Morgunblaðið - 28.08.2002, Qupperneq 15
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 15
ÞAÐ óhapp varð við Friðarhöfn á
sunnudag að 3–4 tonn af lýsi láku í
höfnina þegar verið var að dæla lýsi í
fluttningaskipið Freyju frá Nesskip-
um. Það var þétting á krana sem var
neðanjarðar sem gaf sig og lak lýsið
þar út og í höfnina.
Stöðva þurfti útskipunina á meðan
viðgerð fór fram, en grafa þurfti
nokkuð stóra holu til að komast að
krananum sem lak. Lýsinu er dælt
úr geymslutönkum sem eru upp við
Lifrarsamlag um það bil 1.000 metra
leið niður að bryggjukanti við Frið-
arhöfn. Að sögn hafnarstarfsmanna
sem unnu við hreinsun á lýsinu úr
höfninni var notast við 10 ára gamlan
hreinsunarbúnað og girðingu. Er
þetta í fyrsta skiptið sem búnaðurinn
er notaður til hreinsunar, en hann
hefur eingöngu verið notaður við æf-
ingar hingað til. Ekki er gert ráð fyr-
ir því að slysið hafi varanleg árif, en
tjón eigandans er þó nokkurt, en
ekki fengust nákvæmar upplýsingar
um það.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Lýsi lak
í höfnina
Vestmannaeyjar
TÓNLISTARVEISLA er nafn á tón-
leikum sem orðnir eru fastur liður í
húsvísku menningarlífi og haldnir síð-
sumars ár hvert.
Þar koma fram
húsvískir tónlist-
armenn í yngri
kantinum og
flytja dagskrá
sína. Og það er
óhætt að segja að
það hafi verið
mikil veisla sem
borin var á borð
fyrir gesti þá sem
komu á Tónlist-
arveisluna 2002 sem haldin var á
Fosshóteli Húsavík á dögunum. Tón-
leikarnir voru fluttir tvö kvöld í röð
fyrir fullu húsi og þóttu mjög vel
heppnaðir.
Að þessu sinni var dagskráin til-
einkuð hinum ástsæla söngvara Vil-
hjálmi Vilhjálmssyni og flutt lög sem
hann söng á sínum tíma. Guðni
Bragason stjórnaði sjö manna stór-
hljómsveit sem spilaði undir söng tíu
söngvara sem reyndar sumir hverjir
voru einnig í hljómsveitinni. Hljóm-
sveitina skipuðu þau Lára Sóley Jó-
hannsdóttir á fiðlu, Sigurður Illuga-
son á gítar, Víðir Pétursson á bassa,
Jón Gunnar Stefánsson á trommur,
Gunnar Illugi Sigurðsson á slagverk
og Guðni Bragason á píanó og gítar.
Gestahljóðfæraleikari með hljóm-
sveitinni að þessu sinni var saxófón-
leikarinn Kristinn Svavarsson. Hann
er ekki með öllu ókunnur húsvísku
tónlistarlífi frá því hann bjó hér um
skeið. Þá spilaði hann m.a. með hljóm-
sveitinni Gloríu auk þess að kenna við
Tónlistarskólann. Þau sem sáu um
sönginn á sýningunni að þessu sinni
voru þau Lára Sóley, Guðni og Sig-
urður sem áður eru nefnd, Anna Kar-
in Jónsdóttir, Kristján Þór Magnús-
son, Aðalsteinn Júlíusson og þær
söngvasystur Guðný, Bylgja, Harpa
og Svava Steingrímsdætur. Jóhann
Kr. Gunnarsson kynnti dagskrána
sem fyrr og fór það vel úr hendi, hann
hefur verið að færa sig upp á skaftið í
sambandi við tónleikana ár frá ári og
loksins kom að því að hann fékk að
syngja eitt lag. Hann söng við mikla
hrifningu áheyrenda lagið „Eins-
hljóðfærissinfóníuhljómsveit“ og ef-
laust á hans hlutur eftir að verða
stærri þegar fram í sækir.
Upphaf þess að Tónlistarveislan
komst á koppinn var að fyrir fjórum
árum auglýsti Fræðslunefnd Húsa-
víkur eftir hugmyndum sem gætu
auðgað húsvískt menningarlíf að
sumarlagi. Unga fólkið kom með
þessa hugmynd, sem vaxið hefur ár
frá ári.
Tónlistarveisla á
Fosshóteli Húsavík
Anna Karin
Jónsdóttir
Húsavík
SÍÐASTLIÐINN laugardag komu
11 flutningabílar Flytjanda suður
Kjalveg með viðkomu á Flúðum en
héldu síðan til Reykjavíkur. Annar
eins hópur flutningabílstjóra tók á
móti þeim við Gullfoss og bætist í
hópinn með bifreiðar sínar. Kaffi-
veitingar í boði Hrunamannahrepps
fyrir bílstjórana og fylgdarlið
þeirra var á Hótel Flúðum. Þar
ávarpaði Ragnar Magnússon hóp-
inn fyrir hönd sveitarstjórnar og
greindi frá sögu vöruflutninga í
Hrunamannahreppi. Loftur Þor-
steinsson fráfarandi sveitarstjóri
þakkaði bílstjórunum fyrir að vekja
athygli á vegamálum í landinu á
þennan hátt og sagði að íbúar
Hrunamannahrepps, sem er stór og
dreifð sveit, byggju við afleitt vega-
kerfi og þekktu það ákaflega vel
hvað vondir vegir væru. Það væri
staðreynd að stærsta landsbyggða-
málið væri að byggja upp góða og
varanlega vegi. Það væri undarlegt
hve ráðamenn þjóðarinnar væru
seinir að skilja það.
Páll Halldór Halldórsson starfs-
maður Flytjanda í Reykjavík sem
var í forsvari fyrir hópnum sagði að
ferðin hefði einkum verið farin í
þrennum tilgangi; „Til að minnast
frumkvöðlanna í stéttinni og til að
aka holóttan veg eins og fyrri tíma
bílstjórar þurftu jafnan að gera áð-
ur fyrr. Einnig til að minna á að
Kjalvegur er stysta leiðin á milli
Norður- og Suðurlands og upp-
bygging er það sem koma skal fyrr,
en seinna. Bílstjórar flutningabíla,
sem eru starfsmenn margra fyr-
irtækja, hittast sjaldan og við ætlum
að gera okkur glaðan dag og snæða
saman kvöldverð í Reykjavík.“
Meðal margra ágætra bílstjóra í
hópnum var Baldur Ragnarsson
sem búinn er að fara 2187 túra á
milli Akureyrar og Reykjavíkur.
Vart þarf að taka fram að flutn-
ingabílstjórar eru virtir og vinsælir
menn sem aka um lífæðar lands-
byggðarinnar og færa meðal ann-
ars varninginn heim í hvert byggð-
arlag, nauðsynjar sem
landsbyggðarfólk þarf á að halda.
Lest Flytjandabíla suður Kjöl
Hrunamannahreppur
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Flutningabílar frá Flytjanda aka niður Hrunamannahrepp.
Á ÞRIÐJA hundrað gesta voru við-
staddir vígslu Nýheima á Hornafirði
um helgina. Þeirra á meðal voru for-
seti Íslands, menntamálaráðherra,
utanríkisráðherra, heilbrigðisráð-
herra, háskólarektor og alþingis-
menn.
Nýheimar eru miðstöð þekkingar,
náms, rannsókna og nýsköpunar í
sýslunni. Þar verða til húsa Fram-
haldsskólinn í Austur-Skaftafells-
sýslu, Bókasafnið, Háskólasetur
Austurlands og frumkvöðlasetrið
Nýheimabúðir. Á næstunni verða
útibú Þróunarstofu Austurlands og
Hafrannsóknastofnunar opnuð í Ný-
heimum. Markmiðið með því að
steypa þessum stofnunum saman í
eina byggingu er að þar skapist ein-
stakt samfélag kennara og nemenda,
fræðimanna, frumkvöðla og vísinda-
manna sem getur af sér nýjar hug-
myndir og þekkingu. Húsið er 2.500
fermetrar á tveimur hæðum og áætl-
aður byggingarkostnaður er ríflega
440 milljónir króna.
Í ávarpi Árna Kjartanssonar arki-
tekts hjá Glámu-Kím var greint frá
óskum byggingarnefndar til hönn-
uða hússins; m.a. að byggingin
skyldi vera glæsileg og ólík öðrum
húsum í sýslunni en jafnframt ódýr í
byggingu og viðhaldi. Þá var óskað
eftir að þeir sem störfuðu í húsinu
„neyddust“ til að hafa daglegt sam-
neyti.
Albert Eymundsson bæjarstjóri
stýrði vígsluhátíð Nýheima sem
hófst með því að Jónas Ingimund-
arson vígði nýjan og glæsilegan
konsertflygil Menningarmiðstöðar
Hornafjarðar. Flygillinn mun standa
í miðrými hússins þar sem mögu-
leikar eru á tónleikahaldi af ýmsu
tagi. Ávörp fluttu forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, Páll Skúla-
son háskólarektor, Tómas Ingi Ol-
rich menntamálaráðherra, Halldór
Ásgrímsson, utanríkisráðherra og
fyrsti þingmaður Austurlands, og
Halldóra Bergljót Jónsdóttir, for-
maður bæjarráðs Hornafjarðar.
Einnig fluttu ávörp forstöðumenn
stofnana sem til húsa verða í Ný-
heimum og verktaki þeirra, Geir
Þorsteinsson. Karlakórinn Jökull og
stúlknakórinn Vox Luminae sungu
við vígsluathöfn Nýheima og sr. Sig-
urður Kr. Sigurðsson blessaði húsið.
Kennsla hófst í Framhaldsskólanum
í Nýheimum á mánudagsmorgun og
bókasafnið hefur einnig tekið til
starfa. Á næstu dögum mun Há-
skólasetur Austurlands flytjast inn í
Nýheima og frumkvöðlasetrið Ný-
heimabúðir verður opnað í endan-
legu húsnæði í byrjun október.
Nám, rannsóknir og nýsköpun undir sama þaki á Höfn
Morgunblaðið/Sigurður Mar
Jónas Ingimundarson tekur nýjan konsertflygil Hornfirðinga til kostanna í upphafi vígsluathafnar Nýheima.
Fjölmenni var við-
statt vígslu Nýheima
Hornafjörður