Morgunblaðið - 28.08.2002, Qupperneq 30
UMRÆÐAN
30 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
É
g var óspilltur
Reykvíkingur; ætt-
ir mínar ná varla
lengra út úr borg-
inni en í Hafn-
arfjörð og upp í Borgarnes. Áar
mínir fetuðu sig inn í borgina og
voru nánast alla 20. öldina í
hverfum hennar. Ég gerðist samt
svo djarfur að yfirgefa hana – um
skeið.
Ég flutti til Egilsstaða
(www.egilsstadir.is), þótt flestir
bærust með straumnum inn í
borgina en ekki út úr henni. Eg-
ilsstaðir voru 1.500 manna kaup-
staður (1991–1994), og nú er ég
spilltur borgarbúi sem fór að
heiman, og kom aftur breyttur.
Á Egils-
stöðum sner-
ist sjónar-
hornið. Oft
var t.d. hlá-
legt að hlusta
á þáttagerð-
arfólk í útvarpi láta eins og það
vissi ekki að rödd þeirra heyrðist
í öllum kaupstöðum, þorpum og
sveitum, og jafnvel í framandi
krummaskuðum og afdölum,
hvort sem það var nú súld eður
sól. Þetta heyrist enn; í sumar
þegar veðrið var sem best í borg-
inni en ekki svo gott annars stað-
ar misstu þáttagerðarmenn
stjórn á sér við að dásama veðrið
og ráðleggja öllum landsmönnum
að borða pasta undir berum
himni í suðrænu hádeginu. Heim-
ur þeirra var bara borgin ein, og
hugurinn komst ekki út úr henni.
En útsendingin náðist utanbæjar,
og veðrið eins og ævinlega
breytilegt eftir landshlutum.
Ég rak mig einnig á að ró-
semdin á Héraði var goðsögn.
Vinnutíminn var jafnlangur og í
borginni; fólk álíka upptekið og
önnum kafið. Ef ekki við brauð-
strit, þá í sveita síns andlitis í frí-
stundum. Minni tími fór aftur á
móti í snúninga á milli staða, og
því bættust óneitanlega við
nokkrar frímínútur á stundatöflu
daganna.
Eftir að ég flutti austur var ég
iðulega spurður hvaðan ég væri
og hverra manna en þegar eng-
inn kannaðist við ættirnar misstu
menn umsvifalaust áhugann og
sneru sér að öðrum umræðuefn-
um, eins og veðrinu.
Seinna áttaði ég mig á því að
spurningin var útpæld, því upp-
runinn var notaður sem hluti af
skýringu á hegðun eða skapi ein-
staklinga. Drengur var svona og
svona því að hann var þessara
eða hinna manna og frá einum
eða öðrum stað. „Já, hann er úr
Skriðdalnum,“ eða „Hann er úr
Jökuldalnum“ eða „Hann er son-
ur Binnu.“ „A-ha, ég skil,“ var þá
hiklaust svarað.
Þessi sterka tilhneiging var
mér algjörlega ný reynsla; að
heyra að uppruninn fylgdi ein-
staklingum eins og skugginn, og
að hann yrði ævinlega notaður
sem höfuðskýring á hegðun hans,
lunderni, skoðunum og duttl-
ungum. Mér finnst hér í raun um
verðugt rannsóknarefni að ræða.
Ég get fallist á að uppruninn hafi
einhver áhrif, en ég held að á
Austurlandi, og ef til vill víðar, sé
hann mjög ofmetinn. Enginn
botnaði neitt í mér.
Kostirnir við að búa í fámennu
samfélagi geta í einu vetfangi
breyst í grimma ókosti. Notalega
samfélagið, þar sem allir þekkja
alla og eru voða góðir, getur
breyst í fangelsi, oftast fyrir til-
stuðlan kjaftasögunnar. Það er
engin miskunn hjá Magnúsi;
hversu mikið sem einstaklingur
hefur lagt til samfélagsins og
verið vinsæll, lendi hann milli
tannanna á fólki er engin leið
fær. Ég lenti ekki í þessu, en
ólyginn sagði mér.
Þótt allt sé uppspuni færast
sögurnar bara í aukana og þrátt
fyrir menntun og fyrri störf
spyrja fáir sig þeirra augljósu
grunnspurninga sem nægja til
þess að afhjúpa lygina. Hver er
t.d. heimildin; hversvegna hefur
sögumaðurinn þetta ævinlega
eftir einhverjum öðrum? Í borg-
inni gerist þetta hjá víðfrægum
og á vinnustöðum en í þorpi er
ekkert skjól.
Ég tel að það fyrsta sem hin
umhugsunarverða landsbyggð,
eða „utanborgarsamfélag“, þurfi
að gera í viðleitni sinni að lokka
til sín nýja íbúa, sé að líta djúpt í
eigin barm. Meginverkefnið hjá
mörgum er að vinna bug á innri
ríg milli bæjarfélaga og nei-
kvæðu viðhorfi íbúanna. Skynja
má stundum skelfilega andúð
milli kaupstaða, t.a.m. milli Nes-
kaupstaðar og Egilsstaða. Rígur
er ógreinanlegt fyrirbæri, því
þeir sem haldnir eru þessum höf-
uðsjúkdómi leita sér ekki hjálpar
og kannast ekki við meinið í eigin
huga. Ég held að helst þurfi
langtímameðferð hjá fagmanni til
að kveða niður hrepparíg.
Þeir sem taka þátt í samfélag-
inu og hafa frumkvæði eru ómet-
anlegir í fásinninu. Þeir sem gera
eitthvað móta og ráða ferðinni en
gallinn er bara sá að þeir lötu
ráða líka. Ef dugnaðarforkur
opnar eina kaffihúsið á staðnum
og gefur menningunni nýja vídd,
þá geta letingjarnir eyðilagt
framtakið með því að sitja áfram
heima og hella sér upp á gamla
góða Kaaberkaffið eða Braga.
Eftir sjálfskoðun og sigurorð
af rígnum tel ég heillavænlegast
fyrir t.d. Egilsstaði að laða til sín
pör með börn á leik- og grunn-
skólaaldri. Foreldrar virðast
velja sér búsetu eftir öryggi
hverfa eða bæjarfélaga og gæð-
um skólastarfs. Öryggið heillar
þennan hóp, og fyrir þá eru ýms-
ir kaupstaðir til sjávar og sveita
góður kostur, ef innra lífið er í
jafnvægi, þannig að fólkið tolli
áfram.
Ég hélt á hinn bóginn heim
aftur til borgarinnar vegna þess
að (staðar)vitund mín var of
bundin henni. Ég saknaði lykt-
arinnar og að heyra í henni um-
ferðarniðinn og bílflautið, jafnvel
sírenur voru greyptar í hjóðkerfi
mitt. Það hljómar tvíbent að
sakna sírena sjúkra-, lögreglu-
og slökkviliðsbíla, því hljóðin vita
á ófarir annarra. En þessi hljóð
eru hluti af borginni. Svo er
ómenning borgarinnar einnig
óviðjafnanleg, ásamt skugga-
sundum hennar. Hún lokkar líka.
Utanborg-
arbúar
… að heyra að uppruninn fylgdi ein-
staklingum eins og skugginn, og að
hann yrði ævinlega notaður sem höfuð-
skýring á hegðun hans, lunderni, skoð-
unum og duttlungum.
VIÐHORF
Eftir Gunnar
Hersvein
guhe@mbl.is
TÖLUVERT hefur
aukist á undanförnum
árum að viðhöfð séu svo
kölluð einkafram-
kvæmd og alútboð við
undirbúning að bygg-
ingu opinberra mann-
virkja. Þessar aðferðir
geta verið góður hvati
og átt vel við ýmsar
framkvæmdir en þá að-
eins að matsferlið sé vel
undirbúið og taki til
allra þátta.
Í megin dráttum er
með einkaframkvæmd
átt við að verkefnið er
boðið út sem heildstæð-
ur pakki og skal bjóð-
andi leggja fram hönnun og lýsingu á
mannvirkinu í samræmi við forsögn,
en einnig kostnaðar- og oft rekstr-
aráætlun til ákveðins tíma. Alútboð
er grein af sama meiði.
Þegar meta skal marga þætti til að
velja verktaka verður ljóst hversu
nauðsynlegt er að fyrir liggi hvernig
menn hugsa sér að meta hlut hvers
þáttar; eins og hönnunarforsendur
(útlit, efnisval, endingu og notagildi),
heildarkostnað og rekstrarkostnað
(þar með talið viðhald). Vægi hvers
þáttar þarf því að liggja ljóst fyrir
þegar boðið er út, ef vel á að fara.
Í umræðum um tilboð í rannsókn-
arhús við Háskólann á Akureyri kom
fram hjá bjóðanda að hann teldi að
ekki bæri að meta arkitektúr tillagn-
anna „þetta væri ekki arkitektasam-
keppni“. Er semsagt hugsanlegt að
meta boð í að reisa hús án þess að
meta arkitektúr? Hvað þá í hús yfir
háskólastarfsemi inni á háskólalóð
þar sem fyrir eru önnur hús og sér-
stætt umhverfi? Auðvitað á það ekki
að vera hugsanlegt. Þá er eitthvað að
í okkar þjóðfélagi varðandi menningu
og metnað.
Ég var að fletta Tæknivísi, blaði
byggingartæknifræðinema, og las
frásögn Ólafs Gíslasonar byggingar-
verkfræðings um alþjóðlegt útboð og
forval vegna endurbyggingar frægs
brimvarnargarðs við Alderney í
Ermarsundi, skammt undan strönd
Frakklands. Þarna telur hann um all
einstakt og kostnaðarsamt verkefni
að ræða (Ístak tengist PIHL, einum
af fjórum völdum verktökum í for-
vali).
En það eru lokaorð hans sem vöktu
athygli mína í tengslum við það sem
hér er verið að fjalla um. „Hafnaryf-
irvöld hafa upplýst að þau muni meta
úrlausnir bæði út frá tæknilegu og
fagurfræðilegu sjónarmiði áður en
verðtilboð verða skoðuð.“ Hér er um
hafnargarð að ræða en ekki húsnæði
fyrir háskólastarf!
Margt hefur tekist
ágætlega við bundin út-
boð en við þurfum að
taka okkur tak og setja
markið hátt. Sem betur
fer er ýmislegt til um
menningarstefnu í
mannvirkjagerð og ým-
is markmið hafa verið
sett bæði hjá ríki og
borg.
Þetta kom ágætlega
fram á málþingi um
menningarstefnu í
byggingarlist sem hald-
in var í Norræna húsinu
23. nóvember 2001.
Margir aðilar stóðu að
málþinginu með fram-
kvæmdasýslu ríkisins í fararbroddi
(gögn á heimasíðu http://www.fsr.is).
Til þess að ná betri tökum á þess-
um þáttum og auka skilning á mik-
ilvægi fagurfræði í allri mannvirkja-
gerð og í manngerðu umhverfi er
stefnt að því að vinna að stefnumótun
hjá Reykjavíkurborg sem lýtur að yf-
irbragði og útliti hins manngerða um-
hverfis í borginni.
Í markmiðum aðalskipulags
Reykjavíkur 2001–2024 sem sam-
þykkt hefur verið í borgarstjórn er
undir markmiði 2. Að auka gæði
byggðar. Stefnt er að því að út komi
leiðbeiningarrit um:
a) Þróun og uppbyggingu
vistvænnar byggðar
b) Gæði byggðar í íbúðarhverfum
og á atvinnusvæðum
c) Mótun hönnunarstefnu
Reykjavíkur.
Eins og menn munu hafa þegar
tekið eftir eru notuð mörg mismun-
andi orð um þessa stefnumótun s.s.:
arkitektastefna, byggingarlistar-
stefna, hönnunarstefna, menningar-
stefna í byggingarlist og stefnumörk-
um varðandi hið manngerða
umhverfi o.fl. Rétt er að einfalda
þessa málnotkun þegar nánar verður
farið ofan í sauma stefnumörkunar.
Eins og ymprað er á hér að framan
hefur ýmislegt verið gert sem safna
þarf saman og ýmsar borgir og ríki
hafa mótað opinbera stefnu í bygg-
ingarlist sem læra má af.
Fyrir Akureyrarbæ var á árinu
2001 unnin tillaga að byggingarlista-
stefnu af Árna Ólafssyni arkitekt. Í
framhaldi stefnumörkunar verður að
liggja fyrir aðgerðaáætlun um fram-
kvæmd stefnunnar.
Í ljósi þess sem hér er til umræðu
er umfjöllun um fagurfræði í mann-
gerðu umhverfi nauðsynleg til að
forðast slys einmitt nú þegar mikið
stendur til við mannvirkjagerð bæði
hér í borg og annars staðar á landinu.
Hvað er átt við með arkitektúr-
stefnu eða menningarstefnu í mann-
virkjagerð?
Það er eins og áður hefur komið
fram stefna sem lýtur að yfirbragði
og útliti hins manngerða umhverfis
og um leið markmiðssetning um að
vernda það besta í arfinum, að al-
menningur geti notið þess besta í um-
hverfinu og hvetja til metnaðar við
alla mannvirkjagerð varðandi útlits
og umhverfisþætti.
Allt þetta tengist um leið kostnað-
arvitund og gildismati á manngerðu
umhverfi fyrir íbúa og gesti (ferða-
mennsku).
Ef notagildi, góð ending og fegurð
eru höfð að leiðarljósi skapar húsa-
gerðarlist menningu. Við skulum
hafa í huga að það sem skapað er í
dag verður umhverfi á morgun. Þess
vegna er húsagerðarlist bæði þýðing-
armikil og áhugaverð.
Eins og verk annarra „skálda“ eru
verkin ætluð öðrum til að njóta/nota
og lifa til framtíðar. Verk arkitekta
eru áleitin, ágeng og gjarnan varan-
legri en önnur „skáldverk“ og þurfa
því að vera undir gagnrýni og lúta
vissum aga.
Með menningarstefnu í byggingar-
list verður reynt að setja fram helstu
markmið sem geti stuðlað að góðu
manngerðu umhverfi fyrir íbúa borg-
arinnar og gesti hennar nú og til
framtíðar.
Það krefst þekkingar á bygging-
arlist og umhverfishönnun að móta
rammann og það þarf góð tengsl við
íbúa borgarinnar frá upphafi og síðar
einnig við útfærslu stefnunnar, ef vel
á að takast. Með stefnumörkun er
stefnt að því að borgararnir geti kom-
ið að mótuninni en það er samtímis
lögð á herðar þeirra viss ábyrgð á
eigin umhverfi.
Kynning og fræðsla varðandi mat á
gæðum í manngerðu umhverfi verður
því þýðingarmikill þáttur undirbún-
ings.
Stefnt er að samstarfi við ýmsar
stofnanir og félagasamtök við undir-
búning byggingarlistastefnu fyrir
Reykjavíkurborg og hefst sú vinna
nú á haustmánuðum.
Stefnumótun og
manngert umhverfi
Þorvaldur S.
Þorvaldsson
Byggingarlist
Með stefnumörkun, seg-
ir Þorvaldur S. Þor-
valdsson, er stefnt að
því að borgararnir geti
komið að mótuninni.
Höfundur er borgararkitekt.
VIÐ ERUM nógu
rík til að eiga Eyja-
bakka og Þjórsárverin
ósnert. Við þurfum
ekki að veðsetja eða
selja erfðagripina frá
okkur til að skrimta.
Ef jafnara væri skipt
lifðu allir Íslendingar
við munað.
Því er það ennþá
sorglegra að hlusta á
þokkalega greinda
menn tala um virkj-
anabröltið í Þjórsár-
verum sem bjargráð,
og horfa á ábyrga
stjórnmálamenn tví-
stíga við að taka heiðarlega ákvörð-
un í málinu.
Þegar rætt var á sínum tíma í
fullri alvöru um að ganga mun
lengra í að spilla Þjórsárverum til
vatnssöfnunar vegna stóriðju var
náttúruverndarmönnum stillt upp
við vegg. Eyðilegging veranna var
að öllum líkindum stærsti skaði
sem hægt var að vinna landinu til
orkuöflunar. Verndar-
sinnum var heldur
ekki sama um Eyja-
bakkana, en dæmið
var sett upp þannig að
annan kostinn skyldi
velja. Fyrir Lands-
virkjun voru fram-
kvæmdir við Eyja-
bakka næstvæn-
legastar.
Annar handleggur-
inn skyldi tekinn. Þeir
sem móti stóðu máttu
ráða hvort það yrði sá
hægri eða vinstri.
Þjórsárverin eru
griðland sem ekki má
snerta. Þau hafa verndargildi á
heimsmælikvarða.
Við undirritun Ramsarsáttmál-
ans skuldbinda Íslendingar sig til
að stuðla að skynsamlegri nýtingu
votlendis. Þjórsárverin voru síðan
lýst Ramsar-verndarsvæði 1990.
Þar megum við ekki raska vist-
fræðilegum eiginleikum nema að
skrá annað svæði jafnmikilvægt.
Ef við lifðum hér við hungurmörk
og álbræðsla væri síðasta bjargráð-
ið horfði málið kannski öðruvísi við.
Ísland er í 7. sæti hvað varðar
velferð í heiminum.
Á tímum góðæris eigum við ekki
að drýgja þann óvinafagnað að
fórna landgæðum fyrir umdeildan
og mjög vafasaman stundarhagnað.
Við erum nógu rík
Höfundur er
kvikmyndagerðarmaður.
Virkjanir
Á tímum góðæris eigum
við ekki að drýgja þann
óvinafagnað, segir Páll
Steingrímsson, að fórna
landgæðum fyrir um-
deildan og mjög vafa-
saman stundarhagnað.
Páll Steingrímsson