Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 14
SUÐURNES 14 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA hefur verið rekin við Bláa lónið frá árinu 1994. Nú er svo komið að göngu- deildin annar ekki lengur þeirri eft- irspurn sem er á þjónustu. Um er að ræða psoriasis-sjúklinga en Bláa lónið reynist vel við að hindra virkni sjúkdómsins, ásamt öðrum þáttum sem beitt er við meðferð á göngudeildinni, að sögn Sólveigar Bjarkar Gränz hjúkrunarforstjóra. Hún sagði í samtali við Morgun- blaðið að fyrirhugaðar væru breyt- ingar á starfseminni. „Það þarf að stækka aðstöðuna hér svo við getum tekið á móti þeim fjölda fólks sem sækir í að koma hingað í meðferð. Málið er í skoðun og verið að vinna að breytingum,“ sagði Sólveig Björk í samtali við blaðamann. Meðferðaraðili á heimsvísu Í þau átta ár sem göngudeildin hefur verið starfrækt hafa sjúkling- ar frá 16 þjóðlöndum komið í með- ferð, auk þeirra fjölmörgu Íslend- inga sem hafa leitað sér hjálpar í lóninu. Flestir sjúklinganna koma frá Norðurlöndunum en einnig er farið að bera á fólki lengra að og ekki síst hafa fyrirspurnir frá fram- andi löndum aukist til muna. „Það hefur orðið mikil aukning á að psoriasis-sjúklingar leiti að nátt- úrulegri meðferð við sjúkdómnum og Bláa lónið hefur komið til móts við óskir þessa fólks. Við erum komin á kortið sem meðferðaraðili á heimsvísu,“ sagði Sólveig Björk. Sólveig segir fullan meðferð- artíma vera fjórar vikur en að mis- jafnt sé hversu langan tíma fólk dvelur við meðferð. „Hér spilar m.a. inn í heilbrigðisþjónusta þess lands sem sjúklingurinn er frá. Danir og Færeyingar hafa sams- konar heilbrigðiskerfi og við þann- ig að meðferð sjúklinganna þaðan er greidd meðan sjúklingar frá öðr- um löndum þurfa að borga allt sjálfir. Það gefur augaleið að slíkt er mjög kostnaðarsamt og þeir sjúklingar dvelja yfirleitt skemur en hinir.“ Í meðferð síðari hluta ferðarinnar Slík var raunin með taílensk feðgin sem dvöldu við meðferð hjá heilbrigðisþjónustunni í liðinni viku. Íslandsferð þeirra stóð í tvær vikur, fyrri vikunni eyddi fjöl- skyldan í ferðalög en síðari vikunni við meðferð á göngudeildinni. Þetta er jafnframt fyrstu Taílend- ingarnir sem koma í meðferð í Bláa lóninu. Blaðamaður settist niður með feðginunum í lok síðasta með- ferðardagsins og ræddi við þau um dvölina á göngudeildinni og Ís- landsförina. Apichai Sivayathorn og dóttir hans Navachatr eru bæði psoriasis- sjúklingar og þegar kom að því að velja sér áfangastað fyrir sumarfríi þessa árs ákvað fjölskyldan að slá tvær flugur í einu höggi. „Þegar við mamma fórum á Netið til þess að skoða hvaða möguleikar væru í boði fyrir næsta sumarfrí var Ís- land eitt þeirra landa sem komu upp. Þegar við komumst svo að því að okkur stæði þessi meðferð til boða ákvað fjölskyldan að slá til,“ sagði Navachatr. Þau feðginin sögðust ekki hafa vitað meira um Ísland en að það væri til land með þessu nafni, en fóru í kjölfarið og keyptu sér veglega ferðabók til að kynnast landinu lítillega áður en ferðalagið hæfist. „Við eyddum fyrri vikunni í að ferðast um Suður- land en keyrðum einnig til Akur- eyrar. Við vorum mjög heppin með veður alla dagana sem gerði ferð- ina enn ánægjulegri. Landslagið hér er ákaflega sérstakt en mjög fallegt. Við höfum ekki verið eins heppin með veður þessa vikuna og höfum því haldið kyrru fyrir, enda fer mestur tíminn í meðferðina,“ sagði Apichai. Íslendingar heppnir Feðginin sögðust fá meðferð- arþjónustu við psoriasis í sínu heimalandi og að þar sem þau hafa aðeins dvalist við meðferð í viku hér á landi gætu þau enn sem kom- ið er sagt lítið um árangurinn. Með- ferðin felst í böðum í lóninu tvisvar á dag, UVB-ljósum og notkun húð- vara frá Bláa lóninu. „Við höfum keypt okkur fullt af kremum til að taka með okkur heim og halda þeim þætti meðferðarinnar áfram. Við höfum verið mjög ánægð hér og starfsfólk göngudeildarinnar er sérstaklega viðkunnanlegt. Með- ferðin og vörurnar eru frábærar og mér finnst þið Íslendingar vera mjög heppnir að hafa þessa nátt- úruauðlind hér. Ég vona bara að þetta, ásamt víðtækum rann- sóknum, leiði til þess að á endanum verði orsök psoriasis fundin. Það yrði svo mikill léttir fyrir okkur psoriasis-sjúklinga, bæði andlega og líkamlega,“ sagði Apichai að lokum. Eftirspurn heilbrigðisþjónustu í meðferðarstöðinni við Bláa lónið eykst frá framandi löndum Meðferð og sumarfrí í sömu ferð Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Feðginin Navachatr og Apichai Sivayathorn frá Taílandi voru mjög ánægð með meðferðina í Bláa lóninu. Hér eru þau ásamt Margréti Sigurðardóttur aðstoðarmanni (lengst til vinstri) og Sólveigu Björk Gränz, hjúkr- unarforstjóra meðferðarstöðvarinnar, við laugina þar sem þau hafa leitað sér lækninga í sumarfríinu. Grindavík BÆJARRÁÐ Reykjanesbæjar samþykkti á dögunum tillögu for- stöðumanns umhverfis- og tækni- sviðs bæjarins, Viðars Más Aðal- steinssonar, um hringtorg við Hafnargötu og Víkurbraut í Kefla- vík. Bæjarráð samþykkti einnig tengdar framkvæmdir á gatnamót- um Víkurbrautar og Bryggjuvegar. Heildarkostnaðaráætlun er kr. 6 milljónir sem ákveðið var að vísa til endurskoðunar fjárhagsáætlunar ársins. Íbúar við Hafnargötu hafa lagt fyrir bæjarráð mótmæli vegna skipulags umferðarmála við götuna. Telja þeir umferðina of hraða og framúrakstur tíðan. Mun hringtorg- ið, að sögn Árna Sigfússonar bæj- arstjóra, draga úr umferðarþunga um götuna. Hringtorg á mótum Hafnargötu og Víkurvegar er lengst til vinstri á myndinni. Til hægri má sjá tengdar gatnaframkvæmdir á Víkurbraut. Kostnaður um sex milljónir króna Keflavík Hringtorg kemur á Hafnargötu UNDIRBÚNINGUR framkvæmda við stálröraverksmiðju í Helguvík gengur samkvæmt áætlun, að sögn Ólafs Kjartanssonar, framkvæmda- stjóra Markaðs- og atvinnumála- skrifstofu Reykjanesbæjar. Útlit er fyrir að verksmiðjan muni kosta 5,5 milljarða króna sem er talsvert hærri fjárhæð en talað var um í upp- hafi. Samningar um aðstöðu fyrir bygg- ingu og rekstur stálröraverksmiðju í Helguvík voru undirritaðir í vor. Á vegum International Pipe & Tube á Íslandi ehf. og eigenda félagsins hef- ur síðan verið unnið að undirbúningi framkvæmdanna. Ólafur segist hafa þær upplýsingar frá eiganda fyrir- tækisins að tilboð um heildarlausn við byggingu verksmiðjunnar hafi borist frá fjórum löndum, meðal ann- ars frá íslensku fyrirtæki. Kostar meira Reiknað sé með að samið verði við evrópska banka um fjármögnun verksmiðjunnar en útlit sé fyrir að kostnaður nemi 65 milljónum Bandaríkjadala, sem samsvarar um 5,5 milljörðum króna á núgildandi gengi. Er þetta talsvert meiri fjár- festing en gert var ráð fyrir í upphafi þegar talað var um 40 milljónir dala. Áætlað er að 240 menn fái vinnu við fyrirtækið.Á vegum Hafnasamlags Suðurnesja hefst vinna við að gera lóðina í Helguvík byggingarhæfa þegar eigandi fyrirtækisins hefur lagt fram nauðsynlegar tryggingar. Vonast er til að framkvæmdir við að sprengja lóðina niður geti hafist um áramót en sú framkvæmd er þó háð því hvernig undirbúningur gengur hjá eiganda fyrirtæksins. Ólafur Kjartansson lætur þess getið að erlenda fyrirtækið sé með áform um frekari fjárfestingar hér á landi, hann tali um fleiri verksmiðjur á lóðinni í Helguvík. Undirbúningur stálröraverksmiðju gengur eftir áætlun Tilboð um heildarlausn frá fjórum löndum Helguvík SANDGERÐISDAGAR hefj- ast næstkomandi föstudags- kvöld og standa fram á nótt á laugardag. Sandgerðisdagarnir verða settir í Safnaðarheimilinu klukkan 20 á föstudag með tón- listardagskrá listafólks úr Sandgerði. Ýmsir atburðir verða þá um kvöldið, meðal annars sagna- og hagyrðinga- kvöld og trúbadúrakeppni, og dansleikur um kvöldið. Heimafólk með myndlist- arsýningar í Fræðasetri Allan laugardaginn gera Sandgerðingar sér ýmislegt til skemmtunar og menningar- auka. Meðal annars verða nokkrar myndlistarsýningar í Fræðasetrinu og sterkustu menn landsins keppa um titil- inn Suðurnesjatröllið á Vita- torgi. Hátíðinni lýkur á laugar- dagskvöldið með dansleikjum á veitingastöðunum og flugelda- sýningu klukkan 23.20 en hún markar lok formlegrar dag- skrár. Hluti hátíðarhaldanna fer fram utandyra nema veður verði leiðinlegt, þá verða öll at- riði flutt í hús. Ferða- og menningarráð Sandgerðisbæjar stendur fyrir dagskránni. Það hvetur bæjar- búa til að draga fána að húni og setja upp sparibrosið. Hagyrð- ingar, trúbadúrar og krafta- jötnar Sandgerði UMRÁÐAMENN tíu flutningabif- reiða hafa verið kærðir fyrir að leggja í íbúðahverfum Reykjanes- bæjar í fyrrinótt. Lögreglan kom fyrir tilkynningu þessa efnis á rúður bílanna. Samkvæmt lögreglusamþykkt Reykjanesbæjar er ekki heimilt að leggja bílum sem eru umfram 3,5 tonn að þyngd í íbúðahverfum. Lög- reglumenn segja að talsvert hafi borist af kvörtunum vegna þess að atvinnubílstjórar hafi lagt bílum sín- um þar. Auk þess að skrifa upp númer bílanna tók lögreglan stafrænar ljósmyndir af bifreiðunum til sönn- unar og þurfa bílstjórarnir að greiða sekt fyrir að hafa lagt bílunum ólög- lega. Kærðir fyrir að leggja í íbúðahverfum Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.