbíts- afla krókabáta Landsamband smábátaeigenda vill að stjórnvöld komi til móts við smábátaútgerðir ● MÁR Wolfgang Mixa, sérfræðingur hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar, sendir viðskiptatímaritinu Business Week tóninn í lesendabréfi í nýjasta hefti blaðsins. Már segir þar að BW skuldi e.t.v. áskrifendum sínum afsök- unarbeiðni þar sem skrif blaðsins hafi ekki verið nægilega gagnrýnin hvað varðar áhættu sem fylgir hluta- bréfaviðskiptum. Már vitnar í grein BW sem birtist 13. maí sl. undir yfirskriftinni „How corrupt is Wall Street“ eða „Hversu spillt er Wall Street“ þar sem grein- ingarsérfræðingar á Wall Street eru gagnrýndir fyrir vafasama ráðgjöf til viðskiptavina. Már tekur undir slíka gagnrýni en vekur jafnframt athygli á að skort hafi á viðvaranir vegna áhættufjárfestinga. Má þykir sem BW hafi gefið í skyn í greininni að blaðið hafi varað við þessu í tíma þar sem með greininni hafi birst myndir af tveimur forsíðum blaðsins frá 1998 og 2000 þar sem viðvörunarmerki eru gefin. „Þetta er rangtúlkun. Nóg var af forsíðu- greinum sem boðuðu nýja tíma, en greinar sem settu spurningarmerki við ótrúlega áhættuaukningu voru sjaldgæfar. Grein ykkar endar á þeim orðum að það væri varla nóg fyrir Wall Street að biðjast fyrirgefningar og það væri of seint á þessu stigi. Þar sem ekki hefur verið mikið um viðvar- anir, ætti Business Week þá ekki að biðja áskrifendur sína einhvers konar fyrirgefningar?“ eru lokaorð les- endabréfs Más Wolfgangs Mixa. Business Week lét bréfinu ósvar- að. Business Week gagnrýnt RANGLEGA var greint frá því á dögunum að hugbúnaðar- og þjón- ustufyrirtækið Betware hefði samið við Íslenska getspá um þróun á nýju sölukerfi þess síðarnefnda á Netinu. Hið rétta er að samningurinn var gerður á milli Betware og Íslenskra getrauna en hann gerir Íslenskri getspá einnig kleift að selja lottó í gegnum kerfi Íslenskra getrauna á Netinu. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirð- ingar á þessum mistökum. Leiðrétting Samningur Betware og Íslenskra getrauna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.