Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 33
pabba sínum, þá sagði hann: „Ég
ætla að fara að tala við John.“ Og
varð það samtal oft nokkuð langt.
Síðustu ár hefur fundum okkar
John ekki borið eins oft saman og ég
hefði óskað, en samband okkar var
þannig að þegar við hittumst, þá virt-
ist ekki hafa liðið nema örstutt stund
frá síðustu fundum. Síðast er við
John hittumst tók hann af mér loforð
um að koma í heimsókn. Því miður
auðnaðist mér ekki að efna þetta lof-
orð að sinni, en það verður efnt á öðr-
um vettvangi. Og er gott að eiga góða
að í þeirri vist sem okkar allra bíður.
Það er í raun merkilegt að hafa
skrifað svo mikið mál um John Aik-
man og vera ekki búinn að minnast á
hans heittelskuðu konu, Þórdísi.
Samband þeirra var svo náið að til
fyrirmyndar var. Í mínum huga eru
þau eiginlega óaðskiljanleg, þau voru
eitt. Þau hjónin áttu þrjú börn, Inger,
Harald og Skorra, sem hvert foreldri
væri stolt af að eiga. Í þeim kemur
fram þessi blanda hans John, og hlýja
og góðmennska Þórdísar. Missir Þór-
dísar og barnanna og afabarnanna er
mikill, en þau skörð sem eru brotin í
ættar-garðinn, fyllast af minningum,
og minningar um John Aikman eru
góðar minningar. „Orðstír deyr aldr-
egi, hveim er sér góðan getur.“ Þessi
fornu norrænu orð eiga aldrei betur
við en um John, hans minning mun
lifa. Kæra Þórdís, Inger, Halli,
Skorri og fjölskyldur, við fjölskyldan
sendum ykkar okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Guð geymi ykkur
og John.
Garðar Jóhann.
Maðurinn með ljáinn er búinn að
vera að glíma við John Aikman í ell-
efu mánuði. Ég hitti John fyrir um
sjö vikum á Reykjalundi. Hann
dvaldi þar sér til hressingar vegna
meins í raddböndum og vegna
krabbameins. Hann var að hressast
mikið og ráðgerði ferðalag til Skot-
lands. Síðar frétti ég að hann væri
kominn á Landspítalann. Þegar ég
skaust til hans kvaðst hann vera í
góðu lagi, það ætti að setja í hann
hjartagangráð, svona eins og til þess
að láta hjartað ganga „réttan snún-
ing.“ Ég kynntist John fyrir tuttugu
og fimm árum og tókst þá með okkur
einlæg vinátta. Hann var mikill
herramaður og trúnaðarvinur minn í
blíðu og stríðu, og ég sakna hans sárt.
Hann hafði næma tilfinningu fyrir
hlutunum, ávallt reiðubúinn til hjálp-
ar. Hann var alvörumaður og ekki
snobbaður. Maðurinn kom vel fyrir,
afar þægilegur, myndarlegur og
heiðarlegur.
Fundum okkar bar fyrst saman í
Tryggvagötu á skrifstofu hans þar
sem hann og Stefán Jóhannsson
deildu aðstöðu ásamt fleirum, eink-
um vegna telextækis sem þar var.
John var jákvæður gagnvart öllum
tækniframförum, fyrsta tölvan sem
ég sá að tók við af ritvélinni var hjá
John. Hann var mjög laginn í við-
skiptalífinu, listamaður fram í fing-
urgóma í þeim efnum. „Alltaf að
svara bréfum strax, það er kurteisi,“
sagði hann. Viðskipti Íslendinga við
aðrar þjóðir fannst honum rétt að
færu fram á þriðja tungumálinu.
John sagði mér oft frá ferðalögum
með afa sínum til Skotlands og Dan-
merkur.
Honum þótti vænt um Skotland og
eyddi þar síðustu ævidögum sínum
með fjölskyldu sinni. Fjölskyldan var
honum dýrmætust af öllu, Þórdís,
börnin og barnabörnin. Hann var
sannur fölskyldumaður. Góður bíltúr
í Skorradal með fjölskyldunni veitti
honum mikla ánægju.
Ég á góðar minningar um frítíma
okkar, veiðar og ferðir til framandi
landa, siglingar um Karíbahafið. Oft
urðum við samferða í veiðiferðum í
Grímsá og Víðidalsá ásamt fleiri snill-
ingum svo sem Magnúsi Torfasyni.
John var ekki veiðisár heldur gefinn
fyrir félagsskapinn. Aðalfélaginn var
samt alltaf Þórdís.
Ég sakna Johns, hann var mér sem
besti faðir. Ég gleymi honum ekki og
kannski hittumst við annars staðar
næst.
Ég samhryggist Þórdísi og fjöl-
skyldu hennar og votta þeim dýpstu
samúð og óska þeim farsældar. Megi
himnafaðirinn styðja þau í sorginni.
Ragnar Guðmundsson.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 33
Þegar til grafar er
borin ástkær mág-
kona leita á hugann
fjölmargar minningar
um káta og glaðværa
konu. Ég kynntist Búddu fyrir um
15 árum er við mægðumst. Fljótt
skynjaði ég að þarna fór kona sem
lét glaðværðina vera fyrir í sam-
skiptum við fólk. Þegar kynni okk-
ar urðu meiri kom í ljós traust
kona sem hægt var að leita til ef
þess þyrfti. Þær eru margar minn-
ingarnar um Búddu og ekki hægt
að setja þær allar á blað. Þó er ein
ofarlega í huga er ég var að kynn-
ast fjölskyldu hennar. Þær systur
og Búdda ásamt fleirum sátu sam-
an og hún fór að spauga á tvíræð-
an hátt. Varð ég orðlaus og lét mig
hverfa. Ég hafði aldrei heyrt konu
gera þetta áður. Að þessu hefur
oft verið hlegið en svona var
Búdda og hygg ég að margir muni
hana þannig. Glaðværa og ávallt
stutt í húmorinn og hláturinn.
Búdda var elst sex alsystkina
auk hálfsystur sammæðra. Það var
stórt skarð höggvið í þessa fjöl-
skyldu árið 1974 þegar móðir
þeirra lést eftir erfið veikindi. Þá
voru erfiðir tímar og reyndust
Búdda og Frissi konu minni vel
sem þá var aðeins 14 ára gömul. Á
milli þeirra systra hefur síðan ver-
ið mjög náið samband og er sökn-
uður að heyra ekki oftar „Halló“
kallað inn ganginn þegar hún var
að koma. Og síðan í framhaldinu
heyra: „Æi greyið áttu ekki mola-
sykur með kaffinu?“ Aftur varð
áfall í fjölskyldunni þegar Björg-
vin bróðir þeirra lést (1990). Þá
var samheldni systranna allra
þeirra styrkur á erfiðri stundu. Nú
þegar Búdda hefur lotið fyrir
manninum með ljáinn er stórt
skarð höggvið í fjölskylduna í
Bleiksárhlíð 15. Þar var hún mið-
punkturinn. Mikil húsmóðir með
mat í hádeginu og á kvöldin, auk
þess sem snyrtimennskan skein af
öllu heimilinu. Hún var líka ein-
stök blómakona og blómin hennar
stór og óvenjulega falleg svo eftir
var tekið. Fyrir stórhátíðir var
GUÐRÚN BJÖRG
EIRÍKSDÓTTIR
✝ Guðrún Björg Ei-ríksdóttir
(Búdda) fæddist á
Eskifirði 24. ágúst
1949. Hún lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu í Neskaupstað
13. ágúst síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Eskifjarðar-
kirkju 24. ágúst.
Búdda virkilega í ess-
inu sínu! Byrjuð löngu
fyrir jól að skipu-
leggja og græja allt.
Baksturinn og skreyt-
ingarnar voru miklar
og gerði hún allt til að
jólin yrðu sem hátíð-
legust. Söknuðurinn á
eftir góðum vini er
sár, en þó kalla minn-
ingarnar um hana
ósjálfrátt fram bros-
viprur því flestar
þeirra eru tengdar
gleði og kátínu.
Í baráttunni sem
hún háði síðustu mánuðina stóð
Frissi við hlið hennar og studdi
sem mannlegum þrótti er unnt.
Þegar leið að vormánuðum sl. vildi
Búdda að Frissi færi að róa og
drifi sig vestur. Það var ekkert
hægt að vera bara heima, yrði að
vinna eitthvað. Þannig hugsaði
hún. Þótt söknuður allra sem
Búddu þekktu sé sár er þó sár-
astur söknuður eiginmanns, barna
og barnabarna. Elsku Friðrik,
Þórunn Sif, Eiríkur Óli, Oddný
Svana, Friðrik Karl, Rósmundur
Örn og Guðrún Arna. Megi góður
Guð styrkja ykkur og minningin
um góða eiginkonu, móður og
ömmu ylja hjörtu ykkar um
ókomna framtíð.
Þó missi ég heyrn og mál og róm
og máttinn ég þverra finni,
þá sofna ég hinst við dauðadóm,
ó, Drottinn, gef sálu minni
að vakna við söngsins helga hljóm
í himneskri kirkju þinni.
(Ólína Andrésdóttir.)
Jesú sagði: „Ég lifi og þér mun-
uð lifa.“
Einar Birgir.
Kæra tengdaamma,
nú þegar þú hefur
fengið hina langþráðu
hvíld finnst okkur rétt
að skrifa þér nokkur
þakkarorð.
Nú þegar þú hefur
kvatt okkur og fjölskyldur okkar
myndast ákveðið tóm í tilveru okkar
þegar heimsóknir okkar í Munka-
þverárstræti á Akureyri leggjast af.
Þær heimsóknir okkar munu lifa í
minningunni sem hafsjór af fróðleik
um maka okkar í æsku og á uppvaxt-
arárum þeirra fyrir okkar kynni af
þeim.
Lá þar skýrt fyrir væntumþykja
þín og vökul umhyggja fyrir barna-
börnum og barnabarnabörnum í
GUNNHILDUR ANNA
VALDIMARSDÓTTIR
✝ GunnhildurAnna Valdimars-
dóttir fæddist á Ísa-
firði 27. september
1907. Hún lést 25.
maí síðastliðinn og
var jarðsett í kyrr-
þey á Mosfelli 3. júní
síðastliðinn.
spjalli okkar við þig.
Ætíð var gaman að
fletta með þér mynda-
albúmum liðinna tíma,
sem þú gast alltaf frætt
okkur um fram á síð-
ustu stundu samvistar
okkar.
Unaður var að fá að
sjá listmuni þína sem
þú gerðir á árum áður
og einnig í seinni tíð,
þar sem alltaf mátti sjá
hið fína vinnuhand-
bragð.
Það var gaman að
koma inn í stássstofu
þína á heimili þínu og sjá alla þína
fögru muni sem báru vott um fágað
yfirbragð og listræna hæfileika.
Með þessum orðum langar okkur
að þakka þér fyrir alla þá hlýju sem
þú sýndir okkur, tengdaömmubörn-
um þínum. Megi guð geyma þig að
eilífu.
Guðrún Hauksdóttir,
Kristjana Ólöf
Sigurðardóttir,
Einar Björn Magnússon.
*
191..-: 7';;%&'34
! +-' '
. *! +/' ' #0'--
1)
/($"'# * /(&
*
.< = '%
+ #
2 +3' '
4
$" %%(
( $" %%(
- $" %%(
$" %
-' $" %
$" %%(
*% $" %%(
$" %%(
' " "
( "
5
1>.
<
!2=!.. *+ ?@
-"#
! 2" 2 $
+0' '
6 2! ,#' ' #7'--'
8 9
!! 1!
+' :$
' #7'--'
;
!
% '
/ 'A'% - / %%(
B%A'%%(
A'%%(
A'% !%+ %%(
6 A'% $ ' %%(
& A'%
%%(
"" ( ""
*
7 7.1 -' ,$ 8?
7 ; &(
& : 2 $
+0' '
4 *%* #%
#%%( 1 * 1C%
-" D' E +
# %%( '%'
7 %%(
" (
5
!-
$ ,(8@
! % ! $
,-' ' #7'--'
* ' ' +%
! #
%%( 1 6%
2 #'
% - '%! #%%(
= '
, %
&'
% ) EB%%(
, 7
%%( )%6 %
" ( "
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.