Morgunblaðið - 28.08.2002, Side 13

Morgunblaðið - 28.08.2002, Side 13
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 13 Svifbraut í Hlíðarfjalli, breyting á deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með breytingu á deiliskipulagi Svifbrautar í Hlíðarfjalli skv.25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. Breytingar frá fyrra uppdrætti felast eingöngu í stækkun bílastæða við Skíðastaði. Tillöguuppdráttur mun hanga uppi almenningi til sýnis í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til 9. október 2002, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is/ Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 miðvikudaginn 9. október 2002 og skal athugasemdum skilað til umhverfisdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur. Skipulags- og byggingarfulltrúi. Akureyrarbær auglýsir: HJÓNIN Davíð Guðmundsson og Sigríður Manasesdóttir gróð- ursettu 500 þúsundustu plöntuna á jörð sinni, Glæsibæ í Hörgárbyggð sl. föstudag og gáfu við sama tæki- færi skógi sínum nafn; Hálsaskóg. Dóttursonur þeirra, Egill Ant- onsson átti hugmyndina að nafninu og systir hans, Elfa valdi stafa- gerðin sem prýða trjábolinn með nafni skógarins. Gunnhildur Ing- ólfsdóttir á Jódísarstöðum skar stafina í trjábolinn. Gróðursetning hófst á Glæsibæ haustið 1991 og hafa þau hjón því gróðursett á milli 40 og 50 þúsund plöntur árlega. Að langmestu leyti hafa þau verið við þetta tvö, að sögn Davíðs, en einnig notið að- stoðar Huldu dóttur sinnar og Eg- ils, sonar hennar. Þetta er enn sem komið er langumfangsmesta skóg- rækt einstaklinga á Norðurlandi. Davíð og Sigríður eru þátttak- endur í Norðurlandsskógaverkefn- inu sem stofnað var árið 2000 en áður tóku þau þátt í nytjaskógrækt á bújörðum sem var verkefni á vegum skógræktar ríkisins. Valgerður Jónsdóttir fram- kvæmdastjóri Norðurlandsskóga sagði framtak þeirra Davíðs og Sigríðar lofsvert og til mikillar fyrirmyndar. Margir hefði ekki haft trú á verkefninu fyrir röskum tíu árum, en nú gætu menn séð ár- angurin; stóran og mikinn skóg. „Þetta verður afar glæsilegt eftir önnur tíu ár þegar við komum sam- an til að gróðursetja milljónustu plöntuna í Hálsaskóg,“ sagði Val- gerður. Norðurlandsskógar eru lands- hlutabundið skógræktarverkefni sem hefur þann megintilgang að stuðla að skóg- og skjólbeltarækt á Norðurlandi. Norðurlandsskógar hafa reynst vera mjög öflugt byggðaverkefni sem skapar auk þess nýja auðlind og eflir atvinnu- líf í framtíðinni. Starfssvæði Norð- urlandsskóga nær frá Hrútafirði austur á Langanes. Um 90 bændur á svæðinu stunda nú skógrækt og um 40 bændur skjólbeltarækt á vegum Norður- landsskóga. Fjárveitingar til verk- efnisins hafa ekki verið samkvæmt áætlun, segir í frétt frá Norður- landsskógum, en áhugi á verkefn- inu er gríðarlega mikill. Nú eru um 100 jarðir á biðlista og verður ekki unnt að taka þær inn í verkefnið fáist ekki til þess aukið fjármagn. Hjónin í Glæsibæ í Hörgárbyggð Gróðursettu 500 þúsundustu plöntuna Morgunblaðið/Margrét Þóra Hjónin Sigríður Manasesdóttir og Davíð Guðmundsson gróðursettu 500.000. plöntuna á jörð sinni, Glæsibæ í Hörgárbyggð, fyrir helgina. SÍÐASTA vika Listasumars að þessu sinni er runnin upp en dagskránni lýkur á menningarnótt laugardaginn 31. ágúst. Þessa dagana stendur yfir myndlistarsýning Benedikts S. La- fleur í Deiglunni og í Ketilhúsinu standa yfir þrjá sýningar. Ilana Hal- perin og Adam Putnam sýna í aðalsal, Rannveig Helgadóttir á svölum og Hrefna Harðardóttir í litla sal á jarð- hæð. Sýningarnar eru opnar til kl. 22 á menningarnótt. Á laugardag verður kökusýning Bródaríklúbbsins í Ketilhúsinu til kl. 17 en þá verður gestum boðið að bragða á sýningunni. Margmiðlunar- sýning verður í Ketilhúsinu allan dag- inn. Ljósmyndasýning verður í Bögglageymslunni í Listagili – Gilið í gamla daga. Aðalheiður S. Eysteins- dóttir verður með opna vinnustofu. Hátíðartónleikar verða í Akureyr- arkirkju kl. 17 á laugardag, þar sem fram koma bæjarlistamennirnir Ósk- ar Pétursson tenór og Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari. Brandur verður á Café Karólínu kl. 15.30, 19.30 og 22.30 og með nýja dagskrá í hvert skipti. Kristján Pétur og Sigurður Jónsson verða á Restaurant Karólínu kl. 21.30 með ljóð og lög um sólskinið. Dans og trumbur í Listasafninu kl. 20.30 og 21.30, með Önnu Richards dansara og Stínu bongó. Dagskrá Listasumars SKOTFÉLAG Akureyrar vígði nýjan leirdúfuvöll á félagssvæði sínu á Glerárdal um síðustu helgi. Það voru bæjarfulltrúarnir Jakob Björnsson og Sigrún Björk Jak- obsdóttir sem vígðu völlinn með því að hleypa af fyrstu skotunum. Að sögn Guðmundar Brynjarsson- ar formanns Skotfélagsins er nýi völlurinn sambærilegur velli sem félagið á þarna fyrir og hann mun breyta miklu í starfinu. „Nú verður hægt að hafa byrj- endur á sérstökum velli, auk þess sem hægt verður að halda mót, sem alla jafna standa yfir allan daginn, á mun styttri tíma.“ Skot- félag Akureyrar og íþrótta- og tómstundaráð gerðu með sér samning árið 1999 um uppbygg- ingu á svæðinu á fimm ára tíma- bili. Guðmundur sagði að nýi leir- dúfuvöllurinn væri stærsti áfanginn á þessu tímabili, sem nú er hálfnað. Mjög mikil uppsveifla hefur ver- ið í starfi félagsins í sumar og hef- ur félagið átt allt að sex keppendur á flestum mótum Skotsambands Íslands á liðnu keppnistímabili og átt menn í efstu sætum oftar en einu sinni. Þá hefur notkun riff- ilvallarins færst mjög í aukana. Guðmundur sagði að næsta verk- efni væri að byggja skotskýli við enda riffilbrautarinnar og reisa ör- yggisvegg við enda hennar og er þegar byrjað að leggja drög að þeim framkvæmdum. Í tilefni vígslu nýja leirdúfuvall- arins var bæjarkeppni milli Ak- ureyrar og Reykjavíkur í leirdúfu- skotfimi endurvakin en hún hefur legið niðri í nokkur ár. Þar fóru Akureyringar með sigur af hólmi, hlutu 539 stig á móti 532 stigum gestanna. Að sögn Guðmundar var þetta fyrsti sigur Akureyringa í bæjarkeppninni. Nýr leirdúfuvöllur vígður Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Jakob Björnsson, formaður bæjarráðs, mundar haglabyssuna. ELÍN Antonsdóttir jafnréttis- fulltrúi Akureyrarbæjar sagði ým- islegt bæði jákvætt og neikvætt í niðurstöðum könnunar um laun æðstu stjórnenda bæjarins, sem unnin var af Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri. „Mín von er einfaldlega sú að við gleðjumst yfir því sem jákvætt er en að við göngum í það eins og hvert annað verkefni að laga það sem miður er.“ Könnunin náði til 27 einstak- linga, 19 karla og 8 kvenna, sviðs- stjóra og deildar- og verkefnis- stjóra. Fram kemur í könnuninni að töluverður launamunur er á milli kynja, konum í óhag, hjá deildar- og verkefnisstjórum en ekki er teljandi launamunur meðal sviðsstjóra. Elín sagði það jákvætt að sviðsstjórar hjá bænum skyldu vera á sömu launum en hins vegar væri það mjög neikvætt að launa- munurinn skyldi vera svona mikill á milli deildar- og verkefnisstjóra. Þá væri það líka neikvætt að að- eins átta konur skyldu vera í þessu 27 manna úrtaki. „Við erum heldur ekki alveg í takt við tímann, því miðað við aukinn fjölda kvenna með æðri menntun er hlutfall þeirra ekki hærra meðal æðstu embættismanna.“ Elín sagði að eftir væri að kynna könnunina í bæjarráði og hún vildi því ekki tjá sig frekar um niðurstöðurnar að svo stöddu. Launakönnun Akureyrarbæjar Margt bæði já- kvætt og neikvætt MIKILL fjöldi erlendra ferðamanna hefur sótt Ísland heim í sumar líkt og undanfarin ár. Flestir koma þeir flug- leiðina til landsins, fjöl- margir koma sjóleiðina til Seyðisfjarðar með Norrænu og enn aðrir með skemmtiferðaskip- um eða bara á eigin vegum. Þessi enska skúta, Kerry Piper, kom við í Ólafsfjarð- arhöfn á dögunum á leið sinni kringum landið. Á skútu kringum landið Morgunblaðið/Helgi Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.