Morgunblaðið - 11.08.2002, Page 38
FRÉTTIR
38 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FASTEIGNASALAN GIMLI, GRENSÁSVEGI 13,
SÍMI 570 4800 - 570 4810
Skólavörðustíg 13 101 Rvk
Sími: 510-3800 FAX: 510 3801
Opið hús hjá fasteignasölunum
Gimli og Húsavík sunnudaginn 11.ágúst 2002
Um er að ræða glæsileg og vel
staðsett raðhús á einni hæð á
þessum skemmtilega stað í Graf-
arholtinu. Húsin eru 120 fm, auk
30 fm bílskúrs. Þrjú rúmgóð
svefnherbergi, stór og björt stofa með útgangi í suðurgarð,
upptekin loft í öllum rýmum. Húsin verða seld rúmlega fok-
held, þ.e. fullbúin að að utan sléttmúruð og einangruð, lóð
grófjöfnuð, lagnir að ofnum komnar, útveggir tilbúnir til sands-
pörtlunar og gólf vélslípuð. Húsunum verður skilað með mal-
bikuðum botnlanga og stæði fyrir framan bílskúra. Frábær
staðsetning og suðurgarður. Sölumenn okkar og Ragnar
Ólafsson, byggingaverktaki, verða á staðnum með teikningar
og veita allar nánari upplýsingar. Skipti möguleg. Verð 13,4
millj. Verið velkomin frá kl. 14.00-16.00.
MARÍUBAUGUR 33 OG 37
GI LIMBjarni Sigurðssonlögfræðingur og lögg.
fasteignasali
Kristinn R. Kjartansson
sölustjóri atvhúsnæðis
Atvinnuhúsnæðis- og fyrirtækjasala
Holt Fasteignasala hefur nú enn bætt við þjónustu sína. Undirritaðir starfsmenn Holts Fasteignasölu eru sér-
hæfðir í sölu atvinnuhúsnæðis og fyrirtækja og bjóða einnig upp á sérþekkingu og milligöngu í allri fjár-
mögnun. Á söluskrá á okkur höfum við iðnaðar-, verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði af öllum gerðum og stærðum, svo og ýmsa góða fjár-
festingarkosti fyrir rétta aðila. Innan raða Holts Fasteignasölu starf-
ar einnig rekstrarráðgjafi sem býður fram þjónustu sína varðandi
ráðgjöf og verðmat á fyrirtækjum.
Hafðu samband eða líttu við og sjáðu
hvað við höfum upp á að bjóða.
HÆÐIR
Gautavík - glæsihæð með
bílskúr
Vorum að fá í sölu ákaflega glæsilega
sérhæð með sérinngangi í vönduðu þrí-
býlishúsi. Íbúðin er 136,2 fm og er á 3.
hæð (efstu) og henni fylgir góður 23 fm
bílskúr. Glæsilegar innréttingar og vönd-
uð tæki og gólfefni. Stórar svalir með út-
sýni. Toppeign sem getur verið afhent
fljótlega. V. 18,9 m. 5082
Suðurgata - hæð í tvíbýli
Um er að ræða 134 fm hæð og kjallara á
besta stað við Suðurgötuna í Reykjavík.
Húsið hefur mikið verið endurnýjað að
utan. Íbúðin hefur verið notuð sem skrif-
stofuhúsnæði. Lofthæð á hæðinni er um
2,9 m. Sérbílastæði á lóð. Teikningar að
innra skipulagi fylgja. Laus strax. V. 12,9
m. 2545
3JA HERB.
Austurberg
Góð 91 fm endaíbúð á 2. hæð í litlu fjöl-
býli. Íbúðin skiptist í tvö góð svefnherb.,
stofu með stórum svölum, eldhús og
bað með t.f. þvottavél. Áhv. 9,4 m. í hús-
bréfum og viðbótarláni. V. 10,5 m. 5081
Flyðrugrandi
Falleg 68 fm 3ja herbergja íbúð í blokk á
eftirsóttum stað. Eignin skiptist m.a. í
hol, tvö herbergi, stofu, eldhús og bað-
herbergi. Íbúðin er nýlega máluð og eld-
hús hefur verið mikið endurnýjað. Stórar
svalir. Góð íbúð. V. 10,5 m. 2582
2JA HERB.
Álfaskeið - m. bílskúr
Erum með í einkasölu snyrtilega og
bjarta u.þ.b. 57 fm íbúð á 3. hæð í góðu
fjölbýli ásamt 23,7 fm bílskúr. Suðursval-
ir. Hús og sameign í mjög góðu ástandi.
Íbúðin er laus. V. 8,9 m. 2555
Glæsileg 60 fm 2ja herbergja íbúð
á jarðhæð í þríbýlishúsi með sér-
garði og sérinng. Íbúðin hefur öll
verið endurnýjuð, s.s. parket, bað,
eldhús og herbergi. Útsýni. Íbúðin
verður til sýnis í dag, sunnudag,
milli kl. 13 og 15. V. 8,7 m. 2401
Sogavegur 216 - jarðhæð t.h. - OPIÐ HÚS
Ás fasteignasala
Fjarðargötu 17 - Sími 520 2600
Falleg og vönduð 201 fm RAÐHÚS á tveimur hæðum, ásamt inn-
byggðum 30 fm BÍLSKÚR. Húsin skilast fullbúin að utan og
fokeld að innan eða lengra komin. FALLEGT ÚTSÝNI.
GUÐMUNDUR MUN SJÁ UM AÐ SÝNA HÚSIN.
HANN ER Í SÍMA 893 9777. VERIÐ VELKOMIN
OPIÐ HÚS
Í ÞESSUM GLÆSILEGU EIGNUM
Í DAG MILLI KL. 14.00 OG 17.00
GAUKSÁS NR. 15 og 17
TILBÚIN TIL AFHENDINGAR
NETVEITAN ehf. hefur tekið yfir
rekstur Viðskipta- og tölvuskólans og
Tölvuskóla Reykjavíkur af Rafiðnað-
arskólanum. Eigendur Netveitunnar
ehf. eru Hilmar Þór Hafsteinsson,
Jónas Yngvi Ásgrímsson og Magnús
Már Magnússon, en þeir hafa meðal
annars starfað við bókhalds- og tölvu-
kennslu hjá Nýja tölvu- og viðskipta-
skólanum undanfarin ár.
Aðspurður hvort einhverjar breyt-
ingar verði með tilkomu nýrra aðila
segir Hilmar Þór að Viðskipta- og
tölvuskólinn hafi þegar flutt í nýtt og
glæsilegt húsnæði á jarðhæð í Faxa-
feni 10. Þar sé öll aðstaða til fyrir-
myndar. Hann leggur áherslu á að
tölvukostur hafi verið bættur og nú
séu til dæmis 19 tölvuskjáir í hverri
stofu. „Við erum einnig með tvær
nýjar námsbrautir í mótun og er
áformað að hefja innritun í febrúar.
Þetta verða grunnbrautir, margmiðl-
unarbraut og iðnfræðslubraut,“ bæt-
ir hann við.
Tveggja anna
heildstætt nám
„Viðskipta- og tölvuskólinn var
stofnaður 1974 og á töluvert lengri
sögu heldur en Tölvuskóli Reykjavík-
ur. Í dag er um að ræða heildstætt
tveggja anna nám í Viðskipta- og
tölvuskólanum,“ segir Hilmar Þór.
Fjórar námsbrautir eru í boði í
skólanum. Annars vegar eru tvær
grunnbrautir, almennt skrifstofunám
og alhliða tölvunám. Hins vegar eru
framhaldsbrautir í markaðs- og sölu-
námi og fjármála- og rekstrarnámi.
„Þeir sem koma inn á grunnnáms-
braut þurfa ekki að hafa stúdentspróf
en þess er krafist á framhaldsbraut-
um að viðkomandi hafi stúdentspróf
eða ígildi þess. Það hafa margir, sem
hafa útskrifast héðan af grunnbraut-
um, einnig klárað framhaldsbrautirn-
ar og þá tekur námið fjórar annir allt
í allt,“ lýsir hann.
Námið endar á starfsþjálfun
Að sögn Hilmars stofnaði Einar
Pálsson Einkaritaraskólann 1974 en
Stjórnunarfélagið keypti síðan skól-
ann 1984 og þá varð hann að Ritara-
skólanum og síðan að Skrifstofu- og
ritaraskólanum. Hilmar Þór kenndi
einmitt við Skrifstofu- og ritaraskól-
ann 1989 og 1990 þegar hann var til
húsa í Ánanaustum. „Síðan gerðist
það 1993 að Stjórnunarfélagið og Ný-
herji fóru í samstarf um rekstur á
skóla. Þá komu tölvurnar af auknum
þunga inn í þetta. Rafiðnaðarsam-
bandið keypti þann rekstur 1997 og
þá varð til Viðskipta- og tölvuskólinn
í þeirri mynd sem hann er í núna,“
bætir hann við.
Hilmar Þór segir að almenna skrif-
stofubrautin hafi þróast allar götur
síðan skólinn var stofnaður en hinar
brautirnar hafi síðar bæst við. Hann
leggur áherslu á að í almennu skrif-
stofunámi sé kennd blanda af við-
skiptagreinum og tölvunotkun, auk
íslensku og ensku. Námið endar á
tveggja vikna starfsþjálfun hjá hin-
um ýmsu fyrirtækjum. „Í dag koma
nemendur sjálfir með hugmyndir um
fyrirtæki. Þetta er tveggja vikna
þjálfun og markmiðið er að nemend-
ur kynnist atvinnulífinu. Þessu er af-
ar vel tekið hjá atvinnurekendum og
oft ílengjast nemendur í starfi hjá
viðkomandi fyrirtæki eftir námið,“
undirstrikar Hilmar Þór.
Viðurkennt nám
Í Viðskipta- og tölvuskólanum eru
33 nemendur að klára sitt nám í lok
október, en þeir innrituðust í febrúar.
Hann bendir á að innritun fari fram
tvisvar á ári og nám hefjist hjá fimm
nýjum hópum í byrjun september.
Skólinn býður upp á nám á morgn-
ana, eftir hádegið og á kvöldin.
Að sögn Hilmars Þórs er námið í
Viðskipta- og tölvuskólanum viður-
kennt af menntamálaráðuneytinu.
Hann segir það einnig hafa öðlast við-
urkenningu á markaðnum, bæði af
ráðningarstofum og fyrirtækjum.
„Það hefur sýnt sig að nemendur sem
hafa verið hérna í námi hafa þótt
gjaldgengir og fengið ýmiskonar
bókara- og skrifstofustörf innan fyr-
irtækja. Námið hér er mjög gjarnan
skref yfir í áframhaldandi nám,“ seg-
ir hann.
Netveitan ehf. tók einnig yfir
rekstur Tölvuskóla Reykjavíkur eins
og fyrr segir og segir Hilmar Þór að
skólinn sé 12 ára og þar með einn
elsti starfandi tölvuskólinn á höfuð-
borgarsvæðinu. Hann segir að
kennsla hefjist þar líka í byrjun sept-
ember. Í Tölvuskólanum er boðið upp
á ýmiskonar stutt tölvunámskeið,
grunnnám í helstu tölvuforritum og
sérstök námskeið fyrir eldri borgara,
svo fátt eitt sé nefnt. Hilmar Þór bæt-
ir við að þau námskeið hafi notið mik-
illa vinsælda.
Nýir aðilar taka yfir rekstur Viðskipta- og
tölvuskólans og Tölvuskóla Reykjavíkur
Morgunblaðið/Jim Smart
Nýir rekstraraðilar Viðskipta- og tölvuskólans og Tölvuskóla Reykjavíkur innan um tölvurnar. Frá vinstri:
Magnús Már Magnússon, Hilmar Þór Hafsteinsson og Jónas Yngvi Ásgrímsson.
Keypti skólann af
Rafiðnaðarskólanum