Morgunblaðið - 28.08.2002, Page 20

Morgunblaðið - 28.08.2002, Page 20
ERLENT 20 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRNVÖLD í Peking brugðust í gær ókvæða við ásökunum þess efnis að þau lokuðu pólitíska and- stæðinga sína inni á geðsjúkrahús- um en Alþjóðasamtök geðlækna (WPA) hafa samþykkt að senda al- þjóðlega nefnd lækna til Kína til þess að kanna hvað hæft sé í ásök- ununum. „Fullyrðingar af þessu tagi eru úr lausu lofti gripnar og lýsa miklu ábyrgðarleysi,“ sagði í yfirlýsingu kínverska utanríkis- ráðuneytisins. Ekki kom fram hvort Kína myndi leyfa umræddri nefnd að kanna aðstæður á sjúkra- húsunum en stefnt er að því að hún fari til Kína næsta vor. Samþykktin um rannsóknar- nefndina var gerð á ársfundi WPA í Yokohama í Japan á mánudag en geðlæknafélög 105 ríkja eiga aðild að samtökunum, þar á meðal kín- verska félagið. Forseti samtak- anna, Juan Lopez-Ibor, sagði að farið hefði verið yfir vísbendingar um 500 dæmi um misnotkun geð- lækninga á kínverskum sjúkrahús- um og einkum hefðu félagar í Falun Gong-hugleiðsluhreyfingunni verið læstir inni á geðsjúkrahúsum. Hreyfingin var bönnuð í Kína 1999. Félagar í Falun Gong segja að kínverskir geðlæknar gefi heil- brigðu fólki stóra skammta af geð- lyfjum og einnig sé beitt raflosti. Mary Robinson, mannréttinda- fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, sótti Kínverja heim í liðinni viku og sagði að þvinguð vistun Falun Gong-fé- laga á kínverskum geðsjúkrahúsum væri mikið vandamál. Kvartaði hún undan því að embættismenn SÞ ættu erfitt með að fá leyfi til þess að kanna hvort kvartanir um misnotk- un geðlækninga ættu við rök að styðjast. Skýrsla á vegum Human Rights Watch Fyrr í mánuðinum sendu banda- rísku mannréttindasamtökin Hum- an Rights Watch og Genfarsamtök- in gegn misnotkun geðlækninga frá sér um 300 síðna skýrslu um and- ófsmenn sem lokaðir væru inni á geðsjúkrahúsum í Kína og þannig brotin á þeim mannréttindi. Þar segir að kínversk stjórnvöld noti í vaxandi mæli geðsjúkrahús til þess að þagga niður í pólitískum andófs- mönnum, félögum í Falun Gong, fólki sem skipuleggur frjáls verka- lýðsfélög og einstaklingum sem kvarta undan ofsóknum yfirvalda og spillingu. Kínversk stjórnvöld fullyrða að Falun Gong-liðarnir hafi verið lagðir inn á sjúkrahús að ósk aðstandenda þeirra. Sagði í yfirlýs- ingu þeirra í gær að fylgt væri ströngustu reglum um meðferð sjúklinga. Eitt af dæmunum sem rakið er í skýrslunni er af Cao Maobin. Hann var lokaður inni í 210 daga í Ranch- ing nr. 4 geðsjúkrahúsinu í austur- hluta Kína eftir að hafa reynt að stofna ólöglegt verkalýðsfélag, að sögn samtaka í New York er fylgj- ast með réttindum verkafólks í Kína. Eiginkona hans segir að læknar hafi þvingað hann til að taka geðlyf enda þótt ekkert amaði að honum. Aðgangur verði óhindraður Formaður breska geðlækna- félagsins sat hjá við afgreiðslu sam- þykktarinnar á mánudag og taldi hana ekki ganga nógu langt þótt hún væri skref í rétta átt. Fólk sem stóð að skýrslunni um mannrétt- indabrotin var í gær ekki einhuga, aðalhöfundur hennar, Robin Munro, hrósaði mjög ákvörðun WPA. En Human Rights Watch- samtökin sögðu að niðurstaðan færi m.a. eftir því hverjir tækju þátt í undirbúningnum, hvort Kínverjar fengju að ráða hverjir yrðu í nefnd- inni og hvort hún fengi fullan að- gang að geðsjúkrahúsunum og sjúklingunum. „WPA verður að sýna mikla festu í viðræðum við Kínverja um skil- yrðin fyrir starfi nefndarinnar,“ sagði Mike Jendrzejczyk, yfirmað- ur Asíudeildar Human Rights Watch með aðsetur í Washington. Sovétstjórnin lokaði á sínum tíma marga andófsmenn inni á geð- sjúkrahúsum og vegna gagnrýni WPA sagði geðlæknafélag Sovét- ríkjanna sig úr samtökunum árið 1983 til þess að sleppa við brott- rekstur. Neiti Kínverjar samtökun- um um leyfi til að rannsaka ástand- ið gæti farið svo að Kínverjar yrðu að segja sig úr WPA. Alþjóðageðlæknasamtökin vilja senda alþjóðlega rannsóknarnefnd til Kína Ásakanir um þvingaðar innlagnir á geðsjúkrahús Yokohama, Peking. AFP, AP. AP Wu Lili, systir konu sem sögð er hafa verið þvinguð til að leggjast inn á geðsjúkrahús í Kína, með mynd af systurinni í Yokohama í gær. Systir Wu er liðsmaður Falun Gong-hugleiðslusamtakanna. Kínverjar segja ásakanir um að andófsmenn séu vistaðir á slíkum stofnunum allsendis tilhæfulausar STJÓRN Bandaríkjanna hefur sett sjálfstæðishreyfingu múslíma í kín- verska héraðinu Xinjiang (Sinkiang) á lista yfir alþjóðleg hryðjuverka- samtök, að sögn Richards Armitage, aðstoðarutanríkisráðherra Banda- ríkjanna á mánudag. Hann er nú á ferðalagi um nokkur Asíulönd. Dag- inn fyrir yfirlýsingu hans settu kín- versk stjórnvöld reglur um tak- mörkun á sölu eldflauga til annarra landa en Bandaríkjamenn hafa lengi hvatt Kínverja til að draga úr slík- um útflutningi, ekki síst til landa eins og Írans. Kommúnistastjórnin í Peking segir hreyfinguna í Xinjiang hafa staðið fyrir mannskæðum tilræðum, hún njóti stuðnings samtaka Sádi- Arabans Osama bin Ladens, al- Qaeda. Hafi al-Qaeda sent hópnum vopn og þjálfað liðsmenn hans. Bandaríkjamenn hafa fram til þessa ekki viljað samþykkja að umrædd samtök, Íslamshreyfing Austur- Túrkestans (ETIM), sem eru sögð fáliðuð og illa skipulögð, séu í banda- lagi við alþjóðleg, íslömsk hermd- arverkasamtök. Hafa þeir jafnvel tekið undir með Mary Robinson, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna og öðrum sem fullyrða að Kínastjórn noti baráttuna gegn al- þjóðlegum hryðjuverkum sem skálkaskjól til að berja niður frið- samlegt andóf. „Ofbeldisverk gegn óvopnuðum borgurum“ Armitage átti fundi með Hu Jiantao, varaforseta Kína, Qian Qihcen aðstoðarforsætisráðherra og Tang Jiaxuan utanríkisráðherra í Peking á mánudag. Hann sagði að ákvörðun Bandaríkjamanna um að setja Íslamshreyfingu Austur-Túr- kestans á lista yfir hryðjuverkahópa hefði verið tekin eftir vandlega íhug- un. Samtökin hefðu framið „ofbeld- isverk gegn óvopnuðum borgurum án tillits til þess hver yrði fórnar- lambið“. Hann sagðist einnig hafa tjáð kínverskum ráðamönnum að það væri „bráðnauðsynlegt að virða réttindi minnihlutahópa“. Xinjiang, sem áður var nefnt Sinkiang, var um hríð sjálfstætt ríki snemma á 20. öld undir heitinu Austur-Túrkestan en Kínverjar hafa síðustu áratugi lagt mikla áherslu á að tryggja yfirráð sín þar til fram- búðar. Meirihluti íbúa Xinjiang er af þjóðerni Uighura, sem eru flestir múslímar, búa margir vestast í hér- aðinu og tala tungumál fjarskylt tyrknesku. Þeir hafa lengið barist gegn kínverskum yfirráðum. Xinji- ang liggur að hluta að Afganistan. Vilja stofna íslamskt ríki Fátt er vitað með vissu um áð- urnefnda hreyfingu annað en það sem kom fram í yfirlýsingu stjórn- valda í Peking í janúar þar sem starfsemi hennar var fordæmd. Kín- verjar segja að leiðtogi hennar sé Hasan Mahsum, hann sé Uighuri og hafi tekið þátt í mörgum hryðju- verkum. Dilxat Rexiti er talsmaður upplýs- ingamiðstöðvar Austur-Túrkestans, stofnunar með aðsetur í Þýskalandi er heldur á lofti málstað sjálfstæð- issinna í Xinjiang. Rexiti sagðist efast um að liðsmenn ETIM tækju þátt í samstarfi alþjóðlegra hryðju- verkamanna. „Markmið þeirra er að frelsa Austur-Túrkestan og reka á brott hernámsliðið,“ sagði hann. Rexiti sagðist ekki vita hve margir væru í ETIM en hann væri sjálfur andvígur þeirri stefnu hreyfingar- innar að stofna íslamskt ríki og einnig á móti ofbeldisfullum aðferð- um þeirra. „Við erum á móti vopnaðri bar- áttu en með kúgunina, sem Kínverj- ar stunda fyrir, í huga óttumst við að æ fleiri Uighurar eigi ekki kost á öðru,“ sagði Rexiti. Kína umbunað fyrir hömlur við eldflaugaútflutningi Sjálfstæðishreyfing í Xinjiang á lista yfir hryðjuverkahópa Lítt þekkt ísl- ömsk samtök er vilja stofna sjálf- stætt ríki þjóð- arbrots Uighura Peking. AP, AFP.                             FRÖNSK yfirvöld leituðu í gær flutningaskips en talið er, að það hafi siglt á og sökkt frönskum togara. Komust þrír skipverjanna af en fjögurra er saknað. Hér er háseti af togaranum, sem bar nafnið Cistude, hífður um borð í björgunarþyrlu nærri eynni Sein undan Atlantshafsströnd Frakk- lands. Haft er eftir frönsku strand- gæslunni, að nokkuð víst sé, að árekstur hafi valdið slysinu en það átti sér stað snemma í fyrra- dag um 120 km vestur af Frakk- landsströnd, rétt við fjölfarna siglingaleið. Beinist grunurinn helst að norska flutningaskipinu Bow Eagle en það fór þarna um á þessum tíma. Seint á mánudag tilkynnti það, að það hefði rekist á „ókunnan hlut“ og væri komið gat á kinnunginn. Út um það læki etýlefni, sem væri hluti af farm- inum. Því var þó leyft að halda áfram til Rotterdam. Voru menn frá frönsku strandgæslunni komnir um borð í skipið í gær. Reuters Franskur togari sökk eftir árekstur Brest. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.