Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ KEPPNI Suðurlandsmótsins var nú eins og oft áður mjög spennandi. Hestar eru í mjög góðu formi nú þeg- ar sumri hallar og ekkert lát á hinum mikla keppnisáhuga. Mótið nú er góð sönnun þess að flokkaskiptingin er að komast í mjög gott jafnvægi og má ætla að með viðeigandi átaki eða áróðri megi efla mjög þátttöku í öðr- um flokki. Í framhaldinu verður svo væntanlega hægt að bjóða upp á létt- ari verkefni til að auka enn breidd- ina. Enn berjast Sigurður og Daníel Í meistaraflokki voru þeir Sigurð- ur Sigurðarson og hinn ungi Daníel Ingi Smárason að berjast um sigur- sætin. Sá fyrrnefndi hafði töltið á hinni bráðmyndarlegu Hyllingu frá Kimbastöðum og gæðingaskeiðið á Fölva frá Hafsteinstöðum en Daníel sigraði á Tyson frá Búlandi í fjór- gangi og Vestfjörð frá Fremri- Hvestu í fimmgangi. Sigurbjörn Bárðarson fylgdi þeim fast á eftir varð annar í fjórgangi og þriðji í tölti á Hirti frá Hjarðarhaga, annar í fimmgangi á Byl frá Skáney og ann- ar í gæðingaskeiði á Neista frá Mið- ey. Sigurbjörn prófaði Núma Heldur gekk það betur hjá Sigur- birni í 1. flokki þar sem hann sigraði í töltinu á Núma frá Miðsitju en Sig- urður Sigurðarson sem keppt hefur oft á Núma varð þar annar á nýjum hesti, Hákoni frá Kjartansstöðum. Þá sigraði Sigurbjörn einnig í slak- Suðurlandsmótið á Gaddstaðaflötum við Hellu Keppnismenn og hestar í blússandi síðsumarsformi taumatöltinu á Húna frá Torfunesi. Þorvaldur Árni Þorvaldsson var atkvæðamikill í gangtegundagrein- unum og sigraði í bæði tölti og fjór- gangi en Logi Laxdal hafði gæðinga- skeiðið á Fiðringi frá Stóru-Ásgeirsá. Þá sigraði Sigur- björn í bæði 150 metra skeiði og 100 metra flugskeiði á Óðni frá Búðardal en í 150 metrunum var það hinn 26 vetra gamli Snarfari frá Kjalarlandi tryggði fóstra sínum sigurinn. End- ingin í þessum hesti er hreint með ólíkindum og væri verðugt að skrá sögu hans. Keppt var í tölti og fjórgangi í öðr- um flokki sem er sá flokkur sem þarf að efla og auka þátttöku í á næstu ár- um. María Dóra Þórarinsdóttir varð hlutskörpust í töltinu á Stubbi frá Morgunblaðið/Vakri Tindur og Karen, Eyjólfur og Kópur, Berglind og Seiður, Kristján og Hlökk, Sylvía og Hylling. Suðurlandsmótið var að venju umfangsmikið, þátttaka góð og keppt í öllum flokkum. Oft hafa þessi mót verið blaut en nú slapp þetta prýðilega fyrir horn og áttu hestamenn góða daga á Gadd- staðaflötum þar sem Valdimar Kristinsson kom við á sunnudag. Meistaraflokkur Tölt 1. Sigurður Sigurðars., Herði, á Hyllingu frá Kimbastöðum, 7,17/7,73 2. Daníel I. Smárason, Sörla, á Tyson frá Búlandi, 7,13/7,38 3. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Hirti frá Hjarðarhaga, 6,97/7,33 4. Páll B. Hólmarsson, Sleipni, á Röst frá Voðmúlastöðum, 6,93/7,31 5. Birna Káradóttir, Smára, á Kvika frá Egilsstaðakoti, 6,87/7,27 Fjórgangur 1. Daníel I. Smárason, Sörla, á Tyson frá Búlandi, 7,13/7,47 2. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Hirti frá Hjarðhaga, 6,73/7,21 3. Birna Káradóttir, Smára, á Kvika frá Egilsstaðakoti, 6,73/7,19 4. Hugrún Jóhannsdóttir, Sleipni, á Spretti frá Glóru, 6,67/7,09 5. Hinrik Sigurðsson, Sörla, á Tenor frá Smáratúni, 6,43/6,88 Fimmgangur 1. Daníel I. Smáras., Sörla, á Vestfjörð frá Fremri-Hvestu, 6,30/7,00 2. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Byl frá Skáney, 6,60/6,91 3. Magnús Jakobsson, Sleipni, á Skvettu frá Krækishólum, 6,37/6,83 4. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Gilla frá Keflavík, 5,73/6,47 5. Hallgrímur Birkisson, Geysi, á Djákna frá Grímsstöðum, 5,77/6,27 Gæðingaskeið 1. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Fölva frá Hafsteinstöðum, 8,85 2. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Neista frá Miðey, 8,32 3. Daníel I. Smárason, Sörla, á Brandi frá Hafsteinsstöðum, 7,79 4. Sigurður Sæmundsson, Geysi, á Esjari frá Holtsmúla, 7,58 5. Fjölnir Þorgeirsson, Andvara, á Lukkublesa frá Gýgjarhóli, 6,68 1. flokkur Tölt 1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Núma frá Miðsitju, 6,90/7,56 2. Sigurður Sigurðars., Herði, á Hákoni frá Kjartansstöðum, 6,97/7,37 3. Hulda Gústafsdóttir, Fáki, á Kólfi frá Stangarholti, 6,60/7,13 4. Logi Laxdal, Andvara, á Karki frá Syðstu-Fossum, 6,87/7,08 5. Þorvaldur Þorvaldss., Ljúfi, á Spaða frá Hafrafellstungu, 6,93/6,99 6. Janus Eiríksson, Ljúfi, á Tenór frá Víðidal, 6,43/6,96 Fjórgangur 1. Þorvaldur Þorvaldss., Ljúfi, á Spaða frá Hafrafellstungu, 6,57/7,03 2. Hulda Gústafsdóttir, Fáki, á Kólfi frá Stangarholti, 6,47/7,00 3. Hugrún Jóhannsdóttir, Sleipni, á Mósart frá Sigluvík, 6,60/6,92 4. Logi Laxdal, Andvara, á Karki frá Syðstu-Fossum, 6,27/6,81 5. Janus Eiríksson, Ljúfi, á Tenór frá Víðidal, 6,23/6,73 6. Páll B. Hólmarsson, Sleipni, á Röst frá Voðmúlastöðum, 6,47/6.68 Fimmgangur 1. Þorvaldur Á. Þorvaldsson, Ljúfi, á Þrá frá Kópareykjum, 6,23/6,81 2. Sigríður Pjetursdóttir, Sleipni, á Þyti frá Kálfhóli, 6,10/6,72 3. Logi Laxdal, Andvara, á Fiðringi frá Stóru-Ásgeirsá, 6,10/6,57 4. Páll B. Hólmarsson, Sleipni, á Darra frá Glóru, 6,57/6,56 5. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Dróma frá Bakka, 6,00/6,39 6. Haukur Tryggvason, Létti, á Eldjárni frá Efri-Rauðalæk, 5,43/6,36 Gæðingskeið 1. Logi Laxdal, Andvara, á Fiðringi frá Stóru-Ásgeirsá, 8,23 2. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Gilli frá Keflavík, 7,75 3. Haukur Tryggvason, Létti, á Eldjárni frá Efri-Rauðalæk, 6,57 4. Guðmundur Guðmundsson, Geysi, á Heru frá Halldórsstöðum Slaktaumatölt 1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Húna frá Torfunesi, 7,73/7,95 2. Sigurður Sæmundsson, Geysi, á Esjari frá Holtsmúla, 7,60/7,49 3. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Úlfi frá Hjaltastöðum, 6,93/7,48 4. Daníel I. Smárason, Sörla, á Vestfjörð frá Fremri-Hvestu, 6,87/7,42 5. Þórunn Eggertsdóttir, Fáki, á Kjóa frá Bjargshóli, 6,20/6,68 150 metra skeið 1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Snarfara frá Kjalarlandi, 14,40 sek. 2. Logi Laxdal, Andvara, á Stör frá Saltvík, 14,50 sek. 3. Magnús Benediktsson, Geysi, á Tangó frá Lambafelli, 14,70 sek. 4. Magnús Benediktsson, á Hörpu frá Kjarnholtum, 14,70 sek. 5. Þráinn Ragnarsson, Sindra, á Hrafnari frá Efri-Þverá, 14,80 sek. Úrslit á Suðurlandsmóti í hestaíþróttum 23. til 25. ágúst sl. Morgunblaðið/Vakri Karen Líndal Marteinsdóttir átti góða daga á Gadd- staðaflötum er hún sigraði í öllum greinum og þar á meðal í tölti og fjórgangi á Tindi frá Vallanesi. Látin er í hárri elli heiðurskonan Margrét Árnadóttir. Hún varð mér minnisstæð af ýmsum ástæðum, en ég kynntist henni á sjötta áratug síðustu aldar. Við Jakob heitinn Hallgrímsson, sonur hennar, vorum góðir vinir, og af þeim sökum kom ég alloft á heimili þeirra Margrétar og Hall- gríms Jakobssonar söngkennara. Þar voru menningarleg viðhorf í heiðri höfð. Ég hygg, að hinar örv- andi aðstæður á æskuheimili barnanna hafi haft mikil áhrif og stuðlað að þroska þeirra á ýmsum sviðum. – Hallgrímur var mikill áhugamaður um esperanto. Hann vildi kenna mér undirstöðuatriði þess og lánaði mér ýmsar bækur til að nema þetta tungumál. Hallgrím- ur var einkar hlýlegur maður og lærdómsríkt að fá að kynnast hon- um með þessum hætti. Sumt, sem ég lærði á þessum árum, hef ég get- að nýtt í kennslu um málsögu og aþjóðatungumál. Þau voru um sumt ólík Margrét og Hallgrímur, en þau studdu hvort annað og voru samhent í því sem máli skipti. Margrét var mikil og MARGRÉT ÁRNADÓTTIR ✝ Margrét Árna-dóttir fæddist í Látalæti í Landsveit í Rangárvallasýslu 29. september 1908. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Skjóli í Reykjavík 31. júlí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 20. ágúst. atorkusöm húsmóðir. Hún var oft glaðleg og hlýleg, en hún gat líka verið ákveðin, ef þess þurfti við. Það var eitt- hvað svo heilsteypt, einarðlegt og traust við hana. – En lífið var henni stundum grimmt og miskunnarlaust. Hún missti soninn Jón Ármann, einkar efni- legan og gervilegan ungan dreng, af slys- förum. Margrét missti Hallgrím, manninn sinn, á sjötugsaldri, og tæplega áttræð missti hún dóttur- son sinn, Guðmund Jökul, mennta- skólanema. Hann var góður dreng- ur og mannvænlegur efnispiltur. Um það er mér kunnugt, enda var ég kennari hans. Og fyrir þremur árum, þá níræð að aldri, missti Mar- grét son sinn Jakob, tónlistarmann, en sá góði og mikilhæfi maður lést með snöggum hætti. En Margrét lét ekki bugast og samhliða húsmóðurstörfum stund- aði hún framreiðslustörf. Var hún eftirsótt á því sviði, og það ekki að ástæðulausu. Ég komst að því síðar, að vinsældir hennar á þessu sviði byggðust á dugnaði, samviskusemi og þekkingu á þörfum þeirra sem í hlut áttu. Það er bæði ánægjulegt og þrosk- andi að hafa fengið að kynnast Mar- gréti Árnadóttur og fjölskyldu hennar. Að leiðarlokum sendi ég vandamönnum hennar innilegar samúðarkveðjur. – Blessuð sé minn- ing Margrétar Árnadóttur. Ólafur Oddsson. Afi, þú varst yndis- legur maður sem ég var svo heppinn að fá að alast upp hjá. Fyrir ungan athafnasaman pilt var smíðaverk- stæðið þitt drauma- heimur sem erfitt var að slíta sig frá. Allt í heimi þínum var ævintýri sem nú er liðið undir lok þegar ég kveð þig, afi, með þess- um fáu orðum. Þegar ég var ungur strákur var ég duglegur að fylgjast með þér teikna hús og mig langaði til að feta í þín spor. Ég var óþreytandi að teikna alls konar kastala sem ég spurði þig svo hvort ekki væri hægt að byggja. Alltaf sagðir þú að það væri ekkert mál og einn dag mynd- um við gera það saman. Tókstu síð- an teikningarnar og settir í möppu, réttir mér síðan nammiskálina, sem þú notaðir undir píputóbak áður fyrr þegar þú reyktir, og gafst mér lakkrís sem þú geymdir alltaf þar fyrir okkur barnabörnin. Þú fékkst mér verkefni, þegar ég bjó hjá þér, það var að fara niður í kjallara og berja harðfisk sem þú hertir uppi á þaki í Fjarðarstrætinu. Yndislegri harðfisk hef ég ekki smakkað fyrr né síðar og hvað mér fannst ég vera stór þegar ég mátti nota stóru sleggjuna til að berja fiskinn. Við misstum aldrei tengsl hvor við annan þegar ég flutti með pabba mínum og fósturmóður suður til ÁGÚST GUÐMUNDSSON ✝ Sigurjón ÁgústGuðmundsson fæddist á Ísafirði 25. júní 1913. Hann lést 19. ágúst síðastliðinn og var útför hans gerð frá Ísafjarðar- kirkju 24. ágúst. Reykjavíkur. Þú varst duglegur að senda mér bréf og segja mér frá verkefnum þínum. Sendir mér svo harð- fisk í sveitina eitt sum- arið þegar ég saknaði bragðsins af fiskinum þínum. Þegar ég tók síðan ákvörðun um að flytja að heiman 17 ára gam- all fannst mér ekkert jafn yndislegt og að fá að dvelja hjá þér fyrstu dagana á meðan ég leitaði mér að íbúð. Við töluðum saman um allt milli himins og jarðar, sváfum saman yfir hádeg- isfréttunum í útvarpinu og spiluðum á spil á kvöldin. Við hlógum hátt þegar Línan kom í sjónvarpið og enn hærra þegar Tommi og Jenni voru sýndir. Það var síðan ekki fyrr en ég kom aftur til Ísafjarðar eftir háskólanám að ég fór að kynnast þér náið. Það var svo stutt í kímnina og stríðnina, sögurnar líða mér seint úr minni sem þú sagðir mér á kvöldin þegar ég kom og fékk kvöldkaffi hjá þér. Það gaf mér mikið að eiga með þér síðustu ævikvöld þín. Fá að halda í höndina á þér seinustu dag- ana, fá að segja þér hversu heitt ég elskaði þig og þakka þér fyrir þann ævintýraheim sem þú skapaðir handa mér í æsku. Sessý, Telma og Andrea sakna þín mjög mikið en Andrea sagði að nú værir þú ungur aftur. Skilaðu kveðju til ömmu þegar þú hittir hana og segðu henni að ég elski hana ofurheitt. Þinn elskulegi sonarsonur Ingi Þór Ágústsson og fjölskylda. HESTAR Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.