Morgunblaðið - 05.06.2002, Qupperneq 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 25
Þátttaka í happdrætti Krabbameinsfélagsins
er stuðningur við mikilvægt forvarnastarf
Dregið 17. júní
Veittu stuðning - vertu með!
HLUTI þáttanna um Tyrkjaránið
fjallar um þau fjölskrúðugu áhrif
sem atburðurinn hefur haft á list-
sköpun hérlendis á síðari árum. Þar
er fyrirferðarmestur kafli Guðríðar
Símonardóttur, eða Tyrkja Guddu
einsog hún var jafnan nefnd eftir
heimkomuna. Ævintýralegt og há-
dramatískt lífshlaup hennar hefur
veitt myndhöggvurum, dansahöf-
undum, tónlistarmönnum og rithöf-
undum ómældan innblástur. Þ.á m.
Steinunni Jóhannesdóttur, Guðna
Franzsyni, Lindu Stefánsdóttur,
Ragnheiði Stefánsdóttur og séra
Jakobi Jónssyni. Guðríður var í hópi
Vestmannaeyinganna sem lentu í
greipum ræningjanna. Var seld í
ánauð í Algeirsborg og ein þeirra lán-
sömu 36 þræla sem keyptir voru úr
haldi árið 1636. Fyrir ránið var Guð-
ríður gift kona í Eyjum en taldi mann
sinn látinn er hún varð þunguð eftir
séra Hallgrím Pétursson sálmaskáld
í Kaupmannahöfn, níu árum síðar.
Bóndi hennar lést hinsvegar um svip-
að leyti, annars hefði illa getað farið.
Guðríður fylgdi séra Hallgrími til Ís-
lands 1637 og giftust þau skömmu
síðar. Listamenn teldust ekki merki-
legir sem slíkir ef þá
skorti ímyndunarafl og
áræði til að sjá hlutina í
nýju ljósi og láta blása
um þá ferska vinda. Því
verður þó ekki mót-
mælt að forvitnilegt
væri að vita hvað Gudda
hefði til málanna að
leggja um „fegurðina í
ljótleikanum“.
Raunasaga Eyja-
klerksins Ólafs Egils-
sonar er rakin um álf-
una þvera og endilanga.
Hann var, ásamt konu
og börnum, fluttur í
ánauð til Algeirsborgar
þar sem hann sá fjöl-
skyldu sinni tvístrað. Yngsti sonur-
inn seldur hæstbjóðanda í þrældóm,
beint frammi fyrir augum hans, en
skömmu síðar var Ólafur skipaður
sendimaður serkneskra yfirvalda til
að beiðast lausnargjalds fyrir hópinn
í Danaveldi. Kvikmyndagerðar-
mennirnir rekja þá grýttu og krók-
óttu slóð, því á þessum tíma var Evr-
ópa undirlögð af Þrjátíu ára stríðinu.
Tókust þar á kristnir menn, klofnir í
fylkingar mótmælenda og kaþólskra.
Aukinheldur moraði álfan af ræn-
ingjum til sjós og lands og skæðar
drepsóttir herjuðu á múginn. Ólafur
sótti ekki gull í greipar konungs er
hann náði að lokum fundi hans, enda
Danmörk fátækt land þá um stundir,
farið halloka í styrjöldum. Um síðir
komst hann heilu og höldnu til Ís-
lands og ritaði hina ómetanlegu
heimild um atburðina; Reisubók séra
Ólafs Egilssonar.
Í beinu framhaldi er dustað rykið
af útikaupmanni frá Álaborg sem
lagði líf sitt og eignir að veði til að
bjarga þegnum Danakonungs úr
barbaríinu. Þessi fróðlegi og stór-
merki kafli upplaukst er opnað var
bréfasafn á Ríkis-
skjalasafninu í Kaup-
mannahöfn fyrir fáein-
um árum. Undir lokin
eru skýrðar ástæð-
urnar fyrir því, hvers-
vegna þær tilraunir
sem þekktar eru til
frelsunar bandingj-
anna norrænu, voru
unnar fyrir gýg.
Þorsteinn og hans
fólk leggja mikla vinnu
í að kanna huga ráns-
mannanna, pólitískan
bakgrunn þessara
óróatíma, stríðs-
ástandið sem ríkti í
arabalöndum og í
Norðurálfu. Þeirri margflóknu
mannlífsdeiglu sem sat borgirnar er
gerði út á sjórán og stundaði líflega
þrælasölu. Til marks um þræla-
mergð serkja er talið að á þessum
tíma hafi fjórðungur íbúa Algeirs-
borgar verið ánauðugt fólk. Í þessari
ófélegu iðju voru „Hund-Tyrkjarnir“
fremstir meðal jafningja. Talsverð-
um tíma eytt í sögu Mára, arabakyn-
bálks sem lagði undir sig Suður-
Spán, en var hrakinn aftur til síns
heima röskri öld fyrir Tyrkjaránið.
Þá hefur kvikmyndargerðarmönnum
tekist að komast á ævintýralega
blóðslóð skipstjórnarmanns tveggja
ræningjaskipanna, Hollendingsins
Jans Janssonar. Hann var fangaður
af serkjum, tók múslimatrú, breytti
um nafn og gerðist konunglegur sjó-
ræningjakapteinn. Nafn hans sting-
ur upp kollinum á ólíklegustu stöðum
í heimildum, m.a. í íslensku ljóði þar
sem hann er réttnefndur „morðeng-
illinn“.
Þrátt fyrir hálf rómantískan blæ,
eykur lokakaflinn áhorfandanum
skilning á villimannslegu framferði
hinna óvelkomnu gesta sem rufu
náðarkjör kotþjóðarinnar norður í
Dumbshafi. Takmarkað myndmál er
meginvandi heimildarmyndagerðar-
manna sem fást við liðna tíð. Þá reyn-
ir á hugkvæmnina að nýta sem best
tiltækt efni og á það ekki síður við
textann. Þá mæðir á ímyndunaraflið
því fjölmargt þarf að gera sér í hug-
arlund og fiska í eyðurnar. Afrakst-
urinn er höfundum til sóma, við blas-
ir yfir höfuð forvitnileg og vönduð
mynd þar sem hvergi er kastað til
höndum. Flókin og tímafrek ná-
kvæmnisvinna á söfnum og söguslóð-
um fjölda landa í þremur álfum skilar
sér með ágætum á skjáinn. Textinn
er oftast magnþrunginn, á fallegu
máli og skýrt og skelegglega fram
borinn. Tónlistin á ríkan þátt í að
skapa réttan tón í framvinduna, þar
skipar þróttmikill Tröllaslagurinn
veigamikinn sess, fluttur af sannri
snilld af Voces Thules.
Höfundarnir ráða viðhorfinu og
tóninum og hann skilar sér sem frið-
samlegur og græðandi þegar á heild-
ina er litið. Tíminn græðir öll sár,
Tyrkjaránið og fleiri eftirtektarverð
samtímaverk stuðla að því að okkur
gefst tækifæri að sjá og velta fyrir
okkur þessum válegu atburðum í
nýju og jákvæðara ljósi en áður.
Á hinn bóginn hefði að ósekju mátt
beina meira ljósi að hrikalegum ör-
lögum flestallra fórnarlambanna í
þessu viðamikla ágætisverki. Gott og
vel, einhver komst í pell og purpura
og neytti hinna suðrænu ávaxta. Yf-
irgnæfandi hluta hinna 400 ánauðugu
landa okkar beið hinsvegar helvíti á
jörðu. Þar voru engin fíkjutré að
finna né fagurlegt mósaík. Það er
vafalaust „svakalegt“ að vera þræll.
Margir hafa dáið á fyrsta áratugnum,
en vonandi má enn sjá meðal serkja
einn og einn bláeygan og ljóshærðan,
ef vel er gáð.
SJÓNVARP
Heimildarmynd
II. þáttur: Fegurð þjáningarinnar og III.
þáttur: Morðengill sá. Höfundur og
stjórnandi: Þorsteinn Helgason. Kvik-
myndataka: Guðmundur Bjartmarsson,
Jón Hjörtur Finnbjörnsson, Hjálmtýr Heið-
dal. Klipping: Guðmundur Bjartmarsson.
Hljóðsetning: Gunnar Árnason. Tónlist:
Sverrir Guðjónsson. Slagverk: Eggert
Pálsson. Þulir: Hjalti Rögnvaldsson, Er-
lingur Gíslason, Helga E. Jónsdóttir, Þor-
steinn Helgason. Sýningartími: 2 x 45
mín. Íslensk heimildarmynd í 3 þáttum.
Fjármögnuð af Menningarsjóði útvarps-
stöðva, Kvikmyndasjóði Íslands og Sjón-
varpinu. Seylan kvikmyndagerð. Sjón-
varpið, maí 2002.
TYRKJARÁNIÐ
Tíminn græðir öll sár
Sæbjörn Valdimarsson
Þorsteinn
Helgason
SÝNINGU Dieter Roth akadem-
íunnar í gömlu Álafossverksmiðj-
unni og veitingahúsinu Álafoss Föt
Bezt lýkur á sunnudag.
Bókabúðin Boekie Woekie frá
Amsterdam er starfrækt á sýning-
unni og selur bókverk eftir mynd-
listamenn.
Sýningin er opin virka daga frá kl.
18–20 og um helgar frá kl. 14–20.
Sýningu lýkur
TRÍÓIÐ Jazzandi er að hefja þriggja
daga ferð um suðvesturhorn landsins.
Leikar hefjast á Vídalín við Ingólfs-
torg í Reykjavík í kvöld kl. 22:30, á
fimmtudag verður tríóið á Kaffi Duus
í Keflavík, þeir tónleikar hefjast kl.
22:00, og að lokum verða Borgfirðing-
ar heimsóttir á föstudaginn og mun
tríóið leika á Vivaldi.
Jazzanda skipa: Sigurjón Alexand-
ersson gítarleikari, Sigurdór Guð-
mundsson, Borgnesingur og bassa-
leikari, og George Claassen trymbill.
Á efniskrá þeirra má finna fjölbreytt
efni, m.a. lög eftir Miles Davis, John
Coltrane, Kenny Wheeler, Duke Ell-
ington auk frumsamins efnis. Miða-
verð er kr. 600 á alla tónleikana.
Jazzandi
á þrennum
tónleikum
TMM, 2. tbl.
2002, er komið út.
Lilja Hjartardóttir
stjórnmálafræð-
ingur fjallar um
átök Ísraela og
Palestíumanna,
upphaf þeirra og
framvindu í grein
sem hún kallar
Hernaður, hryðjuverk og hernumið fólk.
Kristján B. Jónasson skrifar um nýj-
ustu bók Günters Grass, Krabbagang.
Árni Óskarsson fjallar um Óvinafagnað
Einars Kárasonar.
Sigurður A. Magnússon skrifar gagn-
rýna grein um Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs. Ármann Jakobsson
hefur greinaflokk sinn um Agöthu
Christie og Þorfinnur Skúlason lítur í
bækur um viðskipti og vinnusemi undir
yfirskriftinni Frá Kaupþingi til Casa-
blanca.
Tvær smásögur eru í tmm, Sitji
Guðs englar eftir Hlyn Níels Grímsson
og Mannabein eftir Óla Jón Jónsson en
sú saga er byggð á raunverulegum at-
burðum þótt fáir vilji kannast við að
slíkir atburðir hafi tengst Íslandi.
Harold Pinter ræðir alþjóðastjórn-
málin – Milosevic, Afganistan o.fl. og
Hallgrímur Helgason útskýrir ástandið
í íslenskri pólitík fyrir Jóni Baldvini
Hannibalssyni í greininni Vinstramegin
við Washington.
Kápumynd tmm er nærmynd af verki
Margrétar Blöndal á sýningunni Mynd
– íslensk samtímalist á Listahátíð. Rit-
stjóri tmm er Brynhildur Þórarinsdóttir.
Tímarit
ÞRENN verðlaun voru veitt fyrir
framúrskarandi hönnun á vorsýn-
ingu Iðnskólans í Hafnarfirði á dög-
unum. Hafdís Perla Hafsteinsdóttir
fékk verðlaun fyrir lampa og segir
m.a. í umsögn dómnefndar: „Frum-
leg hugsun með klára skírskotun til
náttúrunnar, ásamt breytilegu formi
og skemmtilegu efnisvali.“
Edda Ívarsdóttir fékk verðlaun
fyrir ílát úr krossviði. Dómnefnd
sagði að verkið sýndi „áhugaverða
Hafdís Perla Hafsteinsdóttir við verðlaunaverk sitt.
Iðnskólinn í Hafnarfirði
Þrír hlutu hönn-
unarverðlaun
hugmynd og fallegt form sem hefði
margvíslegt notagildi“.
Þá fékk Guðrún Gísladóttir verð-
laun fyrir skartgripi. „Nýstárleg
lausn, einfalt armband úr málmi sem
klæða má mismunandi skarti eftir
smekk notandans,“ var mat dóm-
nefndar sem samanstóð af Dóru
Hansen innanhússarkítekt, Eyjólfi
Pálssyni innanhússarkitekt og eig-
anda Epal og Pétri Lútherssyni
stólahönnuði.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
KÓR, sem skipaður er söngfólki í
kirkjukór Fella- og Hólakirkju og
kallar sig Kammerkór Fella- og
Hólakirkju, er að undirbúa söng-
ferð til Tékklands og Ungverja-
lands 20. júní til 4. júlí nk. Kamm-
erkórinn mun syngja á tvennum
kvöldtónleikum í Tékklandi í St.
Moritz-kirkjunni í Olomouc og í
St. Vavrinec-kirkjunni í Prerov. Í
Ungverjalandi syngur kórinn við
hámessu í Basilikunni í Eger.
Kammerkór Fella- og Hóla-
kirkju skipa 17 reyndir söngv-
arar, en stjórnandi kórsins er
Lenka Mátéova, organisti Fella-
og Hólakirkju. Hún er fædd og
uppalin í Tékklandi og var út-
skrifuð frá Tónlistarakadem-
íunni í Prag árið 1990. Ári síðar
fluttist hún ásamt fjölskyldu sinni
til Íslands og hefur starfað þar
síðan.
Á söngskránni er kirkjuleg
tónlist frá Þýskalandi, Englandi
og Norðurlöndunum en aðallega
íslensk kirkjutónlist, m.a. eftir
Hjálmar Ragnarsson, Þorkel Sig-
urbjörnsson, Sigvalda Kaldalóns
og Hildigunni Rúnarsdóttur.
Undirleikari á tónleikunum verð-
ur Peter Máté, píanóleikari.
Kórinn heldur tónleika í Fella-
og Hólakirkju miðvikudaginn 19.
júní nk. kl. 20. Aðgangur er
ókeypis.
Söngferð til
Austur-Evrópu