Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ SAMHLIÐA Kraftakeppninni Aust- fjarðatröll sem haldin var á Breið- dalsvík á dögunum var slegið upp grillveislu og hlaðborði á Hótel Blá- felli á Breiðdalsvík. Þangað fjöl- menntu Breiðdælir og nær- sveitamenn til að gæða sér á grilluðu lambaketi, pylsum fyrir ungdóminn, kjúklingum og taí- lenskum svínapottrétti. Kristín Ár- sælsdóttir hótelhaldari á Bláfelli hafði veg og vanda af þessari veislu en hún rekur Hótel Bláfell ásamt manni sínum, Njáli Torfasyni. Að loknu borðhaldi var varðeldur með söng við Ellabryggju, síðan var stiginn dans við undirleik hljóm- sveitarinnar Rándýru rónanna í tjaldi sem reist var í tilefni dagsins. Hótel Bláfell, Breiðdalsvík Morgunblaðið/Sig. Aðalsteinsson Steinar Þór Þorleifsson, kokkur á Hótel Bláfelli, tók sig vel út við grillið þar sem hann grillaði að sjálfsögðu lambakjöt. Grillveisla með krafta- jötnum Norður-Héraði. Morgunblaðið. SINGAPORE Sling hófst sem ein- herjaverkefni Henriks nokkurs Björnssonar fyrir tveimur árum. Piltur tók þá upp nokkur lög á fjög- urra rása upptökutæki, studdur trommuheila og rafgítar. Tónlistin einfalt og grípandi rokk og ról, og það nýbylgjukyns. Lögin voru gefin út í takmörkuðu upplagi sem platan Overdriver, heimabrenndir diskar sem eru líkast til virði þyngdar sinn- ar í gulli í dag. Henrik lét ekki þar við sitja heldur hóf að klambra saman bandi í kring- um þessar tónsmíðar sínar. Meðlimir komu og fóru og mannabreytingar voru tíðar framan af. Loks fór þó skipan sveitarinnar að treystast og hefur hún nú starfað óbreytt í u.þ.b. ár. Það er sú sveit sem á heiðurinn af breiðskífunni The Curse of Singa- pore Sling sem út kom fyrir stuttu þar sem nútíma hljóðverstækni var nýtt til hins ýtrasta. Blaðamaður var boðinn velkominn á heimili Togga bassaleikara og þar var Henrik fyrir. Við settumst inn í stofu, nutum veitinga og hófum spjall. Undir álögum „Jú, þetta var fyrir svona tveimur árum,“ samsinnir Henrik og fer að rifja upp fyrstu æfingarnar með bandinu. Toggi segir síðan frá því að útsendarar Eddu hafi mætt á tón- leika sveitarinnar, og þeir (Sling- menn) hafi þá notað tækifærið og stungið að þeim prufueintökum með tónlistinni. Upptökur á plötunni hóf- ust svo stuttu eftir það og gengu hlutirnir langt í frá vandræðalaust fyrir sig, eins og reyndar kemur fram í titli plötunnar. Upptökugræj- ur hafi t.a.m. skemmst strax á fyrsta degi. „En spilamennskan var samt óað- finnanleg frá upphafi,“ skýtur Toggi að. „Þetta voru allt saman tæknilegir örðugleikar.“ Undir áhrifum Blaðamaður ber nú undir piltana ákveðna gagnrýni sem hann hefur heyrt utan að sér. Að áhrifavaldar sveitarinnar (Jesus & Mary Chain þá helst) séu óþarflega sterkir. Ekki stendur á svörum frá piltunum. „Mér finnst áhrifavaldarnir ekki óþarflega sterkir,“ ansar Henrik. „Það eru auðvitað áhrifavaldar sem valda því að maður byrjar að semja tónlist.“ „Hvað „fílar“ maður í rokki?“ segir Toggi. „Hvað er vægðarlaust, „cool“ rokk? Það er bara Stooges, MC5 og Ramones.“ Toggi heldur áfram. „Hér er lagt upp með að gera „kick ass rock’n- ’roll“. Og ef það minnir á annað „kick ass rock’n’roll“ er það bara af hinu góða. Ekki satt? Nei ég meina, ef við minnum á önnur „cool“ bönd en ekki leiðinleg bönd er það auðvitað frá- bært. Það var t.d. talað um Jesus and Mary Chain í dómnum sem birtist í Morgunblaðinu og það er ekki leið- um að líkjast.“ Þeir félagar segjast líka leiðir á hljómsveitum sem láta í veðri vaka að þær séu ekki undir áhrifum frá neinum. „Ætli við gætum þá ekki sagt að okkar megináhrifavaldur sé þjóðveg- ur 1. Og við viljum að það komi skýrt fram að við höfum aldrei heyrt í Stoo- ges eða Jesus and Mary Chain.“ Um framtíðaráformin hafa þeir þetta að segja: „Kannski spila á einum, tvennum tónleikum fyrir jól. Og passa okkur á að týna ekki fleiri snúrum.“ Singapore Sling í svarthvítu. Óhræddir við áhrifin Í Singapore Sling eru rokktöffarar af guðs náð. Arnar Eggert Thoroddsen hitti tvo þeirra, þáði veitingar og rakti úr þeim garnirnar um leið. Singapore Sling gefa út The Curse of Singapore Sling arnart@mbl.is Þessi útgáfa má teljast hálfgerð stuttskífa því þótt á diskinum séu 15 lög, eða kannski réttara sagt tónstúfar, er lengdin ekki nema um hálftími. Lögin eru með öllu nafn- laus og fátt sem gefur til kynna hverjir standa að baki smíðinni en þeir Atli Bollason og Leó Stefánsson eru ungir raftónlistar- drengir á tilraunasviðinu, sem ætla að fylgja þessu sumarfram- taki sínu eftir með fleiri dæmum af því sem þeir eru að sjóða sam- an. Hér ægir öllu saman, danstón- list, teknó, hávaðasúpu og braki, sófatónlist, ambientþreifingum á hljómborðinu og klassískum sprettum, allt sett niður án mik- illar yfirlegu eða vinnu við hljóm. Þetta eru meira dæmi um lög frek- ar en fullmótaðar hugmyndir og virkar eins og einhver sé að renna sleðanum á útvarpinu og rétt stoppi við á öllum stöðvum. Í upphafi er hávaðarispum blandað saman við hina ljúfu rödd útvarpskonunnar Unu Margrétar Jónsdóttur, lag fimm er skemmti- lega hallærislegt (og á örugglega að vera það) dans/diskóstemma með grípandi laglínu og væmnum fiðlusveipum, og maður leggur við hlustir þegar grófar hljóðlínurnar í lagi númer tíu heyrast. Tilrauna- mennskan er e.t.v. ekki mjög rót- tæk, tánum rétt dýft í, en margt hljómar áheyrilegt og taktvisst. Það sem stendur eftir er sam- setningin. Ekki einhver einn ein- stakur lagbútur eða lag, heldur hvernig ólíkir tónlistarbútar fá að standa hlið við hlið og taka lit hver af öðrum. Þetta forðar diskinum frá leiðindum og gefur honum skemmtilegan og óheflaðan „klippt og límt“-svip. Nokkuð áhugavert efni og verð- ur gaman að sjá hvernig Undra- landsdrengirnir eiga eftir að vinna úr pælingum sínum. Tónlist Klippt og límt Atli og Leó Atli og Leó í Undralandi Eigin útgáfa Stuttskífa sem inniheldur 15 lög. Lögin er samin og flutt af Atla Bollasyni og Leó Stefánssyni. Hljómdiskurinn er um 30 mínútur að lengd. Steinunn Haraldsdóttir Frelsið í haldi (Liberty Stands Still) Spennudrama Kanada/Þýskaland, 2002. Myndform VHS. (92 mín). Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn og handrit: Kari Skogland. Að- alhlutverk: Linda Fiorentino, Wesley Snipes, Oliver Platt. Í ÞESSARI metnaðarfullu kvik- mynd Kari Skogland er deilt á byssulöggjöfina í Bandaríkjunum, í einfaldri og átakaþrunginni spennufrásögn. Liberty Wallace (Linda Fiorentino) er stöðvuð í miðjum almenningsgarði af hryðju- verkamanni (Wesley Snipes) sem komið hefur fyrir sprengju í nær- liggjandi pylsuvagni. Liberty fær símtal þess efnis að hreyfa sig ekki frá pylsuvagninum ellegar springi hverfið í loft upp. Þegar á líð- ur kemur í ljós að hryðjuverka- maðurinn á harma að hefna við eiginmann Liberty (Oliver Platt), sem er einn stærsti vopnaframleiðandi Bandaríkjanna. Ógnar hann Wallace-hjónunum þannig með þeirra eigin framleiðslu í þeim tilgangi að vekja athygli á þeirri ógn sem almenn vopnaeign veldur. Saga um heilaga reiði, hefnd og vanmátt sem sett er fram á sterk- an hátt í þessari myrku og óvenju- legu spennumynd.  Heiða Jóhannsdóttir Myndbönd Reiði og vanmáttur Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Vit 418  SK Radíó X DV MBL Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is 1/2 MBL ÓHT Rás 2  SV Mbl  SG. DV Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 426 Sýnd kl. 6, 8, 9 og 10. Vit 422 Sýnd kl. 5 og 7. Bi. 14. Vit 417 Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða.  Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 8 og 10.20. B. i. 16.  DV  SG. DV  HL. MBL Sýnd kl. 6. Með ísl. tali. Sýnd kl. 10. B.i. 16. Kvikmyndir.is DV Sýnd kl. 6. Með ísl. tali. 1/2 SV Mbl 1/2 Kvikmyndir.is 27 þúsund áhorfendur Sýnd kl. 8 og 10.05. Hvað myndir þú gera ef þú gætir stöðvað tímann? Sýnd kl. 6 og 8. DV Mbl RadíóX ÓHT Rás 2  Kvikmyndir.com  Kvikmyndir.is  SV Mbl Rómantísk gamanmynd úr raunveruleikanum sem fjallar um íslenskan mann, Jón Gnarr, sem verður ástfangin af Kíverskri stúlku. Frá sömu aðilum og gerðu Íslenska drauminn.  Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is 1/2 MBL  SK Radíó X  ÓHT Rás2 Sjáið myndina í frábæru nýju hljóðkerfi Háskólabíós Sýnd kl. 5.30, 8 og 10. B. i. 12. Sýnd kl. 6, 8 og 10.30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.