Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 41 Eldriborgaraveisla til Benidorm 2. október frá 69.950 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin í hina vinsælu eldriborgaraferð í október til Benidorm, en hér er að finna yndislegt veður á þessum árstíma og hvergi betra að lengja sumarið. Sértilboð á okkar vinsælasta gististað, El Faro í 3 vikur. Á meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra Heimsferða og getur valið um fjölda spennandi kynnisferða og kvöldferða á meðan á dvölinni stendur. Síðustu 28 sætin Verð kr. 69.950 2. október – 3 vikur Flug, gisting, skattar, ferðir til og frá flugvelli, íslensk fararstjórn. Alm. verð, kr. 73.450 DAVID PLATT frá Harvard háskóla kennir á fimm daga námskeiði hjá Endurmenntun HÍ allt um Microsoft- .Net hugbúnaðarkerfið. Námskeiðið hefst 2. september og er kennt alla daga frá kl. 8-17. Platt fer m.a. í for- ritun (MSIL), viðmótshönnun, kerf- issmíði, villuleit, vefmiðlun og prófan- ir. David Platt hefur haldið námskeið um Microsoft.Net víða um heim. Kennt er í tölvustofu og á ensku. Ítarleg námskeiðslýsing á ensku er á vefsíðum Endurmenntunar HÍ, www.endurmenntun.is, og þar er jafnframt hægt að skrá sig. Námskeið um Microsoft.NET LÖGREGLAN á Akureyri lýsir eft- ir rauðri Toyota Corolla Touring, árgerð 1990 með númerið LT 803, sem stolið var úr bænum aðfaranótt sl. fimmtudags. Þeim sem geta gef- ið upplýsingar um bílstuldinn er bent á að hafa samband við lög- reglu. Rauðri Toyota- bifreið stolið EINAR K. Guðfinnsson, fyrsti þing- maður Vestfjarðakjördæmis, hefur opnað heimasíðu á Netinu. Slóðin er www.ekg.is. Á heimasíðunni hyggst Einar birta pistla, bæði pólitíska og af öðrum toga, greinar, ræður og tilvísanir í þingmál sem hann hefur flutt. Veg og vanda af gerð heimasíðunnar hafði Jónatan Einarsson sem rekur fyrir- tækið Gott kaffi ehf. í Bolungarvík. Þingmaður opnar heimasíðu NÚ UM helgina lauk tveggja daga holl veiðum í Litluá í Kelduhverfi og er óhætt að segja að mikið hafi geng- ið á. Ljóst að sjóbirtingur er að byrja að ganga af krafti í ána og veiddust 60 sjóbirtingar, flestir vænir fiskar og nokkrir mjög stórir, áætlaðir 10 til 14 pund. Vorveiðin á birtingi í ánni var mjög góð þrátt fyrir kulda og trekk framan af vertíðini, þannig að menn hafa búist við góðum haust- göngum og nú virðast þær vera að byrja. Sjóbirtingur að ganga Nú fer í hönd besti sjóbirtings- veiðitíminn og sá ágæti fiskur er að- eins farinn að láta á sér kræla. Fregnir herma að líflegt hafi verið í Vatnamótunum svokölluðu í Skaftá fyrir neðan Klaustur og birtingur hafi veiðst í Fitjaflóði í Grenlæk, Grenlæknum sjálfum, Jónskvísl, Geirlandsá og Tungulæk. Ekki margir fiskar, en þeir fyrstu. Hafa sumir verið stórir, stærstur þó enn sem komið er 21 pundari af Hólma- svæðinu í Skaftá, sem áður var greint frá. Frést hefur af 7 til 9 punda fisk- um, en eins og þar stendur; fyrstu fiskarnir eru rétt að kíkja í bergvötn- in en eru fyrir nokkru komnir í sjálfa Skaftána. Annars staðar hefur sjóbirtings- veiði gengið að óskum og líklega hvergi betur en í Laxá í Kjós, þar sem birtingar, 3 punda og stærri, skipta hundruðum og eru vel á annað þúsund ef smærri fiskurinn er talinn með. Þeir stærstu eru um 10 pund. Miklu af stærri birtingunum í Laxá hefur verið sleppt aftur. Ennfremur hefur verið góð sjó- birtingsveiði samhliða laxveiðinni í Þverá, Grímsá, Álftá á Mýrum og í Laxá í Leirársveit. Ýmsar fréttir Prýðisveiði hefur verið í Álftá á Mýrum eftir að fiskur fór á annað borð að ganga í ána. Veiðin tók óvenjuseint við sér vegna vatnsleysis fram í rúmlega viku af júlí, en síðan hefur veiði gengið vel. Í gær voru að sögn Dags Garðarssonar, eins leigu- taka árinnar, komnir alls 144 á land af aðalsvæði árinnar og 24 til viðbótar af efra svæði sem kallað er Veita og er aðeins naumlega stundað af leigu- tökum og aðeins þrjá daga vikunnar. Fín veiði hefurverið í Þverá, síð- asta holl þar var með tæplega 40 laxa og talsvert af vænum birtingi, allt að 7 punda fiska. Ein stöngin var með 14 laxa og 26 birtinga, þar af 7 punda, 6 punda og tvo 5 punda. Birtingurinn er mest frá Lundahyl og niðurúr. Einn og einn lúsugur lax er enn að veiðast. Prýðisveiði hefur og verið í Fnjóská í sumar að sögn Einars Jónssonar hjá Stangaveiðifélaginu Flúðum á Akureyri, vel á þriðja hundrað laxar hafa veiðst og góður slatti af vænni bleikju með. 60 fiska holl í Litluá Morgunblaðið/Einar FalurVeiðimaður þreytir lax í Sandvík við Langholt í Hvítá. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Rangt nafn Rangt var farið með nafn Gunnars Jónassonar, framkvæmdastjóra Kassa.is og Bílakassa, í grein í blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT 10. ársþing SSNV verður haldið á Bakkaflöt í Skagafirði dagana 30. og 31. ágúst nk. Dagskrá þingsins er svohljóðandi: Föstudagur 30. ágúst. Aðalfundur INVEST, 10.30 Þing- setning: Elín R. Líndal, formaður. Kosning þingforseta, varaforseta og ritara þingsins. Skýrsla stjórnar SSNV – Elín R. Líndal formaður. Ársreikningar 2001, fjárhagsáætl- un 2003 og starfsskýrsla framkv. stjr. – Bjarni Þór Einarsson, fram- kvæmdastjóri SSNV. Starsskýrsla verkefnisstjóra málefna fatlaðra á Norðurlandi vestra. – Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir verkefnisstjóri. Fyrirspurnir og umræður. Tillögur frá stjórn og fulltrúum lagðar fram og kynntar. Hádegisverður. Ávörp gesta. Páll Pétursson fé- lagsmálaráðherra. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands ísl. sveitarfélaga. Kynningar. Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra. – Sigurður Sigurðsson, INVEST. Norður- slóðaáætlun ESB. – Ingunn Helga Bjarnadóttir, Byggðastofnun. Framsöguerindi og umræður. Stjórnsýslan í framkvæmd og sam- skipti ríkis og sveitarfélaga. Her- mann Sæmundsson, skrifstofustjóri sveitarstjórnarmála í félagsmála- ráðuneytinu. Hlutverk Jöfnunar- sjóðs sveitarfélaga. Valgarður Hilmarsson, í ráðgjafarnefnd um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Stefnu- mótun og breytingar í opinberum rekstri. Úlfar Thoroddsen fram- kvæmdastjóri. Kaffi. Fyrirspurnir og umræður um stjórnsýslu á vegum sveitarfélaga. Nefndarstörf. Hátíðarkvöldverður: Dagskrá í höndum heimamanna. Laugardagur 31. ágúst. Framhald nefndarstarfa Fram- söguerindi og umræður. Iðnaðar- og iðjukostir á Norðurlandi vestra. Andrés Svanbjörnsson, yfirverk- fræðingur hjá Fjárfestingarstof- unni. Fyrirspurnir og umræður. Umræður um málefni sveitarfé- laga. Afgreiðsla nefndarálita, árs- reikninga og fjárhagsáætlunar. Kosningar samkvæmt lögum SSNV. Áætluð þinglok eru kl. 13.00. Ársþing SSNV 2002 GLEÐISTUND verður haldin á hæsta punkti á Gjábakkavegi fimmtu- daginn 29. ágúst kl. 15. Markmið uppákomunnar er að vekja athygli á mikilvægi góðs heilsársvegar og hvetja ráðamenn til að flýta vega- gerðarframkvæmdum á Gjábakka- vegi. Að loknum stuttum ávörpum undir berum himni verður farið í Menntaskólann á Laugarvatni þar sem boðið verður upp á kaffi og opnar umræður. Þetta kemur fram í frétt frá Ragn- ari Snæ Ragnarssyni, sveitarstjóra Bláskógabyggðar, fyrir hönd undir- búningsnefndar. Þar segir jafnframt: „Mikilvægi vegarins verður skoðað út frá ýmsum sjónarmiðum, enda eru hagsmunir margra í húfi. Heilsárs- vegur um Gjábakka er afar mikilvæg- ur fyrir íbúa í sameinuðu sveitarfé- lagi, Bláskógabyggð, þar sem vegurinn í því ástandi sem hann er í dag klippir sveitarfélagið í sundur. Einnig er vegurinn mikilvægur fyr- ir allar uppsveitir Árnessýslu með til- liti til atvinnusvæðis. Fyrir ferðaþjónustu í uppsveitun- um skipta þessar samgöngubætur sköpum og einnig fyrir þúsundir sum- arhúsaeigenda á svæðinu. Mikilvægt er að huga að öryggissjónarmiðum þar sem umferð um Hellisheiði er gíf- urleg, en góður Gjábakkavegur gæti létt á þeim umferðarþunga.“ Gjábakka- vegur verði heilsársvegur HALDIN verður kveðjuhátíð til heiðurs fráfarandi bæjarstjóra- hjónum á Seltjarnarnesi, Sigríði Gyðu Sigurðardóttur og Sigurgeiri Sigurðssyni, fimmtudaginn 29. ágúst nk. í Seltjarnarneskirkju, sem hefst kl. 16:00. Það er bæj- arstjórnin sem stendur fyrir kveðjuhátíðinni, en þar munu koma fram margir listamenn af Nesinu og flutt verða nokkur ávörp. Bæjarbúar eru boðnir vel- komnir á kveðjuhátíðina í kirkj- unni, segir í fréttatilkynningu. Sigurgeir Sigurðsson var bæj- arstjóri í hartnær fjóra áratugi, en eftir kosningarnar í maí sl. tók Jónmundur Guðmarsson við stjórntaumunum sem bæjarstjóri. Á kveðjuhátíðinni mun Kammer- kór Seltjarnarneskirkju syngja undir stjórn Vieru Manásek, tón- listarstjóra kirkjunnar. Bubbi Morthens, sem búið hefur á Nes- inu um árabil, frumflytur lagið Við Gróttu. Þekktustu tónlistarhjón Nessins, þau Gunnar Kvaran og Guðný Guðmundsdóttir, flytja ís- lensk þjóðlög í útsetningu Her- berts H. Ágústssonar. Selkórinn syngur undir stjórn Jóns Karls Einarssonar og loks spila börn úr tónlistarskólanum undir stjórn Kára Einarssonar. Fjörutíu börn úr leikskólum bæjarins munu svo slá botninn í hátíðina í kirkjunni. Ávörp flytja Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra, Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri, Guðrún Helga Brynleifsdóttir, oddviti Neslistans, Sigurður Geirdal, form. Samtaka sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, form. Samtaka ís- lenskra sveitarfélaga, Magnús Er- lendsson, fyrrverandi forseti bæj- arstjórnar, og að lokum Sigurgeir Sigurðsson, fyrrverandi bæjar- stjóri. Kveðjuhátíð til heiðurs bæjarstjóra- hjónunum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Jörmundi Inga: „Á síðu C 16 í Morgunblaðinu s.l. sunnudag er forkastanleg og mót- sagnakennd yfirlýsing sem sögð er vera frá Lögréttu og undirrituð af meintum Lögsögumanni Jónasi Þ. Sigurðssyni. Í þessari yfirlýsingu er látið að því liggja að Jörmundur Ingi allsherjar- goði hafi framið ýmsar ávirðingar (hvað sem það nú þýðir) og hafi farið fram á það, að þær yrðu ekki ræddar eða um þær fjallað. Þrátt fyrir klúðurslegt orðalag þykist undirritaður skilja hvað Jónas Þ. Sigurðsson er að burðast við að koma á framfæri, það er, að á Jör- mund Ingi hafi verið bornar ávirð- ingar, sem hann hafi óskað eftir að ekki væru ræddar eða um þær fjallað. Undirritaður hefur aldrei farið fram á slíkt hvorki við þennan Jónas eða Lögréttu, né hafa honum verið kynntar nokkrar ávirðingar. Í yfirlýsingunni segir ennfremur að Ásatrúarfélagið hafi verið í mikl- um uppgangi undanfarin ár og margfaldast að félagatölu, ég geri ráð fyrir að þetta þýði að félögum hafi fjölgað, undir stjórn Jörmundar Inga, sem hafi gert „suma hluti vel“ Nú er það svo að þessi Jónas hefur undanfarið ýjað að því að innan Ása- trúarfélagsins hafi tíðkast ýmis svik og prettir, svo sem fjárdráttur, þjófnaður, gjaldeyrissvik og margt fleira. Þessu er öllu vísað til föður- húsanna og við Jónas og Jónínu segi ég: „Margur heldur mig sig, en upp komast svik um síðir,“.“ Yfirlýsing frá Jörmundi Inga HINIR árlegu merkjasöludagar Hjálpræðishersins á Íslandi verða að þessu sinni frá fimmtudeginum 29. til laugardagsins 31. ágúst. Merkjasala Hjálpræðishersins er þýðingarmikil fjáröflunarleið fyrir starf hans hér á landi. Tekjur af merkjasölunni eru notaðar til að fjármagna barna- og unglingastarfið sem nú er að hefjast að afloknu sum- arfríi. Merkið verður selt á götum Reykjavíkur og Akureyrar, og einn- ig verður víða selt í húsum. Verðið er hið sama og undanfarið ár, krónur 200. Það er von Hjálpræðishersins að sem flestir kaupi sér merki og styrki þannig félags- og hjálparstarfið, seg- ir í fréttatilkynningu. Merkjasölu- dagar Hjálp- ræðishersins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.