Morgunblaðið - 11.08.2002, Page 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 27
EUROPE
V I Ð K Y N N U M
Hillusamtæður og
einingar
Margir röðunarmöguleikar
Framúrstefnuleg ítölsk
hönnun
Massívar einingar
GOTT VERÐ
Á HÖFN í Hornafirði hefur verið
opnuð fjölþjóðleg listsýning,
Camp-Hornafjörður. 25 myndlist-
armenn frá Íslandi, Danmörku,
Þýskalandi og Englandi sýna verk
sín, sem eru unnin sérstaklega
fyrir sýninguna. Verkin eru ýmist
staðsett utan- eða innandyra vítt
og breitt um bæinn. Höfundar
verkanna eru Alda Sigurðardóttir,
Anna Eyjólfsdóttir, Anna Líndal,
Dieter Kunz, Finna Birna Steins-
son, Finnbogi Pétursson, Fjölnir
Hlynsson, Gunnhildur Jónsdóttir,
Hanne Godtfeldt, Hannes Lár-
usson, Helga Erlendsdóttir, Hlyn-
ur Hallsson, Inga Jónsdóttir, John
Krogh, Mette Dalsgård, Morten
Tillitz, Nanna Gro Henningsen,
Ósk Vilhjálmsdóttir, Pétur Krist-
jánsson, Richard Annely, Sigurður
Mar Halldórsson, Steinunn H. Sig-
urðardóttir, Þorvaldur Þorsteins-
son, Þór Vigfússon og Þuríður
Elfa Jónsdóttir. Skipuleggjendur
sýningarinnar eru Inga Jóns-
dóttir, Sigurður Mar Halldórsson
og Helga Erlendsdóttir.
Camp er alþjóðlegt heiti fyrir
búðir í merkingunni bráðabirgða-
dvalarstaður, en getur einnig ver-
ið skammstöfun fyrir Contempor-
ary Artist Meeting Place, sem
þýða má: Fundarstaður nútíma
myndlistarmanna. Camp-
Hornafjörður er sjálfstætt fram-
hald af Camp-Lejre-sýningunni
sem haldin var í Danmörku sl.
sumar og lögð hafa verið drög að
næstu Camp-sýningu í Þýskalandi
að ári.
Sýningin á Höfn mun standa til
1. september og á staðnum eru
greinargóðar upplýsingar um
staðsetningu hinna ýmsu verka.
Hægt er að fylgjast með sýning-
unni á slóðinni www.camp2.is.
Morgunblaðið/Sigurður Mar
Ósk Vilhjálmsdóttir ásamt hornfirskum börnum koma fyrir verki í
Miðbæ á Höfn í Hornafirði.
Fjölþjóðleg
listsýning
á Höfn í
Hornafirði
Óperusöngur og píanó á
sumartónleikum í Hömrum
saman, en þeim til fulltingis er
Daníel Þorsteinsson píanóleikari.
Á efnisskránni verða Söngvar
förusveinsins eftir Gustav Mahl-
er, Þrjú ljóð Ófelíu og fleiri lög
eftir Richard Strauss og dúettar
eftir Johannes Brahms.
SÖNGUR og píanó eru í aðalhlut-
verki á tónleikum sem haldnir
verða þriðjudagskvöld kl. 20.30 í
Hömrum, sal Tónlistarskóla Ísa-
fjarðar. Hulda Björk Garðars-
dóttir og Sigríður Aðalsteinsdótt-
ir syngja hvor í sínu lagi og einnig
Mánudagur
Eden, Hveragerði Örvar Árdal
Árnason opnar sína fjórðu einkasýn-
ingu í dag. Á sýningunni verða olíu-
málverk og teikningar, fantasíu- og
landslagsmyndir. Örvar er sjálf-
menntaður listamaður og býr í
Hveragerði. Sýningin stendur til 26.
ágúst.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is