Morgunblaðið - 01.09.2002, Qupperneq 14
Ný og glæsileg
hljómtækjalína frá Alpine.
Ný
árge
rð
Réttu græjurnar!
Fiat Stilo
1.6 Dynamic
Vel búinn
og rúmgóður
fólksbíll.
ALFA Romeo 156 hefur fengið andlitslyftingu og
mun meiri búnað. Auk þess er núna grunnvélin 1,8
lítra en ekki 1,6 lítra eins og áður og tveggja lítra
vélin er nú aflmeiri. Allar gerðir bílsins hafa nú
tölvustýrða miðstöð og í Lusso 2,0 l eru Bose-
hljómtæki. Þá er í bílnum ný kynslóð af Selespeed-
gírskiptingunni sem felur í sér venjulega sjálfskipt-
ingu eða takkaskiptingu í stýri líkt og í Formula 1-
bílum. Verðið á 156 er frá 2.390.000 kr.
Alfa Romeo 156 breytt
JOHN Dingell öldungadeildarþingmaður hyggst
leggja fram frumvarp á Bandaríkjaþingi sem myndi
auðvelda sölu á dísilknúnum bílum í landinu. Bíla-
iðnaðurinn þar í landi er því fylgjandi að dísilknúnir
bílar verði fáanlegri í Bandaríkjunum en umhverf-
isverndarsamtök hafa sett sig upp á móti því. Þótt
dísilvélar mengi aðeins brot af því sem þær gerðu
áður fyrr hefur salan á dísilbílum verið takmörkuð
með reglugerðum við 1% af heildarsölunni í Banda-
ríkjunum.
Volkswagen er eina fyrirtækið sem selur fólks-
bíla með dísilvélum í landinu. Bob Lutz, stjórn-
arformaður GM, hefur sagt að fýsilegt væri að
auka hlut dísilbíla því með því móti mætti draga úr
eldsneytisnotkun um 10–15% á ári án þess að
breyta stærðarsamsetningunni á bílaflotanum.
Frumvarp um dísilnotkun í
Bandaríkjunum
NÝJASTI jeppinn frá
Nissan heitir Murano og
er enn sem komið er
ekki til sölu í Evrópu. Í
Bandaríkjunum fæst
hann hins vegar og að-
eins framhjóladrifinn.
Þetta er laglegur sport-
jeppi og vélin er sú
sama og í Nissan Max-
ima QX, þ.e. 3,5 lítra,
V6, sem í Murano er látin skila
240 hestöflum. Bíllinn er með
þreplausri cvt-skiptingu sem
Nissan hefur nýlega framleitt
sérstaklega fyrir Murano. Þetta
er í fyrsta sinn sem Nissan býð-
ur upp á reimskiptingu í bíl í
Bandaríkjunum.
Til að átta sig á stærð
Murano má geta þess að hann
er jafnlangur og Terrano II og
hjólhafið hið sama. Hann er á
hinn bóginn 10 cm breiðari enda
virkar hann stöðugur á að líta. Í
Bandaríkjunum eru keppinaut-
arnir BMW X5 og Mercedes-
Benz M. Af þeim sökum er
vandað til innanrýmisins í
Murano. Sæti er hægt að stilla á
átta mismunandi vegu, í bílnum
eru hágæðahljómtæki og pedala
er hægt að stilla eftir hæð öku-
manns með rafstýringu. Búnað-
urinn man svo óskastillingu sér-
hvers ökumanns.
Murano er næstum 4,80 m á
lengd og er í raun mitt á milli
þess að vera fjölnotabíll og lang-
bakur. Nissan áætlar að selja 55
þúsund bíla á fyrsta árinu.
Murano – sá nýj-
asti frá Nissan
Óvíst er hvort Nissan Murano komi á markað í Evrópu. Línurnar í Murano eru ávalar.
Murano er sportlegur að innan. 240 hestafla, V6 vélin ætti að
duga vel í Murano.
HYUNDAI XG350 var kynntur ný-
verið en honum er ætlað að leysa
Hyundai XG300 af hólmi. Með nýja
bílnum hyggst Hyundai veita bílum á
borð við Honda Accord, Toyota
Camry og Nissan Altima harða
keppni og leggur þar áherslu á gæði
og ríkulegan búnað fyrir gott verð.
Stærsti utanlandsmarkaður fyrir
XG350 er Bandaríkin. Nýi XG350-
bíllinn er búinn 3,5 lítra V6-vél sem
er mun öflugri en sú vél sem var í
gamla XG-bílnum. Vélin skilar um 194
hestöflum við 5.500 snúninga. Þá
hefur innra rýmið verið tekið í gegn
og ýmis þægindi aukin verulega. Lögð
er áhersla á góðan öryggisbúnað og
auk hefðbundinna líknarbelgja eru
belgir í hliðum og sætisbeltin búin
strekkjurum.
Hyundai XG350
SALA hefst á tveggja sæta Smart-sportbíl
næsta sumar í Evrópu. Þeir eiga fátt sameig-
inlegt í útliti upprunalegi Smart-kubburinn og
þessi rennilegi, opni sportbíll. Auk þess að líta vel
út hafa hönnuðir líka hugað vel að öryggi þeirra
sem ferðast í bílnum því eftir honum endilöngum
er öryggisrammi sem ver farþega ef bíllinn skyldi
velta. Yfirbyggingin er úr plasteiningum og auð-
velt er að skipta þeim út til að breyta um lit á
bílnum. Einnig verður sett á markað hlaðbaks-
gerð sem kallast Roadster Coupe sem verður
með meira farangursrými. Vélin er sú sama og í
Smart, þ.e. 698 rsm, þriggja strokka vél sem skil-
ar samt 80 hestöflum og hámarkshraðinn er 100
km á klst.
Smart-sportbíll næsta sumar
GENERAL Motors ætlar að kanna viðbrögð evrópskra við Hummer H2 á bílasýningunni í París í sept-
ember. GM, sem ekki hafði í hyggju að flytja bílinn út til Evrópu, hefur áhyggjur af því að grái markaður-
inn muni blómstra með þennan bíl. Af þeim sökum er hugsanlegt að útvöldum GM-umboðum í Evrópu
verði leyft að flytja inn bílinn. Ef eftirspurnin verður næg gæti GM sóst eftir gerðarviðurkenningu fyrir
hann í Evrópu, en ljóst þykir að með aðflutningsgjöldum mun H2 vart kosta undir 5,5 milljónum ÍSK.
Wieck
H2 sýndur í París
Risafjárfesting
Toyota í Kína
TOYOTA hefur ákveðið að fjárfesta 2,5
milljarða dollara í Kína til að framleiða
með First Auto, stærsta bílaframleið-
anda landsins, 400 þúsund bíla á ári.
Framleiðslan á að vera komin upp í
þetta magn árið 2010. Um er að ræða
smábíla, millistóra bíla og jeppa. Því er
spáð að Kína verði stærsti bílamark-
aður heims eftir 25 ár.