Morgunblaðið - 28.08.2002, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 27
hlutafé í
A Holding
að nafn-
milljónir,
0 milljón-
P hf. um
festingar-
um 68,0
f. um 5,2
ningu Ís-
landsbanka að arður fylgir til
kaupenda og ná greiðslur sölunnar
til maíloka 2003. Fyrirkomulag
sölutryggingar sé með þeim hætti
að 32,5% hlutafjárins verði seld
eigi síðar en 16. september næst-
komandi og 67,5% verði seld eigi
síðar en 15. janúar 2003.
Þeim gjaldeyrisviðskiptum sem
þessu tengjast er samkvæmt til-
kynningunni að fullu lokið, annars
vegar með viðskiptum á milli-
bankamarkaði og hins vegar með
framvirkum viðskiptum við Seðla-
banka Íslands. Þau fela í sér að
Seðlabanki Íslands selur Íslands-
banka gjaldeyri að andvirði sam-
tals rúmlega þrír milljarðar króna
í þremur framvirkum samningum,
16. september næstkomandi og í
janúar og mars 2003.
Hlutaféð í Straumi verður
boðið fagfjárfestum
Kaup Íslandsbanka á 21,9% af
heildarhlutafé félaganna fimm í
Fjárfestingarfélaginu Straumi
nema um 614,2 milljónum króna að
nafnvirði. Nafnverð hlutafjáreign-
ar seljenda skiptist þannig að
Fjárfar ehf. á um 235,1 milljón,
Kaldbakur hf. um 103,0 milljónir,
Eignarhaldsfélagið ISP ehf. 100,0
milljónir, Fjárfestingarfélagið
Krossanes ehf. 100,0 milljónir og
Dúkur hf. um 76,1 milljón. Sam-
kvæmt tilkynningu Íslandsbanka
hyggst bankinn bjóða fagfjárfest-
um hlutaféð til sölu á næstunni.
Eigendur FBA Holding eru Jón
Ásgeir Jóhannesson, stjórnarfor-
maður Baugur Group, Þorsteinn
Már Baldvinsson, forstjóri Sam-
herja, og Saxhóll, sem er í eigu
fjölskyldu Jóns Júlíussonar sem
átti áður Nóatúnsverslanirnar.
Ovalla Trading er fjárfestingar-
félag í eigu Gaumur Holding SA
og Austursels ehf. Eigandi Gaums
Holding er fjárfestingafélagið
Gaumur sem er í eigu Jóhannesar
Jónssonar og barna hans, Jóns Ás-
geirs og Kristínar, en Austursel er
í eigu Hreins Loftssonar. Eignar-
haldsfélagið ISP er í eigu Ingi-
bjargar S. Pálmadóttur, Fjárfest-
ingarfélagið Krossanes og Oddeyri
ehf. tengjast Þorsteini Má Bald-
vinssyni og Sjöfn hf. er 60% í eigu
Baldurs Guðnasonar og 40% í eigu
Kaldbaks fjárfestingarfélags hf.
sem tók um áramótin við öllum
eignum og skuldbindingum Kaup-
félags Eyfirðinga. Fjárfar er í eigu
Helgu Gísladóttur, eiginkonu Ei-
ríks Sigurðssonar, fyrrverandi
kaupmanns í 10–11, og Dúkur ehf.
er dótturfélag Baugs.
elja 21,78% hlut í Íslandsbanka
sölu-
taféð
Morgunblaðið/Ásdís
Í BYRJUN ágúst 1999 vargreint frá því að eignarhalds-félagið Orca S.A., sem skráðvar í Lúxemborg, hefði keypt
hlutabréf í Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins að nafnverði um 1,8
milljarða króna. Orca-hópurinn
keypti hlutabréf að nafnverði kr.
1.503.000.000 af Scandinavian Hold-
ings S.A., fyrirtæki í eigu Kaupþings
og sparisjóðanna, og hlutabréf að
nafnverði 300 milljónir kr. af ónefnd-
um seljanda, en eftir viðskiptin réð
hópurinn yfir 26,5% af heildar-
hlutafé FBA. Í kjölfarið voru við-
skipti með hlutabréf FBA á Verð-
bréfaþingi Íslands stöðvuð vegna
þess að þingið hafði ekki fengið upp-
lýsingar um hverjir stóðu að Orca
S.A. Um miðjan mánuðinn kom í ljós
að það voru Jón Ólafsson, stjórnar-
formaður Íslenska útvarpsfélagsins,
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, Jón Ásgeir Jóhann-
esson, forstjóri Baugs, og Eyjólfur
Sveinsson, framkvæmdastjóri
Frjálsrar fjölmiðlunar. Þeir upp-
lýstu á blaðamannafundi 13. ágúst
að þeir veittu forystu fjórum hópum
fjárfesta sem mynduðu eignarhalds-
félagið Orca og eftir að hafa keypt
aukinn hlut í FBA næmi hlutur
hópsins 28%. Meðalgengi hlutabréfa
í viðskiptunum var 2,8 og kaupverðið
um 5 milljarðar króna. Jafnframt
var greint frá því að í varastjórn
Orca væru Gunnar Þór Ólafsson, Jó-
hannes Jónsson, Kristján Vilhelms-
son og Sveinn R. Eyjólfsson og væru
þeir allir hluthafar.
Jón Ólafsson sagði við þetta tæki-
færi að upphaf viðskiptanna mætti
rekja til desember 1998, þegar
fulltrúi Kaupþings og Búnaðar-
banka Íslands hefði boðið sér að
kaupa hlut í FBA. „Ég taldi mig ekki
í stakk búinn til þess á þeim tíma en
síðan hafa ýmsir hlutir gerst,“ sagði
Jón.
Stærsti hluthafinn
Á hluthafafundi í FBA 31. ágúst
1999 voru Jón Ingvarsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, og Krist-
ján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á
Akureyri, kosnir í stjórn bankans
fyrir hönd Orca S.A.
Í byrjun nóvember sama ár tóku
26 fjárfestar rúmlega 9,7 milljarða
kr. tilboði í 51% hlut FBA á genginu
2,8. Í framhaldi af kaupunum kom
fram að eigendur Orca S.A. myndu
skipta upp hlutabréfum sínum þann-
ig að þeir yrðu beint hluthafar í FBA
eins hratt og þeim væri kostur en
þangað til færu hluthafar í Orca
beint með atkvæði sín á hluthafa-
fundum í FBA. Eftir viðskiptin fóru
stærstu hluthafarnir því hver um sig
með um 7% atkvæðisrétt í félaginu.
Við sameiningu FBA og Íslands-
banka árið 2000 varð FBA Holding,
eignarhaldsfélag Orca-hópsins,
stærsti hluthafinn í bankanum og
kom fram í apríl það ár að hluturinn
væri 14,64%. Lífeyrissjóður verslun-
armanna og Lífeyrissjóðurinn
Framsýn komu þar á eftir með rúm-
lega 7% hlut hvor.
Átta framboð bárust til setu í
bankaráði Íslandsbanka-FBA hf. og
þar af þrjú frá Orca-hópnum, en
Eyjólfur Sveinsson, Jón Ásgeir Jó-
hannesson og Finnbogi Jónsson,
stjórnarformaður Samherja og m.a.
fulltrúi Þorsteins Más Baldvinsson-
ar, gáfu kost á sér og náðu allir kjöri.
Hluthafafundir Íslandsbanka og
FBA samþykktu sameiningu bank-
anna 15. maí og tók hún formlega
gildi 2. júní. Í mars 2001 var sjálf-
kjörið í bankaráð Íslandsbanka-
FBA. Finnbogi Jónsson og Guð-
mundur H. Garðarsson, fulltrúi Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna, gáfu
ekki kost á sér, en í stað þeirra buðu
sig fram Jón Ólafsson og Víglundur
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
BM Vallár og stjórnarformaður Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna. Aðrir
sjálfkjörnir aðalmenn í bankaráði
voru Einar Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Sjóvár-Almennra,
Eyjólfur Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Frjálsrar fjölmiðlunar, Helgi
Magnússon, framkvæmdastjóri
Málningarverksmiðjunnar Hörpu,
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, og Kristján Ragnarsson,
stjórnarformaður LÍÚ.
Eyjólfur og Jón út
Greint var frá því 3. janúar sl. að
Eyjólfur Sveinsson hefði hinn 31.
desember 2001 selt eignarhlut sinn í
Orca S.A. og þar með í Íslands-
banka. Kaupendur voru tveir félaga
hans úr Orca-hópnum, Jón Ásgeir
Jóhannesson og Þorsteinn Már
Baldvinsson. Keyptu þeir á genginu
4,3 en Eyjólfur mat greiðsluna á
genginu 4,7 til 4,8 vegna greiðslna til
hans á næsta ári. Eftir söluna áttu
Eyjólfur og félög á hans vegum um
157 milljónir að nafnverði í bankan-
um. 5. febrúar sl. sagði Eyjólfur
Sveinsson af sér setu í bankaráði Ís-
landsbanka. Þá hafði hann selt öll
hlutabréf sem voru í hans eigu í
bankanum og það sama höfðu tvö fé-
lög sem hann var hluthafi í, einnig
gert, samtals um 42,7 milljónir kr. að
nafnverði, og var um utanþingsvið-
skipti að ræða. Eignarhlutur félaga
á vegum Eyjólfs var því um 114
milljónir kr. að nafnverði eða um
1,18% af heildarhlutafé bankans.
Nokkur kaflaskil urðu í barátt-
unni um Íslandsbankafyrr á þessu
ári þegar Landsbankinn keypti
hlutabréf Fjárfestingarfélagsins
Straums í Tryggingamiðstöðinniog
seldu þau síðan aðilum sem tengjast
Ísfélaginu í Vestmannaeyjum. Með
því að eignast hlutabréf Straums
hefðu Jón Ásgeir Jóhannesson, Þor-
steinn Már Baldvinsson og félagar
náð yfirhendinni í TM og þar með
haft aðgang að miklum fjármunum
félagsins og hlutabréfaeign, m.a. í
Íslandsbanka. Önnur kaflaskil urðu
6. mars þegar Hreggviður Jónsson,
fyrrverandi forstjóra Norðurljósa,
dró framboð sitt í bankaráð Íslands-
banka til baka. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins bauð Jón Ás-
geir Jóhannesson fram lista yfir
fulltrúa Orca-hópsins í bankaráðið
og var nafn Hreggviðs á listanum
ásamt nafni Jóns Ásgeirs og Þor-
steins Más Baldvinssonar. „Þetta
var gert án minnar vitneskju og án
míns samþykkis,“ sagði m.a. í yfir-
lýsingu Hreggviðs sem sagðist hafa
boðið sig fram vegna óska fulltrúa
hluthafa, sem hefðu talið að framboð
hans gæti skapað málamiðlun milli
fylkinga í hluthafahópi bankans.
Vegna þessa var sjálfkjörið í banka-
ráðið.
Fjármálaeftirlitið svipti eigendur
FBA Holding S.A. atkvæðisrétti í
Íslandsbanka og barst bankanum
tilkynning þess efnis skömmu áður
en aðalfundur bankans hófst 11.
mars sl. Hlutur FBA Holding nam
15,553%, en eigendur voru Jón Ás-
geir Jóhannesson, Þorsteinn Már
Baldvinsson og Saxhóll, félag í eigu
fjölskyldu Jóns Júlíussonar, sem átti
Nótatúnsverslanirnar áður en
Kaupás keypti þær. Hlutur Saxhóls í
FBA Holding var í eigu Jóns Ólafs-
sonar þar til þennan dag. Í tilkynn-
ingu Fjármálaeftirlitsins kom m.a.
fram að það tæki „ákvörðun sína til
endurskoðunar jafnskjótt og gripið
hefur verið til úrbóta af hálfu FBA-
Holding S.A. og annarra hlutaðeig-
andi aðila, sem Fjármálaeftirlitið
metur nægjanlegar.“
Ákvörðun Fjármálaeftirlitisins
kom forráðamönnum FBA Holding
á óvart. Í yfirlýsingu frá Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni og Þorsteini Má Bald-
vinssyni rétt fyrir aðalfundinn kom
fram að unnið hefði verið að endur-
skipulagningu á félaginu og henni
hefði lokið með sölu Jóns Ólafssonar
á eignarhlut sínum í því. Jón og félög
honum tengd áttu tæpan 6% hlut í
bankanum og voru bréfin seld á
gengi rétt undir 5. Eigendurnir
gerðu ráð fyrir að fá atkvæðisrétt
sinn til baka innan fárra daga enda
væri um að ræða eignasterkt félag
með eigið fé upp á 2 milljarða króna.
Í yfirlýsingu frá Jóni Ólafssyni,
sem birtist í Morgunblaðinu 15.
mars sl., kom m.a. fram að honum
hefði ekki borist bréf frá Fjármála-
eftirlitinu vegna ákvörðunar þess
um sviptingu atkvæðisréttarins og
hann vissi ekki hvaða ástæður lægju
að baki þessari ákvörðun. „Þá er
ennfremur rétt að vekja á því at-
hygli, að hlutafjáreign mín í Íslands-
banka var ekki einvörðungu í Orca
S.A. og kom reyndar fram að sama
dag og ég seldi hlut minn í því félagi
seldi Jón Ólafsson og Co. sf
123.090.597 kr. nafnverðshlut í
bankanum. Ákvörðun fjármálaeftir-
litsins tók ekki til þess hlutar. Hefði
ákvörðun eftirlitsins vegna FBA
Holding S.A. tengst mér, hlyti þó að
hafa legið beint við, að fella atkvæð-
isrétt niður af þeim hlutum.“
Sagan öll
Í gær lauk síðan þessari um
þriggja ára sögu Orca-hópsins þegar
tilkynnt var að gengið hefði verið frá
samkomulagi Íslandsbanka og sex
stórra hluthafa, þ.á m. félaga sem
tengjast Jóni Ásgeiri Jóhannessyni
og Þorsteini Má Baldvinssyni, um að
bankinn sölutryggði alla eignarhluti
hluthafanna í Íslandsbanka hf.
Morgunblaðið/Arnaldur
Frá blaðamannafundi Orca í ágúst 1999. Frá vinstri: Jón Ólafsson,
Þorsteinn Már Baldvinsson, Gestur Jónsson, lögmaður félagsins, Jón
Ásgeir Jóhannesson og Eyjólfur Sveinsson stjórnarformaður.
Orca-hópurinn um-
svifamikill í þrjú ár
Orca-hópurinn varð til
þegar hann keypti
26,5% hlut í Fjárfesting-
arbanka atvinnulífsins í
ágúst 1999. Hann átti
stóran hlut í samein-
uðum banka, Íslands-
banka-FBA, nú Íslands-
banka hf., en með sölu
hlutanna nú í bankanum
er þessum þriggja ára
kafla hópsins í sögu
bankans lokið.
é að ræða
n kaup og
garfélagið
bankinn
num 20%
selja það
þar fram
stjórnar-
segir að
á hluthöf-
selja hluti
álfsagt að
n hafi síð-
em hann
standi hér
styrkum
aðstand-
a þennan
m sem víð-
rsson
lagi
u
r
óttir, iðn-
a, sagðist
ðið í gær
hlutabréf
f á einka-
nna. Hún
m málið að
ki
ka-
erlið
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi yfirlýsing frá Jóni Ás-
geiri Jóhannessyni og Þorsteini
Má Baldvinssyni, meirihlutaeig-
endum í FBA Holding:
„Eins og fram kemur í frétta-
tilkynningu frá Íslandsbanka í
dag, 27. ágúst 2002, hefur verið
gengið frá samkomulagi um sölu-
tryggingu á eignarhlutum í Ís-
landsbanka hf. og Fjárfestingar-
félaginu Straumi hf. sem m.a. er í
eigu félaga sem við erum í for-
svari fyrir.
Frá kaupum FBA-holding í
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
árið 1999 hafa orðið töluverðar
breytingar á íslensku fjármála-
kerfi. Það er ánægjulegt að hafa
átt þátt í sameiningu Íslands-
banka og FBA, enda reyndist það
skref sem þá var stigið bæði hag-
stætt og nauðsynlegt fyrir ís-
lenskt atvinnulíf.
Við þær aðstæður þegar að-
gengi að erlendu fjármagni er
rýmra en áður hlýtur sala á hlut í
Íslandsbanka að vera álitlegur
kostur þegar gott verð er í boði.
Við höfum þá sýn að afar brýnt
sé að íslenskar fjármálastofnanir
séu samkeppnishæfar á opnum
fjármagnsmarkaði og geti þjónað
ört vaxandi fyrirtækjum í alþjóð-
legri útrás. Til þess að unnt sé að
bjóða betri og ódýrari þjónustu á
íslenskum fjármagnsmarkaði er
brýn þörf á að sameina og efla
innlend fjármálafyrirtæki. Því
nauðsynjaverki er á engan hátt
lokið.
Í framhaldi af því samkomulagi
sem gengið hefur verið frá mun-
um við segja af okkur sem stjórn-
armenn í Íslandsbanka hf.
Reykjavík 27. ágúst 2002
Jón Ásgeir Jóhannesson
Þorsteinn Már Baldvinsson“.
Morgunblaðið/Jim Smart
Yfirlýsing eigenda
FBA Holding