Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 25
aukast, þ.e. hlutfallið milli greiðandi sjóðfélaga og lífeyrisþega breytist, þeim síðarnefndu fer hratt fjölgandi og þar með þurfa sjóðirnir í vaxandi mæli að losa fé sem bundið er í verð- bréfum af ýmsum toga. Það væri af- ar hættulegt okkar litla og viðkvæma efnahagskerfi ef fé sjóðanna væri eingöngu eða nær eingöngu bundið í innlendum pappírum, því á tiltölu- lega skömmum tíma þurfa allir sjóð- irnir að losa verulegt fé. Kæmi það fé eingöngu frá sölu innlendra verð- bréfa, gæti orðið mikið verðfall hér innanlands á öllum þeim tegundum verðbréfa, sem sjóðirnir ættu, auk annarrar röskunar sem af þessu gæti leitt. Ef sjóðirnir ættu aftur á móti á þeim tíma umtalsvert fjármagn í er- lendum pappírum, sem þeir gætu selt, yrðu innlendu áhrifin allt önnur. Um þetta má hafa meira og lengra mál, en þetta látið nægja að sinni. Hinsvegar er ástæða til að óska eftir því að með þennan mikilvæga þátt efnahagslífsins og afkomu almenn- ings fari menn orðum án þess að beita sleggjudómum og hæpnum fullyrðingum. Of mikið er í húfi til taka ákvarðanir í fljótræði. Höfundur er í stjórn Samvinnulífeyrissjóðsins. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 25 SÍÐASTLIÐIN þrjú ár hefur Stúdentaráð Háskóla Íslands gert þjónustusamninga við Háskólann. Um er að ræða þrjá samninga, í fyrsta lagi samning vegna þjónustu við nemendafélög og erlenda stúd- enta, í öðru lagi samning vegna rekstrar miðlana stúdentaráðs (hús- næðismiðlun, kennslumiðlun, barna- gæslumiðlun og tungumálamiðlun) og í þriðja lagi samning um rekstur réttindaskrifstofu stúdentaráðs. Samningar þessir hafa tryggt SHÍ nægilegt fjármagn til að standa und- ir rekstri sínum og reka öfluga rétt- indabaráttu í nafni stúdenta. Lítið að gerast Í gegnum árin hefur mikill styr staðið um samninginn um réttinda- skrifstofu og hafa meðlimir Vöku, núverandi meirihluta, oftar en ekki verið yfirlýsingaglaðir í þeim efnum. Of langt mál væri að rekja hér þann ágreining sem verið hefur milli fylk- inganna um samninginn en Vökulið- ar hafa æ ofan í æ lýst því yfir að það yrði þeirra fyrsta verk, næðu þeir meirihluta í stúdentaráði, að segja upp umræddum samningi. Vaka tryggði sér meirihluta í stúd- entaráði í kosningunum í febrúar sl. og tók við stjórn ráðsins um miðjan mars. Þrátt fyrir það er fyrst nú, þegar starfsárið er nær hálfnað, kominn einhver skriður á málið, þó ekki meiri en svo að á fundi stúd- entaráðs 14. ágúst sl. fóru formaður og framkvæmdastjóri SHÍ einungis fram á umboð til að hefja viðræður við háskólayfirvöld um samningana. Miklar umræður fóru fram um málið og viðruðu Vökuliðar þær hugmynd- ir sem þeir hafa í þessum efnum. Ég hyggst láta Vökuliðum eftir að op- inbera hugmyndir sínar varðandi þessar breytingar en vil þó upplýsa stúdenta um það að núverandi meiri- hluti stúdentaráðs hyggst ekki leita eftir endurnýjun á samningnum um réttindaskrifstofuna, sem þó hefur tryggt ráðinu tæpar 3 milljónir á ári til rekstrarins. Jafnframt er áætlað að gera töluverðar breytingar á samningnum um miðlanir ráðsins, sem hefur verið ein mest notaða þjónusta skrifstofunnar í áraraðir. Fjárhagsleg staða Röskva hefur ætíð talið gerð þjón- ustusamninganna vera farsæla leið til að tryggja rekstrargrundvöll stúdentaráðs. Það hefur ótvírætt sýnt sig að gagnrýnisraddir um skert sjálfstæði ráðsins vegna tengsla við HÍ eiga ekki við rök að styðjast. Undir forystu Röskvu var stúdentaráð öflugur og sýnilegur þjónustu- og hagsmunaaðili stúd- enta við Háskóla Íslands. Fjárhags- legur rekstur skrifstofunnar var ávallt tryggður og gátu starfsmenn hennar því snúið sér heilshugar að þjónustu við stúdenta og því að sinna hagsmunabaráttu þeirra. En nú lítur út fyrir að núverandi meirihluti ráðs- ins sé búinn að missa sjónar á þess- um tveimur grundvallarmarkmiðum stúdentaráðs. Það er ábyrgðarleysi að segja upp samningi sem tryggt hefur rekstur réttindaskrifstofu SHÍ án þess að hafa sett fram aðrar raun- hæfar fjáröflunarleiðir sem tryggja reksturinn. Fjárhagsleg staða stúdentaráðs í hættu Kolbrún Benediktsdóttir HÍ Fulltrúar Röskvu, segir Kolbrún Benedikts- dóttir, hafa áhyggjur af ótryggri fjárhags- stöðu stúdentaráðs. Höfundur er oddviti Röskvu í stúdentaráði HÍ. Toppárangur með þakrennukerfi þakrennukerfi Fagm enns ka í fyrir rúmi BLIKKÁS EHF. SKEMMUVEGUR 36 200 KÓPAVOGUR SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111 Söluaðilar um land allt ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S TO Y 18 31 3 07 /2 00 2 ÉG ER Í GÓÐU SAMBANDI Fyrsti smábíllinn með handfrjálsan búnað að staðalbúnaði. ÉG ER YARIS MOBILE - NÁÐU MÉR NÚNA! Ég er fáanlegur í takmarkaðan tíma með handfrjálsum búnaði, 14" álfelgum, vindskeið að aftan og skyggðum rúðum sem staðalbúnað. Ég er alltaf í sambandi, alltaf hreyfanlegur og kosta frá aðeins 1.129.000 kr. sem er sama verð og þegar ég er venjulegur. www.toyota.is Handfrjáls búnaður Álfelgur Vindskeið Skyggðar rúður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.