Morgunblaðið - 28.08.2002, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 28.08.2002, Qupperneq 42
42 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. AF UMRÆÐUNNI um einkadans á nektardansstöðum mætti ráða að eigendur og verjendur þessara staða upplifðu sig sem eins konar riddara frelsis og mannréttinda. Það er mesti misskilningur að það eigi að loka nektardansstöðum, það á hins vegar að gera kúnnum erfiðara fyrir að nálgast líkama og persónu stúlkn- anna sem þar dansa. Af umræðunni að dæma mætti einnig halda að verið væri að kyrkja frelsi athafnalífsins, en hið rétta er að áfram geta karlar drukkið eins mikið áfengi og áður og horft á eins margar naktar stúlkur og áður eins lengi og þeir vilja og stað- urinn græðir áfram. Eini munurinn er sá að kúnnarnir verða að vera margir saman í stórum sal við þetta áhugamál sitt í stað þess að vera einir afsíðis í litlum klefa með naktri stúlku. En það sem mér finnst áhugaverð- ari spurning er þessi: Hvað varð um borgaraleg réttindi mín eftir að helstu skemmtistaðir borgarinnar breyttust í nektardansstaði og á svip- stundu varð ég „persona non grata“, og fæ ekki inngöngu vegna kynferðis míns? Óðal, Las Vegas, Þórskaffi og sennilega fleiri, þetta eru skemmti- staðir sem fyrir nokkrum árum buðu bæði kynin velkomin en nú eru kven- kynsgestir ekki velkomnir þar leng- ur. Í anddyri sumra ef ekki allra stað- anna er skilti sem hreint og beint segir; karlakvöld, og það eru öll kvöld karlakvöld á nektardansstöðunum. Mér finnst ástæða til að borgaryf- irvöld kanni hvort þessir starfshættir eru ekki brot á borgaralegum rétt- indum helmings skattborgaranna. Ef til vill er einnig ástæða til að jafnrétt- isnefnd borgarinnar kanni málið. HALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR, Laufásvegi 6, Reykjavík. Brot á jafnréttislögum? Frá Halldóru Halldórsdóttur: EKKI veit ég hvað ykkur gengur til OMEGA-mönnum að halda uppi þessum dæmalausu rangfærslum, í lygum og útúrsnúningum í málum Palestínu og Ísraels. Þið haldið því fram að þið séuð þeir einu sem eitthvert vit hafi á þessum deilum. Allir aðrir beiti rangindum í fréttaflutningi sínum og séu andsnúnir Ísrael. Þegar þið talið um Palestínumenn eru þeir upp til hópa hryðjuverka- menn, líkast til komnir frá þeim illa. En þegar þið ræðið um Ísrael eru þeir „Guðs útvalda þjóð“ að verja hendur sínar og lendur. Þeir fremja það sem þeir gera af nauðsyn – þeir eru nefnilega „Guðs útvalda þjóð“ og geta því og mega gera það sem þeim sýnist, hversu óguðlegt og óskiljanlegt það er. (Jóh. 8:44.) Það fylgdu og fylgja því skyldur og ábyrgð þegar Guð Ritningarinn- ar kallaði Ísrael og Ísraela „sitt fólk og sína Þjóð“. Þessi boð Guðs hafa þeir brotið aftur og aftur. Þeir eru nú ekki frekar Guðs þjóð en hver önnur sem heldur boðorð hans. (Jes- aja 1: 2–5 & 1:14–20.) Í dag er Ísrael eitt mesta herveldi í heiminum, með annað á bak við sig (Bandaríkin), og þeir setja sér það markvisst að útrýma þjóð sem þeir hafa kúgað, undirokað og smánað kynslóð eftir kynslóð. Þeir hafa alið upp palestínsku þjóðina í hatri og nú uppskera þeir það sem þeir hafa til sáð; hatur þeirra, alla þá litlu mót- spyrnu sem þeir geta veitt. Það reynist nú Ísrael súr ávöxtur. Að þessi þjóð, gyðingar, sem fyrir aðeins um 60 árum mátti þola pynt- ingar og yfirgang, skuli í dag gera sig seka um svipaða hluti er alveg óskiljanlegt. Jesús grét yfir Jerú- salem. Ég er viss um að í dag græt- ur hann yfir þessari þjóð sinni. (Matteus 23: 32–34 & 23: 37–39.) Ísraelum nægir ekki að skjóta og drepa. Þeir finna einnig þörf hjá sér til að eyðileggja sem allra mest. Þeir ráðast á sjúkrahús, þeir meina að reynt sé að koma særðu og látnu fólki af götunum. Þeir sprengja upp skóla, brýr og þeir ryðja í sundur götur og valta yfir hús borgaranna með skriðdrekum sínum. Ekkert hefur þetta neina „hernaðarlega“ þýðingu. Ástæðan virðist vera sú ein að valda sem mestum þjáningum, ótta, glundroða og vonleysi. Hvað er þessi „útvalda þjóð“ að gera? Og hvað er heimsbyggðin að gera? Ekki neitt – þessum hryllingi er haldið áfram og heimurinn horfir á og leyfir það. En Guð sér þetta og Hann mun gera það sem gera þarf. Í dag eru Ísraelar máttug þjóð, en þeir hafa gleymt Guði sínum, einu sinni enn. Þeir halda örugglega samkomur sínar og lofa Guð, en það mun ekki nægja þeim. Verk þeirra verða met- in af Guði og Hann mun ekki láta þetta viðgangast. Hann er góður Guð og Hann er kærleiksríkur og langlyndur Guð, en Hann mun taka í taumana, Hann hefur ekki velþókn- un á verkum Ísraels í dag. Hafið þetta í huga OMEGA-menn þegar þið notið aðstöðu ykkar til að varpa yfir þjóðina rangindum ykkar, ofstopa og óhróðri. Munið að Guði er ekkert ómáttugt og hann mun taka til sinna ráða, ef þið ekki linnið þessum rangindum og lygum ykkar. Hann mun ekki leyfa ykkur að halda þessu áfram. Guð vill, og hefur alltaf viljað rétt- læti. Það, að horfa á ykkur sitja fyrir framan myndavélarnar ykkar, með Ritninguna á milli ykkar, lesandi upp afbakaðar setningar teknar úr öllu réttu samhengi er illt – en verra er að sjá hrokann og merkilegheitin og sjálfsánægjuna sem af andlitum ykkar skín, og hlusta á það sem af munni ykkar gengur – það er meira en illt – það er afskaplega sorglegt. Ég trúi að það muni verða stöðvað. GUÐRÚN Á. RUNÓLFSDÓTTIR, Mánabraut 19, Kópavogi. Opið bréf til útvarps- stöðvarinnar Omega Frá Guðrúnu Á. Runólfsdóttur:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.