Morgunblaðið - 28.08.2002, Síða 19

Morgunblaðið - 28.08.2002, Síða 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 19 Í tilefni af Íslensku sjávarútvegssýningunni verður gefinn út blaðaukinn Úr Verinu sem fylgir Morgunblaðinu 4. september. Aukaupplagi verður dreift á sýningunni. Pantanafrestur auglýsinga er til kl.12 fimmtudaginn 29. ágúst. Allar nánari upplýsingar veita sölu-og upplýsingafulltrúar á auglýsingadeild í síma 569 1111, bréfsíma 569 1110 eða netfanginu augl@mbl.is. AUGLÝSENDUR! Íslenska sjávarútvegssýningin í Smáranum Kópavogi 4. - 7. september ABDUL Kadir, menningar- og ferðamálaráðherra Malasíu, hefur lagt til að ókurteisum leigubílstjórum verði „stillt upp við vegg og þeir skotnir,“ að því er dagblaðið New Straits Times í Kuala Lumpur greindi frá í gær. Í viðtali við blaðið sagði ráðherrann, að leigubílstjórar sem sýndu ókurteisi og svikju kúnna sína væru orðnir alvarlegt vanda- mál í landinu. Ríkisstjórnin hefði eytt miklu fé í að laða ferðamenn til landsins. „Leigu- bílstjórar sem haga sér svona eru svikarar við land vort og réttast væri að stilla þeim upp við vegg og skjóta þá,“ hefur blaðið eftir Kadir. Bar við ávísanafalsi CHARLES Digiglio, 34 ára Pennsylvaníubúi sem var dæmdur fyrir að hafa sofnað undir stýri og ekið á skólabíl, tjáði dómaranum að hann hefði dottað vegna þess að hann hefði unnið alla nóttina áður að því að falsa ávísanir. Hinn sakfelldi fékk tveggja til fjögurra ára fangelsisdóm á mánudaginn fyr- ir að valda árekstrinum við skólabílinn í bænum Penn For- est í Pennsylvaníuríki í Banda- ríkjunum hinn 20. nóvember 2000. Áður var búið að dæma Digiglio fyrir þátttöku í skipu- lögðum glæpahring sem notaði stolnar tölvur til að falsa launa- reikninga og ávísanir upp á samtals um hálfa milljón Bandaríkjadala, andvirði um 45 milljóna króna. Á föstudaginn á að falla dómur yfir Digiglio fyr- ir fleiri ávísanafölsunarbrot. Auglýsingar á lögreglubílana BÆJARSTJÓRNIN í Spring- field á Flórída hefur ákveðið að taka tilboði um að kaupa lögreglubíla fyrir einn Banda- ríkjadal stykkið. Það er aðeins einn galli á gjöf Njarðar: Á bíl- ana verða límdar stórar aug- lýsingar frá kostunaraðilum. Svipar þeim til auglýsinga á kappakstursbílum. Lög- reglustjórinn í Springfield, sem er útbær Panamaborgar, sagði að þessi ráðstöfun myndi spara bæjarfélaginu um hálfa milljón Bandaríkjadala, andvirði um 45 milljóna króna, á þriggja ára tímabili. Skjóta beri ókurteisa leigubílstjóra BANDARÍSKIR rannsóknarlög- reglumenn kváðust í gær vænta þess að Ward Weaver, 39 ára íbúi Oregonborgar sem er í gæzluvarð- haldi vegna nauðgunarákæru, verði ákærður fyrir morð á tveimur stúlk- um sem hafði verið saknað frá því snemma á árinu. Jarðneskar leifar þeirra fundust grafnar í bakgarði Weavers um helgina. „Það er ekki óeðlilegt að það taki sinn tíma að leggja fram ákæru í svo flóknu máli sem þessu,“ sagði Matt Mattox, talsmaður rannsakenda í gær. „Þetta er mjög alvarlegt mál og rannsóknin þarf augljóslega að vera mjög ítarleg,“ sagði hann. Að sögn saksóknara verður málið lagt fyrir rannsóknarkviðdóm í því skyni að fá ákæruheimild. Dánarorsök ekki staðfest enn Krufning stendur enn yfir, en í gær var hún nógu langt á veg komin til að hægt væri að staðfesta að um væri að ræða lík týndu stúlknanna. Beth Ann Steele, talsmaður alrík- islögreglunnar FBI í Oregon, upp- lýsti að enn væri ekki búið að kom- ast að niðurstöðu um dánarorsök. Stúlkurnar hétu Miranda Gaddis, 13 ára, og og Ashley Pond, 12 ára. Þær áttu heima í blokk skammt frá heimili Weavers í hverfi láglauna- fólks í Oregonborg, skammt frá Portland. Réttarlæknir bar kennsl á líkamsleifar þeirra með samanburði við tannlæknaskýrslur, en Gaddis hafði verið saknað síðan í byrjun mars. Hin stúlkan hvarf í janúar, en hún var vinkona og bekkjarsystir Gaddis. Lík Gaddis fannst á laugardaginn í skúr við heimili Weavers. Lík Pond fannst á sunnudaginn í tunnu sem grafin hafði verið undir stein- steyptri plötu á bak við hús Weavers. Weaver hefur setið inni síðan 13. ágúst og bíður þess að réttað verði yfir honum vegna nauðgunarkær- unnar, en hann er sakaður um að hafa nauðgað kærustu 19 ára sonar síns. Pond var vinkona dóttur Weavers og síðastliðið sumar ásakaði Pond hann um að hafa misþyrmt sér kyn- ferðislega, en hann neitaði því og var ekki ákærður. Þegar spurðist að Weaver, sem á alls fjögur börn, hefði nú verið ákærður fyrir nauðg- un fóru ættingjar stúlknanna sem saknað var fram á það við lögreglu að leitað yrði undir steypuplötunni, sem Weaver steypti skömmu eftir að Gaddis hvarf í mars. Faðir Weavers er dæmdur morð- ingi og bíður aftöku fyrir að hafa myrt konu og grafið lík hennar í garði sínum. Morðákæru vænzt í Oregon Oregon-borg, Los Angeles. AP, AFP. AP Blóm og önnur tákn hluttekningar hafa hrannast upp á girðingu við lóð húss Ward Weavers í Oregon-borg, en þar fann lögregla jarðneskar leif- ar tveggja stúlkna sem saknað hafði verið frá því snemma á árinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.