Morgunblaðið - 05.06.2002, Page 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 41
Traust menntun í framsæknum skóla
Á listnámsbraut, almennri hönnun, í Iðnskólanum í Reykjavík fá nemendur
undirstöðumenntun í teikningu, grafík, efnisfræði, lita- og formfræði
og listasögu. Þannig fæst undirbúningsnám fyrir hönnun og arkitektúr.
Unnið er út frá óljósum hugmyndum upp í fullhannaðan og teiknaðan hlut.
Kennarar deildarinnar eru viðurkenndir fagmenn á sínu sviði, útskrifaðir
frá skólum víða um lönd. Ef þú stefnir á skapandi starfsvettvang er
listnámsbrautin kjörinn upphafsreitur
IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK
Skólavörðuholti • 101 Reykjavík • Sími 522 6500
www.ir.is • ir@ir.is
Hönnunarsvið
Blundar í þér
snillingur?
Sumarbústaður til sölu
Sumarbústaður til sölu í landi
Minni-Borgar, Oddsholt 54,
Grímsnesi, byggður 1993, með
nýrri sólstofu. Alls um 50 fm.
Eignarlóð. Verð 6,5 millj.
Upplýsingar í síma 421 1240
og 894 1240.
Fasteignasalan Stuðlaberg, sími 420 4000.
STUÐNINGSHÓPUR um krabba-
mein í blöðruhálskirtli efnir til
gönguferðar í Öskjuhlíðina í dag mið-
vikudag í staðinn fyrir hefðbundinn
rabbfund. Gengið verður frá húsi
Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8
í Reykjavík, kl. 17. Séð verður fyrir
akstri fyrir þá sem treysta sér ekki
til að ganga, segir í fréttatilkynningu.
Gönguferð
í Öskjuhlíð
FERÐAFÉLAG Íslands hefur um
margra ára skeið ræktað og viðhald-
ið skógarreit í Heiðmörk, með aðstoð
félagsmanna.
Farið verður í skógræktarferð í
dag, miðvikudaginn 5. júní, og mið-
vikudaginn 12. júní. Fararstjóri er
umsjónarmaður FÍ-reitsins, Eiríkur
Þormóðsson. Brottför er frá BSÍ kl.
19.30 og komið við í Mörkinni 6. Allir
eru velkomnir.
Skógræktarferð
í Heiðmörk
UNGMENNADEILD Reykjavík-
urdeildar og Kópavogsdeild Rauða
kross Íslands standa í sumar fyrir
námskeiðum sem eru ætluð börnum
á aldrinum 9–11 ára.
Námskeiðin eru þemaskipt og er
áhersla lögð á fjölmenningarlegt
samfélag og mannleg samskipti.
Fjallað er um ólíka menningu og líf
fólks í fjarlægum löndum þar sem
þátttakendur bragða meðal annars
mat frá Afríku. Undirstöðuatriði
skyndihjálpar verða kennd og þátt-
takendur fá að skoða og prófa búnað
sjúkrabíls. Krakkarnir gróðursetja,
fara í leiki og ýmis önnur verkefni
standa til boða. Sagt verður frá sögu
og starfi Rauða krossins þar sem
þátttakendur vinna leikþætti og
mála myndir upp úr efninu. Loks
verður uppskeruhátíð haldin í Viðey.
Hvert námskeið er ein vika, frá
mánudegi til föstudags, kl. 9–16.
Nánari upplýsingar og skráning
er í Sjálfboðamiðstöð Reykjavíkur-
deildar Rauða kross Íslands, Hverf-
isgötu 105, Reykjavík, netfang urkir-
@deild.redcross.is.
Námskeið
um mannúð og
menningu
STJÓRN Læknafélags Íslands hef-
ur sent frá sér eftirfarandi yfirlýs-
ingu vegna frétta af unglingageð-
deild Landspítala – háskólasjúkra-
húss:
„Margvísleg starfsemi á Landspít-
ala – háskólasjúkrahúsi er sú eina
sinnar tegundar í landinu. Samein-
ing stóru sjúkrahúsanna tveggja í
Reykjavík í þessu eina sjúkrahúsi
hefur leitt til þess, að landsmenn
eiga ekki aðra kosti varðandi ýmsa
sérhæfða meðferð, en að njóta þeirr-
ar þjónustu, sem þar er boðin. Því
eru málefni sjúkrahússins viðkvæm
þjóðinni allri og brýn nauðsyn, að
umræður um vöxt þess og viðgang
séu opnar og byggðar á bestu fáan-
legu upplýsingum á hverjum tíma.
Mikilvægi þess, að læknar sjúkra-
hússins taki þátt í þessari umræðu,
miðli af reynslu sinni og veiti tafar-
laust upplýsingar um þjónustu, sem
á undir högg að sækja, hlýtur að
liggja í augum uppi. Þar standa al-
mannahagsmunir sérsjónarmiðum
framkvæmdastjórnar spítalans
langtum framar. Þau sjónarmið, sem
sett eru fram af yfirlækni barna- og
unglingageðdeildarinnar í Morgun-
blaðsgrein í dag, styðja það svo ekki
verður um villst.
Ítrekað hefur það gerst, að læknar
eru snupraðir fyrir að tjá sig um
málefni sjúkrahússins og raunar
heilbrigðisþjónustunnar undir því
yfirskini, að það sé annarra hlutverk.
Virðast þær snuprur byggjast á
þeim djúpa og hættulega misskiln-
ingi, að aðfinnslur lækna m.a. í yf-
irlæknisstöðum séu framkvæmda-
stjórn sjúkrahússins til óþurftar og
trufli störf hennar.
Þessu mótmælir stjórn Lækna-
félags Íslands af ástæðum, sem að
ofan eru tilgreindar.
Framkvæmdastjórn Landspítala
–háskólasjúkrahúss og yfirlæknar
sjúkrahússins eiga miklu fremur
samleið, þegar til almannahagsmuna
er litið. Mikilvægt er, að fram-
kvæmdastjórnin og læknar sjúkra-
hússins sýni háttvísi og varúð í öllum
ummælum sínum og skapi ekki
óþarfa efasemdir um góða stjórn-
sýslu á sjúkrahúsinu.
Stjórn Læknafélags Íslands ítrek-
ar þá skoðun sína, sem áður hefur
komið fram, að réttur lækna til að tjá
sig um þróun heilbrigðisþjónustunn-
ar og brotalamir á henni, hvort sem
er á eigin vinnustað eða annars stað-
ar, eigi að vera óheftur. Skiptir þá
ekki máli, hvort læknar eru í stöðum
yfirmanna eður ei. Það er farsælt
þegar til lengri tíma er litið.
Um þetta sjónarmið mun stjórn
Læknafélags Íslands standa dyggan
vörð.“
Yfirlýsing stjórnar Lækna-
félags Íslands vegna BUGL
MENNTASKÓLINN við Hamrahlíð
brautskráði 140 stúdenta við hátíð-
lega athöfn laugardaginn 25. maí
síðastliðinn og eru flestir af nátt-
úrufræðibraut eða 45. Ragnar Guð-
mundsson og Sólrún Birna Snæ-
björnsdóttir ávörpuðu samkomuna
fyrir hönd nýstúdenta, stóðu bæði í
pontu og fluttu mál sitt til skiptis.
Sólrún Birna er heyrnarlaus og
notar táknmál og í þessu tilfelli var
sérstakur raddtúlkur í salnum sem
túlkaði mál hennar jafnóðum.
Dúx skólans að þessu sinni er
Margrét Björk Þór, stúdent af nátt-
úrufræðibraut og eðlisfræðibraut,
með meðaleinkunn 9,5, en semidúx
er Steinar Yan Wang, stúdent af
náttúrufræðibraut og eðl-
isfræðibraut, einnig með ágæt-
iseinkunn. Jafnframt var Steinar sá
stúdent sem flestum einingum lauk.
Við athöfnina lék kvintett nem-
enda MH á hljóðfæri og kór MH
söng. Þá flutti konrektor MH, Sig-
urborg Matthíasdóttir, ræðu um
skólastarfið í vetur.
Í kveðjuorðum Lárusar H.
Bjarnasonar, rektors, til stúdenta
benti hann á að fátt væri mikilvæg-
ara lýðræðinu en góðir skólar, al-
menn menntun og þátttaka almenn-
ings í stjórnmálum, meðal annars
kosningum. Það væri á allra ábyrgð
að takast á við þann vanda að við-
halda sjálfstæði Íslands, ríki sem
áfram yrði mótað í anda réttlætis,
velferðar og lýðræðis.
Ljósmynd/Gunnar G.Vigfússon
140 stúdentar brautskráðir frá MH
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÖNNUR skógarganga sumarsins, í
röð gangna á vegum skógræktar-
félaganna í fræðslusamstarfi þeirra
við Búnaðarbanka Íslands, verður
fimmtudaginn 6. júní kl. 20. Skóg-
argöngurnar eru skipulagðar í sam-
vinnu við Ferðafélag Íslands og eru
ókeypis og öllum opnar. Þessi skóg-
arganga er í umsjá Skógræktar-
félags Kjalarness.
Gengið verður frá Rannsóknar-
stöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá,
á svokölluðum „Skógarstíg“ í hlíð-
inni fyrir ofan stöðina. Gangan tekur
um eina klukkustund og er við allra
hæfi. Í lok göngunnar verður boðið
upp á léttar veitingar. Með í för
verða staðkunnugir, þ. á m. forstöðu-
maður Rannsóknarstöðvarinnar á
Mógilsá, dr. Aðalsteinn Sigurgeirs-
son.
Þátttakendur verða að koma sér
sjálfir á upphafsstað göngunnar.
Skógarganga
við Mógilsá
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ efnir
í fimmtánda sinn til heilsuhlaups
fimmtudaginn 6. júní. Í Reykjavík
verður hlaupið frá húsi félagsins í
Skógarhlíð 8 kl. 19. Kristján Þ. Ár-
sælsson þolfimimeistari annast
upphitun og hljómsveitin Írafár
leikur nokkur lög. Haraldur Örn
Ólafsson afreksmaður ræsir hlaup-
arana.
Hægt er að velja um 3 kílómetra
skokk eða göngu frá Skógarhlíð að
Öskjuhlíð og til baka eða 10 kíló-
metra hlaup umhverfis Reykjavík-
urflugvöll. Tími verður mældur hjá
öllum og úrslit birt eftir aldurs-
flokkum, en þeir eru sex: 14 ára og
yngri, 15–18 ára, 19–39 ára, 40–49
ára, 50–59 ára og 60 ára og eldri.
Fyrsti karl og fyrsta kona í öllum
aldursflokkum í 3 km og 10 km
hlaupum fá verðlaunagripi. Sigur-
vegarar karla og kvenna í báðum
vegalengdum fá körfur með Lepp-
in-vörum. Vegleg útdráttarverð-
laun eru í boði, segir í fréttatil-
kynningu. Búnaðarbankinn er
aðalstyrktaraðili hlaupsins. Bylgj-
an og Tóbaksvarnanefnd eru sam-
starfsaðilar.
Forskráning verður á Hlaupas-
íðunni (www.hlaup.is). Skráning er
hjá Krabbameinsfélaginu í Skóg-
arhlíð 8 fimmtudaginn 6. júní kl.
8–18. Þátttökugjald er 500 krónur
fyrir 14 ára og yngri en 700 krón-
ur fyrir 15 ára og eldri. Bolur er
innifalinn í gjaldinu. Allir sem
ljúka hlaupinu fá viðurkenningar-
pening.
Hlaupið á sex stöðum
utan Reykjavíkur
Utan Reykjavíkur verður hlaup-
ið á sex stöðum. Víðast hvar er
vegalengdin 2–3 km. Í Borgarnesi
verður hlaupið frá Íþróttamiðstöð-
inni kl. 19. Í Stykkishólmi verður
hlaupið frá Íþróttamiðstöðinni kl.
19. Á Húsavík verður hlaupið frá
Skrúðgarðinum kl. 19. Á Egils-
stöðum verður hlaupið frá Íþrótta-
miðstöðinni kl. 19. Á Hellu verður
hlaupið frá Lundi kl. 19. Í Keflavík
verður hlaupið frá nýju sundlaug-
inni kl. 19. Þar verður skráning á
skrifstofu Krabbameinsfélags Suð-
urnesja að Hringbraut 99, efri
hæð, fimmtudaginn 6. júní kl. 13–
17.
Heilsuhlaup Krabba-
meinsfélagsins
FÉLAGIÐ Afríka stendur fyrir mál-
stofu, „Afríka í íslenskum fjölmiðl-
um“, fimmtudaginn 6. júní kl. 20 í Al-
þjóðahúsinu, Hverfisgötu 18.
Málstofan er opin öllum.
Hjálmar Sveinsson fréttamaður
hjá RÚV ræðir um umfjöllun ís-
lenskra fjölmiðla á málefnum Afríku
og Magnfríður Júlíusdóttir land-
fræðingur segir frá könnun nema í
námskeiði um þróunarlönd við Há-
skóla Íslands á umfjöllun um Afríku í
stærstu íslensku fjölmiðlunum í
febrúarmánuði 2002. Á eftir verða
umræður, segir í fréttatilkynningu.
Umfjöllun í
íslenskum fjöl-
miðlum um Afríku