Morgunblaðið - 05.06.2002, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 05.06.2002, Qupperneq 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 37 á stuttum starfstíma áunnið sér að verða trúnaðarmaður þeirra, sem segir sína sögu um hvern mann Grét- ar hafði að geyma, og tel ég að eft- irfarandi vísa eigi vel við: Ég hugsa ekki um bernskubrek né brostnar vonir upp mér vek. Að lifa í nútíð mér nauðsyn er og taka því sem að höndum ber. (Benedikt Bogason.) Innilegar samúðarkveðjur til Ollu, barna og barnabarna sem sjá á eftir hjartahlýjum manni sem skilur eftir góðar minningar. Hjörtur Aðalsteinsson. Okkur hjónin langar til þess að minnast góðs vinar með fáeinum orð- um nú þegar hann er látinn. Við fjöl- skyldan erum harmi slegin yfir því að Grétar, sem var svo frísklegur og glaðvær, skuli vera farinn frá okkur. Við kynntumst Grétari og Ollu fyrst þegar til stóð að við fjölskyldan flytt- umst til Namibíu til starfa. Það var á fundi hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Verið var að kynna land og þjóð og þar fengum við tækifæri til þess að kynnast því fólki sem var í sömu sporum og við. Okkur leist strax vel á þessi hjón sem sýndu svo hlýlegt viðmót og gamansemi Grét- ars vakti strax athygli. Sá kvíði sem hafði læðst að yfir að flytja með tvö lítil börn til svo fjarlægs lands fjarri fjölskyldu og vinum varð strax minni. Úti í Namibíu voru Olla og Grétar okkar bestu vinir og þau urðu fljótt eins og amma og afi dætra okkar. Við fórum saman í ferðalög og ófá voru matarboðin hjá Ollu og Grétari þar sem við nutum gestrisni þeirra og umhyggju. Grétar var sérlega laginn við börn og urðu Sigurbjörg og Anna María fljótt hændar að honum. Hann var svo skemmtilegur og alltaf með eitthvert sprell og fjör. Eftir að við fluttum heim til Íslands eftir fjögur ár í Namibíu héldum við sambandi við Grétar og Ollu og munu þau bönd sem við bundumst þar aldrei slitna. Minningin um Grétar mun búa í hjarta okkar um ókomna tíð. Að lok- um viljum við senda innilegar sam- úðarkveðjur til allra aðstandenda Grétars og Ollu á þessum erfiðu tím- um. Nína, Kristján, Sigurbjörg Ósk og Anna María. Grétar Hjartarson samstarfsmað- ur okkar til margra ára hefur kvatt okkur að sinni. Grétar hóf störf hjá flutningadeild og síðar útkeyrslu- deild Íslandspósts. Hann var sá sem við litum til og treystum vegna reynslu sinnar, kímni og ljúfrar framkomu. Grétar var vel liðinn af eldri sem yngri starfsmönnum. Sér- staklega átti hann gott með að fá yngra fólkið til að vinna með sér og hann var fús að kenna og leiðbeina. Grétar vildi gera vel þau verk sem hann tók að sér og vann þau af sam- viskusemi. Hann var kosinn trúnað- armaður og fylgdi málum eftir sem hann var beðinn um að skoða. Grét- ars minnumst við sem samstarfs- félagans sem við gátum leitað til og fengið ráð hjá. Við vottum eiginkonu, börnum og ættingjum samúð okkar. Samstarfsfólk hjá Íslandspósti. Kveðja frá Póstmannafélagi Íslands Í dag kveðjum við góðan sam- starfsmann Póstmannafélagsins, Grétar Hjartarson. Grétar kom til starfa hjá Íslands- pósti í júní 1999. Hann var einn af þeim mönnum sem hafði víðtæka stafsreynslu víðs vegar að úr heim- inum bæði við hjálparstörf í þróun- arlöndum sem skipstjóri á flaggskipi okkar, Gullfossi, auk þess að hafa rekið eitt af stærri kvikmyndahúsum borgarinnar. Grétar starfaði við að keyra út póstsendingar á vegum Ís- landspósts í útkeyrsludeild fyrirtæk- isins sem þá var ný og í mótun. Þann- ig háttaði til að í deildinni starfaði mikið af ungu fólki og var Grétar því einn af aldursforsetunum. Það kom þó ekki í veg fyrir það að hann átti mikla samleið með vinnufélögunum þótt hann hefði getað verið afi sumra. Hann kom fram við alla sem jafn- ingja, var góður félagi á vinnustað og sýndi sjónarmiðum allra skilning þótt hann léti menn stundum heyra að með auknum aldri og þroska myndu viðhorf þeirra til hinna ýmsu hluta breytast. Grétar gegndi mörgum trúnaðar- störfum fyrir Póstmannafélagið. Við kosningar til stjórnar og trúnaðar- ráðs Póstmannafélagsins í mars 2000 var hann kjörinn trúnaðarmaður fyr- ir starfsmenn í Póstmiðstöðinni, í kjörstjórn félagsins og hann var í samninganefnd fyrir félagið við gerð kjarasamnings 2001. Hann sinnti þessum störfum af mikilli trú- mennsku og taldi aldrei eftir sér að leggja hönd á plóginn þótt til þess þyrfti að eyða frítíma. Það voru því heldur dapurlegar fréttir sem bárust í janúar um að Grétar hefði greinst með illkynja sjúkdóm. Eins og alltaf vonast menn til að sigur vinnist í slíkri baráttu og fylgdust vinnufélag- ar og samstarfsmenn hjá Póst- mannafélaginu með í þeirri von að þeir fengju að sjá hann koma aftur til starfa en því miður, svo varð ekki. Póstmannafélagið þakkar Grétari góð störf í þágu félagsins og sendir fjöskyldu hans hlýjar kveðjur. Þuríður Einarsdóttir. Kveðja frá Sjómannadagsráði Reykjavíkur og Hafnarfjarðar Árið 1961 var ég háseti á ms. Gull- fossi þar sem Grétar Hjartarson var nýbyrjaður sem 3. stýrimaður, áhugasamur og kappsfullur. Þó að „Fossarnir“ væru fleiri þá en nú liðu árin frá því ungir menn komu út- skrifaðir frá farmannadeild Stýri- mannaskólans þar til þeir fengu stýrimannsstöðu. Af tólf manna há- setaliði á Gullfossi voru sex með far- mannapróf og var því ekki að furða þótt litið væri upp til Grétars sem nú hafði fengið stöðu stýrimanns, og það á flaggskipi Íslendinga. Þótt dimmar vetrarnætur á sigl- ingu í Atlantshafinu til og frá Íslandi væru lengi að líða fannst okkur há- setunum vaktin með Grétari líða fljótt í umræðunni um málefni líðandi stundar. Grétar hætti sjómennsku 1975 og kom þá til starfa hjá sjómannasam- tökunum sem forstjóri Laugarásbíós og Bæjarbíós, sem samtökin ráku um árabil. Grétar var forstjóri Laug- arásbíós til 1994 eða í 18 ár. Hann var fulltrúi Stýrimannafélags Íslands í Sjómannadagsráði frá 1975 til 1988 og sat í stjórn þess sem meðstjórn- andi árin 1987 og 1988. Um leið og Grétari Hjartarsyni eru þökkuð góð störf í þágu sjó- mannasamtakanna sendum við fjöl- skyldu hans samúðarkveðjur. Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannadags- ráðs. AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R Grindavík Tónlistarkennarar Tónlistarskólinn í Grindavík óskar eftir kennur- um í eftirtaldar stöður: ■ Fiðlukennari u.þ.b. 50% ■ Píanókennari u.þ.b. 50% Möguleiki á kennslu á morgnana. Róterandi stundatafla. Upplýsingar í símum 426 7767 og 823 3721. Skólastjóri. Sveitarfélagið Skagafjörður Kennarar Kennara vantar að Grunnskólanum á Hofsósi næsta skólaár. Æskilegar kennslugreinar eru tungumál, kennsla yngri barna, íþróttir og hannyrðir. Ódýrt húsnæði í boði og flutningsstyrkur. Fjöldi nemenda í skólanu er um 60 í 1. til 10. bekk. Um er að ræða líflegan vinnustað — samhent starfslið og — góða nemendur. Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 453 7344 í skóla og 453 5254 heima. Sveitarstjóri Starfssvið: • Rekstur sveitarfélagsins • Yfirumsjón með bókhaldi • Gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana • Áætlanagerð • Reikningshald Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun kostur • Reynsla af rekstri æskileg • Mjög góð bókhaldsþekking • Sjálfstæði og frumkvæði • Lipurð í mannlegum samskiptum Umsjón með starfinu hafa Hilmar G. Hjaltason (hilmar@mannafl.is) og Ingibjörg Óðinsdóttir (inga@mannafl.is) hjá Mannafli. Umsóknarfrestur er til og með 16. júní n.k. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á heimasíðu Mannafls. Ath.! Til viðbótar við skráninguna bendum við þeim umsækjendum sem ekki eiga ferilskrá hjá Mannafli á að senda ferilskrá. Stöðvarfjörður er kauptún við samnefndan fjörð norðanverðan. Þar myndaðist byggðarkjarni um aldamótin 1900 í kjölfar þess að verslun hófst þar árið 1896. Aðalatvinnuvegur Stöðfirðinga er fiskvinnsla og sjósókn. Íbúarfjöldi er í dag um 270 manns. FRÉTTIR SUMARKAFFIHÚSIÐ Café Flóra var opnað að nýju á sunnudag í Grasagarðinum í Laugardal og lögðu fjölmargir leið sína þangað af því tilefni. Garðurinn skartaði sínu fegursta og boðið var upp á léttan morgunverð og suðrænt andrúms- loft sem gestir virtust kunna vel að meta. Þessar konur höfðu augljóslega um margt að spjalla: f.v. Salvör Jónsdóttir, Petrea Guðmundsson, Ellý Guðmundsdóttir og Marentza Poulsen, sem rekur Café Flóru. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Café Flóra opn- að í Grasagarði „AÐALFUNDUR SAMFOK 2002, haldinn í Álftamýrarskóla 28. maí, lýsir í ályktun þungum áhyggjum yf- ir því að Kennaraháskóli Íslands hef- ur ákveðið að leggja niður Lestrar- miðstöð Kennaraháskólans. Aðal- fundurinn skorar á ríki og sveitar- félög að leysa þetta mál strax. Það er algerlega óásættanlegt að börnin okkar líði fyrir það að rík- isvaldið og sveitarfélögin geti ekki komið sér saman um hver á að greiða fyrir og sinna þessari nauðsynlegu þjónustu,“ segir í ályktun SAMFOK. Áhyggjur vegna lokunar Lestrar- miðstöðvar MAGNÚS Örn Úlfarsson heldur fyrirlestur um verkefni sitt til meist- araprófs í rafmagns- og tölvuverk- fræði í dag, miðvikudaginn 5. júní kl. 12 í stofu 158 í VR-II við Hjarðar- haga 2-6. Verkefnið heitir Curvelet vörpun til suðsíunar. Leiðbeinendur Magnúsar Arnar eru: Jóhannes R. Sveinsson, dósent við Háskóla Íslands, sem er aðalleið- beinandi, Jón Atli Benediktsson, prófessor við Háskóla Íslands, og Sven Þ. Sigurðsson, prófessor við Háskóla Íslands. Fyrirlestur um suðsíun EVGENÍA K. Mikaelsdóttir mun gangast undir meistarapróf við læknadeild Háskóla Íslands og halda fyrirlestur um verkefni sitt fimmtu- daginn 6. júní kl. 16 í kennslustofu á 3. hæð í Læknagarði. Verkefni hennar heitir: Tjáning og virkni BRCA2 999del5. Umsjónarkennari er Jórunn E. Eyfjörð dósent en leiðbeinandi Þór- unn Rafnar fræðimaður. Prófarar verða Sigurður Ingvarsson forstöðu- maður og Steinunn Thorlacius fræði- maður. Prófstjóri: Bjarnheiður Guð- mundsdóttir vísindamaður. Meistarapróf í læknadeild

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.