Morgunblaðið - 05.06.2002, Síða 44
DAGBÓK
44 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Brú-
arfoss og Goðafoss
koma og fara í dag. Ör-
firisey og Víðir fara í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Axios kom í gær til
Straumsvíkur, Brúar-
foss fer í dag frá
Straumsvík. Kleif-
arberg og Arnar fara í
dag. Andvari, Gemini
og Fornax komu í gær.
Eldborg kemur í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa,
s. 551 4349, opin mið-
vikud. kl. 14–17. Flóa-
markaður, fataúthlutun
og fatamóttaka s.
552 5277 opin annan og
fjórða hvern miðvikud.
kl. 14–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9 og
kl. 13 vinnustofa.
Kirkjuferð, farið verður
í Grensáskirkju kl.
13.30. Kaffiveitingar í
boði sóknarnefndar,
verslunarferð í Hag-
kaup í Skeifunni kl. 10.
Kaffiveitingar í boði
Hagkaupa. Ferð á
Langjökul: Miðvikud.
10. júlí. Skráning í ferð-
ir í afgreiðslu, s.
562 2571.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofan, kl.
13 spilað, kl. 13–16.30
opin smíðastofan. Bingó
er 2. og 4. hvern föstu-
dag. Dans hjá Sigvalda
byrjar í júní. Púttvöll-
urinn er opinn alla
daga.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–10.30
banki, kl. 13–16.30 spil-
að. Ekið um borgina
þriðjudaginn 11. júní.
Skráning fyrir kl. 12,
föstudaginn 10. júní.
Allir velkomnir. Farið
verður á Hólmavík
fimmtud. 20. júní kl. 8.
Sr. Sigríður Óladóttur
tekur á móti okkur í
Hólmavíkurkirkju. Sýn-
ingin Galdrar á Strönd-
um og Sauðfé í sögu
þjóðar skoðaðar.
Kaffi og meðlæti í Sæ-
vangi. Kvöldverður í
Hreðavatnsskála. Leið-
sögumaður: Anna Þrúð-
ur Þorkelsdóttir.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslu- og handa-
vinnustofur opnar, kl.
10–10.45 leikfimi, kl.
14.30 banki.
Félag eldri borgara
íKópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl.
16.30–18.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Miðvikudag-
inn 5. júní, ferð í Bláa
lónið. Farið frá Kirkju-
hvoli kl. 13.
Golfnámskeiðið byrjar
10. júní kl. 13.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Línu-
dans kl. 11 og pílukast
kl. 13.30. Á morgun
bingó kl. 13.30. Dags-
ferð að Skógum mið-
vikudaginn 19. júní,
lagt af stað frá Hraun-
seli kl. 10. Upplýsingar
i Hraunseli, s. 555 0142.
Vestmannaeyjaferð 2.
til 4. júlí.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Mið-
vikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í göngu frá
Ásgarði kl. 10, línu-
danskennsla kl. 19.15.
Dagsferð í Krísuvík,
Þorlákshöfn, á Eyrar-
bakka og Stokkseyri 6.
júní. Þeir sem eiga
pantað far þurfa að
ganga frá farseðlum í
dag. Fimmtudagur:
Brids kl. 13. Vest-
mannaeyjar 11.–13. júní
3 dagar, nokkur sæti
laus vegna forfalla.
Söguferð í Dali 25. júní,
dagsferð, skráning haf-
in. Silfurlínan er opin á
mánu- og miðviku-
dögum frá kl. 10–12 f.h.
í s. 588 2111. Skrifstofa
félagsins er flutt í
Faxafen 12, sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9–16.30
fótaaðgerð, opin vinnu-
stofa, postulín, mósaik
og gifsafsteypur, kl. 9–
13 hárgreiðsla, kl. 9–16
böðun. Opið sunnudaga
frá kl. 14–16 blöðin og
kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 9.30 sund og
leikfimæfingar í Breið-
holtslaug, (ath. breyttur
tími), frá hádegi spila-
salur opinn. Veitingar í
Kaffi Bergi. Upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10 handavinna, kl.
10 boccia, kl. 13 félags-
vist FEBK, kl. 15–16
viðtalstími FEBK, kl.
17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17 há-
degismatur alla virka
daga, heitt á könnunni
og heimabakað meðlæti.
Handavinnustofan er
opin kl. 9.15–16 á
þriðju- og miðviku-
dögum kl. 13–16 og
fimmtudögum kl. 9.15–
16.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, handa-
vinna, bútasaumur, kl.
9–12 útskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla og fótaað-
gerðir, kl. 11 banki, kl.
13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, kl. 9 og kl. 10
jóga. Fótaaðgerð, hár-
snyrting. Allir velkomn-
ir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9–16 fótaaðgerðir,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
10 sögustund, kl. 13
banki, kl. 14 félagsvist,
kaffi, verðlaun. Allir
velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 8.25
sund, kl. 9–16 fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
9.15–16 postulínsmálun
og mósaik, kl. 13–14
spurt og spjallað.
Verslunarferð í Bónus
kl. 13.30.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 bókband og
handmennt, kl. 10
morgunstund, kl. 12.30
verslunarferð Bónus.
Bankaþjónusta 2 fyrstu
miðvikudaga í mánuði.
Barðstrendingafélagið
Félagsvist í Konnakoti,
Hverfisgötu 105, kl. 20.
30 í kvöld. Allir vel-
komnir.
ITC félagar: Farið
verður í ferð í Freyju-
lundinn í Heiðmörk
fimmtud. 6. júní kl. 18.
Hlúð verður að gróðri.
Félagar beðnir um að
taka fjölskylduna með.
Upplýsingar veitir Guð-
ríður Hannibalsdóttir,
s. 566 6500.
Indlandsvinafélagið.
Sumarhátíðin verður
haldin á Fríkirkjuvegi
11 fimmtud. 6. júní og
hefst með happamáltíð
kl. 20.30. Félagar koma
sjálfir með sinn réttinn
hver. Að því búnu er
aðalfundur félagsins.
Harpa Jósefsdóttir Am-
in, formaður félagsins,
lætur af starfi og nýr
formaður verður kos-
inn.
Félag eldri borgara á
Suðurnesjum og tóm-
stundastarf eldri borg-
ara fara í sameiginlega
óvissuferð. Dagsferð
verður farin miðviku-
daginn 19. júní, farið
verður frá SBK kl. 9.30,
komið við í Hornbjargi,
Hvammi, Hlévangi og
Seli. Þátttaka tilkynnist
fyrir 15. júní. Ferða-
nefndin. Farin verður 4
daga ferð á Vestfirði,
Suðurfirðina, 22., 23.,
24. og 25. júlí, nánar
auglýst í Suðurnesja-
fréttum og dagbók
Morgunblaðsins.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrif-
stofutíma. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrif-
stofu félagsins í Suð-
urgötu 10 (bakhúsi) 2.
hæð, s. 552-2154. Skrif-
stofan er opin mið-
vikud. og föstud. kl. 16–
18 en utan skrifstofu-
tíma er símsvari.
Einnig er hægt að
hringja í síma 861-6880
og 586-1088. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Í dag er miðvikudagur 5. júní, 156.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Hann mælti: „Ég elska þig,
Drottinn, þú styrkur minn.“
(Sálm. 2, 18.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 roggin, 8 vissi, 9
drukkna, 10 tangi, 11
stúlkan, 13 vætan, 15
heitis, 18 nurla saman, 21
hreysi, 22 jarða, 23 hótar,
24 skuldar ekkert.
LÓÐRÉTT:
2 eldstæði, 3 eyddur, 4
hegna, 5 álíti, 6 ryk-
hnoðrar, 7 hitti, 12 fag,
14 mánuður, 15 biti, 16
flækingur, 17 brotsjór, 18
sæti, 19 höfðu upp á, 20
siga.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 vomar, 4 sýkil, 7 túlum, 8 rengi, 9 tjá, 11 róar,
13 maka, 14 ýlfra, 15 gróf, 17 tákn, 20 err, 22 ölæði, 23
erjur, 24 totta, 25 síðla.
Lóðrétt: 1 votar, 2 molla, 3 rúmt, 4 skrá, 5 kenna, 6 leifa,
10 jöfur, 12 rýf, 13 mat, 15 gjögt, 16 ófært, 18 áfjáð, 19
narra, 20 eira, 21 refs.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA hefur borizt bréffrá glöggum lesanda, sem
hnaut um fréttir í íþróttablaði og á
vef Morgunblaðsins sem greindu
frá því að áætlað væri að samtals
35 milljarðar manna í 190 löndum
myndu fylgjast með heimsmeist-
arakeppninni í knattspyrnu í sjón-
varpi. „Þar sem fjöldi jarðarbúa er
líklega ennþá innan við 6 milljarðar
þá hljóta að vera a.m.k. 29 millj-
arðar annars staðar í veröldinni.
Þetta hlýtur að eiga erindi á forsíð-
una á morgun,“ segir lesandinn
talnaglöggi.
x x x
ÞETTA er réttmæt ábending aðmati Víkverja. Réttast hefði
verið að geta þess í fréttunum,
þannig að ekkert færi á milli mála,
að þarna væri um að ræða svokall-
að uppsafnað áhorf, þ.e. fjölda
þeirra sem áætlað er að horfi á
hvern leik, margfaldað með fjölda
leikjanna. Leikirnir eru 64 og það
er þá talið að tæplega 547 milljónir
manna muni horfa á hvern leik.
Það er tæplega tíundi hver Jarð-
arbúi ef tekið er mið af tölum Sam-
einuðu þjóðanna, sem telja að
menn séu nú um 6,2 milljarðar. Það
er ekki ósennileg tala. Áðurnefnd
framsetning, án frekari útskýringa,
gat hins vegar verið til þess fallin
að valda misskilningi um fjölmenni
mannskepnunnar.
Gera verður ráð fyrir að hver og
einn fótboltaáhugamaður sjái
marga leiki, þeir alhörðustu jafnvel
alla, en ekki hefur Víkverji séð
neitt mat á því hvað margir ein-
staklingar á jarðkringlunni saman-
lagt séu líklegir til að sjá einn leik
eða fleiri í sjónvarpinu. A.m.k.
verða þeir áreiðanlega ekki fleiri
en 6.199.999.996, því að heima hjá
Víkverja eru fjórir í heimili og ekki
stendur til að kaupa áskrift að Sýn
á næstunni.
x x x
VÍKVERJA finnst þó að mennmegi virða það Morgun-
blaðinu og öðrum fjölmiðlum til
vorkunnar, að það gerist æ algeng-
ara að hinar og þessar heimildir
greini frá uppsöfnuðum aðsóknar-,
áhorfs- eða umferðartölum, án þess
að þess sé getið sérstaklega að þær
séu uppsafnaðar. Þannig sendi
Íþrótta- og tómstundaráð Reykja-
víkur frá sér fréttatilkynningu á
dögunum, þar sem kom fram að
metaðsókn hefði verið að sundlaug-
unum á síðasta ári; alls hefðu 1,84
milljónir manna sótt sundstaði
Reykjavíkur árið 2001. Engum datt
í hug að gera athugasemd við þá
tölu, enda er þetta í raun viður-
kennd aðferð við að telja gesti ofan
í sundlaugar, inn í leikhús- og bíó-
sali o.s.frv. Hins vegar hefði auðvit-
að mátt geta þess, almenningi til
glöggvunar og til að forðast mis-
skilning, að þetta þýddi að rúmlega
5.100 manns hefðu komið í sund-
laugarnar að meðaltali hvern þeirra
u.þ.b. 360 daga, sem þær eru opnar
á árinu. Þannig hefði kannski feng-
izt gleggri mynd af aðsókninni. En
þá ber auðvitað að gæta að því að
sumir fara í sund bæði kvölds og
morgna og rugla þannig jafnvel
slíka tölfræði. Jafnframt hefðu
menn ekki verið neinu nær um það
hversu margir Íslendingar og út-
lendingar fóru í sund í Reykjavík
einu sinni eða oftar á síðasta ári –
það veit sennilega enginn.
Léleg
þjónusta
VIÐ viljum koma á fram-
færi kvörtun um lélega
þjónustu hjá Ölgerðinni
vegna þess að Ölgerðin aug-
lýsir að ef maður safni töpp-
um fái maður bolta og
treyju.
Við fórum með tappana
fyrir ca. mánuði og treyj-
urnar voru þá ekki komnar
og okkur var sagt að það
ætti að senda okkur treyj-
urnar eftir ca. viku en þær
eru ekki enn komnar.
Helena og Mjöll, 11 ára.
Fyrirspurn
ERICA hafði samband við
Velvakanda og sagði hún að
þar sem hún búi sé mikill
gróður og gróðrinum fylgi
geitungar. Er hún þess
vegna að leita sér að flugna-
neti til að setja fyrir svala-
dyrnar til að halda geitung-
unum frá. Biður hún þá sem
vita hvar hún gæti fengið
svoleiðis net að hafa sam-
band við sig í síma 553 1025.
Tapað/fundið
Gallajakki
týndist
GALLAJAKKI með semi-
líusteinum týndist á Prikinu
laugardagskvöldið 25. maí.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 557 2950 eða
824 6986.
Hlaupahjól
tapaðist
SILFURGRÁTT hlaupa-
hjól af gerðinni Kalloy tap-
aðist fyrir utan verslunina
10-11 við Hjallabrekku í
Kópavogi miðvikudaginn
30. maí síðastliðinn. Hjóls-
ins er sárt saknað og er finn-
andi vinsamlega beðinn að
hringja í síma 554 6757 eða
820 6377. Fundarlaun.
Hjól týndist
í Þingholtunum
10 ÁRA stúlka varð fyrir því
að nýja hjólið hennar hvarf
úr garði í Þingholtunum.
Það var keypt í BYKO og
var blátt og grátt að lit. Ef
einhver hefur hugmynd um
hjólið er hann vinsamlegast
beðinn að hringja í síma
551 8494 eða 860 5566.
Dýrahald
Perla er týnd
PERLA fór út laugardags-
kvöldið 1. júní og hefur ekki
komið aftur. Hún er tveggja
ára læða, falleg og blíð.
Perla er ljósgrá, hvít og loð-
in á maganum, dökkgrá á
bakinu. Hún er hálfur persi.
Hennar er sárt saknað. Fólk
er beðið um að athuga bíl-
skúra og geymslur sem hún
gæti hafa farið inn í. Þeir
sem geta gefið upplýsingar
um Perlu vinsamlega hringi
í síma 553 5101 eða
867 7836.
Lotta er týnd
LOTTA týndist frá heimili
sínu, Jakaseli 33, föstudag-
inn 31. maí. Hún er grá-
brúnbröndótt og hvít, 6
mánaða, frekar lítil, loðin
læða. Hún var með hvíta ól
með svörtum og gráum
flekkjum og gulu merki-
spjaldi. Hún á það til að
hoppa upp undir bíla og
gæti þess vegna verið komin
langt að heiman. Hún er
einnig mjög forvitin og gæti
hafa laumast inn í bílskúra
eða geymslur hjá einhverj-
um. Þeir sem hafa séð hana
eða vita hvar hún er niður-
komin vinsamlegast hringi í
síma 567 0107, 869 9508 eða
869 9408.
Læða fæst gefins
LÆÐA, kassavön, fjörug og
sæt, fæst gefins. Uppl. í
síma 849 0579.
Kettlingar
fást gefins
TVEGGJA mánaða kett-
lingar fást gefins. Kassa-
vanir. Uppl. í síma 557 7735.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Í VELVAKANDA 28. maí
spyr Hulda hvort réttara
sé „Þó þú langförull legð-
ir“ eða „Þótt þú langför-
ull legðir“ í ljóði Steph-
ans G. Stephanssonar.
Það er von að fólk haldi
að „Þótt þú langförull“ sé
réttara, enda var það
kennt í skólum að annað-
hvort ætti að segja „þó
að“ eða „þótt“, og „þó að“
á augljóslega ekki við
hér. En í kvæði Stephans
stendur „Þó þú langförull
legðir /sérhvert land
undir fót.“ Þannig er
kvæðið prentað í vand-
aðri, fræðilegri heildar-
útgáfu Þorkels Jóhannes-
sonar á Andvökum og
þannig er það í öllum
ljóðaúrvölum. Svo textinn
er réttur á minning-
arsteininum í Vopnafirði
sem er tilefni bréfsins.
Gunnar Stefánsson,
Kvisthaga 16, Rvík.
„Þó þú langförull…“