Morgunblaðið - 25.07.2002, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 61
Hverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i 16. Sýnd kl. 5.30. B.i. 10.Sýnd kl. 5.20. B.i. 10.
Sýnd kl. 8 og 10.30. B. i. 16.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
SV.MBL
HK.DV
...í topp
formi.
Ótrúleg bardagaatriði.
Slagsmál og grín.
SÍÐ
UST
U S
ÝNI
NGA
R
SÍÐ
UST
U S
ÝNI
NGA
R
2 FYRIR EINN2 FYRIR EINN
Sýnd kl. 6.30, 8,30 og 10.30.
14.000. MANNS Á 4. DÖGUM
Sandra Bullock í spennumynd
sem tekur þig heljartaki!
Þeir búa til leik
sem hún þarf að
leysa.. takmarkið
er hinn fullkomni
glæpur.
Einnig sýnd í lúxussal VIP
Sýnd í lúxus kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. Vit 408
1/2
SV Mbl
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
SG DV
22 þúsund áhorfendur
HL Mbl
Sýnd kl. 3.45. Ísl. tal. Vit 389.Sýnd kl. 3.45. Íslenskt tal. Vit 358.
SÍMI 587-8900 ÁLFABAKKI www.sambioin.is
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Vit 395.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára Vit 400Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára Vit 408
Sýnd kl. 4. Vit 393.
Kvikmyndir.is
RICHARD GERE LAURA LINNEYRICHARD GERE
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. Vit 393.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 398
kvikmyndir.is
Hið yfirnáttúrulega mun gerast.
Sýnd kl. 3.45. Ísl tal. Vit 338
HETJA MUN RÍSA UPP...
...Á AFTURLAPPIRNAR.
1/2
Kvikmyndir.is
DV
HL. MBL
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
5 6 5 7 1 0 0
Fja rða rga t a 13 -15 Ha f na r f i r ð i
HIPHOPUNNENDUR lifa góða
daga; ekki bara að gróskan sé mik-
il, íslenskir rímnamenn í hverju
horni, heldur eru menn duglegir að
gefa út, ýmist á vegum fyrirtækja
eða einir síns liðs. Á síðasta ári
komu út þrjár meiri háttar íslensk-
ar hiphopskífur,
með Sesari A,
XXX Rottweiler-
hundum og Af-
kvæmum guðanna,
og nokkrar prýði-
legar heima-
brennslur, til að mynda Skytturnar
og Mezzías MC. Á bráðgagnlegum
diski, Rímnamíni, sem Ómi gaf út
fyrir skemmstu, er allar þessar
sveitir og tónlistarmenn að finna
en einnig talsvert af öðrum sem
færri hafa ef til vill heyrt um: Bent
& 7Berg, Forgotten Lores, Móra,
Vivid Brain, Bæjarins bestu og
Diplomatics, sem flestar/flestir
hafa þó verið að býsna lengi og
sumir í mörg ár.
Upphafslag Rímnamíns er með
þeim félögum Bent og 7Berg, bráð-
fyndið skens þar sem þeir gera
grín að drykkjumonti og almennum
gorgeir: „en ef ég drekk of mikið af
sterku víni / tapa ég ekki bara orð-
heppninni / heldur verður líka
meira ælt en baksviðs á Ford mód-
elkeppninni.“
Þeir bræður Sesar og Blazrocka
eru áberandi á skífunni sem von-
legt er, Sesar, sem hefur umsjón
með útgáfunni, á eitt lag, Hundarn-
ir og Blaz annað og eitt lag eiga
þeir bræðurnir undir nafninu
Sækópah. Þeir eru mjög ólíkir
flytjendur en ná merkilega vel
saman í laginu Verbalt, sérstaklega
kemur viðlagið skemmtilega út.
Rímurnar hjá Sesari eru ramm-
pólitískar að vanda og viðkvæmar
sálir sem amast við rímunum hjá
Blaz, finnst þær of sjálfhverfar og
ruddalegar, ættu að sperra eyrun
við framlagi hans í Verbalt. Vissu-
lega er hann grófur, væri lítið varið
í annað, en textinn er með því
besta sem hann hefur gert, í mín
eyru í það minnsta.
Afkvæmi guðanna sendu frá sér
fyrirtaks plötu á síðasta ári sem
var ekki síst merkileg fyrir það að
á henni voru menn í djúpum pæl-
ingum, meðal annars að glíma við
hinstu rök tilverunnar (sjá til að
mynda lagið frábæra Bréf frá
guði). Þeir félagar geta þó brugðið
á leik líkt og í laginu Upp með
hendur og komast býsna vel frá
því, hakka í sig þá rappara sem
leggja höfuðáherslu á söluvænleika.
Rottweilerhundarnir eiga mesta
stuðlagið á plötunni eins og þeirra
er von og vísa, myljandi stemning
og sama hráa keyrslan. Í því lagi á
Bent besta sprettinn og línan „það
þarf að bjarga hiphopi frá þeim
sem rappa um að bjarga hiphopi“
er innblásin snilld.
Trúað get ég að lagið Púsl með
Sesari A eigi eftir að standa í ein-
hverjum enda fer hann ekki troðn-
ar slóðir í því, takturinn snúinn og
það er ekki fyrr en eftir nokkra
hlustun sem menn ná að fylgja
þræðinum – ná að leysa raðspilið,
púslið. Mjög gott lag sem stingur
skemmtilega í stúf, kannski stefnir
Sesar í átt að óhlutbundu hiphopi?
Áhugamenn um hihop hafa
gjarnan nefnt Forgotten Lores
þegar spurt er hverjir séu bestir
og víst eiga þeir frábært lag á
disknum, Þegar ég sé mic, besta
lagið. Takturinn er skemmtilega
billegur og hikandi í byrjun og
rennur síðan af stað í sérdeilis
skemmtilega svala taktlykkju. Rím-
urnar eru þéttofnar og flæðið frá-
bært, hraðabreytingar vel útfærðar
og svo má telja; „Ég hef setið við
skriftir eins og kaþólikki / síðan
Gaui litli var svaka flykki / á papp-
írinn skapa stykki / með ritföngum
þegar ég sit löngum stundum.“ Við
hverja hlustun setjast í hugann
nýjar línur – er ekki breiðskífa orð-
in tímabær?
Móri, sem hefur verið býsna
lengi að, hefur náð mjög góðum
tökum á tónmálinu, undirleikurinn
hjá honum er afbragð og hljómur
mjög góður. Spuninn er líka góður
og flutningurinn afslappaður og
öruggur. Textinn er fullendaslepp-
ur, hefði mátt vera tvö til þrjú er-
indi til viðbótar; manni finnst eins
og sagan sé ekki nema hálfsögð.
Skytturnar sendu frá sér
brenndan disk á síðasta ári sem
fékkst í takmörkuðu upplagi, en lag
af honum rataði síðan í bíómynd og
á disk með lögum úr þeirri mynd.
Það lag, Ég geri það sem ég vil,
var spaugilegt en enn fyndnara er
lagið Ef ég væri Jesú: „Mínar hug-
myndir um leiðtoga eru ekkert ná-
lægt þínum / því sjálfur Jesús
Kristur er ein af fokking fyrir-
myndum mínum.“ Hér er þó ekki
verið að hvetja menn til guðsótta
og góðra siða eins og kemur í ljós
ef grannt er hlustað.
Að sama skapi og bjart er yfir
þeim félögum í Skyttunum ræður
myrkur og örvænting ríkjum í rím-
um Vivid Brain í laginu Vont en
það versnar þar sem sögumaður er
„skopparakringla í leit að horni í
kringlóttu herbergi“. Rímurnar
virðast sundurlausar við fyrstu sýn
en draga upp drungalega mynd
sem verður æ skuggalegri þegar á
líður. Gott lag og vel flutt með
skemmtilega geggjuðum klukkna-
hljómi.
Bæjarins bestu fara á kostum í
lýsingu á pósaranum; „ … ég þekki
strák sem þekkir strák sem þekkir
Bent í Rottweiler.“ Undirleikur
undirstrikar skemmtilega pæl-
inguna í textanum með rafgíturum
og rokktrommum.
Rímurnar hjá Diplomatics eru
vel samtengdar og fluttar, en held-
ur eru þær innihaldslausar. Undir-
leikur er flottur, góður taktur.
Mezzias MC á síðan lokaorðið
með laginu Viltu með mér vaka,
frábæru lagi þar sem hann leikur
sér með Þrek og tár. Þetta lag kom
út á brenndum disk með honum á
síðasta ári og því hefði verið gaman
að fá heyra eitthvað nýtt, hann á
það sjálfsagt til.
Umslagið er mjög vel heppnað,
en erfitt fyrir gamla menn að lesa
ógreinilegan smáan texta á dökk-
um bakgrunni.
Ein spurning að lokum: Hvar
eru stelpurnar?
Tónlist
Bráð-
gagnlegur
diskur
Rímnamín, safn af íslensku hiphopi. Lög
eiga Bent & 7Berg, Sækópah, Afkvæmi
Guðanna, XXX Rottweilerhundar, Sesar
A, Forgotten Lores, Móri, Skytturnar, Viv-
id Brain, Bæjarins bestu, Diplomatics og
Messías MC. Ómi gefur út, en Sesar A
hafði umsjón með útgáfunni. 48,30 mín-
útur.
Árni Matthíasson
Morgunblaðið/Jim Smart
Sesar A er umsjónarmaður Rímnamíns.